Morgunblaðið - 14.08.1991, Side 4
4
. r i;; j
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. AGUST 1991
0,8% hækk-
un vísitölu
VÍSITALA framfærslukostnaðar í
ágúst hefur hækkað um 0,8% frá
í júlí og er komin í 157,2 stig.
Undanfarna þijá mánuði hefur
vísitalan hækkað um 2,9% og jafn-
gildir sú hækkun 12% verðbólgu
á heilu ári.
Af hækkun vísitölunnar nú stafa
tæplega 0,3% af verðhækkun á mat-
vöru, tæplega 0,2% af hækkun á fjár-
magnskostnaði íbúðarhúsnæðis og
0,1% af hækkun lyfjakostnaðar mið-
að við bráðabirgðamat á lyfsölu í
júlí. Verðhækkun ýmissa annarra
vöru- og þjónustuliða olli alls um
0,2% hækkun vísitölunnar.
Vínsmygl í
Brúarfossi
ÞRIR skipveijar á Brúarfossi hafa
orðið uppvísir að smygli á 240
lítrum af vodka til landsins.
Áfengið var í 480 hálfs lítra flösk-
um.
Smyglið fannst við leit tollvarða í
Brúarfossi síðdegis á mánudag, er
skipið kom til Sundahafnar frá meg-
inlandi Evrópu.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Jóhannes og Daníel gerðir klárir fyrir myndatöku en á myndinni
t.h. sést Hrafn Gunnlaugsson ásamt hópi leikara að undirbúa
næstu myndatöku.
Allt gott
kvikmynduð
á Selfossi
Selfossi.
„ÞAÐ er sama hvort maður er
að gera mynd um lítið fallegt
ævintýri eins og þetta eða eitt-
hvað stórt eins og Hvíta víking-
inn, það er alltaf sama ferlið sem
fer fram innra með manni,“ sagði
Hrafn Gunnlaugsson leikstjóri
um töku myndarinnar Allt gott
sem fer fram þessa dagana á
Selfossi.
Myndin er byggð á smásögunni
Þá var lífið tyggjó, eftir Davíð Odds-
son núverandi forsætisráðherra.
Myndin gerist á Selfossi upp úr
1950 og segir frá ævintýralegum
hugðarefnum tveggja stráka, Jó-
hannesar og Daníels.
Taka myndarinnar fer fram í
kringum Ölfusárbrú og við
Tryggvaskála. Leikmunir myndar-
innar vekja nokkra athygli vegfar-
enda þar sem þeir stinga í stúf við
umhverfið enda frá því fyrir nokkr-
um áratugum. sig. Jóns.
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG, 14. ÁGÚST
YFIRLIT: Yfir Grænlandshafi er grunn lægð sem þokast austnorð-
austur. Um 700 km suðsuðaustur af Hvarfi er vaxandi 990 mb
lægð sem hreyfist austnorðaustur. Hiti breytist fremur lítið.
SPÁ: Breytileg átt eða norðaustan gola. Lítilsháttar súld við norð-
ur- og austurströndina en léttskýjað vestan lands. Hætt við skúrum
á Suðurlandi. Hiti á bilinu 8-15 stig, hlýjast suðvestanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR.Á FIMMTUDAG: Austan- og síðar norðaustanátt, víða
talsverður strekkingur. Rigning víða um land, síst á Vesturlandi.
Fremur milt.
HORFUR Á FÖSTUDAG: Norðlæg átt. Súld eða rigning og kóln-
andi veður norðanlands en hætt við síðdegisskúrum í annars björtu
veðri og allt að 18 stiga hita syðra.
Svarsími Veðurstofu íslands - Veðurfregnir: 990600.
Hitastig:
0 gráður á Celsíus
Skúrir
Él
Þoka
Þokumóða
Súld
Mistur
Skafrenningur
Þrumuveður
TAKN:
»v -/>
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
s, Norðan, 4 vindstig: j 0
* Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar •
vindstyrk, heil fjöður V
er 2 vindstig.
r r r ___
r r r r Rigning
r / r —
* / *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
? :
5
OO
4
K
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri 13 úrMgrennd
Reykjavik 12 rigning
Bergen 12 skúr
Helsinki 19 skýjað
Kaupmannahöfn vantar
Narssarssuaq 8 skýjað
Nuuk 4 alskýjað
Osló 20 léttskýjað
Stokkhólmur 19 léttskýjaö
Þórshöfn 13 skúrir
Algarve 31 heiðskírt
Amsterdam 18 mistur
Barceiona 28 mistur
Berlín 19 skýjað
Chicago 17 léttskýjað
Feneyjar 29 léttskýjað
Frankfurt 23 skýjað
Glasgow 16 skúr
Hamborg 18 skýjað
London 21 hálfskýjað
LosAngeles 23 skýjað
Lúxemborg 24 hálfskýjað
Madrid 33 heiðskírt
Malaga 27 heiðskirt
Mallorca 29 léttskýjað
Montreal 20 léttskýjað
NewYork 24 heiðskírt
Orlando 26 skýjað
Pans 24 hálfskýjað
Madeira 24 léttskýjað
Róm 29 léttskýjað
Vín 24 léttskýjað
Washington 22 skýjað
Winnipeg 18 mistur
Leit að góðmálmum:
Fyrstu vísbendinsr-
ar athyglisverðar
„MARGT athyglisvert hefur
komið í ljós,“ sagði Halldór Jóns-
son einn af aðstandendum Suð-
urvíkur en það er annað tveggja
fyrirtækja er leitað hafa að gulli
og öðrum góðmálmum hér á
landi í sumar. Halldór er for-
stjóri Steypustöðvarinnar en eig-
endur stöðvarinnar standa að
Álversslysið:
• •
Oryggi ekki
fullnægjandi
-segir forsljóri
Vinnueftirlits ríkisins
ÁSTÆÐUR sprengingarinnar,
sem varð í steypuskála álversins
í Straumsvík á fimmtudag í
síðustu viku, liggja enn ekki fyr-
ir en að sögn Eyjólfs Sæmunds-
sonar, forstjóra Vinnueftirlits
ríkisins, er ljóst að öryggi var
ekki fullnægjandi þegar slysið
átti sér stað.
„Það fór eitthvað úrskeiðis og
verið er að rannsaka nokkur atriði
í samvinnu við fyrirtækið sem þarf
að upplýsa," sagði Eyjólfur.
Suðurvík í samvinnu við
kanadiska fyrirtækið West-vik-
ing en það sérhæfir sig í rann-
sóknum af þessu tagi.
Halldór kvað það vera vonina um
að finna eitthvað athyglivert sem
fengi menn til þess að stofna hluta-
félag eins og Suðurvík til þess að
gera út syona rannsóknarleiðangra.
Hann sagði að hópur af jarðfræð-
ingum undir umsjón Stefáns Ar-
nórssonar jarðfræðings hefði unnið
að rannsóknum á þeim svæðum er
iðnaðarráðuneytið úthlutaði Suð-
urvík í sumar. Hann sagði að ýmis-
legt athyglivert hefði fundist en
engar endanlegar niðurstöður væru
komnar. Jarðvegssýnin er tekin
voru hafa verið send til Kanada til
rannsókna.
Ekki er eingöngu verið að leita
að gulli heldur hafa leitarmenn
haft augun opin fyrir fleiri nýtan-
legum málmum og bergtegundum.
Halldór benti á að t.d. hefði fundist
granít sem e.t.v. væri hægt að nýta
til vegagerðar. Þegar niðurstöður
liggja fyrir munu þær verða sendar
iðnaðaráðuneytinu en farið verður
með þær sem trúnaðarmál. Halldór
sagði að ekkert hefði enn verið
ákveðið um áframhaldandi leit en
fyrirtækið hefur leitarleyfí til 3 ára.
Reglur um mengunar-
varnir vegna útblásturs
Uníhverfisráðuneyti og Dóms-
málaráðuneyti vinna nú að sam-
ræmingu reglna um mengunar-
varnarbúnað bíla, sem fela munu
í sér að allar léttar fólksbifreiðir
með bensínvél verði útbúnar
mengunarvarnarbúnaði til að
fullnægja alþjóðlegum viðmiðun-
um um útblástur bíla. Reglurnar
munu bæði taka til nýrra og not-
aðra bifreiða, sem fluttar verða
inn eftir 1. júlí 1992. Reiknað er
með að reglumar verði gefnar
út fyrir 1. nóvember nk.
Nú eru í gildi tvær reglugerðir,
annars vegar ákvæði um viðmiðun-
armörk efna í útblæstri bfla, hins
vegar um gerð og búnað ökutækja.
Þessar reglur stangast á og mun
breytingin nú fela í sér samræm-
ingu þeirra.
Reglurnar munu fela í sér að
allar fólksbifreiðir, allt að 3500 kg.
að þyngd, með bensínvél sem flutt-
ar verða inn eftir 1. júlí 1992 verði
útbúnar mengunarvarnarbúnaði til
að fullnægja alþjóðlegum viðmiðun-
um um útblástur bíla. Þeir prófun-
arstaðlar sem ákveðið er að nota
til grundvallar gerðarviðurkenning-
um innfluttra bíla eru bandarískur
staðall (US/87), evrópskur staðall
(EB70/220) og sænskur staðall
(A12/A13). Þegar hafa nokkur þús-
und bflar með þessum búnaði hafa
verið fluttir til landsins.
Farþegi tek-
inn með hass
FIMM grömm af hassi fund-
ust á ungri stúlku, sem kom
til landsins á mánudag með
Bakkafossi.
Hassið fannst við leit fíkni-
efnalögreglunnar í skipinu, þar
sem stúlkan var farþegi. Hún
hefur ekki komið við sögu lög-
reglu áður.