Morgunblaðið - 05.05.1991, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 05.05.1991, Qupperneq 14
14 c .............. MÖRGUNBLÁÐIÐ Q/i'í’II SUNNUÐAGUR 5. MAM991 SAGNFRÆÐI Horfellir Meinsemdir og mannf jöldi á Islandi eftir Pól Lúðvík Einarsson HVERS VEGNA eru íslendingar ekki fleiri en raun ber vitni? A miðötdum var e.t.v. einn Islend- ingur á móti þrem eða fjórum Norðmönnum. Miðað við það hluttfatl ættu landsmenn að vera ein til ein og hálf milljón — en í dag stendur íslendingurinn einn á móti tuttugu Norðmönnum. Samanburður við önnur ná- grannalönd gefur ekki hagstæð- ari niðurstöður, Heimildir og áætlanir fræðimanna benda til þess að á meðan öðrum þjóðum fjölgaði hafi mannfjöldinn á ís- landi sveiflast til og frá á bilinu 35-50 þúsundir. Ogþað ekki breyst fyrr en Iíða tók á 19. öld- ina. A síðari tímum hefur kenn- ingunni um „náttúrulega fólks- fjöldatakmörkun" mjög verið haldið á lofti. Þegar ákveðnu hámarki hafi verið náð, u.þ.b. 50 þúsund, hafi harðæri og sjúk- dómar séð fyrir fækkun íslend- inga. Landið og einhæfir at- vinnuhættir hafi einfaldlega ekki staðið undir meiri mannfjölda. Það hafi ekki verið fyrr en ís- lendingar tileinkuðu sér tækni- framfarir að þeim fór að fjölga. — Árni Daniel Júlíusson sagn- fræðingur hefur sett fram efa- semdir um þessar kennisetning- ar, hann telur að sérstæð sóttar- farssaga landsins hafði ráðið miklu. Inýjasta hefti Söga, málgagni Sögufélagsins, er að finna grein eftir Áma Daníel Jú- líusson, „Áhrif fólksfjölda- þróunar á atvinnuhætti gamla samfélagsins". í grein- inni vitnar Ámi Daníel til cand.mag.-ritgerðar Guð- mundar Hálfdánarsonar um fólks- fjöldaþróun á íslandi á 18. öld þar sem kenningar danska mannfjölda- fræðingsins Estherar Boserup eru lagðar til grundvallar. Boserup telur að fólksfjölgun sé vaki framfara í landbúnaði. Vaxandi fólksfjöldi leiði til þess að nýta verði betur hverja flatareiningu lands. Þetta gengur þvert á það viðhorf að tæknifram- farir séu forsendur fólksfjölgunar. Þegar íslandssagan er skoðuð i ljósi kenningar Boserups blasir önnur mynd við heldur en við eigum að venjast. Árni Daníel segir að á undanförn- um ámm hafi nokkrir fræðimenn bent á að sóttarfarssaga íslands sé vegna einangrunar og dreifbýlis nokkuð sérstæð. „Það virðist nú engum vafa undirorpið að hin af- brigðilega fólksfjöldaþróun á ís- landi er að mikiu leyti afleiðing af legu landsins, sem kom í veg fyrir að sóttir yrðu landlægar." Árni Daníel greinir frá því að þetta hafí verið næsta tvíeggjuð blessun. í þéttbýlli samfélögum hafi farsóttir orðið að faröldrum við og við, en alltaf í yngri og yngri aldurshópum vegna þess að eldri kynslóðir hafi öðlast ónæmi fyrir fyrri faröldrum. Álitamál Nú er ekki víst að allir séu fylli- lega sammála mati Árna Daníels og telji hann e.t.v. gera heldur lítið úr áhrifum harðinda. Jón Steffen- sen prófessor t.d. telur vera náið samband milli hungurfellis og mannfjölda. — Og þess má geta að Hannes biskup Finnsson í Skálholti (f. 1739, d. 1796) upplifði hallæri á sinni ævi, m.a. Móðuharðindin. Hann skrifaði bókina Mannfækkun af hallærum sem má að vissu leyti Morgunblaðið/Sverrir Árni Daníel Júlíusson íslenskur Söguatlas/Heimild: Atlas of World Population Að lokum urðu farsóttirnar að land- lægum barnasjúkdómum. í fámenn- ari og einangraðri samfélögum hins vegar hafí farsóttir komið eins og þruma úr heiðskíru lofti og borist hratt út með miklu mannfalli. En síðan déyr farsóttin út og að nokkr- um áratugum liðnum er vaxin ný kynslóð úr grasi sem ekki hefur haft kynni af sóttinni og er því varnarlaus þegar þessi vágestur vitjar á ný. Árni Daníel afneitar þó ekki að önnur óáran hafi haldið fólksfjöld- anum niðri og nefnir Skaftárelda og Móðuharðindin (1783-85) í því sambandi en: „Afleiðingar Skaftár- elda voru yfirvöldum um megn, enda voru þeir einhverjar mögnuð- uðstu náttúruhamfarir sem yfír landið höfðu gengið og því ekki dæmigerðar." Áhrifaríkar pestir Árni Daníel gengur svo langt að telja það sennilegt að almennt hafi loftslag, veðurfar og gróðurfar eng- in þau áhrif haft á fólksfjöldasögn landsins að hún yrði frábrugðin fólksfjöldasögu annarra landa. Hann segir: „Flest bendir til þess að sóttir hafi haft mun djúpstæðari áhrif á fólksfjöldasögu landsins heldur en harðindi, og þar með haft meira að segja um uppbygg- ingu atvinnulífsins." Hann bendir á að samkvæmt kenningunni um „náttúrulega takmörkun“ hefði átt að vera þokkalega rúmt um lands- menn eftir að farsótt hefði farið yfir og þeir því betur en ella búnir til að standast harðæri, en: „Skömmu eftir eina mannskæðustu plágu sem geisað hefur hér á landi, pláguna síðari 1494, féll fjöldi fá- tæklinga í harðindum. Þetta gerðist árið 1500 og virðist undarlegt i ljósi þeirrar hefðbundnu skoðunar að mannfellir af harðindum verði helst þegar of margt fólk sé í landinu." Árni Daníel telur að tengslin milli framleiðslu, harðinda og hungur- dauða hafi verið fremur háð því hversu vel hverju búi tókst að kom- ast af. Ekki hafði verið bein tenging milli mannfjölda og horfellis; ef mörg slæm ár komu í röð varð mannfall, hvort sem íbúar voru 35 þús. eða 55 þús. Reynslan var sú að 5-9 þúsundir hafi yfirleitt fallið í harðindaköflum sem gengu á 17. og 18. öld. Engin dæmi séu þekkt fyrir því að harðindi hafi fækkað fólki um meira en 20% og það var í Móðuharðindunum en Stórabóla 1707-9 hafi fækkað landsmönnum um 30-35% En það er ekki öll sagan þar með sögð hvað varðar áhrif á hagkerfið. „Slæmar farsóttir felldu því mun fleiri en verstu harðindi. Ekki nóg með það, heldur var eðli farsótta annað. í harðindum féllu yfirleitt börn, gamalmenni og fátæklingar, fólk sem ekkþ tók mikinn þátt í atvinnulífinu. í farsóttum eins og Stórubólu var annað uppi á teningn- um ... Fjöldi bænda á besta aldri og stór hluti kvenna á barneignar- aldri féll frá. Við það hlaut sam- hengið í atvinnulífinu að raskast.“ Árni Daníel heldur því fram að landbúnaðarþjóðfélög bregðist við mannfjölgun með því að nýta betur gæði lands og sjávar. Þegar fólks- fjöldi jókst, fjölgaði hjálegum og nýbýlum en einnig voru fískveiðar auknar og bryddaði á myndun sjáv- arþorpa með fastri búsetu. Þetta mynstur komi þrisvar fram í ís- landssögunni, 1200-1400, á 17. öld- inni og loks 1830-1900. Það sé at- hyglivert í þessu sambandi að Svarti dauði gengur 1402-4 og Stórabóla 1707- 9. I kjölfar þeirra minkaði nýting sjávarfangs því gæði lands- ins hættuminni í nýtingu dugðu betur þeim sem eftir lifðu. nefna fyrsta vísindalega sagnfræði- rit á íslensku. Þetta rit Hannesar er hið fróðlegasta, sannkölluð náma upplýsinga um það hallærisástand sem íslendingar máttu öðru hvoru þola í aldanna rás. í því riti kveður hann fast að orði: „Þessa verst meina eg þó sé hallæris-húngrið, hið harðasta sverð. Það vægir hvorki úngum né gömlum, það deyðir eptir langa pínu, það færir með sér heilan her af sjúkdómum, það rífur burt kvikfénað og bú- stofn, er lengi á í að nást aptur.“ Blaðamaður Morgunblaðsins bar þessi orð biskupsins undir Árna Daníel. Hann viðurkenndi að rétt væri eftir Hannesi haft en túlkun

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.