Morgunblaðið - 29.05.1991, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1991
t
Faðir okkar og tengdafaðir,
ÁSMUNDUR JÓSEPSSON
frá Stóru-Reykjum í Fljótum,
Skagfirðingabraut 1,
Sauðárkróki,
lést í sjúkrahúsi Sauðárkróks 25. maí sl.
Jarðsett verður frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 1. júní kl. 14.00.
Eirfkur Ásmundsson, Hulda Magnúsdóttir,
Hreiðar Asmundsson. Gyða Svavarsdóttir,
Guðmundur Ásmundsson, Thora Ásmundsson,
Lúðvík Ásmundsson, Gréta Jóhannsdóttir.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
GÍSLÍNA HELGA MAGNÚSDÓTTIR
frá Hrauni í Grindavík,
til heimilis á Sæbólsbraut 28,
Kópavogi,
lést í Landspítalanum að kvöldi dags 22. maí sl.
Jarðarförin fer fram frá Kópavogskirkju í dag, miðvikudaginn
29. maí, kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á krabbameinslækninga-
deild Landspítalans, sími 601302.
Hrefna Birgitta Bjarnad., Björn Ottó Halldórsson,
Laufey K. Kristjánsd. Miljevic, Stanko Miljevic,
Helga Elísabet Kristjánsd., Aðalsteinn Sigurhansson,
Heiðrún Lára Kristjánsd., Guðmundur Guðmundsson
og barnabörn.
t
Ástkær systir min og móðursystir,
GEIRÞRÚÐUR J. ÁSGEIRSDÓTTIR KÚLD
hjúkrunarkona,
Aflagranda 40,
áður Litlagerði 5,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 30. maí
kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnnast hennar, er bent á líknarfélög.
Margrét Ásgeirsdóttir,
Aðalbjörg Björnsdóttir.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tegndafaðir, afi og langafi,
RAGNAR Þ. GUÐLAUGSSON
blikksmiður,
Hátúni 10,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 30. maí
kl. 13.30.
Kristín L. Guðjónsdóttir,
Guðjón Ragnarsson, Kolbrún Zophoniasardóttir,
Hanna G. Ragnarsdóttir, Jón Kr. Stefánsson,
Halldóra G. Ragnarsdóttir, Gunnar Loftsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Maðurinn minn,
ÁRMANN JAKOBSSON
frá Tálknafirði,
Álftahólum 4,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 30. maí '91
kl. 15.00.
Þeim, sem vildu minnast hans, er vinsamlega bent á að láta
Krabbameinsfélagið njóta þess.
Jóndís Einarsdóttir.
Guðjón Guðjóns-
son — Kveðjuorð
Nú er komið að kveðjustund. í
gær, þriðjudaginn 28. maí, var jarð-
sunginn vinur okkar Guðjón Gúð-
jónsson. Við urðum harmi slegnir
er við fréttum að vinur okkar Gaui,
eins og hann var ofast kallaður af
okkur, hefði látist. Hann var ein-
ungis 18 ára, í blóma lífsins og
átti allt lífið framundan, þegar hann
fór frá okkur. Gaui var frekar róleg
persóna og erfitt var fyrir fólk að
kynnast hinum rétta Gaua sem við
þekktum og kynntumst fyrst í
Lækjarskóla fyrir mörgum árum
og hefur vináttan ekki slitnað síð-
an. Sá Gaui sem við þekktum var
ávallt hress sama hvað á bar óháð
því hvernig honum leið sjálfum
innra með sér. Hann gat ekki horft
upp á vin sinn beittan ranglæti án
þess að hjálpa honum. Gaui lét
aldrei skap sitt, sem var mikið en
rólegt, bitna á neinum sem ekki
átti það skilið.
Við eigum fjölmargar minningar
úr kjallaraíbúð Gaua í Hafnarfirði
þar sem við áttum margar ógleym-
anlega skemmtilegar kvöldstundir
saman. Við minnumst sumranna
þegar við spiluðum fótbolta og aðra
Ieiki með honum, við minnumst
vetranna sem við notuðum til skíða-
ferða og við minnumst slæmra og
góðra tíma en þó sérstaklega þeirra
góðu.
Gaui var alla tíð mikið í sveit og
hafði hann mjög gaman af hvers
kyns sveitastörfum, hann var ávallt
duglegur vinnumaður og lagði alltaf
metnað sinn í allt sem hann gerði,
hann hafði meira segja íhugað að
gerast bóndi sjálfur. Gaui hafði
einnig íhugað og haft mikinn áhuga
á að læra kjötiðn. Hann hafði mik-
Ingibjörg Björns-
dóttir — Kveðjuorð
Fædd 23. maí 1912
Dáin 14. maí 1991
Hún amma okkar, Ingibjörg
Björnsdóttir á Ægissíðunni, er dáin.
Þegar mamma sagði okkur að
hún amma á Ægissíðunni væri dáin
þá setti okkur hljóð. Einhvernveg-
inn hafði okkur alltaf fundist að
hún yrði alltaf til staðar vestur í
bæ, en nú er allt í einu þannig að
afí er orðinn einn, því hún amma
okkar er farin til Guðs. Við vitum
líka núna að þetta kemur fyrir okk-
ur öll og við eigum öll eftir að hitt-
ast aftur hjá Guði. Nú vitum við
líka að pabbi okkar er búinn að fá
mömmu sína til sín. Það er auðvitað
sárt að elsku amma skuli vera farin
héðan. Við huggum okkur við það
að hún skuli vera hjá honum pabba
okkar núna, sem fór til Guðs svo
ungur.
Við biðjum góðan Guð að vernda
elsku afa á Ægissíðunni sem fínnur
mest allra fyrir því að amma skuli
vera farin, en við vitum að hún og
pabbi gæta hans.
Við söknum ömmu ákaflega mik-
ið. Guð geymi hana.
Jóhann og Anna Björg
t
Systir min og móðursystir,
JÓNA ÞORBJARNARDÓTTIR,
Hrafnistu,
Hafnarfirði,
er látin.
Guðsveinn Þorbjörnsson,
Þorbjörn Pétursson.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför manns-
ins míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
SVEINS KRISTÓFERSSONAR
frá Litla Bergi,
Skagaströnd.
Teitný Guðmundsdóttir,
Guðmundur Sveinsson, Margrét Guðbrandsdóttir,
Gunnar Sveinsson, Bára Þorvaldsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Við þökkum öllum, sem sýndu okkur hlýhug við fráfall elskulegrar
móður okkar, systur minnar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
SIGURÁSTAR ÞÓRÖNNU GUÐMUNDSDÓTTURTEGEDER
frá Háeyri,
Vestmannaeyjum.
EddaTegeder, Haraldur Traustason,
Herdís Tegeder, Hermann Kr. Jónsson,
Guðmundur Tegeder, Jólína Bjarnason,
MaríaTegeder,
Sigurður Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
inn áhuga á kvikmyndum og var
sérfróður á því sviði. Hann hafði
einnig mikinn tónlistaráhuga og á
seinustu mánuðum lífs síns byrjaði
hann að læra að spila á saxafón.
Það er óheyrilega sárst að missa
sannan vin og viljum við votta for-
eldrum Guðjóns, þeim Kristjönu
Marteinsdóttur og Guðjóni Páls-
syni, og systkinum hans og öðrum
aðstandendum, okkar dýpstu sam-
úð á þessum erfiðu tímamótum í
lífi þeirra.
Ari, Eiríkur, Hrafn, Regin.
Nú er Guðjón, elsti og besti vinur
minn, látinn. Ég kynntist Guðjóni
fyrst í Lækjarskóla þar sem við
urðum strax bestu vinir. Guðjón
flutti stuttu seinna yfír í Norðurbæ
í Hafnarfirði og skipti um skóla um
leið. Þetta var langt í burtu fyrir
ungan dreng að flytja en við létum
þetta ekki hafa nein áhrif á okkar
vináttu. Við vorum traustir vinir
og lékum okkur saman daglega.
Eftir að hafa búið í Norðurbæ í
dágóðan tíma flutti hann til Garða-
bæjar. Á því tímabili hittumst við
minna og þegar hann svo fór í
heimavist að Skógum hittumst við
sjaldan. En þegar hann kom svo
aftur til Hafnarfjarðar blómstraði
'vináttan á ný.
Minningamar hrannast upp í
huga mér og langt mál væri að
telja upp allt sem við Guðjón gerð-
um saman og allar þær stundir sem
við skemmtum okkur saman. En
ég minnist þess þegar við Guðjón
fórum saman á skíði, ég kunni lítið
á skíði og hafði aldrei farið í Blá-
fjöll en Guðjón dró mig í margar
skíðaferðir þangað og við skemmt-
um okkur konunglega. Ég minnist
þess þegar við byggðum saman
kofa í Kofaborg og þegar við fómm
niður á bryggju að dorga sem
krakkar. Þegar við komumst á þann
aldur að við fórum að vinna fyrir
okkur á sumrin unnum við Guðjón
oft saman og það var gaman þá.
Guðjón var hlédrægur og ekki
mikið fyrir að láta taka'eftir sér.
Guðjón var kurteis við alla og hann
var vel upp alinn. Guðjón kenndi
mér margt í lífinu, hann kenndi
mér ýmsa góða siði sem ég ekki
kunni og hann kenndi mér fyrstur
manna að elda einhverskonar mat,
það var að spæla egg oná brauð.
Guðjón hafði mikinn áhuga á fót-
bolta og ensku knattspyrnunni,
hann hafði mikið dálæti á kvik-
myndum og sáum við ófáar myndir
saman í bíó. Guðjón var mjög barn-
góður og hann gerði aldrei flugu
mein.
Guðjón var sonur þeirra Krist-
jönu Marteinsdóttur og Guðjóns
Pálssonar. Ég og fjölskylda mín
viljum votta foreldrum og systkin-
um hins látna okkar samúð.
Aldrei er svo bjart
yfir öðlingsmanni,
. að eigi geti syrt
eins sviplega’ og nú
og aldrei svo svart
yfir sorgarranni,
að eigi geti birt
fyrir eilífa trú!
(Matthias Jochumsson)
Brynjólfur Ari Sigurðsson og
fjölskylda.