Morgunblaðið - 29.05.1991, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. MAI 1991
Morgunblaðið/Þorkell
Margir nýstúdentar voru verðlaunaðir fyrir árangur sinn og hér má sjá skólameistara og verðlaunahafa.
MK útskrifar 31 stúdent
MENNTASKÓLANUM í Kópa-
vogi var slitið við hátíðlega at-
höfn í Kópavogskirkju föstudag-
inn 24. maí.
Þrír tugir stúdenta útskrifuðust
og einum betur, 18 piltar og 13
stúlkur. Herdís Hersteinsdóttir,
stúdent á félagsfræðibraut, lauk
flestum námseiningum, 164 en 144
einingar nægja til að ljúka stúdents-
prófi.
Ingólfur A. Þorkelsson, skóla-
meistari, flutti skólaslitaræðu og
afhenti prófskírteini og verðlaun
fyrir ágætan árangur í einstökum
greinum. Flest verðlaun hlaut
Helga Björg Hafberg, stúdent á
ferðabraut.
í máli skólameistara kom fram
að MK væri á góðri leið með að
verða móðurskóli í ferðamálafræð-
um hér á landi og að næsta haust
væri áformað að öldungadeild í
þeim fræðum tæki til starfa. Einnig
mun Leiðsögumannaskólinn flytjast
í MK áður en langt um líður auk
þess sem Hótei og veitingaskóli ís-
lands mun flytja í nýtt húsnæði við
MK að hausti 1993.
Skólakórinn söng _við skólaslitin
undir stjórn Jóns Olafssonar og
Páll Magnússon, einn nýstúdenta,
flutti ávarp og árnaði skólanum
allra heilla. Tíu ára stúdentar færðu
skólanum veglega bókagjöf sem
Jóhann Rangar Benediktsson, lög-
fræðingur, afhenti með ávarpi.
Heimir Pálsson, formaður skóla-
nefndar flutti ávarp og athöfninni
lauk með ávarpi skólameistara og
fjöldasöng.
Sjómannasamtök á Islandi:
Tvískinnungi Alþjóða
hvalveiðiráðsins hafnað
Morgunblaðinu hefur borist eft-
irfarandi yfirlýsing frá sjómanna-
samtökunum á Islandi, Sjómanna-
sambandi íslands og Farmanna-
og fiskimannasambandi Islands:
íslendingar hafa lengst af byggt
afkomu sína á nýtingu auðlinda hafs-
ins umhverfis landið. Forsenda þess
að veiðimannaþjóð eins og Islending-
ar geti nytjað auðlind sína til fram-
búðar er sú að þess sé ávallt gætt
að ekki sé gengið á auðlindina.
íslenskir sjómenn og útgerðar-
menn hafa ávallt hagað veiðum sín-
um í samræmi við ráðleggingar vís-
indamanna um veiðiþol, hvort sem
um _er að ræða veiðar úr fiskstofnum
við íslandsstrendur eða veiðar á sjáv-
arspendýrum.
Alþjóða hvalveiðiráðið var stofnað
árið 1946 af ríkisstjórnum hvalveiði-
þjóða með það að markmiði að sam-
ræma nýtingu á hvalastofnum í
heiminum og hagsmuni aðildarþjóð-
anna. Islendingar gerðust aðilar að
ráðinu árið 1948.
Árið 1982 var tekin sú ákvörðun
á ársfundi Alþjóða hvalveiðiráðsins
að stöðva allar hvalveiðar í atvinnu:
skyni á árunum 1986 til 1.990. í
samþykktinni sagði að á umræddu
tímabili skyldi Alþjóða hvalveiðiráðið
beita sér fyrir því að umfangsmiklar
vísindarannsóknir færu fram á hval-
astofnum með það fyrir augum að
geta að tímabilinu loknu metið stærð
mismunandi hvalastofna, og út frá
því tekið ákvörðun um áframhald-
andi veiðar.
Undir forystu íslendinga hafa far-
ið fram umfangsmiklar rannsóknir á
hvalastofnum í Norður-Atlantshafi.
Þær rannsóknir gefa ótvírætt til
kynna að nú þegar er óhætt að hefja
veiðar á hrefnu og langreyði hér við
land.
Sjómannasamtökin á íslandi hafna
þeim tvískinnungi sem átt hefur sér
stað innan Alþjóða hvalveiðiráðsins
að undanförnu þar sem ýmis náttúr-
verndarsamtök hafa með áróðri sín-
um mótað afstöðu fulltrúa þeirra
þjóða sem hvað harðast hafa gengið
fram í því að friða beri hvali fyrir
veiðum.
Sjómennirnir sem stunda hvalveið-
ar við strendur landsins, og eiga allt
sitt undir að þær verði leyfðar að
nýju, treysta því að í ljósi þeirra
gagna sem fyrir liggja um veiðiþol
einstakra hvalastofna, verði sam-
þykkt að helja veiðar á hrefnu og
langreyði nú strax í sumar. Afkoma
sjómanna og fjölskyldna þeirra er í
húfi. Jafnframt benda sjómannasam-
tökin á að ef Alþjóða hvalveiðiráðið
ákveður áframhaldandi hvalveiði-
bann, verður afkomu þeirra sjó-
manna sem stunda fiskveiðar við
strendur landsins, og þar með þjóðar-
innar allrar, stefnt í hættu í framt-
íðinni vegna offjölgunar sjávarspen-
dýra:
Nu sem hingað til munu íslending-
ar stunda hvalveiðarnar í nánu sam-
starfi við vísindamenn landsins á
þessu sviði og gæta þess að ekki
verði gengið á hvalastofnana með
veiðunum, svo áfram megi ríkja jafn-
vægi í lífríki hafsins.
Fari svo að Alþjóða hvalveiðiráðið
samþykki ekki að hvalveiðar verði
hafnar nú þegar skora sjómannasam-
tökin á Islandi á ríkisstjórn Islands
að leyfa hvalveiðar þrátt fyrir nei-
kvæða afstöðu Hvalveiðiráðsins.
17
Mýrdalur:
Boðið upp á hesta-
ferðir á Mýrdalsjökul
ÞRÍR bændur í Mýrdalnum hafa stofnað sameignarfélagið Jökla-
hesta sf., og bjóða ferðamönnum í sumar upp á eins dags hesta-
ferðir á Mýrdalsjökul. Farið verður í fylgd leiðsögumanna upp
undir hábungu jökulsins, en þaðan er mjög víðsýnt í björtu veðri
og góðu skyggni.
Að sögn Droplaugar Erlings-
dóttur í Norður-Hvammi, fram-
kvæmdastjóra Jöklahesta, var fé-
lagið stofnað eftir að atvinnumála-
ráðstefna fyrir Mýrdalshrepp var
haldin í mars síðastliðnum í sam-
bandi við uppbyggingu á atvinn-
ulífl í hreppnum, en tilgangurinn
með stofnun þess er að útvega
bændum í Mýrdalnum frekari at-
vinnu. Hún sagði að ferðirnar á
Mýrdalsjökul væru liður í enn frek-
ari starfsemi sem fyrirhuguð væri,
og miðaði að því að bændur hefðu
tekjur af hestum sínum allt árið
um kring.
Fyrstu ferðirnar á Mýrdalsjökul
verða farnar helgina 15. og 16.
júní, og verða þær síðan farnar
um hverja helgi í allt sumar, en
mögulegt er að panta ferðir á virk-
um dögum ef um fleiri en þrjá
þátttakendur er að ræða. Farið
verður í fylgd tveggja kunnugra
leiðsögumanna, og eru innifaldar
tvær máltíðir á meðan á ferðinni
stendur, en henni lýkur síðan með
veislumáltíð þegar komið er til
byggða.
--------------
Leiðrétting
í frásögn af skólaslitum Verslun-
arskólans í Morgunblaðinu í gær
þar sem greint var frá verðlaunaaf-
hendingu féll út nafn eins aðila sem
gaf verðlaun.
Hið íslenska stærðfræðafélag
veitti verðlaun fyrir bestan árangur
í stærðfræði og þau hlaut Úlfar
Erlingsson stúdent úr stærðfræði-
deild Verslunarskólans. Morgun-
blaðið biðst velvirðingar á þessum
mistökum.
— t
'Jriiim/ili
VORLINAN
RÚN
GRINDAVÍK
Upplýsingar í síma 690300 (alla 7 daga vikunnar) á söluskrifstofum okkar, hjá umboðsmönnum um land allt og ferðaskrifstofum.
,!,Stgr. á manninn m.v. 4 í bíl í b-flokki (2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára).