Morgunblaðið - 05.07.1991, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1991
____j____:___________!_í----------
Laura Valentino
Hlaðvarpinn:
Sýning Lauru Valentino
Regnboginn sýnir
myndina „Hrói höttur
■ í TILEFNI af íslensku tónlist-
arsumri verða mánudagskvöld á
veitingastaðnum Berlín í sumar
tileinkuð íslenskri tónlist. Tónlistar-
stjórar Berlínar munu spila gömul
íslensk lög í bland við nýútkomin
lög íslenskra tónlistarmanna. Einn-
ig munu íslenskar hljómsveitir
koma fram er tækifæri gefst.
■ Á PÚLSINUM föstudaginn 5.
júlí og laugardaginn 6. júlí halda
íslandsvinirnir Peter Qerling Blu-
esconection sína fyrstu tónleika í
mánaðarför um Island. Hljómsveit-
in hefur áður haldið tónleika á Is-
landi, nánar tiltekið sl. haust og lík-
aði móttökurnar svo vel að hún
afréð að koma aftur. Hljómsveitna
skipa: Asger Jacobsen, bassi og
söngur, Lennard Larsen, munn-
harpa og söngur, Peter Querling
gítar og söngur og íslenski trommu-
leikarinn Ólafur Sigurðsson. Hér
er um athyglisverða danska bíús-
hljómsveit að ræða sem hefur getið
sér gott orð í Danmörku á 17 ára
ferli og því er þess að vænta að
blúsunnendur fjölmenni á Púlsinn
um helgina, segir í fréttatilkynn-
ingu frá Púlsinum. Sunnudaginn
7. júlí leika svo Paparnir á Púlsin-
um.
■ HLJÓMS VEITIN Blautir
dropar spilar í Edenborg í Kefla-
vík föstudaginn 5. júlí. Hljómsveit-
ina skipa: Jóhann Þ. Baldursson,
söngur, Stefán H. Henrysson,
hljómborð, Gunnar Þ. Eggertsson,
gítar, Brynjar Reynisson, bassi,
og Haraldur Ó. Leonhardsson,
trommur.
VZterkurog
hagkvæmur
auglýsmgamiðill!
LAURA Valentino heldur mál-
verkasýningu með nafninu „Kyn,
vald, fegurð“ í Hlaðvarpanum,
Vesturgötu 3, frá 5. til 21. júlí nk.
Laura lauk MA-námi í listmálun
frá Kaliforníu-háskólanum í Berke-
ley árið 1980 og hefur sýnt víða í
Bandaríkjunum. Hún hefur dvalið
á íslandi í þijú ár og stundar nám
í íslensku við Háskóla íslands.
Sýningin verður opnuð föstu-
dagskvöldið 5. júlí milli kl. 8-10.
Ailir velkomnir. Galleríið er opið
þriðjudag-föstudag kl. 12-6, laug-
ardaga kl. 10-4 og sunnudaga kl.
2-4.
REGNBOGINN hefur tekið til
sýningar myndina „Hrói höttur“.
Með aðalhlutverk fara Kevin
Costner og Morgan Freeman.
Eins og útfærslan af sögunni er
í myndinni byijar hún á að Hrói
af Locksley, ungur breskur aðals-
maður sem fór í ævintýraleit til
ókunnra landa, horfist í augu við
dauðann í dýflissu í ókunnu landi.
Honum tekst óvænt að flýja með
hjálp múhameðstrúarmanns að
nafni Azeem sem gerist fóstbróðir
Hróa og ferðast með honum aftur
til Englands.
Þegar þeir koma til Englands
komast þeir að því að á meðan Rík-
harður konungur er í krossferð hef-
ur konungdómurinn fallið í skaut
fógetans af Nottingham sem stjórn-
ar og arðrænir fólkið í landinu af
mikilli grimmd. Hrói kemst að því
að faðir hans var myrtur og að
hann hafði verið sviptur landi sínu
og góðu nafni ættarinnar. Hrói er
Kevin Costner í hlutverki sínu í
myndinni Hrói höttur.
staðráðinn í að hreinsa nafn ættar-
innar af ósönnum áburði en lendir
í útistöðum við menn fógetans og
verður útlagi sem fær nafnið Hrói
höttur.
Hrói finnur Maríönnu, systur vin-
ar síns, sem lét lífið á flóttanum
úr dýflissunni. Hann kemst að því
að hún er orðin bráðfalleg kona,
sjálfstæð í hugsun og framkvæmd-
um.
Hrói og Azeem flýja í Skírisskóg
þar sem þeir rekast á hóp bænda
sem leynast þar í útlegð. Bændurn-
ir ganga í lið með Hróa, staðráðnir
í því að frelsa landið úr klóm hins
illræmda fógeta. Hrói höttur stelur
frá þeim ríku og gefur þeim fátæku
og verður lifandi goðsögn með það
að markmiði að frelsa konungdæm-
ið.
Hvergi vikið frá klisjunum
Kvikmyndir
Sæbjöm Valdimarsson
Bíóhöllin:
Með lögguna á hælunum (Ra-
inbow Drive).
Leikstjóri Bobby Roth. Aðal-
leikendur Peter Weller, Sela
Ward, David Caruso. Banda-
rísk. ITC 1990.
Heldur þunnildisleg afþreying-
armynd þar sem hversdagsleik-
inn ræður ríkjum. Lögregluvarð-
stjórinn Weller í Hollywood kem-
ur á vettvang þar sem fimm lík
liggja í valnum en þó svo að
morðin hafi verið framin i hans
umdæmi koma skipanir ofanfrá
um að málið sé ekki í hans hönd-
um. Weller finnur strax megnan
óþef af málinu, einu líkinu er
skotið undan og fyrr en varir fær
hann hótanir frá yfirmönnum sín-
um um að eins gott sé fyrir hann
að gleyma atburðum, svona heil-
sunnar vegna. En þá er vinur
hans og löggufélagi drepinn og
tekur að hitna í kolunum.
Það vantar alla frumlega
hugsun, Með lögguna á hælunum
er lítið meira en slöpp spegilmynd
af mýgrút betri mynda um spill-
ingu innan lögreglunnar, einkum
á æðstu stöðum, deilur við alrík-
islöggurnar dularfullu, félaga-
missinn, árekstrar og eltingaleik-
ir á færibandi. Hvernig ein heið-
virð lögga kemst lifandi frá þess-
um ósköpum öllum er gamla sag-
an — hann missir ekki marks en
andskotum hans afturámóti
fyrirmunað að hitta garpinn,
jafnvel í dauðafæri. Myndin, sem
lítur út fyrir að vera gerð fyrir
kapal, er þokkalega framleidd og
lítur ekki illa út. En það er hvergi
vikið frá klisjunum og leikhópur-
inn meðalmennskan uppmáluð.
Weller er hvorki fugl né fiskur.
Það er helst að Caruso (Glæpa-
konungurinn — King of New
York), sýni einhvern snefil af
áhuga.
ÖLKJALL-
ARINN
Pósthússtræti 17,
sími 13344.
Föstudagskvöld:
Feðgabandið spilar í kvöld.
Feðgabandið spilar laugardagskvöld.
Opiðtil kl. 03.
Sunnudagskvöld:
Trúbadorinn Gísli Þráins mætir.
Mánudagskvöld:
Trúbadorinn Einar Jónsson.
Opið til kl. 01.
VAGNHÖFÐA 11, REYKJAVÍK, SÍMI 685090
GÖMLU OG NÝJU DANSARNIR
í KVÖLD FRÁ KL. 21.30 - 03.00
Þorvaldur HaUdórs skemmtir laugardagskvöld.
Atti. fietum teklð að okkur í kvöldverö stóra og smáa hópa
með iithun lyrirvara. Pöntunarsímar 685080 og 670051.
Okkar verö á þriréttuðum kvöldveröí er Irá kr. 1.800,-
Við minnum á nýja dansgólfið okkar, sem er það
stærsta og besta í borginni. r-=-
Mætum hress. Verið velkomin. L.
lansstuðið er í Ártúni
/ KI/ÖLD
Sveltasæla íyrir þa sem
ekki ætla út úr bænum.
Sýnt veröur örstutt atriði úr
stórmynúinni Heiða fer í sveit
"Heide Goes to the Countryside"
á Hresst lólk kitlist í staónum
! STHIKIÐ
1 STABUR FRAMTIBARINNAR
Plorpml wW-r Wi llflfetíb
| Metsölublad á hverjum degi!
Lokaðíkvöld
vegna
einkasamkvæmis
NILLABAR
Hljómsveitin
Óttablandin virðing
INGOLFS CAFE
Rjúklmgavcísla
á Píanóbarnum til miönættis
Fríttinntilkl. 23.30
Snyrtilegur klæðnaður
Ingólfscafé, Ingólfsstræti, sími 14944.