Morgunblaðið - 14.08.1991, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 1991
3
<
Fjórir af forsætisráðherrum Norðurlanda, þau Davíð Oddsson, Gro
Harlem Brundtland, Poul Schliiter og Esko Aho, fóru í skoðunarferð
til Vestmannaeyja í gær að loknum árvissum sumarfundi sínum í
Reykjavík. Ingvar Carlsson hélt heim til Svíþjóðar í kosningabarátt-
una. í Vestmannaeyjum var meðal annars farið með ráðherrana í
bátsferð og snæddu þeir hádegisverð í Klettshelli. Þá var farið með
fjórmenningana upp á nýja hraunið og var þar snætt seytt rúgbrauð,
grafið glóðvolgt upp úr hrauninu, og drukkinn snafs með. Ráðherram-
ir virtust skemmta sér hið bezta, þrátt fyrir að rigndi á þá af og til.
Forstjóri Byggðastofnunar um sölu Suðureyrartogarans:
Trygg hráefnisöflun físk-
iðjunnar Freyju skilyrði
Hlutabréfin auglýst til sölu í dag
„STARFSEMI Fiskiðjunnar Freyju mun auðvitað dragast saman
verði togarinn seldur, en hitt er alveg ljóst að hann verður aldrei
seldur án þess að hráefnisöflun Freyju verði tryggð, annaðhvort
með því að hluti kvóta hans verði eftir á Suðureyri, eða að löndun-
arsamningur fylgi kaupsamningnum,“ sagði Guðmundur Malmqu-
ist, forsljóri Byggðastofnunar, í samtali við Morgunblaðið í gær.
Hugmyndir um sölu togarans hafa mætt mikilli andstöðu á Suður-
eyri, og segir Lilja Rafney Magnúsdóttir, formaður verkalýðsfé-
lagsins Súganda, að sala togarans myndi jafngilda dauðadómi
yfir staðnum.
Hlutabréf Fiskiðjunnar Freyju í
Hlaðsvík hf., útgerðarfélagi togar-
ans Elínar Þorbjarnardóttur, verða
auglýst til sölu í dag, en Fiskiðjan
á rúmlega 99% í Hlaðsvík. Hluta-
fjársjóður Byggðastofnunar eign-
aðist meirihluta í Fiskiðjunni
Freyju síðla árs 1989, og hóf þá
fjárhagslega endurskipulagningu
fyrirtækisins. Sölu hlutabréfanna
í Hlaðsvík er ætlað að verða einn
liður í þeirri endurskipulagningu,
og er markmið hennar að grynna
á skuldum Freyju, en þær voru
um 520 milljónir um síðustu ára-
mót.
Guðmundur sagði, að viðræður
um sölu á togaranum hefðu verið
á dagskrá síðastliðinn vetur. „Það
var rætt við útgerðaraðila i ná-
grannabyggðarlögum Suðureyrar,
en á þeim tíma var málið sett í
biðstöðu af hálfu Fiskiðjunnar,"
sagði Guðmundur. „Ég ímynda
mér að þeir aðilar sem við ræddum
við þá hafi enn áhuga á að skoða
þessi mál.“ Guðmundur vildi ekki
láta uppi um hvaða aðila væri að
ræða.
Lilja Rafney Magnúsdóttir, for-
maður verkalýðsfélagsins Súg-
anda og oddviti á Suðureyri, seg-
ir, að það sé hlutverk stjómvalda
að leysa vanda Fiskiðjunnar
Freyju. „Stjórnvöld lofuðu 1989
að rétta rekstur fyrirtækisins við,
en stóðu ekki betur við það en svo
að nú er allt komið í óefni á ný,“
sagði Lilja. „Það er staðreynd að
þrátt fyrir að grynnt hafi verið á
skuldunum um 300 milljónir í að-
gerðunum 1989 skuldaði Freyja
enn 100-200 milljónir eftir þær,
og slík upphæð er fljót að vefja
upp á sig. Því mætti hugsa sér
að opinberir aðilar myndu koma
fyrirtækinu til hjálpar nú, og veita
því aukið veðrými." Lilja sagði,
að sala togarans burt frá Suður-
eyri myndi jafngilda dauðadómi
yfir byggðarlaginu. „Allt tal um
að kvóti muni sitja eftir, eða að
gerður verði löndunarsamningur,
hangir í lausu lofti, og því er óvissa
fólks hér mjög mikil. Mér líst ekki
á að kvóti Suðureyrar minnki enn
frekar, því að á síðustu 10 árum
Morgunblaðið/Snorri Snorrason
Togarinn Elín Þorbjarnardóttir.
höfum við þurft að sætta okkur
við mikinn samdrátt í kvóta,“
sagði Lilja ennfremur.
Þeim finnst gott að hafa hér
einhvém að tala við á sínu máli
- segir Jörundur Hilmarsson væntanlegur heiðurskonsúll Litháen á íslandi
JÖRUNDUR Hilmarsson málvísindamaður við Háskóla íslands
hefur verið beðinn að gegna stöðu heiðurskonsúls Litháens á
íslandi eftir að formlegt stjórnmálasamband ríkjanna kemst á.
Landsbergis forseti Litháens sendi forsætisráðherra nýverið bréf
þessa efnis en ræddi við Jörund um starfann í vor. Jörundur
segir aðdraganda málsins einfaldan, hann tali litháísku og hafi
túlkað fyrir Landsbergis og utanríkisráðherra hans í heimsóknum
þeirra til íslands.
Jörundur er dósent í almennum
málvísindum við Háskóla íslands.
Hann er samanburðarmálfræð-
ingur og segist af þeim sökum
hafa notað einn vetur í Vilníus til
að læra litháísku. Líklega eru
ekki margir utan Litháen sem
tala mál landsmanna og líklega
er Jörundur eini íslendingurinn
sem það gerir. Litháíska er að
hans sögn fornlegt mál og auk
lettnesku eina málið sem eftir lif-
ir í baltnesku málafjölskyldunni.
Aðspurður um hvað rætt hafi
verið um konsúlstöðuna segir Jör-
undur málið enn frekar laust í
reipum. „Ekkert hefur verið um
það talað í smáatriðum hvers eðl-
is mitt starf verður ef til kemur.
Ég held að þessi staða verði fyrst
og fremst táknræn og geri ekki
ráð fyrir að henni fylgi mikill er-
ill. Ef umsvif yrðu einhver að ráði
myndu Litháar væntanlega opna
hér skrifstofu, en það er erfitt að
spá um hvernig þessu vindur
fram.“
Jörundur var fenginn til að
túlka þegar Landsbergis kom
hingað til lands í haust og svo í
heimsókn Zingeris í janúar. „Þeim
finnst ágætt að hafa einhvern hér
til að tala við á sínu máli,“ segir
Jörundur.
„Þessi staða var fyrst nefnd við
mig í janúar og síðan hafði Lands-
bergis samband vegna hennar í
maí.“ Heiðurskonsúll er stöðuheit-
ið sem Jörundur kveðst hljóta ef
Þorlákshöfn:
Isþór óskar
eftir gjald-
þrotaskiptum
Skuidir taldar vera
um 500 milljónir
FORSVARSMENN fiskeldisfyr-
irtækisins Isþórs hf. í Þorláks-
höfn óskuðu í gær eftir því við
skiptaráðandann í Árnessýslu að
fyrirtækið verði tekið til gjald-
þrotaskipta. Framkvæmdasjóður
og Landsbankinn eiga stærstu
kröfur á hendur fyrirtækinu en
talið er að skuldir þess nemi um
500 milljónum króna.
Sigurgísli Skúlason, fram-
kvæmdastjóri ísþórs, segir að fyrir-
tækið hafi átt við erfiða skuldastöðu
að stríða auk þess sem verð á laxi
hafi farið lækkandi. Eftir að Lands-
bankinn hafí lokað fyrir afurðalána-
viðskipti til fiskeldisins hafi fyrir-
tækið sótt um sérstök rekstrarlán
hjá nefnd á vegum landbúnaðar-
ráðuneytisins, en verið synjað.
Ástæðu þeirrar synjunar segir
Sigurgísli vera að ísþór hafí ekki
getað boðið fram fullnægjandi veð
og fyrirtækið verið talið of skuld-
sett til að hægt væri að veita því
þessi lán. Þegar sú niðurstaða hafi
legið fyrir hafi ekki verið aðrir
möguleikar fyrir hendi en að óska
eftir gjaldþrotaskiptum.
Sigurgísli segir að ekki liggi end-
anlega fyrir hveijar skuldir fyrir-
tækisins séu. Ársreikningur fyrir
árið 1990 sé ekki tilbúinn en miðað
við milliuppgjör þess árs megi áætla
að þær séu um 500 milljónir króna.
Hann segir að stærstu kröfuhafar
séu Landsbankinn og Fram-
kvæmdasjóður, Landsbankinn
vegna afurðalána en Framkvæmda-
sjóður vegna lána til stofnfram-
kvæmda.
Fyrirtækið ísþór hf. var stofnað
1984 og framkvæmdir við fiskeldis-
stöð fyrirtækisins hófust 1985.
Undanfarið eitt og hálft ár hafa
milli ellefu og tólf manns starfað
þar.
Ólafsfjörður:
Bifreið renn-
ur á skólahús
Fólksbifreið hrökk úr gír og
rann um 120 metra niður brekku
uns hún lenti á syðra horni skóla-
hússins í Ólafsfirði um kaffileytið
í gær. Bíllinn er mikið skemmdur.
Eigendur bílsins sóttu heim fólk í
húsi í Túngötunni og skildu bílinn
eftir fyrir utan. Um hálftíma seinna
hrökk bílinn úr gír. Rann 40 til 50
metra niður götuna og út af henni
niður brekku. Þar endaði bílinn á
syðra homi barnaskólans.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Jörundur Hilmarsson
af verði og það sé ekki opinber
embættistitill. „Enda yrði þessi
staða táknræn og starfíð fælist
aðallega í milligöngu um sam-
skipti ráðamanna landanna
tveggja."