Morgunblaðið - 05.05.1991, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 05.05.1991, Qupperneq 4
4 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. MAÍ 1991 í tilefni af Alheimsátaki til hjálpar stríðshrjáðum gengst Rauði kross Islands fyrir fjölskyldusamkomu í miðborg Reykjavíkur næstkomandi miðvikudagskvöld 8. maí. Þar fer fram almennings SKOKK / HLAUP / GANGA, STYRKTARHLJÓMLEIKAR með öllum helstu hljómsveitum íslenskum ásamt Hemma Gunn og Dengsa og loks mynda viðstaddir LJÓSAKEÐJU með logandi kertum. SOL UR SORTA Alheimsátak til hjálpar stríðshrjáðum STUÐNINGS- HIJÓMLEIKAR í Lækjargötu frá kl. 20:00 til 23:00. Stjórnin Sykurmolarnir Bubbi Ný dönsk Biái hatturinn Rokklingarnir Síðan skein sól Hemmi Gunn og Dengsi og fieiri. • ••••••••• SKOKK HIAUP GANGA Lagt verður af stað frá íslandsbanka, Lækjargötu 12. Þátttakendur geta valið um lítinn eða stóran hring, allir geta verið með, þátttaka er aðalatriðið. Mæting er kl. 18:45 og ræst verður kl. 19:00. Þátttökunúmer kosta 200 kr. innifalið er happdrættisnúmer og ljós í ljóskeðjuna. Númerín eru til sölu á eftirtöldum stöðum: REYKJAVÍK: Sportmarkaðurinn, Hólagarði Ástund-sportvörudeild, Austurveri Útiiíf, Glæsibæ Bikarinn, Skólavörðustíg 14 Sportval, Kringlunni 8-12 Vesturbæjarapótek, Melhaga 20-22 HAFNARFJÖRÐUR: Músik og sport, Reykjavíkurvegi 60 GARÐABÆR: Sælgætis- og Vfdeohöllin, Garðatorgi 1 KÓPAVOGUR: Sportbúð Kópavogs, Hamraborg 22 MOSFELLSBÆR: G.S. Söluturn og Vídeoleiga, Háholti 14 SELTJARNARNES: Sportlíf, Eiðistorgi Og frá kl. 18:00 miðvikudaginn við íslandsbankahúsið. Dregið verður í happdrættinu eftir skokkið. LJÓSAKEDJA Um kvöldið myndar fólk ljósakeðju með logandi kertum. Slík ljósakeðja verður mynduð víða um heim til að tákna samstöðu um alheimsátakið. Kertin verða seld í miðborginni frá kl. 18:00 á miðvikudag. Einnig fylgja þau skráningarnúmerum í skokkið. FJÖIMiNNUM í MIÐBORGINA Á MIÐVIKUDAGSKVÖID Heimilistæki - PHILIPS styrkir hlaupið og Ijósakeðjuna Dr. Gunnar Ólafsson Doktor í steingerv- ingafræði NÝLEGA varði Gunnar Ólafsson jarðfræðingur doktorsritgerð sína við Stokkhólmsháskóla í Svíþjóð. Ritgerðin fjallar um 10 til 35 milljóna ára gamla stein- gerða kalksvifþörunga úr djúp- sjávarseti frá Atlantshafi, Kyrra- hafi og Indlandshafi. Aðaland- mælandi við doktorsvörnina var dr. Hans R. Thierstein, prófessor í jarðvísindum í Ziirich í Sviss. Gunnar Ólafsson nam jarðfræði við Háskóla íslands og lauk B.Sc- prófi þaðan haustið 1984 og fjórða árs prófi ári seinna. Hann fór sfðan til framhaldsnáms í steingervinga- fræði hjá dr. Jan Backman við jarð- fræðistofnun Stokkhólmsháskóla. í tengslum við doktorsverkefnið dvaldi Gunnar haustið 1988 í Parma á Ítalíu við rannsóknarstörf í sam- vinnu við prófessor Domenicco Rio og starfshóp hans. Vorið 1990 dvaldi Gunnar 2 mán- uði á rannsóknarskipinu JOIDES Resolution suðaustan við Japan þar sem könnuð var jarðsaga og jarð- fræðileg þróun Nankaitrogsina. Þessi leiðangur var hluti af alþjóðaverkefni ODP, Oeean Drilling Program þar sem saman koma vísindamenn frá fjölda landa og vinna saman að ákveðnum rannsóknarverkefnum. Gunnar hefur flutt fyrirlestra víða í Svíþjóð og á alþjóðaráðstefnum og er núna að vinna að rannsóknum á djúpsjávarseti frá Vöringsháslét- tunni í Norður-Atlantshafi og sjávar- seti frá Nicaragua. Gunnar fæddist í Reykjavík 1958, sonur Fanneyjar D. Arthúrsdóttur og Ólafs H. Grímssonar geðlæknis á Landspítalanum. Sambýliskona Gunnars er Guðrún Á. Jónsdóttir plöntu vi stfræði ngu r. ■ Á PÚLSINUM sunnudaginn 5. maí verða að sinni síðustu tónleikar djass- og blúshljómsveitarinnar Sál- arháska í tónleikaröð sem bundin hefur verið við þriðjudagskvöld hverrar viku sl. 2 mánuði. Sérstak- ur gestur kvöldsins verður saxófón- leikarinn Rúnar Georgsson. Sálar- háska skipa: Eyþór Gunnarsson, Sigurður Flosason, Tómas R. Einarsson, Atli Örvarsson og Pétur Grétarsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.