Morgunblaðið - 05.05.1991, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 05.05.1991, Blaðsíða 6
6 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. MAÍ 1991 Lucy Ewing var „skvettan á Southfork". Hún er orðin töluvert þroskaðri en hún var í upphafi þáttanna bæði hvað varðar útlit og persónu. Bobby Ewing eins og hann leit út í fyrstu þáttunum. Sumum finnst hann myndarlegur og geðþekkur maður, aðrir þola liann ekki og finnst hann væminn og leiðinlegur. Langloka aldarinnar í andarslitrnnnm eftir Brynju Tomer ÞÓTT FÁIR viðurkenni að þeim þyki gaman að horfa á Dallas- þættina eru þetta með allra vin- sælustu og langlífustu framhalds- þáttum sem gerðir hafa verið fyr- ir sjónvarp. Prúðuleikararnir — blessuð sé minning þeirra — eru meðal örfárra sem geta státað af svipuðum vinsældum. Sjónvarpið hóf sýningar á Dallas fyrir tíu árum, en nýlega bárust fréttir frá Bandaríkjunum þess efnis að framleiðslu þáttanna væri hætt. Kannski síðustu forvöð því sumar persónurnar hafa dáið, gengið aftur, týnst eða legið fyrir dauðan- um svo vikum skiptir. Söguþráð- urinn er farinn að ganga í hring samkvæmt því sem tryggir áhorf- cndur Dallas segja. Frægt var steypibaðið hans Bobby sem tók nokkra mánuði meðan Patrick Duffy sem leikur Bobby átti í laun- astappi við framleiðendur þátt- anna. Loks komust þeir að sam- komulagi og þegar Bobby birtist aftur á skjánum kom i ljós að alla þættina í millitíðinni hafði Pam- elu, hans ágætu konu, verið að dreyma! J.R., skúrkurinn í Dallas. Eitthvað hefur hann breyst í útliti á þeim 13 árum sem þættirnir hafa verið fram- leiddir. Manngæska er hugtak sem hann þekkir ekki og hann svífst einskis til að fá sínu framgengt. FRAMLEIÐSLU HÆTT EFTIR 400 ÞÆTTI, EIM SÝNIIMGUM Á ÍSLAIMDILÝKUR NÆSTA VETUR Fáir voru á ferli úti á götu miðvikudagskvöldið 6. maí 1981, þegar ríkissjónvarp- ið sýndi fyrsta Dallas-þátt- inn. Mikið hafði verið skrifað um þessa stórkost- legustu sápuóperu allra tíma og töluverð spenna hafði byggst upp í sambandi við sýn- ingu þáttanna á Islandi. Það vildi líka þannig til að ríkissjónvarpið hafði sjaldan eða aldrei áður reynst svo vel á verði gagnvart því sem var vinsælt í útlöndum. Upphaflega áætl- aði sjónvarpið að sýna 29 þætti, en Dallas átti svo miklum vinsældum að fagna meðal Frónbúa að sjónvarp- ið gat ekki með góðu móti gert ann- að en kaupa fleiri þætti. Alls sýndi ríkissjónvarpið milli 110 og 120 þætti. Þegar Stöð 2 hóf göngu sína, haustið 1986 var ákveðið að verða við óskum Dallas-aðdáenda og hefur Stöð 2 sýnt þættina sleitulaust síðan, ef undan er skilið sumarið 1989. Sýningar á Dallas munu haida áfram fram á næsta vetur og þá hefur Stöð 2 sýnt alls 227 þætti. Fyrsti þáttur- inn í síðustu þáttaröðinni hefst 27. maí næstkomandi og verður þá að öilum líkindum unnið að því smám saman að láta persónurnar „hverfa" á sannfærandi hátt, svo þættirnir geti gengið á vit feðra sinna án þess á áhorfendur verði fyrir of miklu sálarhnjaski. Fyrsti þátturinn hét „Dóttir gull- grafarans" og var þar fyrst og fremst verið að kynna Ewing-fjölskylduna og umhverfi hennar. Um leið var byggður grunnur að — að því er virt- ist — óendanlegri hringavitleysu um þessa efnuðu fjölskyldu á Southfork. Dóttir gullgrafarans reyndist vera Pamela. Faðir Pamelu var svarinn óvinur Ewings gamla eftir deilur við hann um olíulindir. Pamela heillaði hins vegar sjónvarpsáhorfendur upp- úr skónum, alla vega til að byija með. Hún var ekki bara með eindæm- um hugguleg kona heldur var hún ásamt Bobby manni sínum spegil- mynd heiðarleikans. J.R er líklega vinsælasta persóna þáttanna og ýmist dýrkaður eða hat- aður af áhorfendum. Hann er hinn mesti refur og þess vegna auðvelt fyrir höfunda þáttanna að finna upp á nýjum klækjum og brögðum fyrir hlutverkið. Hann er skúrkur í við- skiptalífinu og eins og rófulaus rakki í einkalífinu. Larry Hagman hefur tekist vel upp í hlutverki J.R. og fyrstu árin mátti hann gjalda þess. Um tíma þurfti hann að hafa hóp lífvarða í kringum sig, því áhorfend- ur úti í henni Ameríku áttu sumir erfitt með að greina á milli leikarans Larry Hagmans og hins óbilgjarna J.R. „Stundum húðskammaði fólk mig úti á götu fyrir hversu illa ég færi með Sue Ellen og margir vilja lúskra á svona skúrki eins og J.R.,“ sagði Larry Hagman einu sinni í við- tali. Fólk skiptist í grófum dráttum í þrjá hópa í afstöðunni til Dallas; þá sem horfa á hvern einasta þátt og viðurkenna það (eða ekk'i), þá sem horfa á einn og einn þátt og hafa gaman af því. Síðan eru þeir sem hafa algjöran ímigust á Dallas og slökkva á sjónvarpinu frekar en að horfa á „þessa bölvuðu vitleysu". Hvað svo sem fólki kann að þykja um Dallas, hafa verið gerðir 400 fimmtíu mínútna þættir um fjölskyld- una á Southfork og það verður áreið- anlega eitthvert lesendabréf í dag- blöðunum næsta vetur þar sem beðið verður um fleiri Dallas-þætti eða í versta falli endursýningu á þáttunum frá upphafi ... en eins og Daninn sagði: Den tid den sorg. Guðríður Guðjónsdðttir tieíur horft á alla Þættina: SKEMMTILEG AFÞREYING GUÐRÍÐUR Guðjónsdóttir er þekktari undir nafninu Gurrý. Hún er íþróttakennari við Fjölbrautaskólann í Ármúla og ein af fremstu handboltakonum Iandsins. „Ég held ég hafi misst . 15 eða 20 mínútur af fyrsta þættinum,“ segir hún, en síðan hefur hún horft á hvern einasta Dallas-þátt sem sýndur hefur verið á Islandi og gerir alltaf ráðstafanir til að missa ekki af þætti. Eg vissi ekkert um Dallas þegar þættirnir byijuðu í sjónvarp- inu,“ segir Gurrý og segist ekki hafa verið neitt sérlega spennt miðvikudagskvöldið 6. maí 1981. „Nú finnst mér hins vegar eins og Ewing-fjölskyldan tilheyri mér, eða ég henni, þó ég geri mér grein fyrir hversu fáránlega það kann að hljóma.“ Gurrý er yfirleitt á handboltaæfingum þegar þættirnir eru sendir út. „Ég tek þá bara uppá myndband og horfi á þá þegar ég hef tíma,“ segir hún. „Mér finnst ég slappa best af fyrir framan sjónvarpið og ég lít fyrst og fremst á Dallas sem afþreyingu. Skemmtilega af- þreyingu. Það er alltaf nóg að gerast í þáttunum þó söguþráð- urinn fari í endalausa hringi. Mér finnst þættimir vel gerðir og einhvern veginn hefur tekist að flétta saman svikum, pening- um, ást og afbrýðisemi á skemmtilegan hátt.“ Gurrý segist ekki muna hvern- ig fyrstu þættirnir voru. „En það skiptir heldur engu máli. Þetta er afþreying sem ég nýt á því augnabliki sem ég horfi á þætt- ina. Ég geri ekki aðrar kröfur til þeirra en að þeir höfði til mín Morgunblaðið/KGA Guðríður Guðjónsdóttir: „Það er alltaf nóg að gerast í þáttun- um þó söguþráðurinn fari í endalausa hringi.“ í jafnlangan tíma og þeir vara.“ Þegar hún er innt eftir því hvort hún komi til með að sakna þáttanna, segist Gurrý ekki gera ráð fyrir því. „Ég væri alveg til í að horfa á fleiri þætti, en þó mér finnist gaman að Dallas er ekki eins og sé verið að slíta úr mér hjartað þó að hætt sé að framleiða þættina.“ Kristján G. Arngrímsson: Fáránleikinn er yndislegur „ÉG MAN óyóst eftir fyrsta þættinum og horfði síðan á Dallas öðru hvoru í nokkur ár,“ segir Kristján G. Arngrímsson Ijósmyndari. „Ég hef alltaf haft eitthvert undarlegt gaman af því að horfa á þessa þætti,“ heldur hann áfram og segist sannfærður um ágæti Dallas á þeim forsendum að þættirnir eru vinsælir“, eins og liann segir. J.R. finnst mér skemmtilegur kar- akter en ég þoli ekki Bobby. Ef persónur í bók eða mynd höfða að einhveiju leyti til mín er tilgangin- um náð. í Dallas vottar fyrir per- sónum af þessu tagi, sem er meira en hægt er að segja um stóran hluta íslenskra nútímabókmennta. Þegar ég tala um að persónurnar höfði til mín á ég við að ég fái ein- hveija tilfinningu fyrir þeim, mér líki annaðhvort vel eða illa við þær. Ég finn til dæmis stundum fyrir samúð með J.R. þegar honum tekst ekki vel upp þrátt fyrir skepn- uskapinn." — Hvað segir þú um söguþráð- inn? „Hann er ósköp einfalt drama sem gerir ekki meiri kröfur til mín en þær að ég setjist fyrir framan sjónvarpið og horfi í klukkutíma. Þetta eru örlagasögur einstaklinga og þær eru alltaf vinsælt söguefni. Fáránleikinn í Dallas er yndislegur! Efnið er svo guðdómlega vitfirrt! Margir sjálfskipaðir gáfumenn hafa margt og mikið á móti Dall- as, en hvað hefur Dallas gert þeim? Mér finnst Dallas athyglisvert á þeirri forsendu að þættirnir eru vinsælir þrátt fyrir einfaldleika og fáránleika.“ — Þér finnst Dallas þá oft ekki njóta sannmælis, eða hvað? „Alls eki.i. Dallas og sápuóperur af þessu tagi eiga fullkomlega rétt á sér svo lengi sem fólk vill horfa á þetta. Afþreyingarefni er merki- legt fyrirbæri. Einfaldleikinn getur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.