Morgunblaðið - 14.08.1991, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. ÁG|TST 1991
15
I
v
Lítil afmæliskveðja
Mér er tjáð, að vinur minn
Hrólfur Sveinsson eigi stóraf-
mæli um þessar mundir. Sjálfur
hefur hann lítt haldið þessu á
lofti, enda flestum kunnug hóg-
værð hans, sem í ýmsu tekur á
sig ótrúlegar myndir, jafnvel
þær, að erfitt mun að finna nafn
hans í þjóðskrá, svo að sumum
hefur dottið í hug, að hann hafi
kannski sagt sig úr þjóðfélaginu,
en það er gamall draumur
margra, sem kunnugt er. En þar
sem ég er til margra ára tryggur
aðdáandi Hrólfs, vil ég ekki láta
þessi tímamót líða hjá án þess
að stungið sé niður penna. Mig
langar að nota tækifærið til að
þakka Hrólfi fyrir allar blaða-
greinarnar, sem hann hefur
skrifað um dagana og ævinlega
hafa orðið til umhugsunar,
gjarna um þau mál, sem við aðr-
ir dauðlegir höfum í barnaskap
okkar haldið að litlu skipti. Með
öðrum orðum, ég vil þakka hon-
um fyrir, að opna augu okkar
fyrir því stórmannlega í því smá-
munalega, hinu stóra í því smáa.
En vinur er sá sem til vamms
ségir. Einn er sá ljóður á vini
mínum, sem ég hygg hann geti
nú farið að bæta úr, nú þegar
hann er að komast á virðulegan
þroskaaldur. Það, sem ég ýja hér
að, er sú árátta Hrólfs í greinum
sínum að vera á öðru máli en
annar maður, sem ég einnig virði
mikils og er mér kær, Helgi
Hálfdanarson. Svo skemmtilega
vill til, að Helgi mun einnig eiga
stórafmæli um þessar mundir,
þó að hann haldi því jafnlítið á
lofti og Hrólfur. En mér hefur
alltaf þótt það ljóður á Hrólfi,
(og segi það bara hér berum
orðum, þó að í afmælisgrein sé,
þar sem ekki er á Islandi siður
að tíðinda blett né hrukku), að
kunna ekki til fulls að meta
Helga og vera að abbast upp á
hann og snúa út úr skoðunum
hans og hugsjónum. Það vill
nefnilega svo einkennilega til að
Helgi Háldanarson er einn af
þessum örfáum mönnum í sam-
tíðinni, sem standa upp úr og
hafa skilað dagsverki, sem hlýtur
að vekja furðu og aðdáun um
aldir: Shakespeare-þýðingarnar,
ljóðaþýðingamar, þýðingamar á
grísku harmleikjunum. Auk
þessa hefur hann auðvitað skilað
öðru dagsverki, sem er svona
meira af venjulegri stærðargr-
áðu, sett saman lyf mönnum til
líkamsbata og kennt ungum kyn-
slóðum þarflegar formúlur.
Nú þyrfti hann eiginlega að
fara á fullt með frönsku klassík-
ina. Ekki bagar hann elli, þar
sem hann skokkar við fót eins
og unglamb og maður þarf eigin-
lega að skyggnast í úlpuopið að
framan til að sannfærast um að
þar fari Helgi en ekki einhver
fermingarpiltur. En svo kvikur,
sem Helgi er á fæti, svo kvikur,
frjór og óþreyttur er hann í and-
anum og svo blessunarlega for-
vitinn um mannleg mál.
Þetta átt þú að vita, Hrólfur
minn, og meta.' Auðvitað veit ég,
að báðum gengur gott til, þegar
þið karpið í blöðum. En minnstu
þess, að það sem Helgi Hálfdan-
arson gerir að sínum hjartans
málum, eru þau mál sem laugast
í uppsprettulindum tilveru okkar,
sem eru þau náttúrunnar nær-
ingarefni, sem skipta sköpum úm
það, hvort hér verður áfram
íslenskt lífríki í öllum skiiningi
og hvort það lífríki skilar sínu í
hinni miklu hringrás almættis-
ins.
En þetta átti að vera afmælis-
kveðja og ekki ádrepa. Því koma
hér frómar óskir, sem ég ætla
nú reyndar að leyfa mér að biðja
þig að færa Helga félaga þínum
um leið, fyrst þið eruð svona
mikið jafnaldra. Þó að þið séuð
kannski ekki alltáf á eitt sáttir,
þá vona ég samt þið eigið í vænd-
um, jafnbjarta framtíð næsta
áratuginn (sem er sá níundi, ef
rétt er til getið), ykkur sjálfum
og reyndar okkur öllum til bless-
unar og lífsbötunar.
Sveinn Einarsson
A
Mataræði Islendinga:
Kaffi og gosdrykkir vinsælli en vatn
Karlmenn borða meiri fitu en konur
MANNELDISRÁÐ íslands hef-
ur birt skýrslu um könnun á
mataræði Islendinga. í niður-
stöðum könnunarinnar kemur
meðal annars fram að Islend-
ingar neyta mjög próteinríkrar
fæðu, karlmenn borða almennt
feitara fæði en konur og gos-
drykkjaneysla ungra Islendinga
er áberandi mikil.
í fréttatilkynningu frá Mann-
eldisráði kemur fram að könnunin
leiddi í ljós að fáar þjóðir neyta
próteinríkara fæðis en Islendingar.
Fiskur, kjöt, mjólk og mjólkurmat-
ur skipa veglegri sess í mataræði
okkar en flestra annarra þjóða.
Við borðum hins vegar minna af
grænmeti, ávöxtum, brauði og
öðrum kornmat en flestir aðrir.
Einu kolvetnaríku fæðutegundim-
ar sem íslendingar neyta í stóram
stíl eru sætindi, kex, kökur og
gosdrykkir. Þrátt fyrir hreina
vatnið er meira drakkið af gos-
drykkjum en vatni hérlendis. Gos-
drykkjaneysla er einkum áberandi
meðal ungs fólks. Vatn lendir í
ijórða sæti á vinsældalista yfir
drykki samkvæmt könnuninni, á
eftir kaffi, nýmjólk og gosdrykkj-
um.
Of mikil fituneysla er þá helsti
ókostur á fæðuvenjum íslendinga,
ekki síst karla, sem almennt borða
meiri fitu en konur. Samkvæmt
niðurstöðum könnunarinnar nota
karlar meiri fítu með heitum mat
en konur, þeir smyija brauðið sitt
meira og þeir velja oftar nýmjólk
í stað léttmjólkur eða undanrennu.
Hjartasjúkdómar era algengari
meðal karla en kvenna og þar sem
mikil fituneysla eykur líkur á þeim
er brýnt fyrir karlmenn að huga
að þessum þætti mataræðis.
Hægt er að fá skýrslu um könn-
unina hjá Manneldisráði íslands.
ÓDÝR OD TRAUSTUR
Lada Safír er sterkbyggður og eyðslugrannur
5 manna bíll. Hann er fjögurra gíra og er fáanlegur
bæði með 1200 cnf og 1300 crrf vél. Innréttingar
eru sterkar og endingargóðar. Bíllinn hentar vel í
bæjarakstri og er öruggur í langferðum. Lada Safír
er kjörinn fyrir þá sem vilja traustan bíl á vægu verði.
2 LADA SAFÍR
BIFREIÐAR & LANDBUNAÐARVELAR HF.
Ármúla 13 108 Reykjavík Símar 68 12 00 & 3 12 36
fiöafli 6hiú •
•K»flJ '>•) !, '30
★ Pitney Bowes
Frimerkjavélar
OTTO B. ARNAR HF.
Skipholti 9 -105 Reykjavík
Símar 624631 / 624699
H.K.
innréttingar
Dugguvogi 23, sími 35609
Myndsendir 679909
Eldhúsinnréttingar,
. fataskápar og
baöinnréttingar.
SérsmíðaÖ ogstaÖl-
aÖ. Leitiö tilboöa.
Innanhússarkitekt
til aðstoöar.
Opiöfrákl.9-18,
laugardaga kl. 10-15.
HITACHI
HJÓLSÖG
• 185 mm bloð •
• Aðeins 4 kg •
• 1.150 W mótor •
• 5000 snúninga •
• Verð 17.900.-*
VÖLUSTEINNhf
Faxafen 14, Sími 679505
Umboðsmenn um allt land.
LP þakrennur
Allir
fylgihlutirhlutir
LP þakrennukerfið frá okkur er
heildarlausn. Nýðsterkt,
fallegt, endist og endist.
Verðið kemur þér á óvart.
Leitiö upplýsinga
BLIKKSMIÐJAN
TÆKNIDEILO (Uk*
SMIÐSHÖFÐA 9
112 REYKJAVÍK
SiMI: 91 -685699
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
JltotSMttÞlfafcife