Morgunblaðið - 05.05.1991, Side 21
W i/.H C. ínJOA<
MORGUNBLAÐIÐ
K»
SUNNUDAGUR 5. MAl 1991
C 21
■ Framhaldsmynd fáséðrar
og fáheyrðrar myndar, Arás
mannætutómalanna („The
Attack of the Killer Tom-
atoes“) eftir John De-
Béllow, sér brátt dagsins
ljós. Nú leggja tómatarnir
land undir fót og halda til
Parísar því myndin heitir því
ágæta nafni Mannætutóm-
atarnir halda til Frakk-
lands. DeBellow er leikstjóri
sem fyrr en með aðalhlut-
verkin fara John Astin,
Steve Lundquist og Angela
Visser.
MÞá er hrollvekjuleikstjór-
irtn John Carpenier kominn
af stað með nýja mynd en
hún verður kannski ekki al-
veg eins og hryllingsunnend-
ur búast við. Með aðalhlut-
verkið fer nefnilega grínar-
inn Chevy Chase og hann
er einnig annar af framleið-
endunum. Myndin heitir
Minningar ósýnilegs
manns ( The Memoirs of
An Invisible Man“). Mót-
leikarar Chase eru Daryl
Hannah og Sam Neill.
MNæsta mynd breska leik-
stjórans Tony Scotts („Top
Gun“) heitir Síðasti skátinn
(„The Last Boy Scout“) og
er með Bruce Willis í aðal-
hlutverkinu. Framleiðendur
eru David Geffen og hasar-
maðurinn Joel Silver.
■ Arú eru fímmtíu ár liðin
síðan mynd Orson Welles,
„Citizen Kane“ var frum-
sýnd í Bandaríkjunum en hún
er oft og iðulega sögð ein
besta mynd sem gerð hefur
verið ef ekki sú besta. í til-
efni afmælisins hefur myndin
verið sett í almenna bíódreif-
ingu vestra.
ÚR ÍSLENSKUM VERULEIKA
Hákon Már Oddsson kvik-
myndagerðarmaður er
starfar sem dagskrárgerða-
maður hjá Sjónvarpinu og
Siguijón B. Sigurðsson, bet-
ur þekktur sem Sjón, vinna
að kvikmyndahandriti þessa
dagana sem ber heitið
B.I.N.G.Ó! Það er „unglinga-
spennumynd" að sögn Há-
kons, sem gerist á Stór-
Reykjavíkursvæðinu í sam-
tímanum.
Þeir fengu einnar milljón
króna undirbúningsstyrk hjá
Kvikmyndasjóði við síðustu
úthlutun til að skrifa handri-
tið. „Það sem vakir fyrir okk-
ur sérstaklega er að bjóða
ungu fólki uppá íslenskan
raunveruleika til mótvægis
við offramboðið á erlendu
efni sem það hefur alist upp
við“ sagði Hákon í stuttu
spjalli. „Okkar raunveruleiki
og okkar tungumál á miklu
frekar erindi í kvikmynd
heldur en hin sífellda út-
lenska".
Hákon sagði að þeir báðir
hefðu unnið talsvert með efni
fyrir unglinga, hann sem
dagskrárgerðarmaður en
Sjón sem skáld og rithöfund-
ur en samstarf þeirra varð
til kvöldstund eina þegar
„Jón Langi menningarfröm-
uður Frakka var hér í heim-
MacDowell og Willis í „Hudson Hawk“.
HAUKUR WILLIS
Nýjasta mynd stór-
stjömunnar Bruce
Willis heitir „Hudson
Hawk“. Það er 50 milljón
dollara gamanæfintýra-
mynd en með önnur hlut-
verk fara Andie MacDow-
ell, Richard E. Grant,
Danny Aiello og Sandra
Bernhard.
Myndin segir frá Hauk
þessum sem Willis leikur
en hann hjálpar bófum
nokkrum nauðugur viljug-
ur að smíða vél, byggða á
löngu týndri uppfinningu
Leonardo da Vincis, sem
malar guil úr blýi.
Willis ' á sjálfur hug-
myndina að sögunni, fékk
hana fyrir tíu árum, og er
skrifaður sem framleið-
andi myndarinnar ásamt
Joel Silver.
sókn ásamt forsetanum Mitt-
erand. Við vinnum þetta
þannig að við hittumst og
ræðum einstök atriði og upp-
byggingu sögunnai1 og Sjón
vinnur úr því,“ sagði Hákon.
Að sögn hans stendur til
að upptökur á myndinni hefj-
ist sumarið 1992 en samhliða
henni er meiningin að gera
sex sjónvarpsþætti úr efninu.
Leikararnir verða flestir
unglingar og ákveðið þema
verður í hveijum þætti en
aðalþemað tengist baráttu
unglinganna við að koma í
veg fyrir umhverfisspjöll.
Frost Film sér um framleiðsl-
ustjórn myndarinnar en Há-
Sjón og HákOn; spennumynd um unglinga.
kon verður leikstjóri.
„Myndin er um þetta ald-
ursskeið þegar unglingar
telja sig vera fullorðna en eru
það ekki alveg vegna aldurs
og aðstæðna. Við segjum
söguna út frá þcssum for-
sendum og þeim vandamál-
um sem skapast. Myndin er
ætluð táningum á öllum
aldri," sagði Hákon að lok-
22 ÞUS. A PARA-
DÍSARBÍÓIÐ
Alls hafa um 22.000
manns nú séð ítölsku
óskarsverðlaunamyndina
Paradísarbíóið í Háskóla-
bíói að sögn Friðberts Páls-
sonar bíóstjóra en myndin
hefur verið sýnd í alls 13
mánuði. Sagði hann að-
sóknina hafa verið jafna
allan tímann.
Þá kom fram hjá Frið-
bert að víetnam-mynd John
Miliusar, Flugsveitin, hefði
fengið 4.500 manns í að-
sókn eftir tæpar tvær vik-
ur. Ástralski grínarinn
Paul Hogan gekk vel því
gamanmynd hans, Næst-
um því engill, er komin upp
í 9.000 manns í aðsókn
eftir mánuð eða svo.
Friðbert sagði að hin
svart/kómíska spænska
mynd Petro Almodovars,
Bittu mig, elskaðu mig,
væri komin í 6.500 manns
en Sýknaður!!! með óskars-
verðlaunaleikaranum Jer-
emy Irons hefur tekið inn
aðeins minna eða um 6.000
manns.
Tvær stærstu myndir
Háskólabíós í sumar verða
að sögn Friðberts þrillerinn
„The Silence of the Lambs“
sem áætlað er að sýna í
júlí nk. og gamanmyndin
Beint á ská 2*/2: Lyktin af
hræðslu, sem kemur strax
á eftir. Fram að þeim tíma
verða meðal annars sýndar
myndirnar „Mermaids“
með Cher, „The Two Ja-
kes“ eftir og með Jack
Nicholson og gangster-
myndin „State of Grace“
með Sean Penn.
/Hver er sagan á bak vid Eymd?
Rithöfiindaraunir
ÞÆR ERU orðnar ófáar bíómyndirnar eftir sögum
Stephen Kings enda afkaslar maðurinn ótrúlega miklu.
Nýjasta myndin er eftir sögunni Eymd („Misery"), sem
komið hefur út á islensku, en hún var frumsýnd nýlega
i Bíóborginni.
Eymd er hrollvekja um
rithöfundinn Paul
Sheldon sem lendir í bílslysi
utan alfaravegar en bjarg-
vættur hans er geðbiluð
miðaldra
kona,
Annie
Wilkes,
sem líka
reynist
ákafasti
aðdáandi
eftir Arnald hans. Það
Indriioson ej.u
sjoppubókmenntir Sheldons
um stúlkuna Eymd sem hún
er svo hrifin af en þegar
Annie komst að því að hann
ætlar að hætta að skrifa um
Eymd, láta hana deyja og
taka til við alvarlegri bók-
menntir, tapar hún því litla
viti sem eftir er og neyðir
hann sárþjáðan til að skrifa
eina Eymdarsöguna enn.
Andstaða hans kostar hann
ótrúlegar kvalir.
Leikstjórinn Rob Reiner
(Þegar Harry hitti Sally og
„Stand By Me“), hefur ekki
geit hryllingsmynd áður og
hann fann í sögunni dulítið
meira en háspennu/lífs-
hættu. Hann vildi breyta
nokkuð Paul Sheldon um
leið og hann færði hann á
filmu. „Bókin,“ sagði hann
í erlendu blaðaviðtali, „er
um mann sem situr fastur
í eigin velgengni og er ófær
um að gera neitt annað en
það sem velgengni hans
byggist á. Ég vildi gera
mynd um listamann sem er
fangi eigin velgengni en
hann finnur leið út, þroskast
og breytist.“
Rainer keypti réttinn til
að kvikmynda söguna af
Stephen King og King, sem
mjög hreyfst af „Stand By
Me“, sem Rainer gerði eftir
einni af smásögum hans,
féllst á að selja honum rétt-
inn ef hann annað hvort
leikstýrði myndinni sjálfur
eða framleiddi hana. Will-
iam Goldman, tvímælalaust
einn færasti liandritshöf-
undur í Hollywood, skrifaði
handritið eftir sögunni og
þegar Rainer sá það fannst
honum hann verða að leik-
stýra myndinni sjálfur.
Hann vildi í byijun stór
nöfn í tvö aðalhlutverkin og
lengi vel var Warren Beatty
nefndur í hlutverk rithöf-
undarins og m.a. Jessia
Lange og Bette Midler í
hlutverk geðsjúka aðdáan-
dans. En Warren var bund-
inn við Dick Tracy þegar
tökur áttu að hefjast og
James Caan, sem lítið hefur
borið á í heilan áratug, greip
hlutverkið fegins hendi.
Sviðsleikkonan Kathy Bates
hreppti kvenhlutverkið og
svo fór að hún hlaut Óskar-
inn fyrir túlkunina á Annie
Wilkes.
Starfsaðferðir þeirra eru
mjög ólíkar. Caan les tvisv-
ar yfir handritið og vill svo
ekki sjá það meira. Ef hann
getur ekki munað setning-
arnar, segir hann, er það
af því þær eru ekki nógu
góðar. Bates vill æfa og æfa
og æfa þar til atriðið er
komið á hreint. Hún vill
enga lausa enda þegar vél-
arnar fara að suða. Þetta
kostaði talsverðan ríg þeirr;
á milli en Rainer fann eins
konar málamiðlun.
æfðum miklu minna en K;
hy vildi og miklu meira:
Jimmy vildi.“
Anthony Hopkins í hlut-
verki Hannibal Lecters í „The
Silence of the Lambs“; sýnd
í júlí.
KVIKMYNDIR"""
I BIO
Þetta er gríðarlega mikil
og falleg mynd og ein
af stærstu myndunum sem
hérna hafa verið sýndar.
Við endursýndum hana
fyrir um átta árum og höf-
um sannarlega hug á að
gera það aftur nú þegar
búið er að bæta í hana at-
riðum sem ekki máttu vera
í hgnni á sínum tíma.“
Þetta sagði Grétar
Hjartai'son bíóstjóri í Laug-
arásbíói aðspurður hvort
hann ætlaði að taka til sýn-
inga Stanley Kubrick-
myndina Spartacus frá
1960 með Kirk Douglas,
Laurence Olivier og fleiri
stórstjörnum. Myndin hef-
ur verið sett í dreifingu í
Bandaríkjunum og víðar
eftir að unnar hafa verið á
henni endurbætur og m.a.
sett í hana atriði sem áður
voru klippt burt velsæmis-
insvegna.
. Eitt þeirra er með Olivier
og Tony Curtis í rómversku
baði en af því hljóðið vant-
aði og Olivier var látinn var
breski leikarinn Anthony
Hopkins fenginn til að tala
fyrir hann.
Svipað vargert við
David Lean-myndina Arab-
íu-Lárens og var hún sett
í dreifíngu um allan heim
en kom aldrei hingað í bíó-
in. Því miður.