Morgunblaðið - 05.07.1991, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1991
Stefna Sjálfstæðisflokksins:
il'
Valddreifing í heil-
brigðisþj ónustu
eftir Sigurbjörn
Sveinsson
Menn leita sífellt leiða til að
bæta hag sinn og velferð. Þáttur í
því er að sjá sér og sínum fyrir eins
góðri heiibrigðisþjónustu og unnt
er. Góð heilsa er ein af grunnþörfum
mannsins til að ná þroska og lifa
fullnægðu lífi. Þá, sem brestur
heilsu, má nú á dögum styðja bæði
með góðri heilbrigðisþjónustu og
annarri félagslegri hjálp, þannig að
virkir einstaklingar nútíma þjóðfé-
lags eru mun fleiri, en þeir, sem
heilsuhraustir eru. Við viljum, að
allir njóti þeirra möguleika, sem
heilbrigðisþjónustan hefur að bjóða
og að enginn þurfi að finna til ör-
yggisleysis vegna skertrar- þjón-
ustu. Til þess höfum við valið þá
leið að standa saman um rekstur
þessarar þjónustu og greiða hana
að mestu úr sameiginlegum sjóði.
Um það er lítill ágreiningur.
Sá er þó hængur á, að heilbrigðis-
þjónustan kostar mikla peninga.
Hvort hún sé dýr er umdeilanlegt,
en hitt er víst, að þjóðfélagið greið-
ir tíund af framleiðslutekjum sínum
til að standa undir rekstri hennar.
Þessara fjármuna þarf að afla með
einum eða öðrum hætti. Er það nú
gert með skattheimtú og síðan
framlögum af fjárlögum ríkisins.
Almennt má segja, að skattheimta
sé óvinsæl. Hins vegar þykir okkur
gott að.njóta góðrar þjónustu svo
sem eins og hér um ræðir. Því er
uppi sífelld togstreita milli þess,
sem við óskum eftir, og þess, sem
við viljum leggja af mörkum. Tog-
streita þessi endurspeglast síðan í
störfum þeirra stjórnmálamanna,
sem við höfum kjörið til að fara
með þessi mál. Þeir taka ákvarðan-
ir til að sætta þessi sjónarmið, hver
eftir sinni lífsskoðun. Og þessar
ákvarðanir eru stundum rangar.
Miðstýring síðustu ára
'Sú stefna, sem ráðið hefur liðin
ár um framkvæmd heilbrigðisþjón-
ustunnar, er vafalítið stefna mið-
stýringar. Hún á sér því miður mjög
djúpar rætur í stjórnkerfinu og
rætur hennar liggja dýpra, en í tíð
ríkjandi stjórnarherra. Það er eðli
miðstýringaráráttunnar að safna til
sín valdi. Svörin, sem hún gefur við
hverjum vanda, eru aukið vald í
færri höndum. Störf Alþingis seinni
ára hafa og einkennst af þessari
tilhneigingu, að halda fast í það
vald, sem þingmenn hafa og ná
því, sem þeir hafa ekki.
Þessi viðhorf hafa ráðið úrlausn-
arefni heilbrigðisþjónustunnar.
Umræðan hefur snúist um vaxandi
útgjöld til þessa þáttar og hvernig
ná mætti fram betri afköstum í
heilbrigðiskerfinu. Stjórnarstefnan
hefur öll verið á þá lund að benda
á kosti miðstýringarinnar bæði hvað
varðar rekstur sjúkrahúsa, sér-
fræðiþjónustu og heilsugæslu-
stöðva. Því hefur verið haldið fram,
að eina leiðin til að ná tökum á
kostnaði við heilbrigðisþjónustuna,
án þess að hún verði skert, sé, að
ríkið ráði sem flestum þáttum henn-
ar. Tekist hefur að koma fram lög-
um, sem lúta að þessu. Ný lög um
heilbrigðisþjónustu eru gott dæmi
um þetta.
Sjálf stæðisflokkur inn
vill söðla um
Sjálfstæðisflokkurinn vill taka
upp nýja og djarfa stefnu í þessum
efnum. Með samþykkt landsfundar
Sjálfstæðisflokksins hefur um síðir
rofað til í því svartnætti, sem ríkt
hefur á undanförnum árum. Þar er
reynt að nálgast viðfangsefnið bæði
hvað varðar fjármögnun og stjórn-
un á alveg nýjan hátt. Þó er göml-
um verðmætum alls ekki varpað
fyrir -fóða. Fer vel á því í þessum
flokki grósku, sem á sér rætur í
gamalli og fijórri jörð. Sjálfstæðis-
flokkurinn vill koma á fót almanna-
tryggingum að nýju. Með því er
bent á og viðurkennt, að núverandi
sjúkratryggingakerfi hefur ekkert
yfirbragð trygginga lengur. Ti-ygg-
ingastofnun ríkisins hefur það eitt
' hlutverk að vera eins konar veitu-
stofnun fyrir ijármuni hins opinbera
til sjúkraþjónustu skv. þeim reglum,
sem henni eru settar. Enginn hefur
þá tilfinningu lengur, að hann sé
tryggður fyrri. áföllum og fái nauð-
synlega þjónustu, þegar hennar er
þörf. Á það er fólk óþyrmilega
Signrbjörn Sveinsson
„Þar er reynt að nálg-
ast viðfangsefnið bæði
hvað varðar fjármögn-
un og stjórnun á alveg
nýjan hátt. Þó er göml-
um verðmætum alls
ekki varpað fyrir
róða.“
minnt, þegar það lendir á biðlistun-
um margfrægu.
fitdfksins Sjálfstæðis-
er ný byggðastefna
Sjáifstæðisflokkurinn vill, að
tiyggingarnar verði landshluta-
tryggingar. Tekjur þeirra verði
hlutfall af almennum skatttekjum
ríkisins og aðstöðumunur einstakra
landshluta jafnaður. Allir eigi sama
rétt óháðan tekjum. Stjórn þessara
nýju sjúkrasamlaga yrði að sjálf-
sögðu í höndum íbúanna sjálfra.
Samlögin myndu greiða alla sjúkra-
þjónustu íbúanna á hvaða stigi heil-
brigðisþjónustunnar sem væri.
15
Það er auðvelt að sjá í hendi
sér, hvaða kostir fylgdu þessu fyrir-
komulagi og til hvaða breytinga það
myndi leiða. í slíku kerfi eru allar
ákvarðanir um ráðstöfun fjármuna
teknar mun nær þeim, sem þiggja
þjónustuna. Hægt verður að snúa
af þeirri braut, sem lögð var, þegar
ábyrgð á rekstri heilsugæslustöðv-
anna var tekin af sveitarfélögunum.
Tryggingarnár geta samið við sveit-
arfélögin eða aðra aðila um rekstur
heilsugæslustöðvanna og greitt fyr-
ir það, sem það kostar á hveijum
stað. Þá yrði miklu hægara en það
er í dag, að gæta að staðbundnum
vandamálum við þennan rekstur og
leysa þau. Önnur þjónusta utan
sjúkrahúsa t.d. á landsbyggðinni
myndi vafalítið batna. Það yrði aug-
ljóslega hagur trygginganna á
hveiju svæði, að þjónustan færi þar
fram. Áherrsla yrði einnig á, að öll
sjúkrahúsþjónusta önnur en sú, sem
ekki yrði við komið að dreifa, yrði
í landshlutunum. Með þessu myndi
hagur manna batna hvað þjónustu
varðar og einnig yrði heilbrigðis-
þjónustan eðlilegri þáttur í hagkerfi
hverrar byggðar.
Stefnan er því um byggðasamlög
í heilbrigðisþjónustu. Er það alveg
í samræmi við óskir um aukið for-
ræði sveitarfélaganna í opinberri
þjónustu og ábendingar um, að slík
skref séu nauðsynlegur þáttur í að
snúa byggðaþróuninni hér á landi
til betri vegar.
Að loknum kosningum
Enginn annar stjórnmálaflokkur
hefur haft þor til að setja fram jafn
skörulegar og skiljanlegar tillögur
í heilbrigðismálum og Sjálfstæðis-
flokkurinn fyrir þessar kosningar.
Veita þarf flokknum brautargengi
til að koma þeim fram að kosning-
um loknum.
Höfundur er læknir í Reykja vík
og fyrrum íBúðardal. Hann
starfar með málefnanefnd
Sjálfstæðisflokksins um
heilbrigðis- og tryggingamál.
=£ o Ásubúö, Búðardal • Vestfirðir: Rafbúð Jónasar Þór, Patreksfirði • Bjarnabúð, Tálknafirði • Edinborg, Bíldudal • Verslun Gpnnars Sigurössonar, Þingeyri • Einar Guðfinnsson, Bolungarvík • Straumur, Isafiröi ■
ra t Noröurland: Kf.Steingrímsfjarðar, Hólmavík • Kf.V-Hún.Hvammstanga • Kf. Húnvetninga, Blönduósi • Kf.Skagfirðinga, Sauðárkróki • KEA, Akureyri • KEA, Dalvík • Bókabúð Rannveigar, Laugum • Sel, Mývatnssveit:
AEG
kr.10.497.
AEG
RAFHLÖÐUBORVÉL BSE 7.2 Verð áður kr. 12.474.
AEG
• SLÍPIROKKUR VS 2 100 Verð áður kr. 20.737.
kr. 17.999." $tgr.
AEG
• RYKSUGA NT 900 , ryk og vatn
Verð áður kr. 16.292,-
kr.14.496
stgr.
AEG
BORVÉL í tösku SB 2E 16RL Verð áður kr. 18.053.
kr. 14.998." stgr.
VELDU ÞER TÆKI SEM ENDAST!
Hjá Bræðrunum Ormsson bjóðast þér góð og örugg handverkfæri, á sérstöku sumarverði. Umboðsmenn um allt land.
BRÆÐURNIR
.§ £ Bræðurnir Ormsson hf. Umboösmenn Reykjavík og nágrenni: BYKO, Kópavogi • BYKO, Hafnarfirði •
m ec Byggt og búið, Reykjavík • Hagkaup, Reykjavík • Mikligaröur, Reykjavík • Brúnás innréttingar, Reykjavík
m ORMSSON HF
Lágmúla 8. Sími 38820
CD í