Morgunblaðið - 14.08.1991, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 1991
Þyrlan sækir sjúkling á haf út
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti sjúkan sjómann um borð í rækjuskip-
ið Erling KE laust eftir hádegið í gær og flutti hann á Borgarspítal-
ann. Beiðni um aðstoð barst frá Eriingi þar sem skipið var við veiðar
um 30 mílur norður af Hornbjargi, en það hélt síðan til móts-við þyri-
una áleiðis til ísafjarðar. Þyrlan lagði af stað frá Reykjavík kl. 12.24
og var hún við skipið kl. 13.55, en þá var það statt um 12 mílur frá
landi. Læknir seig niður niður í skipið eftir sjúklingnum og tók um
15 mínútur að koma honum um borð í þyrluna. Á leiðinni til baka
lenti þyrlan á ísafírði þar _sem hún tók eldsneyti, en hún lenfei við
Borgarspítalann kl. 16.20. Á myndinni sést hvar verið er að undirbúa
flutning sjúklingsins um borð í þyrluna.
Heilbrigðisráðherra óskar samvinnu um hagræðingu:
Sameining Borgarspítala
o g Landakots gæti sparað
400 milljónir króna árlega
SIGHVATUR Björgvinsson heilbrigðisráðherra hefur óskað eftir því
að hafa nána samvinnu við samstarfsráð sjúkrahúsanna í Reykjavík
um hvernig stuðla megi að sem mestri hagkvæmni í rekstri sjúkrastofnr
ana í höfuðborginni. Kemur þar fyrst til hugsanleg sameining Borg-
arspítala og Landakotsspítala og tilflutningur verkefna milli þeirra,
en það telur Sighvatur að gæti haft í för með sér sparnað fyrir ríkis-
sjóð upp á 300 til 400 milljónir króna á ári. Heilbrigðisráðherra hefur
fengið Harald Ólafsson dósent, formann yfirstjórnar Landakotsspitala,
til að sinna þessu verkefni í hlutastarfi timabundið.
Sighvatur sagði í samtali við
Morgunblaðið að það hefði verið á
dagskránni í nokkur ár að reyna að
nýta betur sjúkrahúsin í Reykjavík
með auknu samstarfi og samvinnu
þeirra, auk meiri verkaskiptingar og
tilfærslu innan þeirra. Sagði hann
að þetta ætti að geta sparað ríkis-
sjóði 300-400 milljónir króna árlega.
„í fjárlögum yfirstandandi árs var
gert ráð fyrir því að talsvert yrði
unnið í þessa veru en það hefur hins
vegar ekki verið gert að því marki
sem vonir stóðu til. Ég hef því ákveð-
ið, að höfðu samráði við ríkisstjórn-
ina, að reyna að setja meiri kraft í
þessar ráðagerðir til að sjá hvort
þetta geti gengið upp,“ sagði Sig-
hvatur.
Hann sagðist í því skyni hafa far-
ið fram á það við Harald Ólafsson,
formann yfírstjórnar Landakots, að
hann tæki sér frí frá öðrum störfum
um nokkurt skeið til að vinna að
þessu í hlutastarfi. „Einnig hef ég
rætt við formann samstarfsráðs
sjúkrahúsanna, Guðmund G. Þórar-
insson, og sent ráðinu bréf, þar sem
ég bið þá um að beita sér sérstak-
lega fyrir þessu viðfangsefni,“ sagði
hann.
Árni Sigfússon, formaður stjómar
sjúkrastofnana Reykjavíkurborgar,
sagði að hann teldi hugmyndir héil-
brigðisráðherra væru allrar athygli
verðar, og ef rétt væri að málum
staðið ætti að vera góður möguleiki
á að efla spítalana faglega með þess-
um hætti og jafnframt ná fram hag-
ræðingu. „Þetta þarf að sjálfsögðu
að kanna mjög gaumgæfilega, en
jafnframt er mikilvægt að tryggja
kosti beggja spítalanna. Menn hafa
rætt þessa möguleika í gegnum
tíðina, og ég held að ef af þessu
samstarfi yrði, þá þyrfti jafnframt
að koma til aukin verkaskiptingaum-
ræða við ríkisspítalana,“ sagði Árni.
Að sögn Haraldar Ólafssonar,
formanns yfirstjómar Landakots-
spítala, em uppi ýmsar hugmyndir
um hvernig ná má fram hagræðingu
án þess að draga úr þjónustu sjúkra-
húsanna. „Til að byija með verður
kannað hvort til greina komi nánara
samstarf og verkaskipting Landa-
kots og Borgarspítala, en Landspítal-
inn kæmi væntanlega inn í þetta líka.
Það er nauðsynlegt að athuga hvort
það sé óþarflega mikil tvöföldun á
störfum eða deildum innan þessara
sjúkrahúsa og kanna hvort hægt sé
að koma á meiri verkaskiptingu á
milii þeirra svo ekki sé verið að gera
sömu hlutina á þeim öllum með mikl-
um tækja- og mannakosti. Samein-
ing er einn kosturinn," sagði Harald-
Búið að kaupa 400
tonna fullvirðisrétt
ÚTLIT er fyrir að markmið nýja
búvörusamningsins um uppkaup
ríkisins á virkum fullvirðisrétti í
sauðfjárframleiðslu náist í Eyja-
firði, A-Skaftafellssýslu, V-Barða-
Lagning Fljótsdalslínu:
Undirbúningi í Ódáðahrauni frest-
að að beiðni Nátturuvemdarráðs
HALLDÓR Jónatansson, forstjóri
Landsvirkjunar, segir að ákveðið
hafi verið að fara að tilmælum
Náttúruverndarráðs og fresta um
sinn frekari athugunum á stað-
setningu línu um Ódáðahraun.
Starfsmenn Landsvirkjunar muni
hins vegar halda áfram jarðvegs-
könnun austan Kreppu þar sem
ekki hafi verið gerðar athuga-
semdii' við rannsóknir þar. Kári
Kristjánsson, landvörður í Herðu-
breiðarlindum, segir að starfs-
menn Landsvirkjunar muni verða
varir við hörð viðbrögð komi þeir
vestur yfir Kreppu. Á fundi skipu-
lagsstjórnar á fimmtudaginn verð-
ur ákveðið hvort tillaga Lands-
virkjunar verður auglýst sam-
kvæmt skipulagslögum eins og
hún liggur fyrir, hvort ákvörðun
verði frestað eða aðrar leiðir
kannaðar betur.
í bréfí Náttúruvemdarráðs til
Landsvirkjunar er þeim tilmælum
beint til fyrirtækisins að fresta um
sinn frekari athugun á staðsetningu
línu um Ódáðahraun. Jafnframt er
bent á að ástæða sé til þess að auka
rannsóknir á línuleið meðfram núver-
andi byggðalínu og möguleika á jarð-
vegsstreng um Mývatnssveit.
Halldór Jónatansson, forstjóri
Landsvirkjunar, segir að Landsvirkj-
un hafí ákveðið að hlíta tilmælum
Náttúruvemdarráðs og halda að sér
höndum með rannsóknir og mæling-
ar á friðlýstu svæði um Ódáðahraun
meðan málin væru að skýrast og
menn að ná áttum í málinu. Hann
sagði að kostnaðarauki sem fælist í
gerð jarðstrengs væri nánast óvið-
ráðanlegur. 50 milljónum króna
meira kostaði að leggja jarðstreng
einn kílómetra en loftstreng sömu
leið. Um þá ósk Náttúruvemdarráðs
Þrír möguleikar á lagningu Fljótsdalslínu.
A: Að fylgja núverandi byggðalínu.
B: Að fylgja núverandi byggðalínu að Jökulsá á Fjöll-
um, þaðan suðvestur yfir Ödáðahraun að Svartárkoti
og þaðan norður Fljótsheiði og yfir Bárðardal.
C: Tillaga Landsvirkjunar vestur yfir Fljótsdalsheiði,
suður fyrir Þríhyrningsvatn, milli Herðubreiðartagla
og Öskju, norður Fljótsheiði og yfir Bárðardal.
strandarsýslu og í ísafjarðarsýsl-
um, en bændur í Dalasýslu, Snæ-
fellssýslu, á Ströndum og í Húna-
vatnssýslum hafa í litlum mæli
nýtt sér tilboð ríkisins varðandi
uppkaupin. A öðrum svæðum hef-
ur um helmingur setts markmiðs
náðst.
Að sögn Helga Jóhannessonar,
lögfræðings í landbúnaðarráðuneyt-
inu, hafa samtals verið gerðir samn-
ingar um kaup ríkisins á um 400
tonnum af virkum fullvirðisrétti, en
hafí ekki tekist að kaupa upp 900
tonn fyrir 1. september verður réttur
sauðfjárbænda færður niður um það
sem upp á vantar.
Til að ná settu markmiði sam-
kvæmt búvörusamningnum þarf
nýttur og ónýttur fullvirðisréttur í
framleiðslu að lækka um að minnsta
kosti 12%, en þó mismunandi mikið
eftir svæðum. Alls verða keypt sam-
tals 3.700 tonn af fullvirðisrétti sam-
kvæmt búvörusamningnum, en þar
af verða keypt 900 tonn af virkum
rétti fyrir 1. sptember í ár. Takist
það hins vegar ekki verður fullvirðis-
réttur sauðijárbænda færður niður
I haust. Þeir sem selja ríkinu virkan
fullvirðisrétt fyrir 1. september fá
greiddar 600 krónur fýrir hvert kíló,
og sama upphæð fæst greidd fyrir
rétt sem er óvirkur vegna riðuniður-
skurðar. Greiðslur fyrir óvirkan
leigurétt nema á hinn bóginn 480
krónum á kíló. Hafl ekki tekist að
kaupa 900 tonn af virkum fullvirðis-
rétti fyrir 1. september í haust kem-
ur til almenn niðurfærsla á réttinum,
en þeir bændur sem þá hafa selt 25%
eða meira af virkum eða óvirkum
rétti þurfa þó ekki að sæta niður-
færslu. Greiðsla fyrir þann rétt sem
f ærður verður niður eftir 1. septemb-
er nemur 450 kr. fyrir kílóið.
að kanna betur tillögu um að fylgja
núverandi byggðalínu sagði Halldór
að tillagan yrði rædd og athugað
hvað fælist í því að gera línuleiðina
sambærilega línu um Ódáðahraun.
Sagði Halldór að haldið yrði áfram
samstarfl við Náttúruvemdarráð um
lausn málsins.
í samtalinu við Halldór kom fram
að Landsvirkjun biði eftir svari við
bréfí til Skipulags ríkisins frá því í
desember á síðasta ári þar sem þess
er farið á leit að línuleið Landsvirkj-
unar um Ódáðahraun sé formlega
auglýst. Stefán Thors, skipulag-
stjóri, sagði að ákveðið hefði verið
að fresta auglýsingu Fljótsdalslínu
þar til búið væri að vinna frummat
á umhverfisáhrifum þar sem einnig
væru skoðaðir fleiri möguleikar.
Frummatið er tilbúið og mun meðal
annars liggja til grundvallar ákvörð-
unar skipulagsstjórnar um auglýs-
ingu Fljótsdalslínu á fundi á fimmtu-
dag. Þar verður tekin ákvörðun um
hvort tillaga Landsvirkjunar verður
auglýst eins og hún liggur fyrir,
hvort ákvörðun verði frestað eða
aðrir möguleikar skoðaðir betur.
Sú línuleið sem skipulagsstjórn
velur að auglýsa verður kynnt í þeim
8 sveitarfélögum sem Fljótsdalslína
kæmi til með að fara um. Hlutaðeig-
andi yrði gefínn kostur á að gera
athugasemdir við tillöguna sem síðar
yrði ijallað um í sveitarstjórnum sem
sendu síðan umsögn til skipulags-
stjórnar til staðfestingar umhverfís-
ráðherra. Auglýsing af þessu tagi
tekur um 4 mánuði.
Kári Kristjánsson, landvörður í
Herðubreiðarlindum, sagði í samtali
við Morgunblaðið að starfsmenn
Landsvirkjunar ynnu nú við að jarð-
vegsrannsóknir austan Kreppu en
kæmu þeir yfír ána mættu þeir bú-
ast við hörðum viðbrögðum. Hann
sagði að með rannsóknum á þessum
stað væri vilji Náttúruverndarráðs-
þings í október á liðnu ári sem og
Náttúruverndarráðs hundsaður.
Akureyri;
Ók á ljósastaur
Ökumaður ók á Ijósastaur við
gatnamót Skarðshlíðar og Smára-
hlíðar á Akureyri snemma í gær-
morgun.
Þrír voru í bílnum og voru tveir
færðir á slysadeild en fengu að fara
heim að rannsókn lokinni. Blóðsýni
var tekið úr ökumanni en grunur
leikur á að fólkið hafi verið undir
áhrifum áfengis þegar slysið átti sér
stað.