Morgunblaðið - 29.05.1991, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 29.05.1991, Qupperneq 31
31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. MAI 1991 Bjami Stefáns- son - Kveðjuorð Bjarni með tveimur af styttum sínum í Þjóðleikhúsinu. Fæddur 13. september 1923 Dáinn 27. mars 1991 Þann 5. apríl sl. var til moldar borinn, Bjarni Stefánsson, formlist- amaður við Þjóðleikhúsið í Reykja- vík. Jarðarförin fór fram í kyrrþey að ósk Bjarna. Bjarni fæddist að Steinholti f Glerárþorpi við Akureyri 13. sept- ember 1923. Hann var sonur sæmd- arhjónanna, Stefáns Kristjánsson- ar, sjómanns og starfsmanns Gefj- unar, og Kristínar Bjarnadóttur konu hans. Þau eru nú látin fyrir nokkrum árum. Þegar Bjarni var á 5. ári fluttist fjölskyldan til Reykjavíkur, ásamt yngri bróður hans, Braga, og þar fæddust yngi-i bræður hans, Bald- ur, prentari og Höskuldur, blikk- smiður. Ég kynntist Bjarna fyrst þegar hann bjþ á Freyjugötu 1, á fimmta áratugnum, en þar bjó einnig Skúli Hansen, tannlæknir, sem var söng- unnandi, plötusafnari og diskofil eins og það er kallað á plötumáli. Við ívar heitinn Helgason sem einn- ig var kunnur plötuvinur komum oft til Skúla, þá til að heyra nýj- ustu sendingar bestu samtíma- söngvara sem til voru, en Skúli fékk plötur þessar frá Mílanó og Lundún- um, einnig á ferðum sínum víða um lönd á þessum árum. Skúli kynnti okkur fyrir Bjarna, sem einnig var plötusafnari og diskofil. Þar tókust kynni með okkur og vinátta sem stóð alla' tíð síðan og hef ég talið Bjarna til minna bestu vina. Bjarni gekk í Myndlistarskólann í nokkur ár og var myndlistamennt- aður hjá Jóhanni Briem og Finni Jónssyni, listmálurum. Síðar var Bjarni um skeið í Englandi við form- listanám. Á eftirstríðsái-unum vann hann um tíma við nokkur leikhús þar í landi. Bjarni kvæntist Guðbjörgu Bene- diktsdóttur ritara, en þau slitu sam- vistum í vinsemd eftir nokkur ár. Bjarni var barnlaus. í kringum 1947 eða 8, stóð fyrir dyrum Snorrahátíðin mikla að Reykhólum. Guðlaugur Rósinkranz verðandi Þjóðleikhússtjóri var fram- kvæmdastjóri hátíðarinnar. Hann fékk Bjarna ásamt fleirum til að annast skreytingar hátíðarsvæðis- ins, sem tókst mjög vel og vakti athygli fyrir smekkvísi og kunnáttu. Guðlaugur sá í Bjarna þann hug- vitsama formlistamann sem hann taldi Þjóðleikhúsið ekki mega missa af, og réð hann til starfa þar sem Bjarni starfaði til dauðadags. Bjarni var mjög fær formlista- maður. Margar af styttum hans af Madonnum og skúlptúrum af Róm- veijum voru gerðar úr frauðplasti, sem tóku slíkum breytingum í hönd- um hans að gestum leikhússins sýndist þeir gerðir úr þungum marmara, séð utan úr sal, svo mað- ur nefni ekki allar grímurnar og vasana frá öllum timum. Það eru því miður ekki margir sem átta sig á því hve gífurleg vinna og útsjónar- semi liggur að baki formlistagerð, djúphugsuð kunnátta og mikill til- lestur. Þess oftar undrar mann hve fákunnandi eða ófróðir sumir leik- listarumseigjendur eru þegar þeir fjalla um leikverk eða óperur að þeim yfirsést oftar en sjaldan sá þáttur formlistar, sem bjargar oft lélegri leikmyndagerð. Bjarni hafði mörg áhugamál og ólík, öll menningar- og listalegs eðlis. Um árabil stundaði hann ljós- myndun með ágætum árangri og stúderaði þessi fræði vel. Þessi list- grein kom honum oft vel í starfi hans við leikhúsið. Þess má geta að myndir teknar af Bjarna hafa birst í erlendum tímaritum. Gaman var að fara með honum á málverka- sýningar. Hann var sérfræðingur í þessu og benti okkur á hin ýmsu tilþrif og einkenni sem við komum ekki alltaf auga á við fyrstu sýn. Eins og margir vita var Bjarni Björn var ákaflega hreinskiptinn, hégómalaus og sanngjarn maður. Ég held að þær konur sem voru frumheijar í stétt bókavarða hér á landi hafi átt fáa bandamenn betri en Björn. Hann fór ekki leynt með þá skoðun sína að konur ættu eftir að marka spor í þessa grein, og eins og svo oft hefur Björn reynst sannspár. Við konurnar sem fórum fyrst til framhaldsnáms í bóka- safnsfræðinni fengum góð með- mæli hjá dr. Birni og góð ráð um hvað við skyldum helst leggja fyrir okkur. Þegar nú dr. Björn er kvaddur koma fram í hugann margar dýr- mætar minningar um þennan sér- staka mann. Enginn sem kynntist dr. Birni var í raun ósnortinn af þeim kynnum. Hægt var að heilsa upp á hann eftir margra ára fjar- veru og vera viss um að hann hefði fylgst grannt með — hann vissi hvað við hefðum verið að gera og hafði sínar skoðanir á því! Það var gaman að tala við hann. Hann tal- aði hægt, grundaði hvert orð og kom gjarnan með einhveija skondna athugasemd í lokin. Nú að leiðarlokum vil ég þakka forsjóninni fyrir að hafa fengið að kynnast_ þessum ógleymanlega manni. í huga mér er í senn tregi að vita að ég eigi ekki eftir að hitta dr. Björn framar en jafnframt þakk- læti til þessa læriföður og vinar. Sigrún Klara Hannesdóttir frábær teiknari og það er synd að hann skyldi ekki hafa haft sig nokk- uð í frammi á því sviði því það var ástæða til, hann átti þar erindi. Bjarni var mikill bókaáhugamaður og var tíður gestur á bókauppboð- um. Hann átti vandað séi'valið einkabókasafn á ýmsum málum um velflest áhugamál sín, einnig átti hann frumútgáfur margra góðra verka, enda var Bjarni ágætur tungumálamaður, talaði frönsku og ensku reiprennandi, skildi og las ítölsku og eitthvað í þýsku. Svo verður ekki skilið við Bjarna Stefánsson vin minn, að ekki verði minnst á aðal áhugamál hans alla ævi, en það var tónlistaráhugi hans. Músík umlék Bjarna allt hans líf og þá sér í lagi sönglistin, drottning listanna. Hann var mikili plötusafn- ari, diskofil og í meira lagi vandlát- ur með söngvara. Plötusafn hans var sérvalið úi-valslið bestu söngv- ara í heimi á öllum tímum. Bjarni gerði skýran mun á því fáfengilega dúlli sem við höfum haft í kringum okkur undanfarið, og glæsilegum óperusöng fyrri ára, enda var hann meira og minna þátttakandi í þeim óperusýningum sem skilið hafa eft- ir sig umtalsverðar listrænar endur- minningar. Það er varla hægt annað en að minnast á örfáa af þeim frægu og.alþekktu söngvurum sem allir plötuvinir og safnarar þekkja og Bjarni hreifst svo af. Til að mynda Giovanni Zentatello, einn mesta „Otello" aldarinnar, sérstak- lega „Esultate" innkomu Otellos, atriði sem var tekið upp á sýningu 1928, og er talið það besta sem hefur verið gert, eða óperan „Aida“ frá 1929 ineð A. Pertille sem Rada- mes og Dusolinu Giannini sem Aidu, talin klassískasta og best sungna innspilunin sem gerð hefur verið. Dusolina söng Aidu á móti Pétri Á. Jónssyni í Þýskalandi 1928. Franski söngvarinn Léon Escalais, hinn frægi Cesar Vezzani frá Kors- íku sem söng „Faust“ komplett 1933 með hinum fræga Frakka Marcel Journet. Svo maður nefni suma frægustu Wagnersöngvara aldarinnar sem allir þekkja, t.d. Franz Völker, Max Lorenz, Lauritz Melchior, Leo Slezak. Bjarni var mjög imponeraður af gríska tenór- söngvaranum fræga Ulysses Lapp- as, og átti margar plötur með hon- um eða Caruso, Lázaro, Masini Belcanto meistari aldarinnar Tito Schipa, G. de Luca, hinn frægi ten- or Pattiera, hin ítalska Carmen, Gabriella Besanzoni, svo mætti iengi halda áfram. Þess má geta að Bjarni stóð í bréfaskriftum við marga af ofangreindu listafólki. Margir íslenskir söngvarar höfðu það kvalítet sem hreif Bjarna svo mjög hver á sinn veg eins og Pétur Á. Jónsson, María Markan, Stefán íslandi, Sigurð Skagfield, Gunnar Pálsson, Einar Hjaltested, Eggert Stefánsson o.fl. Bjarni var alla tíð mikill náttúru- unnandi. Hann ferðaðist vítt og breitt um landið, og dáðist að gróðri þess og fegurð. Hann ferðaðist mik- ið með Ferðafélagi íslands. í Öræf- unum hlustaði hann með andakt á stóru symfoníuna, hljómkviðu þagnarinnar, með sólo ívafi smá- fuglanna. Sú symfonía er aðeins leikin í óbyggðum íslands. Sú var tíðin að plötuvinir komu saman á laugardögum hjá „Ás- mundi í Gramminu“ til að ræða málin og panta séivaldar hljómplöt- ur, með bestu söngvurum heimsins. Þar var líka drukkið kaffi hlustað á músík og skoðaðir listar. Þegar best tókst til varð stemmningin eins og á „Café Momús“. Nú heyrir það sögunni til. Bjarni var oft gestur okkar hjóna við ýmis tækifæri. Mörg voru þau vellukkuð gamlárskvöldin og skemmtileg, þegar hann og aðrir vinir komu. Hann var skemmtilegur og kom vel fyrir í hvívetna, kurt- eis, ræðinn og hafði frá mörgu að segja á sinn sérstaka hátt og var þakklátur fyrir hvaðeina sem fyrir hann var gert. Það var alltaf ánægjulegt að fá Bjarna í heim- sókn. Bjarni kom oft á heimili bróður síns, Baldurs Stefánssonar prentara og konu hans, frú Bergþóru Frið- geirsdóttur, bæði við hátíðleg tæki- færi svo og þegar erfiðleikar Bjarna og sjúkdómar sóttu að. Naut hann umönnunar þeirra og hjálpsemi þar til yfir lauk. Bjarni lést á Borgarspítalanum 27. mars sl. eftir stutta en erfiða legu, langt um aldur fram. Það gaf lífinu gildi að hafa þekkt Bjarna, átt samleið með honum og eiga hann að vini. Við Maddý og fjölskyldan öll þökkum honum samfylgdina. Minn- ingin lifir um þennan hýra og glaða heiðursmann sem vildi öllum svo vel. Hvíli hann í friði. Maríus Blomsterberg Dr. Bjöm Sigfús- son - Kveðjuorð Fæddur 17. janúar 1905 Dáinn 10. maí 1991 Nýlega var til moldar borinn dr. Björn Sigfússon sem um árabil var háskólabókavörður og jafnframt forvígismaður að kennslu í bóka- safnsfræði við Háskóla íslands. Það er tæplega aldarfjórðungur síðan ég kynntist dr. Birni fyrst þegar ég kom til hans til að læra bókasafnsfræði við Háskóla ís- lands. Kennslan var þá í höndum Bjöms og Ólafs F. Hjartar og fór kennslan aðallega fram á laugar- dögum. Þar að auki unnum við á safninu undir handleiðslu Björns. Vinnuálagið á Birni var með mikl- um ólíkindum því auk þess sem hann sá um allan rekstur á þessu stóra safni og öll þjónusta við kenn- ara og nemendur var í hans hönd- um, þurfti hann líka að fylgjast með námsvinnunni okkar. Það kom sér oft vel að hann var ekki alltof smámunasamur um útlitið á spjald- skrárspjöldunum. Hann þurfti lík- lega ekkert á þessum spjöldum að halda því Háskólabókasafnið var allt á skrá í ótrúlegu minni hans. Það nægði að fletta upp í Birni og hann var orðinn goðsögn í lifanda lífi vegna ótrúlegs minnis. Það hef- ur verið erfitt að eiga að feta í fót- spor manns sem var í raun lifandi alfræðibók og vanþekking bóka- varðar sem á eftir komu því enn meira áberandi. Það var gaman að hlusta á Björn kenna okkur um flokkun og heim- speki þótt hann ætti það til að hlaupa útundan sér og gleyma að þarna sátum við fáfróð, nýkomin út úr menntaskóla og þekktum lítið til frægra heimspekinga. Hann þaut með okkur heimsálfanna á milli og það tók á hugmyndaflugið að reyna að fylgja honum. Kannski var það ekki allt saman mjög hagnýtt en enginn gat gengið þess dulinn að þessi grein, bókasafnsfræðin, ætti heimspekilegan grunn og fengist við að gera aðgengilega þá þekk- ingu mannkynsins sem á bók hefði verið sett. Þótt okkur þættu sum vinnu- brögð á Háskólabókasafninu heldur forneskjuleg, ritvélarnar gamlar og þreyttar, og sú staðreynd heldur einkennileg að háskólabókavörður- inn sjálfur skyldi ávallt sækja allan bókasafnspóstinn á hjólinu sínu, var Björn ótrúlega framúrstefnulegur á öðrum sviðum. Ekki hafði Reikni- stofnun átt tölvur lengi þegar Björn sá þá möguleika sem bókasafns- fræðin hefði í tölvuvæðingu. Ég minnist þess að árið 1966 sendi hann mig út í Reiknistofnun og þar fékk ég að vinna við fyrstu tölvu- væddu bókaskrána sem unnin var hér á landi, en það var skrá um stræðfræðibækur og var verkið unnið undir handleiðslu dr. Odds Benediktssonar síðar prófessors í tölvunarfræði. Svona var Bjöm. Framsýnn og fijór í hugspn og kom oft á óvart með frumlegum og fram- úrstefnulegum hugmyndum sem hefðu vel hæft 21. öldinni. Það var einkennandi fyrir Björn að hann skyldi vera nógu framsýnn til að sjá að þessi grein, bókasafns- fræðin, ætti mikla framtíð fyrir sér sem stoðgrein við allar aðrar þekk- ingargreinar. Hann kynnti sér kennslu í greininni í Svíþjóð og hóf síðan að kenna hana við Háskóla íslands árið 1956. Þannig eignuðust íslendingar sinn bókavarðarskóla á svipuðum tíma og aðrar þjóðir, þótt fáir gerðu sér grein fyrir því þá hér á landi í hverju þessi grein væri fólgin og aðeins örfáir höfðu lagt stund á greinina erlendis. Við sem stöndum nú í forsvari fyrir kennslu í bóksafns- og upplýs- ingafræði eigum honum skuld að gjalda fyrir það að hann skyldi með framsýni sinni flýta fyrir innreið upplýsingasamfélagsins. Sú ósk sem ég hygg að Björn hefði helst viljað sjá rætast er að nýja Þjóðar- bókhlaðan kæmist í gagnið með tölvuvædda upplýsingaþjónustu þar sem menn gætu fengið svalað þekk- ingarþorsta sínum og komist í tengsl við helstu andans menn ver- aldar. Vonandi rætist sú ósk áður en alltof langur tími líður. + Hjartans þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur hlýju og vinarhug við fráfall og útför HALLDÓRS SÆMUNDSSONAR bónda, Stóra-Bóli, Hornafirði, sem lést hinn 13. maí sl. Rósa Ólafsdóttir Ólafur Halldórsson, Anna Halldórsdóttir, Kristján Vífill Karlsson, Svala Björk Kristjánsdóttir, Halldór Steinar Kristjánsson, Karl Guðni Kristjánsson. + Innilega þökkum við auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÚNAR GISSURARDÓTTUR, Álfaskeiði 40, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks 4. hæðar Sólvangs fyrir frábæra umönnun. Guð blessi ykkur öll. Kristján Steingrímsson, Steingrímur Kristjánsson, Margrét Ág. Kristjánsdóttir, Júlíus Hinriksson, Gissur V. Kristjánsson, Dóra L. Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.