Morgunblaðið - 14.04.1991, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 14.04.1991, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 14. APRÍL 1991 C 15 Minning: Ragnheiður Guðmunds- dóttirfrá Mosvöllum Fædd 25. október 1902 Dáin 7. apríl 1991 Við hittumst fyrir um það bil hálfri mannsævi, á tröppum húss hennar í Laugarnesinu. Ég var feimin en svolítið framhleypin skólastelpa, bálskotin í yngsta: syni hennar, átti við hann erindi sem hún tók að sér að hafa milligöngu um. Það fyrsta sem ég man eftir var brosið hennar bjart og milt í umgjörð hógværs virðuleika og óendanlegrar rósemi. En það sem snart mig djúpt var einhvers konar tær, einlægur trúnaður hjartans, þess konar sem maður kynnist sjaldan á lífsleiðinni. Það var fyrir þennan trúnað sem þarna myndaðist náið samband sem aldrei rofnaði, hvert Sem lífið síðan leiddi okkur. Fyrir það er ég inni- lega þakklát. Ég gleymi aldrei hrifningu Maríu ömmu minnar, sem líka var mjög góð og vitur kona, eftir fyrstu kynni þeirra. Hún sagði: „Hún brosir eins og fólk á að brosa,“ og ég skildi að þarna höfðu mæst tveir jafningjar í andanum. Hún Ragnheiður Guðmundsdótt- ir, elskuleg tengdamóðir mín fyrr- verandi og vinur í lífínu, hefur ver- ið brott kölluð. Hún er nú í hópi kærra ástvina sinna, þeirra sem farnir voru á undan og sem hún þráði svo mjög að sameinast, eink- um síðustu misserin. Við sem unn- um henni og nutum umhyggju hennar og fyrirbæna sitjum nú hljóð. I söknuðinum finnum við fangið barmafullt af minningum, sem ylja og fá okkur til að hugleiða. Sumir eru gæddir þeirri náðar- gáfu að geta gert hið hversdagslega hátíðlegt og hið smáa stórt, gæddir þeirri hreinræktuðu lifandi gæsku sem blæs lífi í umhverfi sitt, því blíða og bjarta sem gerir alla hluti ógleymanlega en er um leið svo hógvært að við veitum því varla athygli meðan við stöldrum við; okkur finnst bara allt í einu að við sjálf séum orðin góð og að flestir vegir séu okkur færir. Ragnheiður hafði þennan göfuga fögnuð sköpunarinnar, gladdist svo einlæglega og oft yfir því sem aðr- ir tóku lítið eftir. Hún var sífellt að smábreyta til í íbúðinni, setja þessa mynd á annan stað, alltaf var nýtt blóm að springa út, nýr frjó- angi að skjóta Upp kollinum. Ferðir hennar út í búð létu lítið yfír sér en urðu sem annað tilefni undra og ævintýra; fjarrænir lokkandi ávextir eða marglitar smákökur, smurt brauð með nýtilbúinni rúllu- pylsu, ævinlega var eitthvað spenn- andi á eldhúsborðinu — einföldustu hluti gerði hún ógleymanlega. Það ljómaði allt fyrir hrifningu hennar, og maður skildi elsku Guðs þegar hann sagði: Berið dýrð minni vitni. Að koma til þeirra Ólafs, hennar elskulega lífsfélaga, var fyr- ir okkur lífsþreytt, glysgjarnt nútímafólkið á spretti í lífsins vafstri, eins og að hitta sjálfan sig fyrir, maður fann straum einhvers háleitara en þess sem við erum sjálf: við urðum aftur að börnum og glöddumst með glöðum. Við drúpum höfði í lotningu fyrir henni, lífsins spekingnum, í djúpu þakklæti okkar yfir að fá að hafa verið aðnjótandi elsku hennar og fyrirbæna minnumst við þess, að hún var ætíð öllum þakklátust. A gangi ofan úr vinnu í gær sneri ég leið minni í áttiria að Esju og Laugamesi, hverfínu hennar, og ég fann að breyting hafði orðið á, hún var hvorki þar, né í Sunnuhlíð í Kópavogi, hún var komin á æðri staði, en umfram allt var hún kom- in í hjarta sjálfrar mín. Það var sem ég skynjaði hreint mílliliðalaust samband við hið góða, eins og það sem hún sjálf trúði á. Erna Ragnarsdóttir Aðfaranótt 9. apríl barst mér til eyrna sú harmafregn að hún amma mín væri látin. Þessi fregn sló mig hart, enda þótt hún væri í sífellu kvartandi undan sinni þreyttu jarð- nesku skel þá var hún ætíð sú manneskja sem færði manni birtu þegar skyggði, hlýju þegar kól og gleði þegar eitthvað bjátaði á. Það var ósjaldan sem hún skaut skjóls- húsi yfir • lítinn drenghnokka sem skreið til hennar að lokinni eril- samri viku í miskunnarlausri og harðgerri veröld og fékk það sem hver maður þarf á að halda, hlýju og góðvild. Henni vil ég aðeins lýsa sem þeirri bestu og alúðlegustu manneskju sem ég hef kynnst og þótt ég lifi tvö hundruð ár til viðbót- ar þá á ég ekki von á að hitta jafn- ingja hennar. Ólafur H. Gestsson Hún var elsta barn foreldra sinna, Guðmundar Bjarnasonar og Guðrúnar Guðmundsdóttur sem bjuggu allan sinn búskap á Mosvöll- um í Önundarfirði. Þau voru bæði af svo vestfírskum ættum sem verða má. Guðmundur var sonur Bjáma Jónssonar í Tröð í Álftafirði og má lesa um hans fólk í Amar- dalsætt en næstu ættliðir vom við Djúpið. Ættir Guðrúnar lágu hins vegar um Dýrafjörð og Önundar- fjörð alla leið frá því séra Ólafur var á Söndum (dáinn 1627) og ná naumast lengra norður á þeim tíma en í Súgandafjörð og Skálavík ytri. Guðmundur Bjarnason var ungur tekinn í fóstur að Mosvöllum. Þar bjó þá Gils Bjarnason með Halldóru systur sinni. Þau höfðu áður tekið í fóstur dreng af þeim Bjama í Tröð og Guðrúnu konu hans. Sá hét líka Guðmundur fæddur 1873 en dó af lömunarveiki 1876. Guð- mundur, faðir Ragnheiðar fæddist 1877 og ársgamall fór hann í fóstur að Mosvöllum, en síðar á því sama ári kvæntist Gils fóstri hans. Kona hans var Guðmundína Jónsdóttir og með þessu fólki ólst Guðmundur upp og tók við búi eftir það. Þau Guðmundur og Guðrún eign- uðust auk Ragnheiðar 3 dætur og 1 son sem úr frumbemsku komust og eru öll á lífi. Ragnheiður var elsta systir og reyndist öllum vel. Þau systkin voru öll við nám í ung- mennaskóla sr. Sigtryggs á Núpi. Mér er í barnsminni hvað mér fannst skólavistin hafa menntað Ragnheiði. Að mínum skilningi hafði henni þar opnast heimur bók- menntanna auðugur af fegurð og visku svo að þangað væri margt gott og gagnlegt að sækja. Þetta er þó ekki svo að skilja að heimilið hafí verið lokað bókmenntum. Ég gleymi því ekki hvernig Guðmundur Bjarnason talaði um íslendingasög- ur sem bókmenntir. Lífsreynslusög- ur og sálarlífslýsingar eins og þær eru. Og söngvar þjóðskáldanna skipuðu sitt rúm á heimilunum með sóma. En einhvern veginn fannst mér sem skólavistin hefði opnað svið og víkkað sjóndeildarhring. Ragnheiður átti heimili sitt á Mosvöllum. Hún giftist Ólafí Hjálm- arssyni sem flutti með foreldrum sínum að Mosvöllum 1916, en þar var tvíbýli og hafði lengi verið. Hélst svo alla tíð meðan Ragnheið- ur var á Mosvöllum. Þau Ólafur þjuggu í félagi við foreldra hennar, Ólafur hafði smitast af berklum og 1947-48 var hann á Vífilsstöðum. Þótti þá hentugra að hann fyndi sér aðra atvinnu en búskapinn. Því fluttu þau hjón til Reykjavíkur haustið 1948. Komst Ólafur fljót- lega í starf hjá Olíuverslun íslands og hélt því starfsævi sína á enda. Foreldrar Ragnheiðar áttu bæði systkinaböm sem misstu feður sína meðan þau voru í bemsku, sum þeirra barna áttu hjá þeim skjól um hríð og raunar voru þar fleiri börn. Það var einkenni þeirra mæðgna að þær voru elskar að smábörnum. En Ragnheiður var mild og ljúf við krakka og unglinga á öllum aldri, nutu þess allir sem náðu til henn- ar. Gildir það einu um þau börn sem heima áttu í hinum bænum. Hún hafði það skaplyndi og hjartalag og frá henni stafaði yl og birtu. Meðan þær systur voru heima- sætur fannst okkur að það hefði áhrif á svipmót sveitarinnar. Okkur fannst að Guðmundur Bjarnason hefði lög að mæla þegar hann sagði við granna sinn: „Þú líkist mér í því að eiga fallegar dætur.“ Æsku- systkinanna minnumst við þó að langt sé um liðið. Þau Ólafur og Ragnheiðtir eiga 3 böm á lífí. Þau em Valdimar flug- umferðarstjóri, Ingileif húsfreyja á Mýri í Bárðardal og Gestur arki- tekt. Kristján sonur þeirra dó ung- ur. * Ólafur Hjálmarsson Iést haustið 1986. Þangað til annaðist Ragn- heiður hann og heimili þeirra. Að því loknu fannst henni sem hlut- verki sínu væri lokið enda gengu kraftar hennar til þurrðar. Síðustu misserin naut hún mjög umhyggju Valdimars sonar síns. Síðustu mán- uðina var hún í Sunnuhlíð í Kópa- vogi. Hún var södd lífdaga en fylgd- ist með því sem gerðist. Fáaj; vikur em nú síðan Valdimar leiddi hana til kirkju þar sem mágur Jiennar var kvaddur. Þar heilsaði hún frændum og vinum af sömu hlýju og áður og gladdist við að sjá þá heila á húfí. Enn var hún söm og áður. H.Kr. Núna er hún loks sameinuð Ólafí afa og Kristjáni sem ég sá aldrei en er þó skírður í höfuðið á. Hvern- ig sem paradís lítur út þá er ég þó viss um að þar eru fagnaðarfundir og ég samgleðst ömmu að hafa hitt þá aftur þó óneitanlega sakni ég hennar mjög mikið. Þegar maður hefur verið umvafínn þeirri óendan- legu ást sem hún átti til handa mínum nánustu þá hætti manni til að líta á hana sem sjálfsagða og eilífa og það sem ég sakna kannski mest er að hafa aldrei talað al- mennilega um hversu miklu máli hún skipti mig. Síðast þegar ég hitti hana núna yfir páskana rifjaði hún upp fyrir mér sögu sem hún hafði sagt mér oft áður um það þegar ég bjó hjá henni barnungur meðan mamma og pabbi voru er- lendis við nám. Eg kúrði mig hjá ömmu einhveiju sinni í rúminu síðla kvölds og sagði: „Amma mín, þú mátt aldrei deyja.“ Nema þó hún hafí sagt mér þessa sögu margoft þá breytti hún til í þetta skiptið og hafði þetta ekki upp eftir mér held- ur fór að tala um að öll myndum við hittast aftur hinum megin og bað mig að hafa ekki áhyggjur af því. Ég man að ég hjó dálítið eftir þessu en gerði mér ekki grein fyrir því að hún vissi sig líklega feiga og var að kveðja mig. Og nú er ég að kveðja hana, skrifa á eftir henni inn í eilífðina; og gráta. Öll skiptin sem hún hefur beðið fyrir mér og andi hennar vakað yfir mér, ég veit að þeim er ekki lokið þó hún hafí skipt um tilveru- stig. Ög fyrir okkur sem eftir lifum í þessum dal tára og gleði, nú er það okkar hlutverk að láta hvort öðru líða eins vel og hún lét okkur líða. Megi Guð blessa ömmu mína og ljósið geyma hana. Við sjáumst aft- ur. Ragnar Kristján Gestsson Amma er dáin, en það er ekki svo mjög sorglegt því hún var orðin lúin og sagðist farin að biðja guð að leyfa sér að koma. Lítið þýddi að ætla að segja henni það væri hvorki prútt né kristilegt að vera þreyttur á lífínu þó maður væri las- inn og að verða níræður, amjna þekkti sjálfa sig og sinn guð svo miklu betur en maður sjálfur. Og þetta að finna sinn vitjunartíma og vilja kveðja gamall og lúinn er ör- ugglega gömul rammíslensk niður- staða, það var eitthvað fornt í ömmu. Henni fannst það lítilsvert líf að geta engum þjónað og muna ekki lengur öll nöfn og kvæði. Hún var orðin lasburða og vildi fara til afa sem dó 1986. Hún hafði elskað hann frá því hún var þrettán ára, þegar fjölskylda hans fluttist á hinn bæinn á Mosvöllum. Hún gekk fal- lega reiðubúin úr þessum heimi með oðinn faðminn. Ég held amma hafi alla tíð verið í góðu sambandi við guð sinn, því hún fyllti upp í öll skörð í kringum sig með blómum. Hún hélt fullri reisn fram á síðasta dag, þeirri reisn sem einkennir fólk sem lifír í heil- stæðum hugmyndaheimi. Þessari reisn sem einkenndi marga af henn- ar kynslóð, fólk sem ólst upp í gamla samfélaginu, litlum skiljan- legum heimi fullum af kristni, kveð- skap og öryggi, fólk sem trúði á land og þjóð og var eilíflega bundið ljómandi hugsjónaböndum síns ung- mennafélags. Ég er ömmubarn hálfri öld yngri, fylgihnöttur hennar frá því ég man eftir mér. Hún var mikilvæg heimilisiðja í litlu sólkerfí eins og fjölskyldur eru. Hún var eins og góðar ömmur, til hennar sótti maður lífskraft og hlýju. Ragnheiður Guðmundsdóttir amma mín fæddist á öðru ári þess- arar aldar, dóttir hjónanna Guðrún- ar Jónu Guðmundsdóttur og Guð- mundar Bjarnasonar. Ragnheiður var fædd og uppalin á Mosvöllum í Önundarfirði og bjó þar síðan fram á miðja öldina með bónda sínum Ólafí B. Hjálmarssyni. Þau fluttust til Reykjavíkur árið 1948, en Ragn- heiður amma var samt alltaf í hug- anum fyrir vestan. Þau fluttust á mölina af því að afí var berklaveik- ur, ekki af því þau vildu setjast að í borgarsamfélagi á miðjum aldri. Fyrir mér fékk nafnið Mosvellir og lífíð fyrir vestan sem hún kallaði fram í vísum, hendingum eða sög- um, á sig magnaðan töfrablæ, löngu áður en ég vissi hvar Vestfírðir væru á kortinu. Skrýtið var að koma vestur í Önundarfjörð tólf ára göm- ul og fínna bæinn í eyði og allt horfið, heimur ömmu svo gjörsam- lega horfínn eins og tíminn, þessi heimur á Mosvöllum á fyrri hluta aldarinnar lifandi í henni, sem hún miðlaði stöðugt af. Amma var ímynd elsku og elju. Fimm ára gömul prjónaði hún ullar- boli á litlu systkini sín, því hún er elst. Fimm ára gömul sat ég tóm- hent og hlustaði á frá þessu sagt og fannst lítið til sjálfrar mín koma. Svo var hún smali og gætti kvía- ánna, fannst fátt skemmtilegra en að klífa fjall og athuga hvað væri hinum megin. Amma fór í skólann á Núpi í tvo vetur, eins og systkini hennar, og fór suður til Reykjavíkur að mannast og læra saumaskap. Þau afi eignuðust sitt elsta barn þegar amma var 24 ára og afí ári yngri, en giftingu var frestað því óvissa var um heilsu Ólafa, eins og við barnabörnin kölluðum hann. Tveir bræður afa fengu líka berkla, og sá hvíti dauði dró annan þeirra til dauða. Ragnheiður amma og Ólafur afí giftust með kóngsleyfí þrátt fyrir veikindin alþingishátíð- arárið. Afi fór fjórum sinnum á Vífílsstaði vegna berklanna, en þau eignuðust samt fjögur börn áður en þau fluttust á mölina, Valdimar flugumferðarstjóra, Ingileifi Stein- unni bóndakonu á Bólstað í Bárðar- dal, Kristján sem dó uppkominn og Gest arkitekt. „Hún amma mín það sagði mér“, er fallegt lag og ég held það hræri mig svo af því amma hrærði mig svo djúpt. Það er ekki bara af því hvað þetta er fallegt lag að ef ég syng það eða heyri verður hjartað stórt eins og hálfur heimurinn. Það er líka af því ég hef átt svo hjarta- stóra ömmu. Þær voru líklega margar eins og amma, fullar af dyggð og þjónustu- lund, húsmóðurdyggðum gamla sveitarsamfélagsins, þar sem virð- ing var borin fyrir húsbóndanum, móðirin átti endalausa nærándi gæsku, og naut þess best að gera öðrum gott. Blómin í stofunni hlæj- andi af vellíðan, og mikil vellíðan að koma til hennar og þiggja veit- ingar. Hún var útfarin í þeirri list að láta öðrum líða vel. Við kveðjum hana í dag 51 afkomandi, systkini, tengdafólk, frændur og vinir. í okk- ur öllum sem hún nærði með sinni góðu lund er sjóður, sem hún fyllti með-sinni ljúfu nærveru. Þórunn + Eiginmaður minn og faðir okkar SVEINN SIGURÐSSON \ Stuðlaseli 18, Reykjavík. er látinn. Magrét D. Andrésdóttir, Ólöf Adda Sveinsdóttir, Sigurður Rúnar Sveinsson, Bjarki Már Sveinsson. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR ELÍSABET GUÐMUNDSDÓTTIR, sem lést 6. apríl sl., verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðju- daginn 16. apríl kl. 15.00. Ingibjörg Haraldsdóttir, Eirikur Guðjónsson, Rannveig Haraldsdóttir, Þröstur Haraldsson, Steinunn Hjartardóttir, barnabörn og barnabarnabarn. + Ástkær eiginmaöur minn, faðir, fósturfaðir og afi, ÓSKAR MAGNÚSSON, — Skipholti 55, Reykjavík, sem andaðist 4. þessa mánaöar verður jarðsunginn frá Bústaða kirkju þriðjudaginn 16. apríl kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hans, er bent á orgelsjóð Bústaðakirkju. Arndfs Sigriður Halldórsdóttir, Guðmunda Óskarsdóttir, Smári Sveinsson, Guðmundur R. Óskarsson, Kristján Óskarsson, Guðlaug Pétursdóttir, Jón Pétursson, Sigmar Pétursson, Sigurbjörg Eiríksdóttir, Ragnheiður Sigurðardóttir, Sigriður Á. Ingólfsdóttir, og barnabörn. Magdalena Kristinsdóttir, Þrúður Jóna Kristjánsdóttir, Svavar Sigurjónsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.