Morgunblaðið - 29.05.1991, Side 18
,18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1991
--; - ------ ----------------■■■■ ' .............—1 ■ ’ 1 1 1 ...... 1 ....................
FALL STJORNARINNAR I EÞIOPIU
Skæruliðahreyfingar taka völdin:
Talið að marxism-
anum verði kast-
að fyrir ofurborð
London, Addis Ababa, Washington. Reuter, Daily Telegraph.
VIÐRÆÐUR skæruliðahreyfinga við marxistastjórnina í Eþíópíu sem
nú virðist vera að ljúka í London áður en þær hefjast voru hinar fyrstu
sem reyndar voru í einhverri aivöru þau 30 ár sem borgarastyrjöld
hefur geisað í landinu. Hún byrjaði með því að Frelsishreyfing Erítreu
(EPLF) hóf að beijast fyrir auknu sjálfsforræði héraðsins. Siðar bætt-
ust við fleiri skæruliðahreyfingar. Þeirra öflugust var Frelsishreyfing
Tigre (TPLF), er upprunalega barðist fyrir sjálfsforræði Tigre-héraðs
en hefur síðustu árin orðið að landshreyfingu einkum eftir að hún
sameinaðist annarri hreyfingu í Wollo-héraði 1988 undir einu heiti,
Lýðræðis- og byltingarhreyfing eþíópísku þjóðarinnar (EPRDF). Sama
ár tókst að hrekja herlið stjórnvalda frá Tigre með aðstoð erítreskra
skæruliða.
Fátt er vitað um helstu forystu-
menn EPRDF og hún nýtur ekki
umtalsverðs stuðnings frá útlöndum
en hefur aðallega barist með her-
teknum þungavopnum síðustu mán-
uðina. Tigremenn eru helsti þjóð-
flokkurinn að baki EPRDF og leið-
toginn heitir Meles Zenawi. Kjarni
hreyfingarinnar, áðumefnt TPLF,
var stofnað 1975 í kjölfar deilna sem
urðu meðal eþíópískra byltingar-
manna eftir að þeir höfðu velt Haile
Selassie keisara úr sessi árið áður.
TPLF var í upphafi marxistahópur
eins og stjórnin í Addis Ababa og
þar til í ársbyrjun var Albanía fyrir-
myndarríkið en talsmenn EPRDF
hafa dregið mjög úr vinstriáherslum
sínum undanfama mánuði og ár.
EPRDF hefur í reynd stjórnað
vemlegum hluta landsins í nokkur
ár. Heimildarmenn í Bandaríkjunum
segja þarlend stjómvöld, sem höfðu
frumkvæði að viðræðunum í London,
vera reiðubúin að gleyma áróðri
hreyfingarinnar fyrr á árum, gefa
henni tækifæri til að sýna að hún
vilji koma á raunverulegu lýðræði
I FRELSISHREYFING
I ERÍTREU (EPLF)
ítoqi : I
HerafH : 40-50.000 manns
• Helsta uppreisnarhreyfingin og
raeður nú yfir Eritreu eftir 30
ára baráttu fyrir sjálfstæði.
• Kasta&i trúnni á Marx siðla á
síðasta áratug oq aðhyllist nú
blandað hagRerfí og f|ölflokka
lýðræði.
• Krefst þess að EPRDF fallist
á þióðaratkvæðagreiðslu um
sjalfstæði Erítreu
• Styður friðarviðræður um
myndun bráðabirgðastjórnar.
■ LÝÐRÆÐIS- OG BYLTING-
ARHREYFING EÞJÓPÍSKU
ÞJÓDARINNAR (EPRDF)
Leiðtogi : Meles Zenawi
Herafli : 30-40.000 manns
• Samtök fjöqurra uppreisnarhópa,
en Frelsisfylking Tigre hefur
töglin og nagldirnar.
• Slyður sjálfstæði Erítreu.
• And-marxisk og stefnir að fjöl-
flokkastjórn.
• Stjórnar héruðunum Tiare og Goiam
auk hluta Gondar, Wallega, Wollo
og Shoa
Þjódin : 50,9 milljónir (1990) 85% hofo viðurværi of landbúnoði.
Þjó&arframleiðsla : 300 milljarðor íslenskro króno órið 1988. Meðoltekjur ó óri eru um 7.200 ÍSK. 15% þjóðartekna renno til varnarmóla.
Landvarnir : 438.000 hermenn
Útflutningur 1990 : 2,0 milljorðar ÍSK
Innflutningur 1990 : 3,5 milljorðor ÍSK
Aðalútflutningsvara : Koffi, en útflutnings- tekjur of því ofla um 60 ollra gialdeyris- tekno lonosins.
l *
□
FRELSISFYLKING
OROMO (OLF)
Herafli : 7.000 manns
• Berst fyrir sjálfs-
ákvörðunarrétti
Oromo, sem er
stærsti minni-
hlutahópur
Eþíópíu.
Keuler
Rauða- •? ...
haf V
mara A J E M E N
Asab
Addis
Ababa 4^,. SOMALIA
Harerge '"áte#.-.-
Sidamo
/UGANDA
KEN YA
G . ■ ’
ÞÍÓP
og skynsamlegri hagstjórn. „Þeir
[skæraliðarnirj hafa afnumið þá
stefnu stjórnarinnar að safna bænd-
um nauðugum saman í samyrkjuþorp
að sovéskum hætti, þeir láta bændur
nú í friði, leyfa einnig verslunareig-
endum að starfa. Þeir stjóma í sam-
ræmi við lögmál markaðsbúskapar-
ins,“ sagði heimildarmaðurinn.
EPLF undir forystu Isaia Afew-
orke er oft talin best skipulagða
skæraliðahreyfing í Afríku. Hún var
stofnuð 1970 en níu árum áður hófu
íbúar Erítreu, er áratugum saman
var ítölsk nýlenda, að krefjast sjálf-
ræðis. Hreyfingin boðar fremur hæg-
fara jafnaðarstefnu og upphaflega
voru liðsmennirnir flestir kristnir en
hún segist nú vera hlutlaus í trúmál-
um. EPLF hefur lítinn stuðning feng-
ið frá öðram ríkjum en þykir hafa
staðið sig afar vel við stjómun lands-
svæða sem frelsuð voru undan stjórn-
inni í Addis Ababa. Reistar vora
verksmiðjur og komið á laggirnar
ótrúlega fullkomnu heilbrigðiskerfi
miðað við aðstæður allar.
Marxistar skilja eftir sig
neyð og þjóðarsundrungu
KLÍKA eþíópískra herforingja
og nokkurra lögreglumanna,
einu nafni dergue, sem batt enda
á örmagna lénsveldi Haile Sel-
assie keisara í Eþíopíu árið 1974,
hafði ekki komið sér saman um
neina grundvallarstefnu eða
áætlun um landsstjórn áður en
hún lét til skarar skríða. Helsta
markmið klíkunnar var að bæta
kjör hermanna og forystumenn-
irnir færðust í fyrstu undan því
að taka á sig pólitíska ábyrgð.
Astandið í landinu, þar sem þeg-
ar var lýst yfir sósíalisma, var
slæmt fyrstu árin eftir bylting-
una, blóðug átök milli tveggja
vinstriflokka komu í veg fyrir
markvissar aðgerðir bráða-
birgðastjórnarinnar þar sem
herforingjar voru valdamiklir
en alls ekki einráðir. Þúsundir
uppreisnargjarnra stúdenta
voru myrtir eða fangelsaðir á
dögum „Rauðu ógnarstjórnar-
innar“ árið 1976. Mengistu Haile
Miriam ofursti varð valdamesti
- maður landsins 1977. I valdatíð
hans var komið á stjórnarfari
sem sérfræðingar i Afríkumál-
um telja orsök nær stanslausra
hungursneyða í landinu síðari
ár þótt þurrkum hafi verið kennt
um.
Keisarinn hafði byggt völd sín
að miklu leyti á hefðbundinni trú
helmings landsmanna, var vemdari
kristindómsins, en herforingjana
skorti slíka kjölfestu meðai almenn-
ings. Þeir höfðu vopnavaldið eitt
og óttuðust samkeppni frá vinstri-
sinnuðum smáborguram og mennt-
amannahópum. Lausnin varð sú,
eftir þóf og ráðleysi í eitt ár, að
gera marxismann að leiðarstjömu
og var vonin um sovéska hernaðar-
aðstoð enn ein ástæðan fyrir þeirri
ákvörðun. Fæstir herforingjanna
vissu nokkum skapan hlut um
fræði þeirra Marx og Leníns en
með samvinnu við einn af vinstri-
hópunum fékkst nóg af hjálpar-
mönnum sem gátu sagt þeim til.
Flokkurinn fékk síðan reisupas-
sann 1978; nú gátu herforingjarnir
sjálfir með bróðurlegri, sovéskri
aðstoð. Komið var á máiamynda-
þingi 1987 en öll lýðréttindi vora
að jafnaði fótum troðin.
Sovétmenn vora fljótir til er
dergue-liðar snera sér til þeirra.
Vopnin bárust í stríðum straumi
og jafnframt var sendur á vettvang
fjöldi sérfræðinga af ýmsu tagi.
Síðar sendu Kúbvetjar mörg þús-
und manna herlið til aðstoðar
stjómarhemum í baráttu hans við
vopnaða andstöðuhópa og til að
þjálfa liðsforingja og öryggislög-
reglu. Er yfír lauk vora um 430.000
manns í eþíópíska hernum en mest-
allur liðsaflinn mun þó hafa verið
sárnauðugur undir vopnum.
Yngstu stríðsmennimir era 12 -
13 ára gamlir. Sagt er að óbreyttir
hermenn beggja stríðsaðila í framl-
ínu hafi undir lokin haft samráð
um að blekkja yfirmenn sína með
ýktum, samræmdum tölum um
mannfall þar sem ekkert hafði í
reynd gerst.
Stalín gengur aftur
Herforingjarnir gerðust marxist-
ar af einskæram hagkvæmni-
ástæðum árið 1978. Þegar búið var
að knésetja alla hættulega keppina-
uta var hugmyndafræðin notuð til
að rökstyðja nauðsyn þess að
stjórnvöld réðu öllu sem máli skipti
í landinu. Embættismenn frá keis-
aratímanum höfðu nær allir verið
drepnir og Sovétmenn hlupu undir
bagga með því að senda þá sem
þeirra eigið skrifræðiskerfi gat ver-
ið án eða vildi refsa með útlegð.
Eþíópísku hermennirnir ákváðu
með hjálp þessarar sérfræðiaðstoð-
ar að koma á staiínisma í skynd-
ingu. Bláfátækt þjóðfélag sem
hafði verið óbreytt að mestu í
margar aldir skyldi nú skipulagt
upp á nýtt frá grunni. Stórbændur
vora umsvifalaust skotnir og risa-
stórum, illa reknum jörðum þeirra
breytt í risastórar, iila reknar stór-
jarðir í eigu ríkisins. Bændur sem
lögðu korn til hliðar ef uppskera
var góð voru skotnir fyrir að
hamstra. Kaupmenn sem komust
Reuter
Ein milljón manna safnaðist saman í Addis Ababa árið 1984 til
að halda upp á tíu ára afmæli byltingarinnar. Yfir fólkinu gnæf-
ir mynd af Mengistu er steytir brosandi hnefann. Það þótti
hneyksli á Vesturlöndum er það fréttist að stjórnvöld hefðu keypt
þúsundir kassa af skosku vískí í tilefni hátíðahaldanna en um
sama leyti skall yfir hungursneyð er varð hundruðum þúsunda
Eþiópíumanna að fjörtjóni.
yfir mat á svæðum þar sem gnótt
var matar og hugðust selja hann
á hungursvæðum, voru skotnir fyr-
ir fjárplógsstarfssemi. Öll matvæl-
aframleiðsla varð í rauninni ríkise-
ign og stundum fengu bændur ekki
einu sinni greitt kostnaðarverð fyr-
ir framleiðslu sína. Bændur í landa-
mærahéraðum gáfust upp á nauð-
ungarvinnunni og flúðu unnvörpum
landið.
Á einu sviði náðu stjórnvöld ár-
angri; ólæsi minnkaði úr 96% árið
1974 í rúm 20% sé hægt að treysta
opinberam tölum.
Yfirráð Amhara
Valdastétt Eþíópíu hefur um
langan aldur komið úr þjóðflokki
Amhara og herforingjarnir voru að
þessu leyti engin undantekning en
gengu enn lengra en fyrri valdhaf-
ar í valdníðslu. Níu af 11 mönnum
í æðstu valdastofnun Verkamanna-
flokks Eþíópíu, eins og stjórnar-
flokkurinn nefndist frá 1984, voru
Amharar. Reynt var að gera tungu
þeirra allsráðandi og kynti þetta
undir sundrungu og þjóðaríg sem
ekki verður séð fyrir endann á.
Múslimar, sem era um helmingur
íbúa landsins, vora áhrifalausir í
stjómkerfinu.
Nauðungarflutningar smá-
bænda þóttu sýna hvernig ætlunin
væri að þrengja enn hag allra ann-
arra þjóða en Amhara. Um 600.000
smábændur voru fluttir úr héraðum
sínum, Wollo og Tigre, árið 1985
til landsvæða í suðvestur-hluta
Eþíópíu og var því borið við að
hungursneyð geisaði, með þessu
væri hægt að bjarga lífi fólksins.
Mengistu benti á að í suðurhluta
landsins væri úrkoma meiri og
betra undir bú en annars staðar.
En svæðin sem fólkið var fiutt til
era þurrlend og hijóstrug og á
sama tíma höfðu þeir sem þar
bjuggu fyrir alls ekki nóg fyrir sig
að leggja. Umheimurinn tók áróður
stjómvalda trúanlegan og send var
matvælaaðstoð á staðinn. Þjáð
fólkið gat engum mótmælum
hreyft gegn búferlaflutningunum,
stundum voru stórar þyrlur notaðar
við flutningana. Það vandist á að
þiggja matargjafir og síðustu leifar
sjálfsbjargarviðleitninnar fuku út í
veður og vind.
Samkvæmt áætlunum stjórn-
valda skyldi hálf önnur milljón
manna flytjast frá heimkynnum
sínum en sérfræðingar teija að
langur tími muni líða þar til um-
rædd svæði geti fætt fólkið takist
það nokkurn tíma. Einnig muni
uppbygging á svæðunum kosta
gríðarlegt fé sem Eþíópíumenn
eiga ekki tii.
Byggt á The Daily Telegraph,
The Economist o.fl.