Morgunblaðið - 14.08.1991, Síða 9

Morgunblaðið - 14.08.1991, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDÁGUR 14. ÁGÚST 1991 9 CADiLLAC SEDflH DE VILLE, ÁRG. 1990 Þessi einstaki, virðulegi og ríkulega búni eðalvagn er til sölu, ekinn 25.000 km. Dökkvínrauður, framhjóladrifinn, leðurinnrétt- ing, rafmagn i öllu, hraðastýring o.fl. o.fl. Vél V8 4,5 I. Mjög fallegur bíll, allur sem nýr, með frábæra aksturseiginleika, kraftmikill og sparneytinn. Ýmis skipti möguleg. Nánari upplýsingar í síma 666631. Nú eru raunvextir á spariskírteinum ríkissjóðs í áskrift 8,1%. Pantaðu áskrift núna og þá færðu þessa háu vexti, á þeim skírteinum sem þú kaupir til áramóta, þótt vextir Refskákin um gíslana í forystugrein Berlingske Tidende er fjall- að um lausn breska blaðamannsins John McCarthys úr 1943 daga gíslingu og við- brögð við henni. Staðhæft er, að hryðju- verkasamtök, sem að gíslatökum standa, spili á almenningsálitið í hinum frjálsa heimi með falsboðskap sínum og tilstyrk fjölmiðla í því skyni að þvinga fram tilslak- anir og samstöðu við baráttu sína. Hráskinns- leikur I einni af forystugrein- um danska dagblaðsins Berlingske Tidende 9. ágúst sl. segir meðal ann- ars: „Öfgasinnuðu hryðjuverkasamtökin, sem létu breska blaða- manninn John McCarthy lausan í gær eftir að hafa haldið honum föngnum í 1943 daga, geta með engu móti ætlast til, að þeim sé sýndur þakklæt- isvottur, jafnvel þótt fjöl- skylda McCarthys hafi haldið upp á, að hann var laus úr prisundinni. Gemingur þeirra stafaði ekki af Ijúfmennsku. Hann var margreynt af- brigði i leik, þar sem leit- ast er við að þvinga heim- inn til sem mestrar tilsl- ökunar, nákvæmlega eins og þegar mannræn- ingjar annars staðar í heiminum hafa sent ætt- ingjum afskorið eyra eða fingur af fómarlambi sínu. Lausn McCarthys er ætlað að minna heim- inn á, að Hizbollah-sam- tökin hafi enn 12 vest- ræna gísla á valdi sinu og það eigi eftir að versla með frelsi þeirra. Grímu- laus grimmdin cr nú sem fyrr við sama heygarðs- homið. Viðbrögð heimsins eiga að markast af þessu og engu öðm. Menn freistast nefnilega oft til að gangast undir falsboð- skap hryðjuverkamann- anna, sem halda fram, að örlög gíslanna séu í hendi þeirra, sem vilja þá fijálsa. Verði ríkis- stjómir á Vesturlöndum við kröfum hryðjuverka- mannanna, verða gíslamir látnir lausir, segir í þessum blekkinga- boðskap, sem á ömggan sess í vestrænum íjölm- iðlum, en er ekki fram borinn í lágum hljóðum á milli diplómata. Astæð- an er sú, að þvingunar- mennimir vilja fá al- menningsálitið i hinum frjálsa heimi á sitt band í þessari vondu baráttu sinni fyrir að ná ákveðn- um markmiðum. Reynsl- an hefur margsinnis sýnt, svo að ekki verður um villst, að tilslakanir og hrossakaup hvetja aðeins til áframhaldandi gíslatöku. Þess vegna er skynsamlegast og réttast að hvika aldrei frá þeirri grundvallarreglu, að það er sá sem brotið hefur af sér, sem ber ábyrgð á broti sínu. Hann einn ber ábyrgðina á öryggi gíslanna og Iiami einn verður að fá þeim frelsi sitt aftur.“ EBogJúgó- slavía I forystugrein danska dagblaðsins Det fri aktu- eit 8. ágúst er fjallaö um afskipti Evrópubanda- lagsins af átökunum í Júgóslavíu. Þar segir meðal annars: „Það er alveg Ijóst, hvað Uffe Ellemann-Jensen [ut- anríkisráðherra Dan- merkur] er að fara, þeg- ar hann segir í viðtali við B.T., að kreppan í Júgó- slaviu verði prófsteinn á, að hve miklu feyti EB er bara pappirstígrisdýr. þegar á reynir í utanrík- ismálum. Það sem við horfum upp á núna — áður en bandalagið er orðið stjómmálaleg heild — er, að nú reynir á getu Evrópuríkja til að leysa aJvarleg vandamál, sem upp koma í álfunni. Þær aðstæður geta skapast, að nauðsynlegt reynist að koma á fót friðar- gæslusveitum og Danir verði að íhuga hvort þeir vilja eiga hlut að þeim. En það er að sjálfsögðu ekki nóg að senda friðar- gæslusveitir á vettvang án þess að gert sé út um, hvað við tekur í Júgó- slavíu. A að halda ástand- inu óbreyttu og viður- kenna þar með tilraun- imar til að skapa Stór- Serbíu eða á EB að grípa til hemaðaríhlutunar? Á að miðla málum, sjá um friðargæslu eða taka málin i sínar hendur? í bili á að láta nægja að beita efnahagslegum og pólitískum þrýstingi til að fá forystumenn Serba til að taka þátt í heiðarlegum og raun- vemlegum samnhigavið- ræðum, og í því sam- bandi verða Evrópuríkin að gera sér grein fyrir, að þar geta bæði Banda- ríkin og Sovétrikin gegnt veigamiklu hlutverki." Ósiðlegar biðraðir Finnska dagblaðið Hufvudstadsbladet ræðir í leiðara þann 9. ágúst um mikla ásókn Eistlend- inga í vegabréfsáritanir til Finnlands. Þar er fjall- að um gagnrýni sam- gönguráðherra landsins á hversu langar biðraðir séu eftir vegabréfsáritun við ræðismannsskrif- stofu Finnlands í Tallinn en hann er nýkominn úr ferðalagi þangað. Segir ráðherrann þetta ekki sæma siðmenntaðri þjóð og nefnir til samanburð- ar að Finnar hefðu nú aldeilis móðgast fyrr á öldum ef Sviar hefðu komið svona fram við þá. Finnska utanríkisráðu- neytið hefur svarað gagnrýninni og um þau svör segir í leiðara blaðs- ins: „Bent er á að ekki muni finnast lausn á þessrnn vanda á meðan hin góðu lífslyör okkar laða að sovéska gesti og á meðan sovésk gjaldeyr- islöggjöf sé óbreytt, en í núverandi horfi hvetji hún til glæpastarfsemi. Þar fyrir utan er bent á að þegar starfsfólki hefur verið fjölgað hafa biðraðiraar lengst, brögð séu að skjalafalsi og að Sovétmenn skipuleggi biðraðirnar á sinn hátt Biðraðimar séu þannig líka „ósiölegar" í þeim skilningi.“ Síðan segir í Hufvud- stadsbiadet „En þar sem 99% umsókna em sam- þykkt hlýtur að vera hægt að gera úrvinnsl- una skilvirkari. Fjölgun starfsfólks og auknum tölvubúnaði er lofað en einnig ættu menn að íhuga útgáfu vegabréfsá- ritana til lengri tima fyr- ir t.d. viðskiptameim og fólk sem starfa sinna vegna þarf að heimsækja landið okkar oft.“ lækki aftur síðar á árinu. Hringdu eða komdu í Seðlabanka íslands eða Þjónustumiðstöð ríkisverðbréfa og pantaðu áskrift að spariskírteinum ríkissjóðs. RÍKISVERÐBRÉFÁ Kalkofnsvegi 1, Hverflsgötu 6, sfmi 91- 626040 sími 91-699600 Kringlunni, sími 91- 689797 REGLULEGUR SPARNAÐUR - ÁSKRIFT Smátt og smátt eignast þú þinn eigin fjársjóð Það átta sig ekki allir á því hversu stór sjóður getur myndast þegar reglulega er lagt fyrir á löngum tíma. Upphæðin þarf ekki að vera há, mestu máli skiptir að byrja tímanlega að spara. Hjá VIB bjóðast einfaldar og þægilegar leiðir til mánaðarlegs sparnaðar. Hægt er að velja á milli ýmissa ávöxtunarleiða og sjá ráðgjafar VÍB um að finna þá leið sem best hæfir hverjum. VÍB annast síðan vörslu verðbréfanna og sendir reglulega út yfirlit yfir innborganir og stöðu eigna. Verið velkomin í VÍB. VÍB VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. Armula 13a, 108 Reykjavík. Simi 68 15 30. Teiefax 68 15 26. Simsvari 68 16 25.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.