Morgunblaðið - 05.07.1991, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.07.1991, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B/C/D STOFNAÐ 1913 149. tbl. 79. árg. FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1991 Prentsmiðja Morgunblaðsins Sovétríkin: Flúði flokkinn vegna árása harðlínumanna Moskvu. Reuter. EDUARD Shevardnadze, fyrrum utanríkisráðherra Sovetríkjanna, sagði í gær, að vegna ofsókna harðlinumanna hefði hann séð sig tilneyddan til að segja sig úr sovéska kommúnistaflokknum. Fór hann mjög hörðum orðum um flokkinn og harðlínumennina, sem hann sagði starfa í anda spænska rannsóknarréttarins, Fyrir nokkru skipaði kommún- istaflokkurinn fyrir um innan- flokksrannsókn á Shevardnadze vegna ummæla hans um nauðsyn lýðræðislegrar hreyfingar í landinu og varð hún til þess, að hann sagði sig úr flokknum. Shevardnadze átti áður sæti í stjórnmálaráðinu og var aðalritari kommúnista- flokksins í Georgíu og má kallast Norðmenn forvitnast um EB-aðild Haag. Keuter. THORVALD Stoltenberg, ut- anríkisráðherra Noregs, ætlar að ræða um skilyrðin fyrir hugsan- legri inngöngu Norðmanna í Evr- ópubandalagið á fundi með ut- anríkisráðherra Hollands í dag. Var frá því skýrt í fréttatilkynn- ingu frá hollenska utanríkisráðu- neytinu en Hollendingar fara nú með formcnnsku innan EB. Á fundi Stoltenbergs með Hans van den Broek verður meðal annars rætt um samningaviðræður EB og EFTA, Fríverslunarbandalags Evr- ópu, um Evrópska efnahagssvæðið en eins og kunnugt er hafa tvær EFTA-þjóðanna, Svíar og Aust- urríkismenn, sótt um aðild að EB. Norska stjórnin hefur aftur á móti hvorki viljað segja af né á um hugs- anlega umsókn, aðeins, að beðið verði með allar ákvarðanir fram á næsta ár. í síðustu skoðanakönnunum í Noregi kemur fram, að 40% eru hlynnt aðild að EB, 40% andvíg og aðrir óákveðnir. hæst settur þeirra, sem sagt hafa skilið við flokkinn. Af öðrum má nefna Borís Jeltsín, forseta Rúss- lands, og borgarstjóra Moskvu og Leníngrad, Gavríjl Popov og Ana- tolíj Sobtsjak. Shevardnadze var helsti vopna- bróðir Míkhaíls Gorbatsjovs, for- seta Sovétríkjanna, um fimm ára skeið en í desember sl. sagði hann af sér embætti utanríkisráðherra og varaði jafnframt við vaxandi hættu á valdatöku einræðisafl- anna. Nú í vikunni tilkynnti hann svo ásamt átta öðrum umbótasinn- um, að stofnuð yrði í Sovétríkjun- um lýðræðisleg hreyfing, sem keppa myndi við kommúnista- flokkinn um völdin. Reuter Slóvenskir þjóðvarðliðar eru albúnir nýjum átökum við júgóslavneska sambandsherinn og slóvenskur aimenningur styður þá einhuga. Færir hann þeim mat og drykk eins og þessi kona og sonur hennar, sem eru færa þremur þjóðvarðliðum rauðvín til að svala sér á. Upplausnin í Júgóslavíu: Slóvenar vísa úrslitakostum forsætisnefndarinnar á bug Ljubljana, Belgrad, London. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunbladsins. Reuter. LOJZE Peterle, forsætisráð- herra Slóveníu, hafnaði í gær friðarskilmálum eða úrslitakost- um júgóslavnesku forsætis- nefndarinnar og var búist við, að vopnahléið milli Slóvena og sambandshersins færi fljótlega út um þúfur. Voru skilmálarnir þeir, að slóvenskir þjóðvarðliðar yrðu kvaddir til búða sinna, að fangar yrðu látnir lausir og Keuter Fagnað á þjóðhátíð í GÆR var 4. júlí, þjóðhátíðardagur Bandaríkjanna, og var þar víða mikið um dýrðir að venju. í tilefni af deginum tóku þau forsetahjón- in, George og Barbara Bush, þátt í skrúðgöngunni í Marshfield, sem er 3.000 manna smábær í Missouri, og hér eru þau að veifa fagn- andi mannfjöldanum. Talið er, að um 50.000 manns hafi komið til bæjarins til að sjá þau hjónin og heyra. landamærastöðvum skilað i hendur lögreglu- og hermönn- um sambandsríkisins fyrir há- degi á sunnudag. Ante Markovic, forsætisráðherra Júgóslavíu, viðurkenndi í gær, að herinn færi sínu fram og sagði, að stjórnin hefði aldrei skipað honum til árása á Slóv- eníu. Vopnahlé hefur ríkt milli Sló- vena og sambandshersins síðan á miðvikudag en vegna harkalegra viðbragða Slóvena við friðarskil- málum forsætisnefndarinnar er óttast, að herinn láti aftur til skar- ar skríða. Það var einkum ákvæðið um landamærastöðvarnar, sem Slóvenar vildu ekki samþykkja og Jelko Kacin, upplýsingamálaráð- herra Slóveníu, sagði, að Júgóslav- ía ætti ekki lengur landamæri að Austurríki og Ítalíu, heldur Slóven- ía. Peterle forsætisráðherra hvatti í gær Evrópubandalagið til að við- urkenna sjálfstæði Slóveníu og boðaði jafnframt komu sína í dag á utanríkisráðherrafund EB-ríkj- anna, sem haldinn er í Haag. Markovic, forsætisráðherra Júgóslavíu, sagði í gær á blaða- mannafundi í Belgrad, að hann hefði ekki skipað fyrir um árás hersins á Slóvena, hershöfðingj- arnir hefðu tekið þá ákvörðun sjálf- ir. Sagði hann, að yfirboðari hers- ins væri forsætisnefndin og væri hún nú að leita leiða til að koma böndum á hershöfðingjana. Yfir- völd í Króatíu sögðu í gær, að hermenn úr sambandshemum og serbneskir þjóðvarðliðar hefðu far- ið inn í Króatíu þar sem þeir ætl- uðu að leggja undir sig héraðið Baranja og sameina Serbíu. Er það aðallega byggt Serbum og hefur oft komið til átaka milli þeirra og Króata. Ríkisstjórnir Evrópuríkjanna og Bandaríkjastjórn leggja hart að Júgóslavíustjórn að reyna að ná sáttum við Slóvena og Króata og utanríkisráðherrar Evrópubanda- lagsins ætla að ákveða í dag hvort efnahagsaðstoð við landið verði hætt. Hafa embættismenn stjórn- valda í ýmsum ríkjum haft á orði, að haldi átökin áfram verði sjálf- stæði Slóveníu og Króatíu viður- kennt en stjórnmálamenn vilja ekki taka svo djúpt í árinni. Áhyggjufullir foreldrar serbn- eskra hermanna komu í gær með langferðabílum til Ljubljana í Slóv- eníu til að reyna að fá syni sína leysta úr herþjónustu. Er það lík- lega í fyrsta sinn í sögunni, að gripið er með þeim hætti inn í stríðsátök. Bíll fyrir tvo og tvo kassa af bjór Biel. Reuter. „GLAÐLEGUR, umhverfisvænn og ódýr borgarbíll fyrir tvo og tvo kassa af bjór.“ Þannig hljóðar lýsingin á nýjum bíl, sem svissn- eski úraframleiðandinn SMH og Volkswagen-verksmiðjurnar þýsku ætla að smíða í sameiningu, en hann á að vera rafdrifinn og kosta um það bil 340.000 ísl. kr. SMH eða Suisse Microelectr- onique et d’Horlogerie framleiðir „Swatch“-úrin, litskrúðug, ódýr en afar vinsæl plastúr, sem þökkuð er endurreisn svissneska úrsmíða- iðnaðarins, og nú ætlar fyrirtækið ab hasla sér völl í bílaframleiðsl- unni. Eins og fyrr segir verður bíllinn smíðaður í samvinnu við Volkswagen en hjá SMH hefur verið unnið að „Swatch-bílnum“ i nokkur ár. Talsmaður SMH sagði, að lík- legast væri, að bíllinn yrði rafdrif- inn en þó kæmi einnig til að greina að nota bastarð dísilvélar og raf- vélar. Eru Volkswagen-verksmiðj- urnar að gera tilraun með slíka vél í Golfinum en hún vinnur þann- ig, að rafvélin drífur bílinn í borg- um og bæjum eða þegar hægt er ekið en síðan tekur disilvélin sjálf- krafa við þegar komið er út á þjóð- vegina og hraðinn eykst.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.