Morgunblaðið - 14.04.1991, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 14.04.1991, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ AFMÆLI SUNNUDAGÚR 14. APRÍL 1991 C 11 Afmæliskveðja: Jóhannes Jóhanns- son frá Goddastöðum Jóhannes Jóhannsson stórfrændi minn frá Goddastöðum í Laxárdal á afmæli í dag og telur nú 90 ár að líta baka til. Ekki kann ég skil á hversu mörg hjartaslög eru í 90 árum, en sannarlega siær hjarta Jóhannesar örugglega, sem betur fer, því söknuður mikill verður að slíkum höfðingja. Merkileg samt er Umhverfísráðuneytið: Ónýt mannvirki fjarlægð eða rifin SKIPUÐ hefur verið nefnd til að kanna mannvirki, sem æskj- legt væri að fjarlægja og er nefndinni jafnframt ætlað að gera framkvæmdaáætlun fyrir slíka hreinsun. Gert er ráð fyrir að kannaðar verði ónýtar byggingar á jörðum svo sem íbúðarhús, útihús, gamlar fjárborgir og mannvirki frá stríðsárunum. Gamlar bryggjur, braggar, skúrar og trönur, sem enginn hefur lengur hag af og eng- inn ber ábyrgð á. Bátsflök og ann- að drasl í fjörum, girðingar og margs konar dót, sem skilið hefur verið eftir á eyðijörðum. Nefndinni er ætlað að leita upp- lýsinga um ofangreind atriði og meta umfang og kostnað við að framkvæma landhreinsunina og er henni því nauðsynlegt að eiga gott samstarf við sveitarfélögin í landinu, segir í frétt frá ráðuneyt- inu. Nefndina skipa Hrafn Hailgríms- son arkitekt, umhverfísráðuneyti, formaður, Gunnar M. Jónasson Stofnlánadeild landbúnaðarins, Magnús Sigsteinsson ráðunautur Búnaðarfélagi íslands, Níels Árni Lund deildarstjóri landbúnaðar- ráðuneytinu, Gísli Einarsson odd- viti, Samband ísl. sveitarfélaga og Sigtryggur Stefánsson tæknifræð- ingur, Akureyri. Bók um af- brot og refs- ingar á 19. öld ÚT er komið ritið „Því dæmist rétt vera. Afbrot refsingar og íslenskt samfélag á síðari hluta 19. aldar," eftir dr. Gísla Ágúst Gunnlaugsson lektor í sagnfræði við Haskóla Islands. Ritið er hið 28. í ritröðinni Ritsafn Sagn- fræðistofnunar, en ritstjóri henn- ar er Jón Guðnason prófessor. í ritinu er fjallað um félagssögu- legar rannsóknir á afbrotum og refsingum erlendis og hérlendis. Meginviðfangsefni höfundar er að leita svara við spurningunni: hvað segja afbrot og refsingar okkur um •íslenska samfélagsgerð fyrr á tímum? í ritinu er gerð úttekt á því hvers konar mál komu fyrir rétt í þremur sýslum á síðari hluta 19. aldar. Valdir málaflokkar eru at- hugaðir sérstaklega. Þeir eru: Hór- dómur og legorð, dulsmál, brot á atvinnuuréttindalöggjöfinni, þjófn- aðir og skuldamál. í ritinu, sem er 100 blaðsíður og dreift af Sögufélaginu, Garðastræti 13b, er sérstakur kafli um réttarvit- und og refsiviðhorf. þessi „maskína" sem stjórnar gang- verki okkar og veit ég enga vél endingarbetri. Ég er nú ugglaust að gera frænda mínum grikk með þessari tímamóta tilkynningu, en það er nú allt í besta lagi. Jóhannes er fæddur á Goddastöðum i Laxár- dal, einn margra systkina, fólk var fijósamara í þá daga. Hann hleypti heimdraganum á ungum aldri til Holaskóla, þar sem hann útskrifað- ist, var með bestu nemendum a.m.k. í reikningi, lærði prósentureikning- inn og gerðist síðan kaupmaður í höfuðborginni. Best mun Jóhannes kaupmaður þekktur — af eldri kynslóðinni að sjálfsögðu — þar sem hann rak sína verzlun og höndlaði lengst af á Grundarstíg 2. Það sem alla tíð hefur einkennt Jóhannes er hjálp- semi hans, bæði við viðskiptavini sína, sem mjög oft voru greiða þurfi, þar með taldir m.a. Verslun- arskólanemar, sem margir hafa orðið þekktir í þjóðlífi voru. Og aldr- ei stóð á að styðja við sína nán- ustu, enda venjulega til hans leitað. Jóhannes var einn af stofnendum samtaka íjögurra kaupmanna, gert til að ná niður vöruverði, sem þeir kölluðu „Litla bandalagið“, e.t.v vísir að stórmarkaðsverðlagningu. Ég á Jóhannesi margt og mikið að þakka, sem ég hirði ekki að rekja hér, en eitt er víst, að lifi ég hann — því enginn veit sína ævina — þá mun ég lengi sakna þessa góða heiðarlega og ætíð hressa manns. Handtak hans er nú, sem ávallt fyrr, jafn þétt og fast, sem sýnir hvað bak við býr. Ég vil óska Jóhannesi til ham- ingju með þennan áfanga um leið og ég vil þakka honum fýrir allt og allt bæði fyrir mig og alla aðra lífs og liðna. Það verður heitt á könnunni á Víðimei 64 hjá dótturinni Guðrúnu og Skúla manni hennar, þar sem Jóhannes dvelur nú. Ég óska þér frændi til hamingju með áunninn sigur. Lif heill til fordæmis. Haraldur Lýðsson m FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á AKUREYRI Tilkynning f rá slysadeild FSA Þann 16. apríl nk. kl. 8.00 (f.h.) flyt- ur slysadeild FSA starfsemi sína í nýtt húsnæði. Slysadeildin verður framvegis staðsett í suð-vestur horni nýbyggingar sjúkrahússins (áður inngangur göngudeildar). Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri Elsku börnin mín, tengdabörn , bárnabörn og barnabarnabörn, Soroptimistasystur, œttingjar og vinir, innilegar hjartans þakkir til ykkar allra fyrir gjafir skeyti og annan heiður sem þið sýnduð mér þ.m.t. skemmtiatriði í tilefni 85 ára afmœlis míns þann 6. apríl. Guð blessi ykkur öll. Kœr kveðja. Málfríður Stefánsdóttir, Hrafnistu, Hafnarfirði. TILBOÐ ÓSKAST í Dodge Ram 50 P/U 4x4, árgerð ’87, Chevrolet P/U Silverado, árgerð '87, og aðrar bifreiðar, er verða sýndar á Grensásvegi 9, þriðjudaginn 16. apríl kl. 12-15. Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16. Sala varnarliðseigna GLÆSILEGIR KVENSKÓR TEG: 9173 TEG: 9171 TEG: 9201 TEG:9220 LITIR: SVART LEÐURSÓLIOG GULLLITUÐ TÁ VERÐ: 7.290 kr. LITIR: SVART LEÐUR LEÐURSÓLI VERÐ: 6.990 kr. LITIR: SVART LEÐURSÓLI VERÐ: 6.990 kr. LITIR: SVART RUSKINN MEO GULLLITUÐUM HÆL VERÐ: 7.290 kr. TEG: 814 TEG: 8169 TEG: 9211 TEG: 9233 LITIR: SVART RUSKINN LEÐURSÓLI VERÐ: 7.290 kr. LITIR: RAUTT 0G SVART RUSKINN LEÐURSÓLI VERÐ: 6.990 kr. LITIR: RAUTT,SVART 0G FJOLUBLATT . LEÐURSÓLI VERÐ: 6.990 kr. LITIR: FJOLUBLÁTT OGSVART VERÐ: 6.990 kr. TEG: 8001 TEG: 8178 TEG: 9177 TEG: 9183 LITUR: SVART/BRUNT. SVART/SVART SVART/GRÆNT VERÐ: 6.690 kr. LITUR: BRUNT OG SVART VERÐ: 6.890 kr. LITIR: DÖKKBLÁTT,BRÚNT 0G SVART VERÐ: 6.490 kr. LITIR: SVART0G BRUNT VERÐ: 6.690 kr. NY SENDING AF GLÆSILEGUM KVENSKOM FRA SPANI. STÆRÐIR 3 - 8 í HÁLFUM OG HEILUM NÚMERUM. 14 ^PÓSTSENDUM Skór á allo íjölskylduna.. AUAll LAUGAVEGI 95 aSa 62 45 90

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.