Morgunblaðið - 14.08.1991, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 1991
17
Lions á íslandi 40 ára
FJÖRUTÍU ár eru í dag, miðvikudag, liðin frá því fyrsti Lionsklúb-
burinn var stofnaður hér á landi. Magnús Kjaran var aðal hvata-
maður að stofnun Lionsklúbbs Reykjavíkur. Nú, 40 árum síðar,
eru um 3.300 Lions-, Lionessur og Leofélagar í Lionsfjölskyld-
unni, eins og Lionsmenn nefna oft allan hópinn. Hér eru bæði
konur og karlar á öllum aldri úr öllum stéttum þjóðfélagsins. í
dag verður afmælisdagskrá í tilefni dagsins.
Aðal kjörorð hreyfingarinnar er
„Við leggjum lið“, þar sem félag-
arnir standa vörð um þá sem minna
mega sín í þjóðfélaginu auk þess
að láta sig alls kyns umhverfis- og
þjóðfélagsmál varða. Má hér t.d.
nefna landgræðslu og trjárækt.
Klúbbar um allt land hafa „tekið í
fóstur“ gróðurreiti eða lönd þar sem
þeir hyggjast rækta upp á afmælis-
árinu. Mun hver Lionsfélagi gróður-
setja 40 birkitré, eða eitt fyrir hvert
ár. Þá hafa Lionsfélagar á Norður-
löndunum safnað birkifræi, sem nú
er í ræktun hér á landi.
Hreyfingin hefur unnið mikið að
alls kyns vímuvörnum. M.a. hefur
námsefnið „Lions Quest“ sem ber
íslenska heitið „Tökum á tilver-
unni“ verið tekið upp í grunnskólum
landsins.
Fyrsti laugardagurinn í maí ár
hvert hefur undanfarin 5 ár verið
samnorrænn baráttudagur Lions
fyrir vímuvörnum.
Rauða ljöðrin er sennilega eitt
þekktasta fjáröflunarverkefni
hreyfingarinnar, enda á landsvett-
vangi. Rauða fjöðrin var fyrst seld
árið 1972 og hefur verið seld að
jafnaði á 4ra ára fresti síðan. Söfn-
unarfé Rauðu ijaðrarinnar hefur
verið varið til alls kyns stórra verk-
efna, s.s. kaupa á tækjum fyrir
heyrnardeild Borgarspítalans, upp-
setningar augndeildarinnar á
Landakotsspítala, kaupa á línu-
hraðli á Krabbameinsdeild Lands-
pítalans og síðast en ekki síst var
söfnunarfé Rauðu fjaðrarinnar var-
ið til byggingar á heimili fyrir fjöl-
fatlað ungt fólk að Reykjalundi.
Þetta heimili mun vista 7 einstakl-
inga. Nú styttist óðum í að heimilið
verið tekið í notkun.
Afmælisdagskrá Lionshreyfing-
arinnar verður fjölbreytt. Til heið-
urs íslensku Lionsfólki mun alþjóða-
forseti hreyfingarinnar, Donald E.
Banker, og kona hans, Diana, verða
viðstödd afmælishátíðina. Á sjálfum
afmælisdeginum í dag, verður
hátíðarmessa kl. 12.00 í Neskirkju,
þar sem Hr. Ólafur Skúlason pred-
ikar. Eftir messu verður gengið að
leiði Magnúsar Kjaran, stofnanda
Lionshreyfingarinnar á íslandi. Að
lokum verður sérstakur hátíðar-
fundur í Lionsheimilinu í umsjá Li-
onsklúbbs Reykjavíkur.
Laugardaginn 17. ágúst verður
síðan hátíðarfundur f Háskólabíói
með fjölbreyttri dagskrá. Afmælis-
hátíðinni lýkur síðan um kvöldið
með afmælisballi í Súlnasal Hótels
Sögu.
Reiknað er með góðri þátttöku
Lionsfélaga frá hinum ýmsu klúbb-
um landsins auk erlendra gesta frá
öllum Norðurlöndunum ásamt al-
þjóðaforsetahjónunum, segir í
fréttatilkynningu frá Lions.
Ráðstefna um íslensk-
ar fornbókmenntir
Gautaborg. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur fréttaritara Morgunblaðsins.
ÁTTUNDA alþjóðlega ráðstefn-
an um íslenskar fornbókmenntir
stendur nú yfir í Gautaborg og
Guðmundur Ingólfs-
son píanóleikarí látínn
GUÐMUNDUR Ingólfsson píanó-
leikari lést í Reykjavík á mánu-
dag. Hann var fæddur í
Reykjavík 5. júní 1939, sonur
hjónanna Oddfríðar Sæmunds-
dóttur og Ingólfs Sveinssonar.
Guðmundur byijaði kornungur
að læra píanóleik hjá Rögnvaldi
Sigurjónssyni og að loknu námi hér
heima hélt hann til Danmerkur til
framhaldsnáms hjá Axel Arnfjörð.
í Danmörku byijaði Guðmundur
að leika jasstónlist og varð með
árunum einn þekktasti jasstónlist-
armaður íslendinga. Eftir heim-
komuna frá Danmörku lék Guð-
mundur með ýmsum jasssveitum,
meðal annars hljómsveitum Gunn-
ars Ormslev og Jóns Páls Bjarna-
sonar.
Guðmundur dvaldi og starfaði
tvívegis í Noregi. í fyrra sinnið árið
1962 en þá lék hann um tíma með
kvartett jassleikarans Dexter Gor-
don. Guðmundur dvaldist aftur í
Noregi á árunum 1974 til 1977 en
kom þá alkominn heim og starfaði
eftir það lengst af í eigin tríóum
og kvartettum. Eftir heimkomuna
1977 hófst samvinna hans og Guð-
mundar Steingrímssonar trommu-
leikara, en saman hafa þeir fóstrað
flesta þá íslenska jasstónlistarmenn
sem síðan hafa haslað sér völl.
Guðmundur lék inn á fjöldan all-
lýkur henni 17. ágúst. Ráðstefn-
an er haldin á vegum háskólans
í Gautaborg og það er prófessor
Lars Lönnroth, sem hefur haft
umsjón með undirbúningi henn-
ar. Einnig hefur Kristinn Jó-
hannsson sendikennari tekið þátt
í því starfi ásamt fleiri heima-
mönnum. Ráðstefnuhaldið er
reyndar síðasta embættisverk
Lönnroths, sem er nýtekinn við
sem menningarritstjóri við
Svenska Dagbladet.
Meginefni rásðtefnunnar er mót-
taka Islendingasagna, bæði fyrr og
síðar. Þar verða fluttir 75 fyrirlestr-
ar, sem tengjast meginefni ráð-
stefnunnar, auk þriggja almennra
fyrirlestra. Hana sækja um 250
manns frá nítján löndum, þar af
sautján frá íslandi. í þetta sinn eru
óvenjumargir þátttakendur frá
Austur-Evrópu, auk þess sem fjöldi
þátttakenda frá Ítalíu kemur á
óvart, hvorki meira né minna en
nítján manns.
Morgunblaðið/Reynir Ragnarsson
Þessi mynd var tekin af Eldvatnsbrú við Ása á mánudag.
Skaftá í rénun
SKAFTÁ er nú í rénun eftir hlaupið sem verið hefur í henni
undanfarna daga. Kunnugir telja þetta hlaup hafa verið í
minni kantinum, en þegar það náði hámarki var vatnsrennslið
um 1.140 rúmmetrar á sekúndu.
Skemmdir á mannvirkjum af
völdum hlaupsins urðu með
minnsta móti, aðeins vegurinn
inn í Skaftárdal fór í sundur,
og verður gert við hann strax
og ástand árinnar kemst í eðli-
legt horf. Að sögn Oddnýar S.
Gunnarsdóttur húsfreyju í
Hvammi má búast við að rennsl-
ið muni verða nánast eðlilegt
einhvem tímann á morgun en
þegar í gær var Oddný farin að
sjá nokkra minnkun á ánni.
Isafjörður:
Lagt hald á net og laxa
LÖGREGLAN á ísafirði lagði hald á 2 net og 16 laxa í fyrrinótt.
Laxarnir voru fangaðir í net í Seljalandsá í botni Álftafjarðar.
Að sögn Jónmundar Kjartans-
sonar aðstoðaryfirlögregluþjóns
hjá lögreglunni á ísafirði var lög-
reglan á leiðinni í Álftafjörð á mið-
nætti í fýrrinótt til að huga að
netalögnum. Við Svarthamra
stöðvaði hún bíl sem í voru kona
og 2 karlar á leið úr botni Álfta-
fjarðar. Að fengnu leyfi var leitað
í bílnum og fundust 15 laxar og
net í farangursrými bílsins.
I Seljalandsá fannst annað net
og var einn lax fangaður í það.
Lögreglan lagði hald á net og afla
meðan málið er í rannsókn.
an af hljómplötum, þar af þijár
undir eigin nafni. Hin síðasta þeirra,
Gling-Gló, varð fyrsta gullplatan
með íslenskri jasstónlist.
Guðmundur Ingólfsson var
tvíkvæntur. Fyrri kona hans var
Helga Sigþórsdóttir og eignuðust
þau eitt bam. Síðari kona Guð-
mundar var Bima Þórðardóttir og
eignuðust þau tvö börn.
Kennarabraut • Macintosh
Ritvinnsla, gagnasöfnun, töflureiknir og stýrikerfi.
© Sérsniðin ágústnámskeið fyrir kennara!
7.-15. ágúst kl. 13-16 og 19.-28. ágúst kl. 13-16. „
Tölvu- og verkfræðiþjónustan ^
Grensásvegi 16 - fimm ár í forystu
<%>
RAFKNÚNAR DÆLUR
0,5 til 3,0 hp.
Hringrásardælur, brunndælur,
sjódælur úr kopar, neyslu-
vatnsdælur með jöfnunarkút,
djúpvatnsdælur og fleiri
útfærslur.
| Úrvalsvara á ótrúlega
lágu verði.
VELASALAN H.F.
ÁNANAUST 1, REYKJAVÍK. SÍMI 91-26122
SIEMENS
Litlu raftœkin frá SIEMENS
gleöja augaö!
Kaffivélar, hrœrivólar, brauðristar, vöfflujárn,
strokjárn, handþeytarar, eggjaseyöar,
hraðsuðukönnur, áleggshnífar, veggklukkur,
vekjaraklukkur, djúpsteiklngarpottar o.m.fl.
SMITH&
NORLAND
Nóatúni4-Sími28300