Morgunblaðið - 14.08.1991, Síða 5
5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 1991
Heimsmeistaramótið í hestaíþróttum:
Islensku keppend-
urnir við hestaheilsu
o g til alls líklegir
Nörrköping, frá Valdimar Kristinssyni fréttaritara Morgunblaðsins.
ALLT gekk eins og í sögu hjá strákunum í íslenska landsliðinu
þegar þeir mættu með hesta sína í fóta- og dýralæknisskoðun i
gær og fyrradag. Einhverjar athugasemdir voru þó gerðar við
tvenn stangamél sem tveir liðsmanna hugðust nota. Var þar um
að ræða mismun á þykkt mélanna um hálfan millimetra eða minna.
Hér er ekkert um að ræða neitt um það bil heldur allt upp á milli-
metra eftir því sem reglur kveða á um en þær eru mjög strangar
og nákvæmar.
Fyrirliði íslenska liðsins, Gunnar
Arnarsson, sagði hestana við bestu
heilsu og í mjög góðu formi. Virð-
ist því ekkert til fyrirstöðu að hest-
ar og menn nái sínu besta í keppn-
inni í dag og næstu daga. Menn
eru almennt bjartsýnir á góðan
árangur íslendinganna þótt ekki
sé mikið spáð í væntanlegan ár-
angur einstakra liðsmanna. Þá er
ljóst að helstu keppinautar okkar
verða Þjóðveijar og hafa menn
mikið rætt um hestinn Tý sem
Andreas Trappe keppir á en þeir
þykja mjög sigurstranglegir í bæði
tölti og fjórgangi.
Aðstaðan hér á mótsstaðnum,
sem heitir Himmelstalund, er afar
góð, greinilegt er að Svíar leggja
mikinn metnað í að sem best tak-
ist til. Þó virtist manni að yfirlag
vallanna, þ.e. hringvailarins og
skeiðbrautarinnar, væri nokkuð
laust í sér. Áhorfendastæðin er
með því besta sem sést hefur á
þessum mótum en sæti eru fyrir
yfir fimm þúsund manns. Skeið-
brautin liggur við hlið hringvallar-
ins og geta áhorfendur fylgst með
keppni á báðum völlunum úr
sömu sætum.
Ljóst er nú að stóðhesturinn
Kriki frá Hellulandi mætir ekki á
kynbótasýninguna en sem kunnugt
er átti hann að vera annar tveggja
stóðhesta sem sýndur yrði fyrir
ísland. Gunnar Örn ísleifsson sem
hefur umsjón með þátttöku íslands
í kynbótasýningunni vissi ekki um
ástæður þess að Kriki mætir ekki
en líklegt var talið að ekki hafi
gengið að selja hestinn áður en
haldið var utan með hrossin og
eigandinn ekki tekið áhættuna af
að fara með hann óseldan úr landi.
í stað Krika kemur stóðhesturinn
Örn frá Akureyri nr. 84160006,
sem keppir í eldri flokki, undan
Hraunari frá Sauðárkróki nr.
8151001 og Spólu frá Kolkuósi nr.
5473. Jón Steinbjörnsson sem bú-
settur er í Þýskalandi er eigandi
hestsins og mun hann sýna hann.
Auk hans mun Gammur frá Tóft-
um nr. 86187020, sem keppir í
yngri flokki, undan Otra frá Sauð-
árkróki nr. 82151001 og Gátu frá
Tóftum nr. 79287005 koma fram
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Vel fór um móstgesti þegar þeir fylgdust með æfingu sænsku keppendanna í blíðviðrinu. Má þarna
þekkja hina kunnu hestakonu Rúnu Einarsdóttur í góðum félagsskap.
en eigandi hans er Ásgeir Her-
bertsson og mun faðir hans, Her-
bert Ólason, sýna hann.
Nokkur óánægja hefur komið
fram vegna aðstöðunnar þar sem
dæma átti kynbótahrossin en til
stóð að það yrði gert á knatt-
spymuvelli steinsnar frá móts-
svæðinu. Þótti völlurinn of stuttur.
Verða dómarnir færðir inn á skeið-
brautina og mun þetta hafa ein-
hverja röskun á dagskrá dagsins
í dag, væntanlega þá á forkeppni
í töltinu.
Ýmis ágreiningsmál koma alltaf
upp á mótum sem þessum en eftir
því sem næst verður komist eru
þau öll smá. Hans Pfaffen frá
Sviss hugðist keppa á hestinum
Skálpa frá Skálpastöðum en af
einhveijum sökum skipti hann um
hest og hugðist ríða hestinum Evan
frá Gullberastöðum. Ekki mun
leyfilegt að skipta um hest eftir
að skráningu er lokið en svo virtist
sem aðrir keppendur vildu gera
Svisslendingnum kleift að vera
með. Var þetta mál í athugun og
átti að taka það fyrir á einum af
mörgum fundum sem haldnir eru.
Talið er að hátt á þriðja hundruð
Islendingar séu komnir á mótsstað
til að hvetja landann og á nú að
standa betur að málum hvað varð-
ar hvatningu og stuðning úr áhorf-
endapöllum en gert var á síðasta
móti. Þá þóttu íslenskir mótsgestir
með eindæmum daufir. Mun sá
mikli keppnismaður Erling Sig-
urðsson taka að sér að stjórna
þeim og heyrðist sagt að hann
hyggðist taka að sér að vekja
stuðningsmenn íslands á morgn-
ana svo tryggt væri að alltaf yrði
fjölmennt í klappliðinu hveiju
sinni. Veðrið var mjög gott á mótt-
stað í gær, léttskýjað og hlýtt og
er búist við svipuðu veðri næstu
daga. Hitinn fór yfir tuttugu stig
en það þykir ekki hagstætt fyrir
hestana frá íslandi að hafa hita-
stigið mikið hærra.
Eins og áður kemur fram verða
kynbótahross dæmd í dag. Verða
hæfileikar allra hrossanna, bæði
stóðhesta og hryssna, metnir en
bygging verður tekin fyrir síðar.
Þá fer fram forkeppni í tölti en
tímasetning á henni var eitthvað á
reiki í gær þegar þetta er skrifað.
Taktu sumarsveiflu
til Köben fyrir aðeins
26.690 kr.
Þar er nefnilega sumar og blíða og borgin meö
sumarbrag. Gríptu gott tækifæri og eigðu skemmtilega
síösumardaga í Kaupmannahöfn!
Tívoií er opiö tii 15. september.
Fargjald fyrir börn er 13.350 kr.
Brottfarardagar: Mánudagar, miðvikudagar og
laugardagar.
Komudagar: Sunnudags-, þriðjudags- og föstudagskvöld
Viö förum í loftið á mjög þægilegum tíma, kl. 8.35
stundvíslega, frá Keflavík.
Þetta hagstæöa fargjald er meö því skilyröi að feröin
hefjist fyrir septemberlok.
Haföu samband viö söluskrifstofu SAS eöa ferðaskrifstofu
þína.
MiSÆf
SAS á íslandi - valfrelsi í flugi!
Laugavegi 3 Sími 62 22 11