Morgunblaðið - 14.04.1991, Blaðsíða 9
^ Ca 9
MÖfi'GUNÖtÁÖÍÖ'
MANNLfFSSTRAMffAR^WAGW
l’4: AÖIi'ÍL í991
LÆKNISFRÆÐI/L^ó* drepsóttir enn
lausum hala?
KÓLERAN
BREIÐIST ÚT
Kólerusýklar
meira. Hann getur flogið til útlanda
á hverju ári. Eg lifi við sult og seyru.
Halur er heima hver
Erindin búa líka yfír annarri
speki, „halur er heima hver“. En
það merkir að hver maður sé sinn
eigin herra, Við ráðum okkur sjálf.
Hugsið ykkur ef við værum þrælar
eða þegnar ókunnra konunga.
Hvernig væri lífið ef við ættum
hvergi höfði okkar að halla. Ef við
værum alltaf erlendis, útlendingar
í eigin iandi. Það væri ekki björt
tilvera.
Það sem skiptir mestu máli fyrir
sérhvem mann, er að vera herra
yfir sjálfum sér. Sá sem ræður ekki
yfir ástríðum sínum og lætur
stjórnast af öðrum á ekki neitt, því
hann á ekki sjálfan sig. Það tilheyrir
aftur á móti æðstu dyggðum að
þekkja sjálfan sig og ráða yfir
sjálfum sér. Eign á sjálfum sér er
forsenda alls og frumskilyrði
eignaréttar. Eignin byggist á
sjálfsþekkingu, sjálfstrausti,
sjálfsvirðingu og viðhorfi.
„Bú er betra þótt lítið sé...
halur er heima hver“, merkir þá að
sá sem á eitthvað, hann er eitthvað.
Sá sem á lítið bú, ræður þó yfir
því og sá sem á sjálfan sig, ræður
yfir sjálfum sér. Hamingjan ræðst
ekki af stærð búsins og það ræður
ekki úrslitum hvort maður sé ríkur
eða fátækur, heldur viðhorf okkar
til þess sem við eigum. Boðskapur
erindanna er einfaldur: Njótið og
þakkið fyrir landið, lífið og frelsið.
Speki: Að vera er að eiga, hve
lítið sem það er.
egar spanska veikin geisaði
þér 1918 var leiðinni um
Suðurland austanvert lokað við
Jökulsá á Sólheimasandi og plág-
an komst ekki lengra.
Svipuð voru
áform nágranna-
ríkja þegar kólera
kom upp í Perú
nú í ársbyrjun og
sagt var frá í
þessum pistlum
ekki alls fyrir
löngu. En þótt
landamæralínur
megi sín mikils standa þær ís-
lenskum jökulvötnum ekki á
sporði; nú er kóleran tekin að
heija á íbúa Ekvadors og Kólumb-
íu en þaðan falla vötn til austurs
og þykir líklegast að pestin mjaki
sér niður eftir mestallri Suður-
Ameríku á næstu mánuðum. Níu-
tíu þúsundir hafa veikst nú þegar
og rúmlega 500 manns látið lífið.
Þýski læknirinn Robert Koch
sem fann berklabakteríuna árið
1883 lét skammt stórra höggva
milli. Ári síðar fann hann kóleru-
sýkilinn og gerði sér ljóst hvernig
hann berst í mat og drykk sem
hefur mengast af saur kóleru-
sjúklinga, oftast vegna þess að
úrgangi er veitt út í fljót eða höf
og vatnið úr þeim síðan notað
eins og það kemur fyrir.
Heilbrigðisráðherrann í Perú
ávarpaði landa sfna í fjölmiðlum
þegar fréttist að kólera væri á
ferðinni og tók þeim vara fyrir
að borða hráan fiskrétt sem er
svo vinsæll í Limu að í hann fara
75 hundraðshlutar alls fiskmetis
sem borgarbúar leggja sér til
munns. Þá komst pólitíkin í mál-
ið, því að við sjávarútvegi Perú-
manna blasti algert hrun ef eng-
inn þyrði lengur að borða hráa
fiskinn. Útgerðarmenn gengu á
fund forseta landsins og báru sig
svo illa að hann og frú hans komu
í sjónvarpið, borðuðu fiskinn góða
fyrir framan, myndavélarnar og
sögðu enga hættu af því stafa,
svo framarlega sem hreinlæti
væri viðhaft.
Þetta var nú allt gott og bless-
að og engu logið. En sannleikur-
inn var ekki nema hálfsagður;
oftast er hrái fiskurinn matbúinn:
í einskonar pylsuvögnum á götum
úti og étinn þar. Allan guðslangan
daginn er skolað af diskunum í
sömu uppþvottaskjólunni en aldr-
ei skipt um vatn og má nærri
geta að sýklar eru þar tíðir gest-
ir. Nokkrum dögum eftir að for-
setahjónin fengu sér bita í allra
augsýn kom í ljós að tala kóleru-
sjúklinga hafði því nær tvöfaldast
á skömmum tíma. Má vera að hún
hefði gert það hvort sem var, en
heilbrigðisráðherrann reifst og
skammaðist og hafði það eitt upp
úr krafsinu að vera rekinn.
Kólera þrífst hvergi nema í
bágindum örbirgðar og óþrifnað-
ar, og tilskipanir um hreinlætis-
og varúðarráðstafanir fá litlu
áorkað meðal milljóna sem aldrei
hafa komist upp í þrjú þúsund
kröna tekjur á mánuði. Lítrinn
af steinolíu sem þarf til að sjóða
drykkjarvatnið hækkaði 1íka um
daginn úr sextán krónum
í sextíu.
Flest ríki sunnar og austar í
álfunni vígbúast nú sem óðast
gegn yfírvofandi innrás kólerunn-
ar. Alstaðar er lögð áhersla á
tvennt: Sjóðið allt neysluvatn og
þvoið ykkur vel og vandlega um
hendur eftir hverja klósettferð. -
Á þeim svæðum sem ætla mætti
að lægju best við höggi kólerunn-
ar eru sérmenntaðar heilsugæslu-
sveitir á verði og munu freista
þess að hefta útbreiðslu hennar
eftir mætti þegar þar að kemur.
Brasilía sendi Perú fimmtán
smálestir af lyfjum og hjúkruna-
rvörum og kom það sér vel því
að flest sjúkrahús í landinu eru
yfirfull af kóleruveiku fólki og
mörg þeirra voru vanbúin að
mæta vágestinum fyrirvaralítið.
Það vekur því undrun og aðdáun
að einungis sex af hverju þúsundi
sjúkra hafa látist. Það hefði ein-
hvern tíma hljómað eins og
skröksaga.
eftir Þórarin
Guðnason
þó að bæta því við að nú er reynt
að finna leiðir til úrbóta. Verið er
að Ieggja vatnsleiðslu 190 km leið
en til þess að það vatn komi að tilætl-
uðum notum þarf að losna við salt-
mengunina úr andrúmsloftinu fyrst.
Draga á úr baðmullarframleiðslunni
og efla aðrar atvinnugreinar á svæð-
inu. Áveituskurði á að fóðra með
plasti og hella steinsteypu í stærstu
áveituskurðina svo vatnið komist á
áfangastað. Með þessu vona menn
að hægt verði að stöðva eyðingu
Aralvatns og auka vatnsmagn þess
um 21 ferkílómetra á ári. Áhrifa
þessara ráðstafana er þó ekki að
vænta fyrr en í fyrsta lagi árið 2005.
Hvað má af þessarri reynslu læra?
Stórfljót og ár eru lífæðar sem ekki
má raska með stórtækum fram-
kvæmdum nema séð hafi verið fyrir
um afleiðingarnar. Vatn er ein frum-
forsenda lífríkisins og maðurinn
' verður að höndla það af varúð. Sag-
an um örlög Aralvatns er víti til
varnaðar og þess vegna er vakin
athygli á þeim hér. (Stuðst við
National Geografic.)
Endurbirt grein vegna mistaka
síðastliðinn sunnudag.
18 9 1-19 9 1
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
199 i—
Auglýsing frá
Orlofssjóði VR
ORLOFSHÚS VR
Dvalarleyfi
Auglýst er eftir umsóknum um dvalarleyfi í orlofshúsum VR sumariö 1991. Umsóknir á þar til gerðum
eyðublöðum þurfa að berast skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar 8. hæð í síðasta lagi 19. apríl 1991.
Orlofshús eru á eftirtöldum stöðum:
1 hús í Ölfusborgum
6 hús i Húsafelli í Borgarfirði
1 hús í Svignaskarði í Borgarfirði
2 hús á lllugastöðum í Fnjóskadal
1 hús í Vatnsfirði, Barðaströnd
2húsá Einarsstöðum, Suður-Múlasýslu
3húsá Flúðum
10 hús í Miðhúsaskógi, Biskupstungum
3 íbúðir á Akureyri
Aðeins fullgildir félagar hafa rétt til dvalarleyfis. Þeir sem ekki hafa dvalið sl. 5 ár í orlofshúsum á tíma-
bilinu 1. júlí til 23. ágúst sitja fyrir dvalarleyfum. Hafi ekki verið gengið frá leigusamningi fyrir 17. maí
n.k. fellur úthlutun úrgildi. Dregið verður milli umsækjendaef fleiri umsóknir berasten hægt er að verða
við. Verður það gert á skrifstofu félagsins laugardaginn 11. maí n.k. kl. 14 og hafa umsækjendur rétt til
að vera viðstaddir.
Sérstök athygli er vakin á því að umsóknir verða að berast skrifstofu
Verzlunarmannafélags Reykjavíkur í síðasta lagi föstudaginn 19. apríl n.k.
Umsóknareyðublöð eru afhent á skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar, 8. hæð. Ekki verður
tekið á móti umsóknum símleiðis.