Morgunblaðið - 05.07.1991, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 05.07.1991, Blaðsíða 18
(>! ! I IJUl. Jf 18 MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 5. JULl 1991 Morgunblaðið/Björn Blöndal Gert við strokuleiðina Þakgluggar og umbúnaður innanhúss í Hegningarhúsinu við Skóla- vörðustíg hefur verið styrktur eftir að sex fangar brutu sér leið út um þakglugga fyrir skömmu. Verið var að vinna við það nú í vikunni að gera við gluggann, þar sem sexmenningarnir komust út, og koma í veg fyrir að slíkt gerist aftur. Fjölmargir erlendir ferða- menn í veislum á Yatnajökli VEISLUHLAÐBORÐ á Vatnajökli er veitingaþjónusta sem verður æ vinsælli hjá ferðamönnum. Hótel Höfn og Jöklaferðir standa fyrir ferðum frá Höfn í Hornafirði upp á Vatnajökul þar sem boðið er upp á veisluhlaðborð. Eru það aðallega erlendir ferða- menn er nýta sér þessa þjónustu. Að sögn Árna Stefánssonar, hótelstjóra á Hótel Höfn, hafa verið haldnar 12 veislur á jöklinum frá því 17. maí sl. Undirtektir hafa því verið mjög góðar í sumar og fjöldi manns farið í veislur á jöklinum en einnig var boðið upp á svona veisluferðir á jökulinn síð- asta sumar. Árni sagði að það væru aðallega útlendingar sem nýta sér þessa þjónustu og kæmu oft stórir hópar frá fyrirtækjum í Evrópu í þessar jöklaveislur. Stærsti hópurinn sem farið hefur upp á jökulinn í sumar taldi 90 manns. Ámi sagði að ekkert væri því til fyrirstöðu að íslendingar notuðu sér þessa veisluþjónustu sjálfir. Samkvæmt honum er eina skilyrðið fyrir svona veisluferð stærð hópsins en lágmarksfjöldi er 15 manns. I þessum ferðum er farið frá Höfn í Hornafirði upp fyrir Skála- fellsjökul á stað er nefnist Hálsa- sker í 800 metra hæð. Árni sagði að þar væri mokað upp einu snjó- borði fyrir veitingar og öðru fyrir gestina með snjóstólum í kring. í þessum veislum er boðið upp á fiskihlaðborð. Að sögn Árna er komið með allan borðbúnað frá hótelinu og sjá kokkar hótelsins um veitingarnar. Jafnframt sjá þjónar frá hótelinu um að þjóna til borðs. Þannig að reynt er að hafa allt sem veglegast. Að sögn Árna eru Jöklaferðir að byggja fjallaskála hjá Hálsa- skeri til þess að geta aukið um- svif sín á jöklinum og eni þeir bjartsýnir á áframhaldandi veislu- starfsemi og útsýnisferðir á jökul- inn. Jakob Jakobsson forstjóri Hafrannsóknarstofnunar: Missum stjórn á fiskveiði- auðlindimii við aðild að EES JAKOB Jakobsson, forstjóri Hafrannsóknarstofnunar, sagði í ræðu á fundi samstarfshóps um andstöðu við aðild íslands að Evrópsku efnahagssvæði í vikunni, að fyrirvarar á veiðum Evrópuríkja í ís- lenskri fiskveiðilögsögu myndu ekki halda þegar fram liðu stundir og að með aðild íslands að EES, eða inngöngu í EB, myndu íslend- ingar missa sljórn á fiskveiðiauðlindinni. Rakti hann tvö dæmi um fiskveiðistefnu Evrópubandalagsins sem sýndu ofveiði þessara þjóða umfram samningsbundanar veiðiheimildir en því hefði hann kynnst í störfum sinum í Alþjóðahafrannsóknaráðinu. Tiltók Jakob dæmi af síldveiðum í sunnanverðum Norðursjó, sem stundaðar eru af Hollendingum, Frökkum og Dönum. Sagði hann að árið 1989 hefði Alþjóðahafrann- sóknaráðið lagt til að heimilaðar yrðu veiðar á 30 þús. tonnum af síld á hafsæðinu og samþykkti Evr- ópubandalagið í Brussel 30 þús. tonna heildarveiði. „Á aflaskýrslum kemur líka fram að veidd hafí verið 30 þús. tonn en fiskifræðingar hjá Alþjóða hafrannsóknaráðinu kom- ust hins vegar að því, að til viðbót- ar þessu hefðu verið veidd 48 þús. tonn og heildaraflinn á árinu því orðið 78 þúsund tonn,“ sagði hann. Falsaðar aflaskýrslur Á síðasta ári var aftur samþykkt að leyfa veiðar á 30 þús. tonnum af síld, að sögn Jakobs. Aflatölur í lok ársins sýndu hins vegar að að- eins hefðu verið veidd 24 þús. tonn en sérfræðingar Alþjóðahafrann- sóknaráðsins hefðu komist að því að til viðbótar hefðu verið veidd 32 þús. tonn og 5 þús. tonnum hefði verið fleygt. Á síðasta ári hafi því verið veidd rúmlega 30 þús. tonn af síld umfram leyfilegt aflahá- mark. Botnfiskur ofveiddur „Á einu gjöfulasta hafsvæði ver- aldar, Norðursjónum, hefur verið gengið þannig fram á undanfömum 3-4 árum að allur botnfiskur er gjörsamlega ofveiddur. Það er svo langt gengið, að aðal uppistaða þorskaflans í Norðursjó, hefur verið tveggja og þriggja ára fiskur. Afli hefur farið niður á við en sóknin aukist það mikið að veiðamar taka um 70% af hveijum árgangi," sagði Jakob. Fyrirvarar gagnast ekki Jakob tók einnig dæmi af ofveið- um EB-þjóða við Kanada og sagði síðan um fyrirhugaðar veiðiheimild- ir í íslenskri lögsögu: „Menn hafa talað um að vegna kvótafyrirkomu- lagsins muni Evrópubandalagið ekki fá nein fiskveiðiréttindi við ísland og við myndum geta sett fyrirvara um fiskveiðilögsögu okk- ar. Mér skilst að verið sé að gera það í samningaviðræðunum. En öll- um hlýtur að vera ljóst, að við vax- andi sameiningu þessara ríkja, halda þeir fyrirvarar ekki til lengri tíma. Þvert á móti held ég að það verði líkt og með Gamla sáttmála, að fyrirvararnir gleymist mjög fljót- lega þegar frá líður. Því er það mín skoðun, að ef við ætlum að halda stjóm á okkar miklu auðlindum umhverfis landið, verði það ekki gert með því að ganga í Erópuband- alagið eða Evrópska efnahagssvæð- ið. Með því myndu veiðar hér fljót- lega draga dám af þeim ósköpum sem ég hef lýst hér með dæmum," sagði Jakob. íþróttafélag Bílddælinga sigraði á ungl- ingamóti HHF Bíldudal. HIÐ árlega unglingamót Héraðs- sambands Hrafnaflóka var haldið á íþróttavelli Bílddælinga laugar- daginn 29. júní. Keppendur voru um eitt hundrað talsins og komu frá Barðaströnd, Patreksfirði, Tálknafirði og Bildudal. Að þessu sinni sigraði Iþróttafélag Bílddæl- inga á mótinu með 353,3 stig, eða 23,5 stigum yfir næsta félagi. Það voru Patreksfirðingar sem sigruðu í fyrra og kom það því nokk- uð á óvart að þeir skyldu hafna í þriðja sæti á þessu móti. Ungmenna- félag Tálknafjarðar varð í öðru sæti með 330 stig, íþróttafélagið, Hörð- ur, Patreksfirði í þriðja með 252,5 stig og Ungmennafélag Barðstrend- inga í fjórða og síðasta sæti með 79 stig. Tvö héraðsmet voru sett á mót- inu, Iða Jónsdóttir, ÍFB, stökk 1,40 m í hástökki stúlkna 13-14 ára og Fríða Kristinsdóttir, UMFT, sigraði í 800 m hlaupi stúlkna 10 ára og yngri, hljóp á 3 mín. og 10 sek. Bílddælingar voru kátir yfir sigr- inum en þetta er í fyrsta sinn sem félagið sigrar á unglingamóti HHF. Bikarinn, sem er farandbikar, verður því í vörslu íþróttafélags Bílddæl- inga þar til næsta mót verður háð að ári. R. Schmidt > Urtökumót í hestaíþróttum: Fjórir knapar öruggir með sæti í landsliðinu FJÓRIR knapar tryggðu sér öruggt sæti í landsliði íslands sem keppir á heimsmeistaramotinu í hestaíþróttum í Svíþjóð í ágúst. Úrtökumótið fer fram í Hafnarfirði. Hinrik Bragason vann sér sæti á Pjakki frá Torfunesi, fyrir bestan árangur í tölti, Sigurbjörn Bárðarson á Kraka frá Helgastöðum I fyrir bestan árangur í fjórgangi og Tómas Ragnarsson á Snúði frá Brimnesi fyrir besta árangur í fimmgangi. Þá tryggði Einar Oder Magnússon á Atgeiri frá Skipanesi sér svokallað prósentusæti, sem sá knapi hlýtur er hefur hæsta einkunnahlutfall úr einhveijum af þremur gangtegunda- greinunum. Eftir fyrri umferð í 250 metra skeiði virðist staða Gunnars Arnars- sonar á Kolbaki frá Hvassafelli nokk- uð sterk. Hlaut hann tímann 22.72 sekúndur, sem tryggir honum sæti í liðinu, svo framarlega sem enginn nái betri tíma i þeim tveimur sprett- um sem eftir eru. Þá er Ragnar Hinriksson á Gammi frá Ingveldar- stöðum með góða stöðu í samanlögð- um stigum úr þremur greinum. í dag hefst dagskrá klukkan 10 með gæðingaskeiði og þar á eftir hlýðnikeppni og 250 metra skeið. KI. 14 verður keppt í sömu greinum í sömu röð. VK * Fósturskóli Islands: Aðsóknin aldrei meiri - segir Gyða Jóhannsdóttir skólastjóri METAÐSÓKN er að Fósturskóla íslands fyrir komandi vetur. Alls sóttu 250 manns um námsvist við skólann en aðeins reyndist unnt að taka við 114 nemendum. I haust hefst kennsla við nýja námsbraut sem er aðallega ætluð nemendum af landsbyggðinni. Nám við Fósturskólann tekur þrjú til fjögur ár og veitir full rétt- indi til fóstrustarfa. Gyða Jóhannsdóttir, skólastjóri Fósturskólans, sagði í samtali við Morgunblaðið að í meginatriðum yrði kennsla með tvenns konar hætti við skólann í vetur. „Annars vegar er um að ræða dagkennslu sem fer fram í Reykjavík. Með þeim hætti tekur námið þijú ár. Hins vegar hefst kennsla á nýrri námsbraut við skólann í haust með dreifðu og sveigjanlegu sniði. Fjarkennsla verður ríkur þáttur á hinni nýju braut enda er hún snið- in að þörfum nemenda á lands- byggðinni sem eiga erfitt með að sækja nám til Reykjavíkur. Með þessum hætti tekur námið fjögur ár og er nauðsynlegt að sækja bóklegt nám í Reykjavík í tíu vik- ur á ári meðan á því stendur. Um hundrað manns sóttu um nám á þessari braut en aðeins var tekið við rúmlega þijátíu eins og áætlað var. Um eitt hundrað og fimmtíu manns sóttu um dagskólann í Reykjavík en með þeim hætti tek- ur námið þijú ár. Vegna hús- næðisþrengsla var þó ekki hægt að taka við nema áttatíu nemend- um á þessari braut eins og venja hefur verið. Það er athyglisvert að af umsækjendum voru um 65% með starfsreynslu úr leikskólum," sagði Gyða. Auk námsbrautanna tveggja býður Fósturskólinn upp á eins árs framhaldsnám og í vet- ur er um að ræða nám í stjórnun. Auk þess eru haldin styttri endur- menntunarnámskeið bæði í Reykjavík og á landsbyggðinni. I máli Gyðu kom fram að inn- tökuskilyrði í skólann eru minnst tveggja ára nám við framhalds- skóla. „Þó hefur verið heimilt að líta fram hjá þessu ef umsækjandi er talinn hæfur vegna menntunar og reynslu af störfum í leikskól- um. Því miður var lítið hægt að huga að þessu nú vegna þrengsl- anna. Það er langt síðan við ósk- uðum eftir því að byggt yrði við skólann en ekkert hefur miðað T því máli. Á meðan verða nemend- ur að matast á göngum skólans og aðeins er vinnuaðstaða fyrir sjö kennara af tuttugu. Mennta- málaráðherra hefur þó sýnt hús- næðisvandræðum skólans mikinn skilning,“sagði Gyða. Gyða segir margvíslegar ástæður vera fyrir hinni miklu aðsókn að skólanum. „Mér finnst Gyða Jóhannsdóttir skólastjóri Fósturskólans. jákvæð umræða um fóstrustarfið hafa aukist upp á síðkastið. Með nýjum leikskólalögum varð leik- skólinn hluti af menntakerfinu og þessi lagasetning var að mínu mati kærkomin viðurkenning fyrir hann. Almennt held ég að Fóstur- skólinn hafi gott orð á sér en einn- ig hefur verið mikil eftirspurn eftir fóstrum að undanförnu. Það er nauðsynlegt að ráðamenn átti sig á mikilvægi þessa náms og ég er hlynnt því að Fóstrunám verði viðurkennt sem nám á há- skólastigi," sagði Gyða að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.