Morgunblaðið - 14.04.1991, Síða 32

Morgunblaðið - 14.04.1991, Síða 32
32 n MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR‘Í4. APRÍl, 1991 Auður Sveinsdóttir landslagsarkitekt er í 3. sæti G-listans í Reykjavík. Hún er núverandi formaður Landverndar, en þar hefur hún hefur setið í stjórn síðastliðin 8 ár. Auður er formaður félags íslenskra landslagsarkitekta. Hún verður glæsilegur fulltrúi umhverfisverndar- sjónarmiða á Alþingi íslendinga - í málaflokki sem mun brenna á íslenskri þjóð á næstu árum. í síðustu kosningum vantaði innan við 200 atkvæði til að tryggja 3ja manninn inn í Reykjavík. Þann herslumun má ekki vanta nú! Sigríður Jóhannesdóttir kerinari er í 2. sæti G-listans á Reykianesi. Sigríður er kennari f Keflavík og hefur verið í stjórn Kennarasambands íslands sl. 7 ár og setið jafn lengi í samninganefnd KÍ. Hún er formaður orlofssjóðs Kl og fulltrúi samtakanna í norrænu kennarastarfi. Reynsla hennar, dugnaður og þekking nýtist vel á Alþingi. Guðrún Helgadóttir alþingismaður er í 2. sæti G-listans í Reykjavík. Guðrún hefur setið á Alþingi Islendinga frá 1979. Þar hafa önnur viðfangsefni hennar reynst góður bakhjarl: Starf að málefnum aldraðra og öryrkja hjá Tryggingarstofnun ríkisins, ritstörf um börn og unglinga, seta f borgarstjórn o.fl. Síðastliðin 2 ár hefur Guðrún gegnt stöðu forseta sameinaðs Alþingis, fyrst fslenskra kvenna í sögu þjóðarinnar. Guðrún er einn af brautryðjendum fslenskrar kvennabaráttu. „JA ÉG ÞORIGET OG VIL" / Reykjavík og Reykjanesi eru þrjár konur í efstu sætum á listum Alþýðubandalagsins. Rödd kvenna er sterk í Alþýðubandalaginu. Sem dæmi má nefna að 2 þeirra gegndu lykilhlutverkum á Alþingi síðasta kjörtímabil; Guðrún Helgadóttir sem forseti Sameinaðs þings og Margrét Frímannsdóttir sem þingflokksformaður Alþýðu- bandalagsins. í þessum kosningum getum við fjölgað konum verulega í þingliði flokksins. Á öllu landinu eru í kjöri konur sem vilja taka á fyrir íslenska þjóð - konur sem þora og geta! Styrkjum stöðu kvenna um land allt - kjósum G - listann! K ALÞYÐ U BAN ÐALAGIÐ Flokkur sem getur - fólk sem þorir !

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.