Morgunblaðið - 05.07.1991, Síða 27
reet IlDI e mioAnuT§cH sie^iaMuoíiov *
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1991 27
KOMUM
HEIL
HEIM
Heyrðu pápi! Þeir hjá slysavarnafélaginu eru að
hringja út af einhverjum drifskaftahlífum.
Árans peningaplokk er þetta alla tíð. Ég er með
öryggisgrind, það ætti að duga. Segðu þeim það.
En trosnuð peysuermi og óvarið drifskaft kenna
þeim gamla lexíu. Árans frágangur á pijónlesinu
hjá kerlingunni.
Hananú! Svona gerist það þá. En sá gamli slapp
með skrekkinn. Og ég sem hélt að þetta væri
bara fyrir eftirlitsmennina.
Vissulega er þessi myndröð nokkuð spaugi-
leg, en því miður er raunveruleikinn það
sjaldnast.
KOMUM HEIL HEIM er unnið í samvinnu
við lögreglu, slökkvilið, umferðarráð, áfengi-
svarnaráð og vinnueftirlit ríkisins.
Þarft þú hjálp?
eftír Örn L.
Guðmundsson
Líklega eru flestir sammála um
að við lifum í landi friðar og velmeg-
unar. Þó vil ég meina að það ríki
stríð og hungur mitt á meðal okk-
ar. Það stríð á sér stað í hjörtum
okkar og þar á hungrið sér bústað.
Stríðið stendur fyrir þá baráttu
sem við eigum í þegar við viljum
feta veg dyggðarinnar og gera það
sem er rétt og gott hveiju sinni.
Of margir verða undir í þeirri bar-
áttu án þess að gera sér grein fyr-
ir hvers vegna.
Heimurinn, eins og hann birtist
okkur í ijölmiðlum dag hvern, er
skelfilegur. En hann gæti verið
öðru vísi. Það eru næg auðæfi í
heiminum til að tryggja velferð
hvers einast mannsbarns. Auðæfi
sem eru til staðar nú þegar í flest-
um löndum heims og ættu í reynd
að tilheyra viðkomandi þjóð, þ.e.
fólkinu sem aflar þeirra. Þetta á
að sjálfsögðu einnig við ísland. Það
væri hægt ða nýta þennan auð til
að hlúa að mannlífinu og búa þann-
ig um fjölskylduna að hún eigi alla
möguleika á að verða sterk og heil-
brigð. Okkur ber að heiðra og virða
gamla fólkið sem ruddi brautina
fyrir okkur og gerði okkur kleift
að búa við þau skilyrði sem við
höfum í dag. Það á að geta notið
efri áranna með reisn.
Það eru margir sem verða undir
í lífinu. Sumir vegna sjúkdóma og
fátæktar. Aðrir ná aldrei að fóta
sig í lífinu. Hvernig skyldi það vera
að lifa í þjóðfélagi þar sem af al-
vöru er tekið á málum slíks fólks,
og þar sem óheiðarlegt fólk misnot-
ar ekki slíka samhjálp? Ég þrái
heilbrigt þjóðfélag þar sem fólkið
og það hvernig lífinu er lifað skipt-
ir máli.
Er þá lausnin að þjóðin velji sér
strang-heiðarlega ráðamenn sem
uppfylla ýtrustu kröfur um siðgæði
og réttlætiskennd? Nei, því miður.
Ráðamenn eru hvorki orsök né
lausn þess vanda sem heimurinn
býr við. En það er til lausn og það
er til vegur sem mönnum býðst að
ganga inn á. Vegur sem leiðir til
lífs, hamingju og friðar. Valið er
okkar sjálfra.
Heimurinn eins og hann er í dag
er afleiðingin af stærstu meinsemd
sem til er og það er líf sem lifað er
í synd og óhlýðni við föður okkar
á himni, skapara himins og jarðar.
Þegar maðurinn hafnar Guði og
hjálpræðisboðskap hans, þá er hann
líka að hafna lífinu sem hann gefur
í syni sínum Jesú Kristi svo og vernd
þeirri og blessun sem hann vill veita.
Sá maður er á hættulegri braut
sem hunsar lög Guðs og setur sín
eigin lög og skapar sér sín eigin
trúarbrögð og eigin guði. Sá sem
slíkt gerir þarf að gera sér grein
fyrir að sá dagur nálgast þegar Guð
mun dæma öll verk, hugsanir og
orð mannanna. En það stórkostlega
er að Guð í syni sínum Jesú Kristi
á lausn og lækningu fyrir alla menn.
Það sýnir alvöru syndar og
óhlýðni við Guð að þegar Adam og
Eva óhlýðnuðust Guði þá dóu þau
andlegum dauða og voru aðskilin
öllu lifandi samfélagi við Föðurinn.
Þetta er arfur mannkynsins: And-
legur dauði, syndugt eðli.
Þennan aðskilnað er aðeins hægt
að taka burt á einn veg, þ.e. í gegn-
um trú á Jesúm Krist og með því
að taka á móti náðarverki hans.
Ritað er: En vér vitum að maður-
inn réttlætist ekki af lögmálsverk-
um 'heldur fyrir trú á Jesúm Krist.
Hvað þýðir það fyrir mig? gætir
þú spurt. Jesús er „DYRNAR" til
Guðs. „Því að svo elskaði Guð heim-
inn að hann gaf son sinn eingetinn
til að hver sem á hann trúir glatist
ekki heldur hafi eilíft líf.“
Við sjáum syndina að verki í
okkur sjálfum og allt í kringum
okkur, þó er eins og flestir eigi
erfitt með að horfast í augu við
hana.
Það er ekki vilji Guðs að neinn
glatist heldur þvert á móti viil hann
að allir frelsist frá syndinni og kom-
ist til þekkingar á honum. Guð er
líka faðir sem elskar þig og lætur
sér annt um þig. Hann fórnaði því
dýrmætasta sem hann átti til að
bjarga þér og mér. Það sýnir okkur
bæði kærleika Föðurins og alvar-
lega stöðu mannsins án Guðs. Jesús
sagði: Ég er ekki kominn til að
dæma heiminn heldur til að frelsa
heiminn. Og á öðrum stað segir
hann: Ég er kominn til að leita að
hinu týnda og frelsa það.
Jesús var syndlaus maður og
hlýðinn Föðurnum allt til dauða á
krossi. Hann tók á sig ailar syndir
og misgjörðir mannkynsins um alla
framtíð og negldi þær á krossinn í
gegnum fórnardauða sinn. Gjaldið
er að fullu greitt fyrir þig en tekur
fyrst gildi þegar og ef þú velur að
trúa á Jesúm Krist og orð hans og
biður hann að fyrirgefa þér allar
syndir og hreinsa þig af þeim. Og
í einlægni biður hann að koma inn
í hjarta þitt sem Drottinn og herra
sem þýðir m.a. að honum ætlar þú
að helga líf þitt sem eftir er. Þann
sem kemur til mín mun ég alls eigi
í burtu reka, eru orð Jesú til þín í
dag. Því að hann dó ekki aðeins á
krossinum heldur reis hann upp á
þriðja degi og situr við hægri hönd
Föðurins á himni.
Mitt á meðal okkar er fólk að
upplifa hjálpræðisverk Jesú Krists
á stórkostlegan hátt, aðrir eru að
upplifa lækningu og lausn frá fjötr-
um. Þvi að Jesús er hinn sami í gær
og í dag og um aldir alda. Hann
mætir þeim sem ákalla hann og
hann hjálpar þeim.
Ég minntist í upphafi á hungur
og stríð í hjörtum okkar. Hungrið
trúi ég að standi fyrir þá sem eru
Örn L. Gudmundsson
„Það eru margir sem
verða undir í lífinu.
Sumir vegna sjúkdóma—
og fátæktar. Aðrir ná
aldrei að fóta sig í líf-
inu.“
leitandi í dag og þrá að höndla hin
sönnu verðmæti lífsins. Ég þekki
það af reynslu að sækja innantómar
skemmtanir í ýmsu formi og tóm-
leikann sem fylgir á eftir. Ríkif,
fátækir, háir eða lágir allt í kringum
okkur er „FÓLK“ sem þarf á Jesú
að halda. Hann sagði: Ég er vegur-
inn, sannleikurinn og lífíð, enginn
kemur/kemst til Föðurins nema
fyrir mig.
Engin trúarbrögð, hreyfingar eða
menn geta komið í staðinn fyrir
Jesúm. Hann einn getur leyst okkur
úr syndar fjötrum. Ritað er: Ekki
er hjálpræði í neinu öðru og ekkert
annað nafn er mönnum gefið um
víða veröld sem getur frelsað okkur.
Höfundur starfar hjá
Styrktarfclagi vangefinna.