Morgunblaðið - 29.05.1991, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 29.05.1991, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. MAI 1991 Tlutcuicv Hcílsuvörur nútímafólks */ mimmssr GARÐSLÁTTUVÉLAR 48 cm sláttubreidd. Öfíugur tvígengis- mótor. Lengri ending, minna viðhald ! Þú slærð betur með (3eplus Kaffivélar 700-1000 wött. Glæsilegirlitir. Verð frá 2.890,- • lObolla 0 Heittoggott 0 Englr eftirdropar 0 Sgerðir pÉZXí LaiA 4 stoppar wW> dymar Vöfflujárn llmandi, fallegarvöfflur. • Snúrugeymsla • Hitastýring • Stígandi hitastilling • Teflonhúð Erum við haldin stofnanatrú? eftir Árna Ingólfsson Ýmsar stofnanir eru mjög gagn- legar og sumir góðir hlutir nást ekki fram nema með sameiginlegu átaki. En of mikið má af öllu gera og þama gildir eins og alls staðar að best er að fyigja reglunni um hinn gullna meðalveg. Líklega erum við ísiendingar enn- þá stofnanatrúar. Margt bendir til þess að slík árátta sé mjög á undan- haldi í öðrum löndum og að einstakl- .ingurinn verði aftur færður skör ofar. Ekki er ástæða til að halda annað en að sama þróun verði hjá okkur á Islandi. Stofnanatrúin kem- ur vei fram í heilbrigðismálum því auk ýmissa fyrirtækja þar á vegum kerfisins (sjúkrahús o.fl.) þá eru þar einnig ýmsar aðrar stofnanir sem eru óbeint reknar með aðstoð kerfis- ins. Flestir eru reiðubúnir til að styrkja slíkar stofnanir bæði ríki og borg, einkafyrirtæki og einnig fólkið í landinu með ýmiss konar söfnun- arátökum. Minna er hugsað um það að meta hversu mikið gagn viðkom- andi stofnanir gera og einnig hitt hvort kostnaður þeirra sé hugsan- lega of hár miðað við notagildí. Sam- bærileg aðstoð við einstaklinga í svipuðu starfí og með miklu minni rekstrarkostnaði myndi aldrei vera á dagskrá. Sumir myndu kalla slíka menn „pilsfaldakapítalista" sem er að vísu gott orð en notað á röngum stað. Einstaklingur starfandi í heil- brigðismálum má ekki auglýsa sig en sambærilegar stofnanir mega auglýsa starfsemi sína endalaust. Margt fólk heldur einnig þegar það fer í sambærilega skoðun hjá stofn- un annars vegar og hjá einstaklingi hins vegar að þá sé meira öryggi „En þrátt fyrir allt þá högum við okkur eins og dæmdir menn, þ.e.a.s. kerfið skal í gegn hvort sem það er gott eða vont. Allt er þetta gert í nafni skipu- lags.“ hjá stofnuninni þótt raunverulega sé þessu öfugt farið. Hluti af þess- ari hugsun er sjálfsagt stofnanatrú en einnig máttur auglýsinganna. Stofnanatrúin kemur einnig fram í ýmsum öðrum myndum. Núna er t.d. allt í einu gamli og góði heimilis- læknirinn ekki lengur gildúr, heldur kemur í staðinn stofnun sem kallast heilsugæslustöð. Það á t.d. að skipta Reykjavík niður í fjögur heilsu- gæsluumdæmi og þú sem býrð í þessu umdæmi átt aðeins kost á því að sækja ti! þinnar heilsugæslu- stöðvar í þínu umdæmi. Ennþá átt þú þó kost á því að velja þér lækni á heilsugæslustöðinni en samkvæmt eðli þessa kerfis þá fellur allt slíkt burtu og innan tíðar átt þú aðeins kost á því að sækja viðkomandi stofnun. Þessi háttur hefur verið viðhafður bæði í Svíþjóð og Noregi en engan veginn gengið upp. Ósló er skipt í mörg heilsugæsluumdæmi eins og á fljótlega að gera í Reykja- vík og samkvæmt’því sem fyrrver- andi aðstoðarborgarlæknir í Ósló sagði mér fyrir nokkrum mánuðum þá eru núna allir þar sammála um að þetta nýja kerfi sé ómögulegt. Hann sagði mér líka að fyrrverandi borgarlæknir Óslóar hafi verið hér á íslandi fyrir nokkrum árum og Krystyna Cortes _________Tónlist_____________ Jón Ásgeirsson Krystyna Cortes hélt sína fyrstu einleikstónleika í íslensku óperunni sl. sunndag. Á efnis- skránni voru verk eftir J.S. Bach, Mozart, Debyssy og Chop- in. Þrátt fyrir að þetta væru fyrstu einleikstónleikar hennar, hefur hún fyrir löngu unnið sé nafn sem frábær píanisti og síð- ast í samspili við Arto Noras, finnska sellósnillinginn. Tónleikamir hófust á Króm- atísku fantasíunni og fúgunni eftir J. S. Bach, sem er bæði margbrotið og erfitt verk. í heild var leikur hennar mjög vel mótaður, bæði hvað varðar hendingamótun og samskipan radda. Tvö verk eftir Mozart voru næst á efnisskránni, Fantasían fræga í c-moll og sónata K. 457, einnig í c-moll. Fantasían ber, hvað snertir formskipan, mörg einkenni barokk-fantasíunnar en er undarlega seiðmögnuð tónsmíð og tókst Krystynu Cortes að laða fram þessi einkenni verksins á einkar fallegan máta. Sónatan K. 457 er glæsileg tón- smíð en þar leikur Mozart mikið með svonefnda minnkaða sjöund og hljómferli tengt því tónbili og var Beethoven jafnvel skammaður fyrir að ofnota þessa tónskipan, eins og t.d. í Pathetique-sónötunni. Sónatan var mjög vel flutt en það var í Estampes eftir Debussy sem Krystyna Cortes fór á kostum og Sú söngmennt, sem tengist karlakórssöng á Islandi, varð til við sérstakar félagslegar aðstæður og ekki síst í því samfélagi sem æðri menntastofnanir voru um og. eftir aldamótin síðustu. Þetta á ekki aðeins við um ísland og var margt í starfsemi þessara hópa erlendis, tekið upp hér á landi. Það sem gerir starf karlakóranna þýð- ingarmeira hér á landi en víða ann- ars staðar, var sú staðreynd, að það var nær eini möguleikinn fyrir tónskáld að fá söngverk sín flutt og að ekki sé talað um að fá tæki- færi til að syngja. Gamlir söngmenn í karlakórun- um Geysi og Fóstbræðrum stóðu fyrir tónleikum í Langholtskirkju um síðustu helgi og fluttu sýnis- horn af þeirri hefð sem karlakór- ekki síst í síðasta verkinu, sem var Fantasían í f-moll, op. 49, eftir Chopin. Estampes samdi Debussy árið 1903 og eru þetta meðal vinsæl- ustu verka hans, enda skemmtileg viðfangsefni fyrir píanista, þar sem leikið er með fíngraferð og blæmót- un af miklu listfengi. Öll þessi at- riði skiluðu sér vel í leik Krystynar Cortes og í fantasíunni eftir Chop- in, sem er feikna erfitt verk, á arnir byggðu upp hér á landi og var tilefnið 75 ára starfsafmæli Fóstbræðra. Sjórnendur kóranna voru Jón Þórarinsson tónskáld og Arni Ingimundarson en undirleikari var Lára Rafnsdóttir. Á efnisskránni voru gamlir og góðir söngvar og hjá Geysimönn- um, sem hófu tónleikana undir stjórn Árna Ingimundarsonar, voru það !ög eins og Þú komst í hlaðið og Grænkandi dalur sem kórinn sögn af þeim glæsibrag er þeir voru fyrrum frægir fyrir. Hall- arfrúin eftir Jon Björnsson var mjög vel sungin af Erni Birgissyni en Geysismfjnn áttu oft á að skipa mjög góðum einsöngvurum. Sam- eiginlega sungu kóramir undir stjórn Árna Ingimundarsonar m.a. í rökkurró hún sefur, eftir Björg- köflum hálfgerður fingurbijótur og meðal best gerðu stórverka meist- arans, var leikur hennar frábær- lega vel útfærður. Það sem vitað var, er nú ljóst, að Krystynar Cort- es er frábær píanóleikari og athug- andi hvort hún, ásamt öðrum kvenpíanistum hér á landi, mætti eiga von á því, að Sinfóníuhljóm- sveit íslands ætlaði henni pláss á tónleikum sínum í framtíðinni. vin Guðmundsson og Brennið þið vitar, eftir Pál ísólfsson, sem kór- amir sungu mjög vel. Gamlir Fóstbræður undir stjórn Jóns Þórarinssonar, sungu ein- göngu íslensk lög, eftir Johann Ó. Haraldsson, Bjama Þorsteinsson og Sigfús Einarsson en af þeim ágætum lögum þeirra var Kirkju- hvoll Bjarna sérlega fallega sung- inn. Saman sungu svo kórarnir, undir stjóm Jóns Þórarinssonar, Ólafarkvæði, íslenskt þjóðlag. Ein- söngvari var Kristinn Hallsson, sem söng hreint úr sagt af glæsi- brag og með einstaklega skýrum textaframburði. Tónleikunum lauk með fímm alþýðulögum eftir Árna Thorsteinsson, sem öll eru raddsett af Jóni Þórarinssyni og var söngur kóranna glæsilegur. Eins og fyrr segir var undirleikari Lára Rafns- dóttir og var leikur hennar bæði öruggur og múskalskt vel útfærð- ur. Geysir og Fóstbræður MEÐAL ANNARRA ORÐA Um mannjöfnuð og verðlaun eftirNjörðP. Njarðvík Sunnudaginn 28. apríl síðastliðinn víkur Matthías Johannessen að mannjöfnuði og verðlaunum fyrir listir í Helgispjalli sínu, og er nokkuð þungorður. „Mannjöfnuður er eitur, það sjáum við í fornum bókmenntum okkar,“ segir þar. Og svo vitnar hann í Helga Hálfdanarson, þann mæta bókmenntaþýðanda og orðvöl- und, sem sagt hefur að listverðlaun „séu ekki aðeins alger markleysa; heldur einnig mjög varhugaverð". I þessu spjalli Matthíasar þykir mér margt athugað af giöggskyggni. Rétt er að gjalda mikinn varhug við mannjöfnuði, en ekki get ég fallist á að hafna öllum listverðlaunum á svo eindreginn hátt. Þetta langar mig að fara um fáeinum orðum. Metingur Mannjöfnuður er í eðli sínu sam- anburður sem byggist á metingi. Hann getur verið tvenns konar í tvennum skilningi: Að telja fram kosti eða ávirðingar og að metast um samanburð annarra manna eða að meta sjálfan sig með hliðsjón af öðrum. Mannjöfnuður er líka í eðli sínu markleysa, að því að engir menn eru eins, ekki einu sinni líkir, og því til einskis að bera þá saman. í lítilli en merkri bók eftir Swami Vivekananda sem heitir Starfsrækt, segir: „Hver er mikill á sínum stað.“ Tökum dæmi af lögfræðingi sem vinnur óaðfinnanlega fyrir Hæsta- rétti. 'Setjum hann um borð í bát í ofviðri. Hann þarf ekki að reynast mikill þar. En sjómaðurinn sem þá hefur fullkomið vald á aðstæðum, getur komið að litlu liði í Hæsta- rétti. Er hægt að segja hvor er hin- um meiri? Kannski á sjómaðurinn eftir að bjarga lögfræðingnum og kannski á lögfræðingurinn eftir að koma sjómanninum til bjargar. Það er meira að segja hæpið að bera saman tvo sjómenn og tvo lögfræð- inga vegna þess, að aðstæður þeirra geta verið svo mismunandi. Og ágæti manna er meðal annars í því fólgið hvernig þeir bregðast við að- stæðum. Ennþá fráleitara er að ætla að meta sjálfan sig með hliðsjón af öðrum. Slíkt leiðir trúlega annað- hvort til oflætis eða minnimáttar- kenndar. Mér er það minnisstætt þegar ég tók stúdentspróf, að þá ráðlagði Þórarinn Björnsson skóla- meistari okkur í ávarpi sínu, að reyna á mikilvægum stundum að horfa á okkur sjálf utan frá líkt og á ókunnuga manneskju, áður en við tækjum ákvörðun. Þetta er góð ráð- legging, en það er erfitt að fylgja henni, eins og flestum góðum ráð- leggingum. Sá maður hefur öðlast mikinn þroska sem getur horft á sjálfan sig hlutdrægnislaust. Og það er fáum gefið að meta eigin þroska. Þeir sem þykjast geta það, gera sig oftast nær seka um vanþroska. En gleymum því ekki að það er hægt að rnetaTólk án samanburðar við aðra. Ég held að við þekkjum öll gott fólk, framúrskarandi fólk sem lifir lífi sínu af stillingu og vinn- ur störf sín án metings svo að aðrir megi góðs af njóta.. Án metings Þannig held ég að sé um flesta listamenn sem leggja líf sitt í sköpun sína. Þeir eru ekki að keppa við aðra en sjálfa sig og sína eigin getu. Þeir þurfa að vísu að hafa nokkurt sjálfstraust samfara sköpunarþörf, því að annars er hætta á að þeim fallist hendur. Kynni mín af lista- mönnum (og ýmsum sem heims- frægð hafa hlotið) segja mér, að sannri og djúpri listsköpun fylgi ein- lægni og hógværð, sem er sprottin af ósjálfráðri virðingu fyrir til- verunni, fyrir sköpunarverkinu og þakklæti fyrir þátttöku í því. Hé- gómleiki er aftur á móti einkenni þeirra sem lifa á yfírborði tilvistar sinnar. Þess vegna eru hégómlegir listamenn svo skoplegir, af því að þeir sýna með framgöngu sinni einni saman að list þeirra er yfirborðsleg. Mér finnst það rétt sem Matthías segir í Helgispjalii sínu, að í listum geti enginn sigrað. En af því dreg ég ekki þá ályktun, að þar af leið- andi sé ekki hægt að verðlauna lista- menn. Verðlaun þurfa nefnilega ekki að tákna að einhver sé „béstur“ í samanburði við aðra. Að vísu er kveðið svo að orði í verðlaunaveit- ingu fræðsluráðs Reykjavíkurborgar fyriri barnabækur og þýðingar á þeim. Þar er talað um „bestu" barna- bókina og „bestu“ þýðinguna. Það er auðvitað ekkert annað en mark- leysa. Þegar Friða Á. Sigurðardóttir fékk íslensku bókmenntaverðlaunin í vetur fyrir skáldsögu sína „Meðan nóttin líður“, þá sagði enginn að hún væri „besta“ bók liðins árs. Og þeg- ar Þorsteinn frá Hamri hlaut stíl- verðlaun Þórbergs Þórðarsonar um daginn, þá sagði enginn að hann væri „mesti“ stílistinn. Og verðlaun þessi ber ekki að skoða sem ein- hvers konar mannjöfnuðarverðlaun. Þau eru ekki verðlaun til manneskj- unnar sem slíkrar, ékki frekar en

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.