Morgunblaðið - 14.08.1991, Page 16

Morgunblaðið - 14.08.1991, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 1991 AF INNLENDUM VETTVANGI AGNES BRAGADÓTTIR Ovissa með þátttöku Gránges í Atlantsál * Fjárfesting 1 virkjanaframkvæmdum á næsta ári vegna álversins á Keilisnesi liðlega 5 þúsund milljónir króna Morgunblaðið/Þorkell Frá fundi Davíðs Oddssonar forsætísráðherra með forsvarsmönn- um Atlantsáls og íslensku álviðræðunefndarinnar í gær. Frá vinstri er Hans Van der Ros aðstoðarframkvæmdastjóri Hoogo- vens, Max Koker forstjóri sama fyrirtækis, Davíð Oddsson forsæt- isráðherra, Paul Drack stjómarformaður Alumax, Bond Evans forstjóri Alumax og dr. Jóhannes Nordal formaður íslensku álvið- ræðunefndarinnar. 1991 Efnislegt samkomulag hefur tekist um öll meginatriði samninganna milli íslands og Atlantsálfyrirtækjanna um nýtt álver á Keilisnesi. ÁSONDJ FMAMJ JÁSOND Á haustþingi leggur ríkisstjórnin fram lagafrumvarp sem heimilar framkvæmdir Atlantsálfyrirtækin leggja drög að fjármögnun framkvæmdanna Stjórnir Atlantsálfyrirtækjanna taka álsamningana til lokasamþykktar I 1993 JFMAMJJÁSOND Framkvæmdatíminn verður fram til ársins 1995 og mestarverða framkvæmdirnar á árunum 1993 og 1994. Virkjunarframkvæmdir hefjast. Áætlað er að 5 milljarðar kr. fari til framkvæmdanna á árinu 1992 og 27 milljarðar kr. i heild. Virkjanaröðin er: Blanda, Stækkun Búrfells, Nesjavellir, Stækkun Blöndu og Fljótsdalur. Hafnarframkvæmdir í Vatnsleysuvík hefjast. í heild eru þær taldar kosta um 1 milljarð kr. Framkvæmdir við byggingar hefjast. ALVER A KEILISNESI STJÓRN Landsvirkjunar kem- ur saman tíl fundar á morgun þar sem kynnt verður það sam- komulag sem tekist hefur milli íslenskra stjórnvalda, íslensku álviðræðunefndarinnar og Atl- antsáls. Dr. Jóhannes Nordal formaður stjórnar Landsvirkj- unar segir að stjórnin muni hvorki afgreiða né álykta um það samkomulag sem fyrir liggur, heldur verði hér einung- is um upplýsingafund að ræða. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins eru taldar miklar Iikur á að samkomulagið verði samþykkt í stjórn Landsvirkj- unar, þegar að því keraur, sem samkvæmt upplýsingum Jó- hannesar verður einhvern tíma áður en málið kemur tíl kasta Alþingis. Paul Drack stjómarformaður Alumax, Bond Evans forstjóri Alumax, Max Koker forstjóri Hoogovens, Hans Van der Ros aðstoðarframkvæmdastjóri Ho- ogovens og Jóhannes Nordal for- maður íslensku álviðræðunefnd- arinnar hittu Davíð Oddsson for- sætisráðherra eftir hádegi í gær og greindu honum frá stöðu mála. „Á þessu stigi eru mjög fáir óleystir þættir í þessum samning- um og þeir sem óleystir em, em að mínu mati aðallega tæknilegs og lögfræðilegs eðlis. Mér heyrist á forsvarsmönnum álfyrirtækj- anna að það sé allt annað og betra hljóð í þeim hvað varðar fjár- mögnunina en var þegar ég talaði við þá í vor. Þetta var afskaplega glaðvær og góður fundur og ég eins og þeir er bjartsýnn," sagði Davíð Oddsson forsætisráðherra að afloknum fundinum. Forsætis- ráðherra kvaðst telja að efnislega væri það samkomulag sem nú lægi fyrir mjög ásættanlegt. Hættir GrSnges við? Þrátt fyrir þá staðreynd að samningar séu komnir á það stig, sem þegar hefur verið greint frá, gætir enn nokkurrar óvissu hvað varðar endanlega eignaraðild að nýrri álbræðslu á Keilisnesi. Móð- urfyrirtæki sænska fyrirtækisins Gránges AB er Electorlux AB, sem átt hefur í umtalsverðum fjárhagserfiðleikum. Þótt Gráng- es og forsvarsmenn þess, þar á meðal forstjórinn Per Olaf Arons- son hafi mikinn áhuga á þátttöku, er ekki ljóst hvort Electrolux sam- þykkir þær fjárskuldbindingar sem Gránges þyrfti að taka á sig með þátttöku í Atlantsáli. Raunar er talið næsta ólíklegt að Electrol- ux samþykki slíkar fjárhagsskuld- bindingar Gránges. Aronsson fór héðan til Stokkhólms f gærmorg- un, en hann vildi ekki tjá sig um þessa örðugleika þegar ég ræddi við hann. Aronsson hefur látið í veðri vaka að hugsanlegt sé að Gránges ráðist fremur í að stækka eigin álbræðslu í Sundsvall í Svíþjóð, en þátttöku í byggingu nýs álvers á Keilisnesi. Verði sú raunin ligg- ur fyrir af hvorki Alumax né Hoogovens muni verða aðilar að þeirri framkvæmd. Af samtölum mínum við for- svarsmenn Hoogovens og Alumax í gær má ráða að þeir vænti end- anlegrar ákvörðunar Gránges inn- an eins mánaðar. Þeir Drack og Koker sögðu báðir í gær að ef til þess kæmi að Alumax og Hoogo- vens þyrfti að fjalla um framhald- ið án Gránges, þá yrði það með þeim hætti að slíkt hefði engin áhrif á framkvæmdaáætlun og engar nýjar samningaviðræður þyrftu til að koma. Báðir kváðust eindregið vona að þetta yrði aldr- ei annað og meira en vangaveltur og Gránges yrði með til enda. „Samt sem áður get ég upplýst að dragi Gránges sig út úr Atlant- sál, þá mun það á engan hátt seinka áætlunum eða fram- kvæmdum," sagði Koker í gær og bætti við að um það væri sam- staða á milli Hoogovens og Alum- ax. Jóhannes Nordal sagði í gær að íslenska álviðræðunefndin hefði þær upplýsingar frá Hoogo- vens og Alumax að áætlunum yrði í engu breytt, þótt svo kynni að fara að Gránges drægi sig út úr Atlantsál. „Þetta liggur ekki ljóst fyrir nú, því það er ennþá von til þess að Gránges verði með. Ég hygg að Per Olaf Arons- son forstjóri Gránges telji það nánast grundvallaratriði fyrir Gránges að vera með í verkefn- inu, því þeir þurfa eindregið á þessum málmi að hralda fyrir framleiðslu sína,“ sagði Jóhannes. Stjórn Landsvirkjunar jákvæð Ámi Grétar Finnsson einn stjómarmanna Landsvirkjunar sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að sjálfstæðismenn í stjórn Landsvirkjunar væra mjög já- kvæðir gagnvart því að sam- þykkja þessa samninga. „Raunar veit ég ekki annað en þorri stjóm- armanna Landsvirkjunar sé mjög jákvæður gagnvart því að samn- ingar takist,“ sagði Árni Grétar. Raunar líta ákveðnir stjórnar- menn Landsvirkjunar þannig á að nú sé boltinn hjá Atlantsálfyrir- tækjunum. Þau verði að fá niður- stöðu í fjármögnun nýrrar ál- bræðslu og það verði að gerast á komandi haustmánuðum. Þetta staðfestu þeir Paul Drack stjórn- arformaður Alumax og Max Kok- er forstjóri Hoogovens þegar ég ræddi við þá í gær. Aukin bjartsýni hvað varðar fjármögnun „Staðreyndin er sú að við höf- um nokkra ástæðu til þess að vera bjartsýnir á niðurstöðu fjár- mögnunarviðræðna, þótt þær séú nú aðeins að heijast fyrir alvöra. Við fyrstu könnun í vor sýndu enskir og bandarískir bankar fjár- mögnun takmarkaðan áhuga, en nú nýlega sýndu svissneskir og þýskir bankar málinu veralegan áhuga,“ sagði Koker. Hann bætti við' að þrátt fyrir þetta, væri næsta víst að ekki fengjust jafn hagstæð kjör nú og fyrir tveimur áram. Samkomulag það sem nú hefur tekist er til 25 ára, með framleng- ingarheimild til tvisvar sinnum fimm ára, eins og þegar hefur komið fram hér í Morgunblaðinu. Líklega er það rétt, sem ákveðnir viðmælendur mínir hafa bent á, að ekki er rétt að einblína um of á raforkuverð það sem Atlantsál mun greiða á fyrstu starfsárum verksmiðjunnar, eða fyrstu tvö fjögurra ára tímabilin. Verðið er mjög hagstætt, og sem hlutfall af heimsmarkaðsverði á áli í dag, væri það ekki nema um 10 mills á kílówattstundina. Benda þessir menn á, að í þessum efnum verði sérstaklega að hafa tvennt í huga. Vegna hóflegrar eftirspurnar á áli í dag, sé heimsmarkaðsverðið lágt og austantjaldslöndin, eink- um Sovétríkin, séu nú að setja uppsafnaðar birgðir áls á markað, til þess að afla sér gjaldeyris. Hvort tveggja sé tímabundið ástand og alls engin vísbending um framtíðarþróun álverðs i heim- inum. Þvert á móti bendi flestar spár til þess að eftirspurn eftir áli eigi eftir að stóraukast á næstu árum, jafnvel margfaldast, ogþar með muni álverð ijúka upp á nýj- an leik. Þak og gólf á orkuverði í megindráttum felur það sam- komulag sem nú hefur tekist um raforkuverð það efnislega í sér, samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef aflað mér, að orku- verð verður lægst á fyrstu tveim- ur starfsáram verksmiðjunnar, þó aldrei lægra en 10,5 mills og aldr- ei hærra en 14 mills. Að þessu afsláttartímabili undanskildu, verður raforkuverðið samkvæmt formúlunni 0 = A x p/14,2. 0 er orkuverð í US mill/kWh; A er heimsmarkaðsverð á áli í bandaríkjadölum átonn; p stendur fyrir hundraðshluta og deilitalan 14,2 þýðir fjölda kílówattstunda, sem þarf til að framleiða 1 kíló af hrááli. Hlutfall p í formúlunni fer stighækkandi, eftir því sem líður á samningstímann: Þannig er það ákveðið 10% fyrstu tjogur árin, 12% næstu fjögur ár, og 16% eftir það. Að loknu 20. ári raforkusamn- ingsins kemur til örlítil hækkun raforkuverðsins, sem gildir út samningstímabilið, samkvæmt mínum upplýsingum. Undirritun á fyrsta ársfjórðungi 1992 Fáist jákvæð niðurstaða í samningaviðræðum Atlantsáls- fyrirtækjanna við lánastofnanir um fjármögnun, kemur málið til umfjöllunar í stjórnum fyrirtækj- anna á fyrsta ársfjórðungi næsta árs. Paul Drack segir að Alumax muni þá afgreiða málið í febrúar- mánuði á næsta ári og í síðasta lagi J mars. í sama streng tekur Max Koker forstjóri Hoogovens, en eins og gefur að skilja gætir enn sem komið er meiri óvissu með Gránges. „Þetta er auðvitað háð því að útkoman hvað varðar fjármögnun verði ásættanleg," sagði Drack, „því annars kemur málið yfir höfuð ekki til umfjölfun- ar í stjórnum fyrirtækjanna. Ég tel að við munum vita vissu okkar hvað varðar þann þátt eigi síðar en í desember á þessu ári.“ Virkjanaframkvæmdir upp á 5 milljarða 1992 Halldór Jónatansson forstjóri Landsvirkjunar sagði í gær að framkvæmdir við virkjanir og línulagnir þyrftu að fara í fullan gang þegar á næsta vori. „Við verðum að gera verksamninga snemma á næsta ári og ýta úr vör strax og ísa leysir,“ sagði Halldór. Áætlað er að nálægt fimm milljarða ijárfesting eigi sér stað á næsta ári vegna virkjana í þágu álversins á Keilisnesi og auk þess liðlega 500 milljónir króna vegna verkloka við Blöndu- virkjun. Halldór Jónatansson segir að 5 til 600 manns muni vinna við virkjanaframkvæmdir á næsta ári. Heimildarlagaframvarp ríkis- stjórnarinnar vegna nýs álvers á Keilisnesi þurfi þess vegna að afgreiðast á haustþingi og verða að lögum fyrir jól. Fyrir þann tíma þurfi stjórn Landsvirkjunar að afgreiða og samþykkja orkusamn- inginn. í framhaldi af því að stjórnir álfyrirtækjanna staðfesti samningana fyrir sitt leyti, kæmi til endanlegrar undirskriftar samninga, verksamninga og framkvæmda. Halldór segir að Landsvirkjun bíði með að taka lægstu tilboðum sem borist hafa í framkvæmdir þar til endanleg undirskrift liggi fyrir. „Við hyggjumst framlengja þau tilboð sem við höfum fengið. Það er búið að bjóða út alla stærstu verkhlutana í þessar framkvæmdir, bæði hvað varðar byggingavinnu, vélar og rafbún- að, fyrir Fljótsdalsvirkjun og stækkun Búrfellsvirkjunar. Þau tilboð gilda fram á haustið og við hyggjumst reyna að framlengja lægstu tilboðum í hvern verkhluta fram á vetur," sagði Halldór. Hafnarframkvæmdir í Vatns- leysuvík vegna nýrrar álbræðslu á Keilisnesi munu kosta um einn milljarð króna. Þær þurfa að hefj- ast þegar næsta sumar. Bygging- arframkvæmdir hæfust síðan á Keilisnesi árið 1993, þar sem bygging álversins tekur skemmri tíma en virkjanaframkvæmdir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.