Morgunblaðið - 29.05.1991, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1991
39
KNATTSPYRNA
Tékkar koma með alla sína
sterkustu menn til íslands
Ómar Torfason skoraði fjögur.
Bikarkeppnin:
Selfoss
úr leik
Fjórðu deildarlið Árvakurs
gerði sér lítið fyrir og sló út
Selfoss í Mjólbikarkeppni KSÍ
og voru það óvæntustu úrslitin
í 1. umferðinni sem leikin var
í gærkvöldi.
Selfoss fékk óskabyrjun, komst
í 2:0 eftir aðeins fimm mínút-
ur. Árvakursmenn náðu að jafna
fyrir leikhlé og Ámi Guðmundsson
gerði bikardrauma Selfyssinga að
engu með marki í byijun síðari
hálfleiksins.
Fyrstu deildar félögin sátu hjá í
þessari umferð, þau heíja leik í bik-
arnum í 16-liða úrslitum og þá sátu
fjögur af tíu liðum 2. deildar hjá í
umferðinni.
Grindavík vann 7:0 sigur á Reyni
í Sandgerði. Eftir fimmtán mínútna
leik fótbrotnaði Elvar Grétarsson,
markvörður heimaliðsins en staðan
var þá 0:0. Varamarkvörður liðsins
var ekki öfundsverður, hann þurfti
að sækja boltann sjö sinnum í ne-
tið. Ómar Torfason tók skotskóna
með til Sandgerðis og skoraði fjög-
ur mörk en staðan í leikhléi var 0:2.
ÚRSLIT "*"
Knattspyrna
1. umf. Mjólkurbikarkeppninnar:
Leiknir - Haukar.................0:2
Þór Hinriksson, Gauti Marinósson.
Afturelding - Grótta.............1:5
Lúðvík Tómasson — Erling Aðalsteinsson
2, Garðar Garðarsson, Gísli Jónasson, Valur
Sveinbjömsson.
Stokkseyri - TBR.................4:2
Halldór Viðarsson 2, Haukur Olavson, Val-
geir Stcinarsson — Ámi Þór Hallgrímsson,
Oli Björn Ziemsen.
Reynir S. - Grindavík............0:7
— Ómar Torfason 4, Einar Dan 2, Ólafur
Ólafsson.
ÍR - ÍBK...............Frestað til 6/6
Skallagrímur - Bolungarvík.......2:3
Valdimar Sigurðsson, Hafsteinn Gunnars-
son — Svavar Ævarsson 1,
ÍK - Víkingur Ó1.................2:1
Hörður M. Magnússon, Helgi Kolviðarson
— Bogi Pétursson.
Þróttur R. - Snæfell.............5:1
Óskar Óskarsson 2, Grétar Grétarsson 2,
Ingvar Ólafsson — Kristinn Ellertsson.
Árvakur - Selfoss................3:2
Guðmundur Jóhannsson 2, Árni Guðmunds-
son — Páll Guðmundsson, Gísli Bjömsson.
Hvöt- Dalvík.....................1:2
Bjarni Gaukur Sigurðsson — Sjálfsmark,
Reynir Á. - UMSE b...............4:3
Garðar Níelsson 3, Július Guðmundsson —
Gísli Úlfarsson, Guðmundur Jónsson, Ólafur
Torfason.
Völsungur - Magni................3:1
Unnar Jónsson 3 — Sjálfsmark.
Kormákur - Umf. Neisti...........2:0
Rúnar Guðmundsson, Albert Jónsson.
Sindri - Leiknir F...............2:1
Þrándur Sigurðsson, Elvar Grétarsson —
Kári Jóhannsson.
Þróttur N. - llöttur.............2:1
Eysteinn Kristinsson, Guðbjartur Magnason
- Guttomiur Pálsson
Huginn - Valur Rf................5:1
Jóhann Stefánsson, Þór Vilmundai-son,
Smári Brynjólfsson, Hjörtur Unnarsson,
Halldór Róbertsson — Sindri Bjarnason.
Austri - Einlierji............. 2:3
Siguijón Kristjánsson, Eiríkur Bjarnason —
Hallgrímur Guðmundsson 2, sjálfsmark.
Njarðvík - Fylkir................1:4
ívar Guðmundsson — Guðmundur Magnús-
son, Kristinn Tómasson, Lúðvik Bragason,
Anton Jakobsson.
■i KVÖLD: Víkverji og Ármann eigast
við i 1. umferð Mjólkurbikarkeppninnar í
kvöld kl. 20 á Geivigrasinu í Laugardal.
TÉKKAR koma til Reykjavíkur
með sitt sterkasta lið er þeir
mæta íslendingum á Laugar-
dalsvelli í undankeppni Evrópu-
móts landsliða næsta miðviku-
dag.
Tékkar ætla sér greinilega stóra
hluti í Evrópukeppninni og
tjalda öllu því besta sem þeir eiga.
Meðal þeirra eru: Tomas Skuhravý,
sem leikur með Genoa á Ítalíu,
Lubos Kubík, sem leikur með Fior-
entina á Ítalíu og Vaclav Danek,
sem leikur með austurríska liðinu
FC Tirol.
Eftirtaldir 19 leikmenn skipa
hópinn, en 16 þeirra koma til Is-
lands. (Landsleikjafjöldi í sviga):
Markverðir: Ludek Miklosko (35)
QPR, Pavel Kouba (3) Sparta Prag.
Aðrir leikmenn: Jan Kocian (21)
St. Pauli, Miroslav Kedlec (30)
Kauserelautern, Dusan Tittel (7)
Slovan Bratislava, Alois Grussmann
(4) Vitkovice, Ivan Hasek (51)
Strassborg, Michael Frydek (1)
Sparta Prag, Pavel Hapal (4) Sigma
Olomouc, Lubos Kubík (29) Fiorent-
ina, Karel Kula (32) Banik Ostrava,
Jirí Nemec (5) Sparta Prag, Roman
Kukleta (4) Sparta Prag, Tomas
Skuhravy (31) Genoa, Vaclav Dan-
ek (19) FC Tirol, Pvael Kuka (6)
Slavia Prag, Alexander Vencel (0)
Slovan Bratislava, Bartolomej Jur-
asko (1) Inter Bratislava og Ondrej
Kristofik (2) Slovan Bratislava.
Spánveijar eru efstir í riðiinum
með 10 stig eftir 5 leiki. Tékkar
koma næstir með 6 stig eftir 4
leiki, Spánveijar eru með 4 stig
eftir 4 leiki, ísland í 4. sæti með 2
stig eftir 5 leiki og Albanir reka
lestina með 2 stig eftir 6 leiki.
Evrópukeppni meistaraliða:
Rætist
draumur
Tapie?
MARSEILLE frá Frakklandi og Rauða
Stjarnan frá Júgóslavíu mætast í úrslita-
leik í Evrópukeppni meistaraliða í Bari
á ítalfu í dag. Búist er við spennandi
leik og er mikið í húfi fyrir bæði liðin,
enda lið frá þessum tveimur þjóðum
aldrei hampað Evrópubikarnum.
Milljónamæringurinn Bernard Tapie, for-
seti Marseille, hefur eytt um 100 millj-
ónum dollara í liðið á undanförnum árum til
að byggja upp lið á heimsmælikvarða og virð-
ist það nú hafa tekist. Þegar hann tók við
félaginu 1986 sagði hann: „Marseille hefur
girndina og ég hef peningana.“
Bestu leikmenn Marseille eru Englending-
urinn Chris Waddle, sem er sterklega inní
myndinni sem knattspyrnumaður Evrópu
1991. Sóknarmaðurinn Papin, sem hefur
blómstrað í vetur og er einn mesti markaskor-
ari í Evrópu, hvort heldur með Marseille eða
franska landsliðinu. Loks er það Ghana-mað-
urinn, Pele, sem hefur verið mjög mikilvægur
fyrir liðið. Þessir þrír leikmenn eru burðarás-
amir í franska liðinu.
Raymond Göthals, belgíski þjálfarinn hjá
Marseille, sagðist ekki gefa upp byrjunarliðið
fyrr en klukkutíma fyrir leik. Hann sagði að
varnarmaðurinn Eric Di Meco hafi snúið sig
á ökkla og því óvíst hvort hann gæti leikið,
en aftur á móti væri Brasilíumaðurinn Mozer
búinn að ná sér eftir hnémeiðsli.
Chris Waddle hefur leikið vel með Marseille
og nú talinn besti knattspyrnumaður Evrópu.
Rauða Stjarnan hefur komið mjög á óvart
í keppninni og m.a. slegið út þýsku meistar-
ana, Bayern Múnchen. Sigur í Evrópukeppn-
inni gæti fært liðinu miklar tekjur í formi
sölulauna þar sem mörg lið á Ítalíu og Spáni
eru á eftir leikmönnum liðsins. Þar eru efstir
á blaði Robert Prosinecki og Karko Pancev.
Allir bestu leikmenn liðsins verða með í kvöld
nema hvað óvíst var í gær hvort Dusko Rad-
inovic gæti spilað, en hann meiddist á æfingu
á mánudag.
Ljupko Petrovic, þjálfari Rauðu Stjörnunn-
ar, sagði að hann hefði ekkert að fela er
hann var spurður hvers vegna hann æfði fyr-
ir luktum dyrum í gær. „Ég var aðeins að
vernda leikmennina frá utanaðkomandi trufl-
un fyrir mikilvægasta leikinn í sögu félags-
ins.“
Leikurinn fer fram á léikvanginum í Bari
sem tekur 57 þúsund áhorfendur í sæti og
nú þegar uppselt.
Leið liðanna
íúrslit
Marseille (Frakklandi)
1. umferð:
Marseille — Dinamo Tírana........................5:1
(Papin 3, Cantona, Vercruysse) - (Tahiri)
Dinamo Tírana — Marseille........................0:0
Marselle vann samanlagl 5:1
2. umferð:
Lech Poznan (Póllandi) — Marseille...............3:2
(Luksaik, Pachelski, Juskowiak) - (Foumier, Waddle)
Marseille — Lech Poznan..........................6:1
(Papin, Vercruysse 3, Tigana, Boli) - (Jakolcewicz)
Marseille vann samanlagt 8:4.
4-liða úrslit:
AC Mílanó (Italíu) — Marseille...................1:1
(Gullit) - (Papin)
Marseille — AC Mílanó............................1:0
(Waddle)
Marseille vann samalagt 2:1
Undanúrslit:
Spartak Moskva — Marseille.......................1:3
(Shalimov) - (Pele, Papin, VercruysSe)
MarseiIIe — Spartak Moskva.......................2:1
(Pele, Boli) - (Mostovoi)
Marseille vann samanlagt 5:2.
Rauða Stjarnan (Júgólslavíu)
1. umferð:
Rauóa Stjarnan - Grasshopper.....................1:1
(Binic) - (Kecle)
Grasshopper — Kauða Stjarnan.....................1:4
(Koezie) - (Pancev, Prosinecki 2 vsp., Radinovic)
Rauða Stjarnan vann samanlagt 5:2
2. umferð:
Rauda Stjarnan — Glasgow Rangers.................3:0
(Brown, sjálfsm., Prosinecki, Pancev)
Glasgow Rangers — Rauða Stjarnan.................1:1
(McCoist) - (Pancev)
Rauða Stjarnan vann samaniagt 4:1
. 4-liða úrslit:
Rauða Stjarnan - Dynamo Dresden..................3:0
(Prosinecki, Binic, Savicevic)
Dynamo Dresden — Rauða Stjarnan..................1:2
(Leiknum hætt vegna óláta á 82. mínútu).
Rauða Stjarnan vann samalagt 3:0 (fyrri leikurinn gilti)
Undanúrslit:
Bayern Mtinchcn — Rauða Stjarnan.................1:2
(Wohlfarth) - (Pancev, Savicevic)
Rauða Stjarnan — Bayern Mtinchen.................2:2
(Mihajlovic, Augenthaler, sjálfsm.) - (Augenthaler Wo-
hlfarth)
Rauða Stjarnan vann samalagt 4:3
Sóknarknattspyma?
EIN mesta niðurlæging sem íslenskt landslið hefur orðið fyr-
ir, síðan að tapiðfræga gegn Dönum, 2:14, íKaupmannahöfn
1967, átti sér stað á Qemal Stafa-leikvellinum íTírana á sunnu-
daginn - þar sem ísland tapaði fyrir Albönum, sem unnu sinn
fyrsta landsleik síðan 1984 og gerðu jafnframt sitt fyrsta
marki í átján mánuði. Þetta var fyrsti sigurleikur Albana í
undankeppni Evrópumóts og heimsmeistarakeppni, eftir
sautján töp undanfarin sex ár.
Það er ekki liðið nema eitt ár
síðan lítið var gert úr góðum
árangri landsliðsins undir stjórn
Siegfried Held og Guðna Kjart-
anssonar og nýr
landsliðsþjálfari
ráðinn, sem sagði;
A ^ „Knattspyrna er
sóknaríþrótt. Lið
sem ekki sækir
hefur ekkert
sjálfstraust og það
vinnur ekki leik.“
Eggert Magnús-
son, formaður
við þetta tækifæri:
eftir að leika nýir
AF
INNLENDUM
VETTVANGI
SigmundurÓ.
Steinarsson
sknlar
KSÍ,
„Það
sagði
eiga
straumar um íslenska landsliðið.“
Það voru kokhraustir menn sem
töluðu. Ekki hef ég orðið var við
að íslenska landsliðið hafi leikið
sóknarknattspyrnu síðan að þessi
orð voru töluð og ekki hef ég séð
að byijað væri að byggja upp lið
fyrir undankeppni HM í Banda-
ríkjunum 1994_, eins og var á
stefnuskrá KSI. Að mínu mati
hefur íslenska landsliðið tekið
skref aftur á bak, hvað árangur
varðar, síðan Held og Guðni hæitu
að stjórna því.
Ekkert nýtt hefur komið fram.
Til að leika sóknarknattspyrnu
þurfa leikmenn að vera í liðinu
sem geta haldið knettinum og
spilað honum á milli sín. Það er
ekki hægt að leika sóknarknatt-
spyrnu án þess að vera með knött-
inn - og ekki er hægt að skora
mörk án knattar. Fá mörk hafa
verið skoruð í landsleikjum og
þegar þau hafa verið skoruð, hafa
þau verið tilviljunarkennd, eins
og í leikjunum gegn Frökkum í
Reykjavík og Spánverjum í Se-
villa.
Varnarleikur hefur verið aðall
íslenska liðsins siðustu árin, enda
hafa þjálfarar undanfarinna ára
þekkt styrkléika íslenskra knatt-
spyrnumanna. Þeir voru ekki
sífellt að hamra á sóknarknatt-
spyrnu sem leikmenn ráða ekki
við. Þjálfari Albaníu, hefúrgreini-
lega heyrt ummælin um sóknar-
leik fslands, því að hann reiknaði
með að íslenska landsliðið myndi
leggja ríkari áhei-slu á sóknarleik
en það gerði. „Þar sem vörn ís-
lendinga er góð vildum við leyfa
þeim að sækja, reyna að draga
þá fram á völlinn og sækja síðan
snökkt á þá.“
íslenska landsliðið hefur á und-
anförnum ámm ekki verið frægt
fyrir að sækja, heldur leika varn-
arleik og geysast síðan fram í
sókn þegar það við á. Þar hefur
engin breyting orðið á þó að þjálf-
arinn tali sífellt um sóknarleik.
Orð Sævars Jónssonar, fyrirliða
landsliðsins, í Morgunblaðinu í
gær er gott dæmi um það, en
hann sagði; „Mér fannst mjög
snemma að menn væru að hvíla
sig þegar við vorum í sókn. Það
var eins og menn vildu ekki fá
boltann, maður var stundum í
vandræðum vegna þess að það
var enginn til að gefa á.“
Forrráðamenn KSÍ verða að
fara að hugsa sinn gang í sam-
bandi við landsliðið. Það er ekki
endalaust hægt að ræða um sókn-
arleik, sem er ekki leikinn.