Morgunblaðið - 29.05.1991, Side 33
I
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍT99I
33
félk í
fréttum
Félagar í Ruslfélagi Grundafjarðar við fyrsta ruslakassann.
Morgunblaðid/Hallgrímur Magnússon
GRUNDARFJÖRÐUR
Ruslafélag Grundar-
fjarðar gefur ruslakassa
Grundarfirdi.
Ahugaverður félagsskapur hefur
verið stofnaður í vetur í
Grundarfirði. Ber hann nafnið Rusl-
afélag Grundarfjarðar. Rusl, eða
öllu heldur varðveisla rusls, er
helsta málið á stefnuskránni.
Félagar í Ruslafélaginu eru nem-
endur í 2.-4. bekk grunnskólans.
Þeir hafa undanfarið safnað saman
dósum og plastflöskum og selt til
endui-vinnslu. Hafa með þessum
hætti safnast rúmlega 18.000 kr.
Þessa peninga vildu félagar í Rusla-
félaginu nota til að kaupa rusla-
kassa, sem hengdir verða á ijósa-
staura í þorpinu. Vilja félagsmenn
meina að rusl sé betur varðveitt í
þeim en fjúkandi um húsagarða í
suðaustanrokinu, sem stundum
kemur hér niður af fjallgarðinum.
Hreppsnefndinni fannst mikið til
þessa framtaks koma og lagði jafn-
háa upphæð á móti. Þann 17. maí
kl. 13.00 var svo fyrsti kassinn fest-
ur upp við hátíðlega athöfn að við-
stöddu fjölmenni.
- Hallgrímur
SJÚKDÓMAR
Bardot greinir
opinberlega frá
krabbameini sínu
Brigitte Bardot, ein helsta kyn-
bomba sjötta- og sjöunda ára-
tugarins hefur sagt frá því opinber-
lega í fyrsta sinn, að hún hafi verið
skorin upp vegna krabbameins í
bijósti og nú hafi hún allt í senn,
sigrast á sjúkdómnum, eftirköstum
uppskurðarins og hræðslunni sem
svona lífsreynslu fylgir. Hún lét
þess ekki getið hversu aivarlegt til-
felli um var að ræða í hennar til-
viki, en getgátur hafa verið uppi
um það, því hefur jafn vel verið
fleygt að hún hafi legið fyrir dauð-
anum um hríð.
Þetta er svo sem ekkert nýtt af
nálinni, að öðru leyti en því að
Bardot greinir nú loks frá þessu,
en hún mun fyrst hafa fundið fyrir
sjúkdómnum árið 1983 og fljótlega
upp úr því munu læknar hafa kom-
ist að þeirri niðurstöðu að uppskurð-
ur væri nauðsynlegur til að bjarga
lífi hennar. Bardot var að vísu að
Brigitte Bardot.
lang mestu leyti búin að draga sig
í hlé frá kvikmyndum árið 1983,
en fregnir herma að hún hafi íhug-
að að herða róðurinn verulega í
kvikmyndum á ný, en sjúkdómurinn
hafi þá komið eins og köld vatns-
gusa og séð fyrir öllum áformum
þar um.
Hilmar t.v. tek-
ur við prófskír-
teininu úr
höndum Phil
Collins.
NÁM
Phil Collins
afhenti próf-
skírteinið
Hilmar Jensson úr Garðabæ lauk
nýverið BA-gráðu í tónlista-
háskólanum Berklee College Of
Music í Boston Massachusetts og
prófskírteinið rétti honum popp-
stjarnan heimsfræga Phil Collins
sem var kjörinn heiðursdoktór við
háskolann við þetta tækifæri. Coll-
ins þarf vart að kynna, plötur hans
hafa selst í milljónum eintaka og
alls hefur hann unnið til sjö
Grammy-verðlauna.
Heiðurgestir við athöfnina voru
auk Collins stórsöngvarinn A1
Jarreau og Ahmet Ertegun forstjóri
Atlantic-hljómplötuútgáfunnar.
Þeir voru einnig báðir sæmdir heið-
ursdoktórsnafnbót og Jarreau hélt
meginræðu dagsins. Berklee tón-
skólinn er meðal þeirra þekktustu,
en alls stunda þar nám 2700 nem-
endur í einu, þar af 750 nemar frá
75 löndum öðrum en Bandaríkjun-
um.
STYKKISHOLMUR
Lionsmenn
selja blóm
Stykkishólini.
m hvítasunnuna var margt um
manninn í Ilólminum, margt
fólk dreif að til að eyða helginni
bæði í eyjum og Hólminum. Fjöldi
fólks fór til Flateyjar og Baldur fór
þessvegna tvær ferðir og hefur nú
fjölgað ferðum yfír Breiðafjörð.
17 ungmenni voru fermd í Stykkis-
hólmi um hvítasunnu, en áður á pásk-
um voru 2 fermd í Helgafellskirkju.
Lionsklúbbur Stykkishólms hefur
frá öndverðu selt þennan dag blóm
til styrktar því líknarstarfi sem hann
hefur með höndum og ganga félagar
samstílltir í það daginn áður. Einnig
Elsti félagi Lionshreyfingarinn-
ar á Stykkishólmi, Arni Helga-
son, býr sig undir blómasöluna.
hefur kiúbburinn sölu fermingar-
skeyta í sama tilgangi og eni það
mestu tekjulindir klúbbsins, en hann
hefur nú senn starfað í 25 ár.
- Fréttaritari.
Sigurvegararnir úr Árbænuin, f.v. Eggert Gíslason, Hulda Björg
Herjólfsdóttir, Vilhjábnur Björn Sveinsson og Birna Anna Björnsdótt-
ir.
MÆLSKA
Skapar fegurðin
hamingjuna?
Arbæjarskóli og Laugalækjarskóli kepptu nýlega til úrslita í hinni ár-
legu spurningakeppni Grunnskóla Reykjavíkur. í úrslitum reyndu
skólarnir með sér í mælskulist og var umræðuefnið „Skapar fegurðin
hamingjuna?“. Árbæjarskóli hafði betur og sigraði með 107 stiga mun.
Það var íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur ásamt félögum í JC-hreyf-
ingunni sem höfðu veg og vanda að keppninni, en á myndinni má sjá
sigurlið Árbæjarskóla.
8portblú§sur
Buxur - skyrtur - peysur
Aldrei meira úrval
aiísm