Morgunblaðið - 29.05.1991, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1991
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl) **
Sé hrúturinn í minnsta vafa
um eitthvað sem varðar fjár-
málin ætti hann að afla sér
fyllri upplýsinga hið skjótasta.
Þegar því er lokið og hann
hefur þekkinguna í hendi sér
getur hann tekið skynsamlega
ákvörðun.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nautið kann að vera ósam-
mála maka sínum um ráðstöf-
un sameiginlega fjármuna. Á
hinn bóginn er samkomulag
ágætt með þeim hjónum í öll-
um öðrum mikilvægum mál-
um.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) í»
Tvíburinn lýkur við verkefni
sem hann hefur haft með
höndum. Hann hefur gert sitt
ýtrasta og meiri kröfur verða
ekki gerðar til hans.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) HSSS
Krabbanum getur orðið á í
messunni ef hann blandar
saman leik og starfi. Hann á
skemmtilegan tíma í vændum
í kvöld.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljónið bindur endahnútinn á
verkefni sem það hefur unnið
að heima við, en það er hins
vegar ekki tilbúið til að taka
á móti gestum.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Smávægilegur misskilningur
kemur upp milli meyjunnar og
ættingja hennar, en hún á
gott samfélag við maka sinn.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Voginn hreinsar sig af ýmsum
skyldustörfum. Hana langar
til að einbeita sér að ákveðnu
verkefni núna og ætti að
kynna hugmyndir sínar þar
að lútandi.
Sporódreki
(23. okt. - 21. nóvember) ®)jj0
Sporðdrekinn er einbeittur
eins og hans er vandi, en nú
er það hæfileiki hans til að
sannfæra aðra sem máli skipt-
ir. Hann langar til að sinna
andlegum málefnum.
Bogmaöur
(22. nóv. - 21. desember) Sft )
Sektarkennd sem htjáir bog-
manninn er ástæðulaus. Hann
má ekki vera of harður í dóm-
um um sjálfan sig.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Steingeitin ætti að þiggja boð
um að taka þátt í hópstarfi.
Hún er ef til vill treg í taumi,
en á víst að þetta verður
skemmtileg tilbreyting.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúaij
Nú ætti vatnsberinn að ein-
beita sér að mikilvægu málun-
um. Hann verður að forðast
þá vina sinna sem ei-u frekir
á tíma hans.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) ffTZ*
Fiskurinn fær gagnlegar ráð-
leggingar hjá vinum sínum.
Hann er samt enn í vafa um
hvemig hann á að bregðast
við í ákveðnu máli.
Stjörnuspána á aö lesa sem
dœgradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grumti
visindalegra staóreynda.
DÝRAGLENS
TOMMI OG JENNI
FERDINAND
SMÁFÓLK
S0RRY, MA'AM, I U)A5
A5LEEP..ANP I PREAMEP
I U)A5 5LEEPING,6UT
INTHE PREAM WHEREI
U)A5 5LEEP/Né,I PREAMEP
I U)A5 AU)AKE...
Afsakaðu, kennari, ég var
sofandi... og mig
dreymdi að ég væri sof-
andi, en í draumnum þar
sem ég var sofandi,
dreymdi mig að ég væri
vakandi...
THEN IN THE PREAM
UJHERE I U)A5 AWAKE,
I FELL A5LEEP, ANP
INTHE PREAMUIHEREI
U)A5 5LEEPINGI HEARP
Y0URV0ICE ANPWOKE UP
En svo í draumnum sem
ég var vakandi í, sofnaði
ég, og í draumnum sem
ég sofnaði í, heyrði ég
rödd þína og vaknaði.
^ ANYU5AY, I THINkN
THAT'5 HOU) IT U)A5..
PIP YOU A5K ME
Hvað sem því líður, þá
held ég að svona hafi það
verið ... spurðir þú mig
spurningar?
Gerðu það, kennari,
gráttu ekki...
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Þegar sami móthetjinn þarf
að valda þijá liti, er nánast óhjá-
kvæmilegt að hann lendi í ein-
hvers konar kastþröng. Sagn-
hafi getur jafnvel yfirstigið
slæman samgang með því að
fórna „óþarfa" slag:
Suður gefur; NS á hættu.
Norður
♦ KDG1093
VÁ42
♦ 75
4D8
Vestur
Á5
▼ DG1083 II
♦ 10862
4K9
Suður
Austur
♦ 8764
V76
♦ G4
♦ G7543
♦ 2
V K95
♦ ÁKD93
♦ Á1062
Vestur Norður Austur Suður
1 tígull
1 hjarta 2 spaðar Pass 3 lauf
Pass 3 spaðar Pass 6 grönd
Pass Pass Pass
Útspil: hjartadrottning.
Sagnhafi tekur fyrsta slaginn
heima og rekur út spaðaásinn.
Vestur spilar áfram hjarta og
neyðir sagnhafa til að taka
fríslagina á spaða strax. Það
hefði verið gott að geta tekið
laufásinn fyrst og búið í haginn
fyrir Vínarbragð. Ásinn þvælist
óþægilega fyrir í þessari stöðu:
Vestur Norður ♦ 3 V4 ♦ 75 ♦ D8 Austur
4- ♦ -
V10 llllll V-
♦ 10862 ♦ G4
♦ K ♦ G754
En þá Suður ♦ - ¥- ♦ ÁKD93 ♦ Á er bara að henda hon-
um!
Umsjón Margeir
Pétursson
Á stóra opna mótinu í New
York um páskana kom þessi staða
upp í síðustu umferð í viðureign
Bandaríkjamannsins Ilya
Gurevich (2.455), sem hafði hvítt
og átti leik, og hins stigaháa
sovézka stórmeistara Leonid
Judasin (2.645).
35. Hxd3! Leikið til að taka bak-
vald svörtu drottningarinnar af f7.
Judasin þurfti ekki meira og gafst
upp, frekar en að sjá drottningar-
fómina eftir 35. — Dxd3: 36.
Df7+! - Hxí7, 37. exH+. Ilya
Gurevich er núverandi heims-
meistari unglinga 20 ára og yngri
og virðist eiga framtíðina fyrir
sér, ef marka má frammistöðu
hans í New York. Hann tók
snemma forystuna og lagði m.a.
Gata Kamsky að velli, en tapaði
í næstsíðustu umferð fyrir sigur-
vegara mótsins, sovézka stór-
meistaranum Goldin. Hann lét þó
mótlætið ekki á sig fá eins og
skákin við Judasin sýnir.