Morgunblaðið - 05.05.1991, Síða 29
morgunblaðjð VELVAKANPI SUNNUDAQUR 5. MAÍ 199,1
C 29
Óskar Magnússon
með geirfuglinn
sem hann gerði úr
frauðefnum úr
brúsa. Líkanið er
ívið stærra en geir-
fuglinn var.
Hugsanlegur
möguleiki er
á að hægt
verði að láta
geirfuglinn
fjölga sér
með frumum
úr álku, en
álka er ná-
skyld geir-
fuglinum.
manni Náttúrufræðistofnunar ís-
lands. Hann hefur áhuga á að ná
fuglinum til að gera rannsóknir á
honum. Hugsanlegur möguleiki er
á að hægt verði að láta geirfuglinn
fjölga sér með frumum úr álku,
en álka er náskyld geirfuglinum."
Eitthvað á þessa leið átti sagan
að vera, en því miður var ekkert
úr þessu annars ágæta aprílgabbi,
sem Óskar Magnússon átti hug-
myndina að. Óskar hafði gaman
af þessu öllu saman, þó svo að
enginn yrði plataður með frétt-
inni. Ef hún hefði verið birt, hefði
fréttin verið útfærð betur og gerð
sannfærandi fyrir lesendur. En
þetta var góð tilraun sem vel
mátti reyna.
R. Schmidt
Óskar tekur til fótanna eftir að geirfuglinum hafði verið komið fyrir
í fjörunni.
FANGELSISMÁL
að er óhugnanleg staðreynd hve
stór hluti þessarar fámennu
þjóðar er að verða að margvíslegu
vandræða- og afbrotafólki.
Oft er um ungt fólk að ræða sem
virðist eiga í erfiðleikum með að
finna tilgang í líf sitt. Hér er um
mörg hundruð manns að ræða á
mismunandi vandræðastigum,
margt er síbrotafólk sem hefur hlot-
ið dóma sem í sumum tilvikum hef-
ur ekki verið hægt að fullnægja
vegna skorts á viðeigandi húsnæði.
Þetta setur að sjálfsögðu alla lög-
gæslu lögreglumanna í vanda, sér-
staklega um helgar. Það er flestum
kunnugt að húsakostur varðandi
fangelsi er ekki fullnægjandi og í
sumum tilfellum lélegur og varla
mannsæmandi. Oft hefur verið á
orði haft að byggja nýjar fangelsis-
stofnanir en þess ætti ekki að vera
nein þörf. Benda má á að mikið
úrval húsnæðis, er nota má til þess-
arar starfsemi, er þegar fyrir hendi,
og þyrfti tiltölulega litlu að breyta
til að það nýttist til þessara nota.
T.d. má nefna sögualdarkastala rík-
isins í Skálholti, Reykholti og jafn-
vel Hólaskóla i Hjaltadal, — tæpast
verður séð að nokkur þörf sé núorð-
ið á rekstri tveggja bændaskóla í
landinu svo sem nú er komið í ís-
lenskum landbúnaði. Nefna mætti
til viðbótar eitthvað af fyrrverandi
héraðsskólum. Flestar þær stofnan-
ir sem hér um ræðir hafa í rás
tímans lokið ágætu hlutverki er
þeim var ætlað, en nú er nánast
ekki um annað að ræða en einhvers
konar málamyndarekstur og í sum-
um tilfellum aðeins „staðarstjóra“-
ástand. Þetta eru í flestum tilfellum
vandræðabyggingar sem bjóða upp
á mannsæmandi vistun og úivals
aðstöðu á allan hátt. Hef ég þá einn-
ig í huga þær tilraunir til hugarfars-
breytingar sem vissulega hljóta að
vera eftirsóknarverðasti kosturinn
í þessum efnum. Á þann þátt ætti
að leggja mesta álierslu svo og
ýtniss konar hagnýtt nám er kynni
að koma að gagni að lokinni vistun.
Jón Gunnarsson
. ? 'BL
Wð'Sil tir
:y If
MFtÍ'Í | 1
Eyðilegg-
ing í Þjóð -
leikhúsinu
*
Eg sendi þér þessar línur til þess
að láta í ljós hryggð mína og
megna óánægju með þá eyðilegg-
ingu sem átt hefur sér stað í Þjóð-
leikhúsinu. Ég var bara lítil telpa
þegar ég fór að fara í Ieikhús með
foreldrum mínum. Ég man eftir
Nýársnóttinni, get kallað huldukon-
urnar ljóslifandi , fram í hugskoti
mínu enn þann dag í dag. Þá var
lagður grunnurinn að leikhúsupp-
eldi mínu. Þá uppgötvaði ég þann
galdur sejn felst í leikhúsi. Og leik-
húsin á íslandi hafa blómstrað —
stundum finnst mér það einkum
hafa verið á háaloftum, kjollurum,
bakhúsum og skemmum en engu
að síður hefur Þjóðleikhúsið mitt
verið góður staður og oft með gott
leikhús.
Ég fylgdist með húsinu grotna
niður og fann mikið fyrir því — var
því mjög ánægð þegar ég frétti að
nú ætti að fara að laga það. En ég
fylltist örvæntingu þegar ég heyrði
hugmyndirnar um að umsnúa því —
en hélt að þær — að mér fannst —
styrku raddir sem mótmæltu há-
stöfum myndu hafa betur gegn nið-
urrifsöflunum. Svo varð ekki.
Á föstudagskvöldið var mér, eins
og mörgum öðrum, gefinn miði á
leiksýningu í Þjóðleikhúsinu. Þótt
ég hefði ekki hugsað mér að fara
að sjá þetta leikverk fór ég með
vinnufélögum mínum og vinum. Ég
ætla ekki að fjölyrða um leiksýning-
una, aðeins að reyna að lýsa tilfinn-
ingum mínum að sjá húsið — þetta
fjörutíu ára gamla hús sem byggt
var af svo mikilli natni vera búið
að missa reisn sína. Það var í einu
orði sagt hræðileg reynsla. Árang-
urinn er miklu verri en ég bjóst við
— kannski vegna þess að ég hef
ekki treyst mér til að skoða myndir
í dagblöðum og fylgjast með frétt-
um í sjónvarpi sem hafa lýst at-
ganginum.
Mér er spurn. Af hveiju þurfum
við íslendingar að eyðileggja allt?
Af hveiju má ekkert eldast hér með
reisn? Ég er alls ekki að halda því
fram að það hafi ekki sést eða
heyrst verr úr einhveijum sætum
en öðrum í Þjóðleikhúsinu, eins og
það var, en það var bara allt í lagi.
Hlutir mega vera í friði þótt það
sé eitthvað örlítið að þeim — að
einhverra dómi. Þjóðleikhúsið átti
að fá að vera í friði. Eldast með
reisn — vera ætíð vel við haldið en
í þeim anda og stíl sem það hefur
búið við frá upphafk
Ég lýsi megnri fyrirlitningu á
þeim sem þarna eiga hlut að máli.
Hafi þeir ævinlega skömm fyrir.
Jórunn Sörensen
Framsókn-
ar hugarfar
A
ITímanum er með stóru letri um
daginn: íhaldið kaupir Alþýðu-
flokkinn fyrir 5 stóla.
En hvað þetta lýsir vel hugsjóna-
mennsku og hugarfari þeirra fram-
sóknarmanna.
Árni Helgason
Innilegar þakkir fyrir auðsýhdan hlýhug og
gjafir á 70 ára afmœli mínu, 29. apríl sl.
Guö hlessi ykkur öll.
GuÖný Kjartansdóttir.
Felag
harmoniku-
heldur síðasta skemmtifund vetrarins í dag kl.
15.00 ÍTemplarahöllinni. Harmonikufélag Rang-
æinga, Félag harmonikuunnenda á Suðurnesjum,
Jón Sigurðsson og margirfleiri koma í heimsókn
auk hljómsveita félagsins.
SKIPARADIO HF.
FURUNO
KENNSLA/SÝNING
Dagana 6., 7. og 8. maí milli kl. 14.00 og
17.00 verður kennsla/sýning á Furuno
staðsetningar-, siglingar- og fiskleitar-
tækjum.
Komið og lærið á þessi tæki og kynnið
ykkur hvaða Furuno-tæki við höfum upp
á að bjóða í bátinn, skipið eða togarann.
Allir velkomnir.
Skiparadíó hf.,
Fiskislóð 94, Reykjavík,
sími 20230, Fax 620230.
VÖKVASTÝRÐIR VINNUPALLAR
Vinnuhæð 12 * 15* * 17 metrar
Snúningur 360° - vinnufjarlægð frá miðju 7 m
Burðargeta 180 kg = 2 menn
MARKAÐSÞJÓNUSTAN
Sími 26984 - Fax 26904