Morgunblaðið - 29.05.1991, Page 36

Morgunblaðið - 29.05.1991, Page 36
36 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. MAI 1991 ^ttu tefton-sbejkorpöpruj. ?' © 1991 Jim Unger/Distributed by Universal Press Syndicate Með morgnnkaf&nu Lofthæðin heinia er að gera útaf við mig ... HOGNI HREKKVISI í»essir hringdu . . Endursýnið Krakkann Saumakona hringdi: „Við erum hér nokkrar konur í saumaklúbb og viljum við skora á Ríkissjónvarpið að endursýna Chaplin-myndirnar Krakkann og Iðjuieysingjann sem voru á dag- skrá 25. maí. Þetta eru frábærar myndir." Læða í óskilum „Ársgömul læða, hvít og bröndótt, auðkennd á hjartalaga bletti á hægta herðablaði, fór að heiman frá sér að Hringbraut 39 á hvítasunnudag. Vinsamlegast hringið í síma 621355 ef hún hefur einhvers staðar komið fram. Hjól Blátt og gult Murrey fjalla- hjól, 15 gíra og 26 tommu, var tekið við Holtsbúð 19 í Garðabæ á sunnudag. Vinsamlegast hring- ið í síma 641881 eða 43562 ef hjólið hefur fundist. Sorpa Borgari hringdi: „Það er sorglegt að heyra í Sorpumönnum núna eftir að vél- arnar skemmdust hjá þeim og starfsemin hjá þessu þarfa fyrir- tæki raskaðist. En hafa þeir ver- ið nógu duglegir að koma upplýs- ingum til almennings, t.d. að ekki megi setja steina og járn- stykki í heimilissorptunnur? Ekki vissi ég það. Og þetta kemur heldur ekki nógu skýrt fram í bæklingnum sem Sorpa sendi út fyrir nokkru.“ Tölva Nine tendo tölva tapaðist í grennd við Melaskóla. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 11004 eftir kl. 18. Veski Svart seðlaveski með skilríkj- um tapaðist, líklega í Lídó. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 13558. Fundar- laun. Kettir Tvo ketti vantar nýtt heimili og fást þeir gefins. Annar er fjög- ura ára svört læða með gulum yijum en hinn þriggja ára gulb- röndóttur fress. Upplýsingar í síma 672284. Háværar hringingar Kona í Austurbænum hringdi: „Það hafa margir haft orð á því hve háværar kirkjuklukkurn- ar eru hér í Austurbænum. Þetta sýndi sig um helgina þegar hesta- menn ijölmenntu til messu í Langholtskirkju. Þegar klukkun- um var hringt fældust hestarnir. Prestarnir verða að gera eitthvað í þessu og sjá til þess að hringing- arnar séu ekki svona háværar. íbúarnir hér í hverfinu vilja ekki una við þetta.“ Hvers vegna er selkjötið ekki nýtt? Oft er kvartað undan háu verði á kjöti hér á landi enda er það mun dýrara en í nágrannalöndunum. Um er að kenna, að verulegu leyti, of- framleiðslu á lamba og kindakjöti eins og allir vita - hluti af þvl fer á haugana og nokkur hluti er gef- inn úr landi og stendur ríkissjóður undir útgjöldunum. Framleiðendur vita að neytendur eiga ekki mai'ga valkosti og dregur því verðlagning á öðrum kjöttegundum dám af lambakjötsverðinu. I stað þess að standa að skynsamlegum niður- skurði í landbúnaðinum ráða annar- leg sjónarmið, sennilega mest hags- munir milliliða og ekkert er aðhafst. En við gætum fengið ódýrt kjöt með því að nýta selastofninn sem lifir góðu lífi hér við Jand og hefur víst stóran kvóta á íslandsmiðum. Selurinn er okkur því dýr og mikið til vinnandi að fækka honum. Norð- menn hafa þegar selkjöt á boðstól- um á mörgum veitingahúsum og þar er hægt að fá það I kjötverslun- um. Þetta er úrvals kjöt og sé það rétt matreitt er það heinasti veislu- matur. Þetta gæti skapað mörgum atvinnu hér að stunda selveiðar og verka þetta kjöt. Selkjötið er villi- bráð og laust við alla lyfjamengun, sem viðgengst í öllum landbúnaði. Væri markaðurinn unninn upp hér innanlands er ekki ólíklegt að við gætum flutt þetta kjöt út áður en langt líður. Ekki veit ég til þess að selkjöt fáist í kjötverslunum hér, nema þá súrsaðir hreifar á þorra. Er synd til þess að vita að þetta úrvalskjöt sé ekki nýtt. Matmaður Víkyerji skrifar * undanförnum árum hefur markvisst verið slakað á kröf- um til þeirra, sem hefja nám í menntaskólum. Líta ýmsir nemend- ur í grunnskóla þannig á, að þeir þurfi ekki að leggja hart að sér í námi vegna þess að menntaskóla eða fjölbrautaskóla í þeirra hverfi eða byggðarlagi sé lögum sam- kvæmt skylt að veita þeim inn- göngu. Samkvæmt lögum frá 1988 eiga allir sem lokið hafa grunn- skólanámi rétt á inngöngu í fram- haldsskóla. Margir nemenda sem nú stunda nám í menntaskólum telja að alltof mikið hafi verið slak- að á prófkröfum fyrir inngöngu í skólana og standi þetta starfi fram- haldsskólanna fyrir þrifum í ýmsu tilliti. Sætir furðu hve lítið hefur verið rætt um þessar breytingar í skóla- kerfinu á almennum vettvangi. Raunar er alltof lítið um opinberar umræður hér um skóla- og mennta- mál. Ef litið er á vægi vinnustaða í landinu með hliðsjón af þeim fjölda, sem þar sinnir störfum, er augljóst, að hvergi koma fleiri við sögu en í skólakerfinu. Fjölmiðlar beina helst augum sínum að starfi skóla, þegar þeir eru að hefjast á haustin eða þeim er slitið á vorin. Ifrétt Morgunblaðsins á laugar- dag var skýrt frá einkunnum í samræmdu prófi grunnskólanema í stærðfræði og íslensku. Meðalein- kunnin var rétt um 6 í íslensku og 5,8 í stærðfræði. Tölurnar gefa ekki ástæðu til mikils fögnuðar. Ef eitthvað er ættu þær að vera kennurum og nemendum hvatning til þess að gera betur. Þessar einkunnir segja ekkert um það, hveijir halda áfram í mennta- skólum eða öðrum framhaldsskól- um. í þessari sömu Morgunblaðs- frétt stendur: „Inntaka nemenda í framhaldsskóla er á ábyrgð skóla- meistara hvers framhaldsskóla og meta þeir einstakar umsóknir og hvaða leið þeir ráðleggja hveijum og einum. Nemendur sem búa í hverfi viðkomandi framhaldsskóla hafa forgang um inngöngu ef beita þarf fjöldatakmörkunum.“ Skólameistararnir eru síður en svo öfundsverðir af þessu hlutverki sínu. Hvernig eiga þeir að taka áf skarið um framtíð ungmenna, sem þeir þekkja ekki og eiga augljóslega ekki að dæma alfarið eftir þeim tölum, sem standa í einkunnabókum þeirra? Það voru alls 3.950 ung- menni í 10. bekk -grunnskóla, sem nú þreyttu samræmd próf í stærð- fræði og íslensku. Fær hver og einn þeirra það mat á næstu mánuðum sem verður honum haldgóður veg- vísir á menntabrautinni og úr skól- unum út í lífið? xxx ótt ekki sé mikið Ijallað um mennta- og skólamál í al- mennum fréttum fjölmiðla, skiptir menntun þó sköpum fyrir einstakl- inga og þjóðir. Hún ræður meiru um afkomuna en hráefni, hvort heldur þau er að finna á landi eða í sjó. Án verkmenntunar og al- mennrar þekkingar nýtast auðiindir hvorki sem skyldi né arðurinn af þeim. Stefán Már Stefánsson, prófessor í lögfræði við Háskóla íslands, ræddi um þátttöku íslendinga í evr- ópsku samstarfi í Morgunblaðssam- tali á sunnudag. í fyrirsögn á viðtal- inu var sama orðið þrítekið: Mennt- un, menntun, menntun. Var það gert í samræmi við áhersluna sem prófessorinn lagði á, að menntun væri það sem íslendingar þörfnuð- ust mest til að geta lagað sig að þróun Evrópumála. ■s

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.