Morgunblaðið - 14.08.1991, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 1991
Fjórðungsúrslitin í Brussel;
Júsúpov o g Timm-
an tóku forystuna
Skák
Margeir Pétursson
ONNUR umferð áskorenda-
einvígjanna í Brussel á mánu-
daginn var gífurlega spennandi
og úrslit óvænt. Mest kom á
óvart öruggur sigur Júsúpovs
yfir ívantsjúk, sem talinn er
líklegasti keppinautur Karpovs
um áskorunarréttinn á heims-
meistarann. Þá jafnaði Short
með laglegum sigri yfir Gelf-
and, sem tefldi álika illa með
hvítu og Englendingurinn hafði
gert daginn áður. Jan Timman
vann einnig með svörtu í
tvísýnni og skemmtilegri skák
gegn Viktor Kortsjnoj og tók
forystuna í einviginu. Slök tafl-
mennska Karpovs gegn Anand
kom einnig mikið á óvart, það
munaði ekki nema hársbreidd
að Indveijinn næði að klekkja
á heimsmeistaranum fyrrver-
andi.
í gær voru biðskákir tefldar í
Brussel, en báðar skákjr Karpovs
og Anand höfðu farið í bið. Þeim
lauk báðum með jafntefli án þess
að kæmi til verulegra sviptinga.
Gelfand hafði einnig sett vonlausa
stöðu sína gegn Short í bið og kom
á óvart að hann skyldi hafa geð
í sér til að leika nokkrum tilgangs-
lausum leikjum til viðbótar.
Þriðja umferðin verður tefld í
dag í Brussel, þá hafa Karpov,
ívantsjúk, Timman og Short hvítt.
Taugar ívantsjúks eru
þandar til hins ýtrasta
Sá keppandi sem hefur mesta
ástæðu til að vera óánægður er
hinn svonefndi krónprins, hinn
22ja ára gamli Vasilíj ívantsjúk.
Á sunnudaginn missti hann unna
skák niður í jafntefli og í annarri
skákinni lét hann Júsúpov komast
upp með að innbyrða vinninginn
hægt og rólega í fremur meinlausu
afbrigði Nimzoindverskrar varnar.
Þrátt fyrir að ívantsjúk sé orð-
inn vinningi undir er auðvitað allt-
of snemmt að afskrifa hann, en
Júsúpov er geysilega sterkur
einvígismaður og var nálægt því
að slá Karpov út í síðustu keppni
árið 1989.
Ivantsjúk er nú í svipaðri stöðu
og Kasparov var í árið 1983 er
hann tefldi einvígi við Kortsjnoj í
London og varð fyrir því áfalii að
tapa fyrstu skákinni illa. Kasparov
tókst að rétta úr kútnum og vann
einvígið örugglega og síðan heims-
meistaratitilinn. Miðað við tafl-
snilld ívantsjúks ætti hann að vera
fullfær um að leika þetta eftir
heimsmeistaranum en tauga-
óstyrkur hefur oft leikið hann
grátt og það gæti orðið honum
að falli. Að sögn fréttamanna
Reuters-fréttastofunnar sýndi
hann greinileg merki taugaveikl-
unar þegar tók að halla undan
fæti gegn Júsúpov í annarri skák-
inni.
Hvítt: Artúr Júsúpov
Svart: Vasilíj ívantsjúk
Nimzoindversk vörn
I. d4 - Rf6 2. c4 - e6 3. Rc3
- Bb4 4. e3 - c5 5. Bd3 - Rc6
6. Rf3 - d5 7. 0-0 - 0-0 8. a3
- Bxc3 9. bxc3 — dxc4 10. Bxc4
- Dc7
Nú er komin upp vel þekkt staða
úr Rubinstein afbrigðinu í Nimzo-
indverskri vöm, sem hefst með
4. e3. Borís Spasskíj, fyrrum
heimsmeistari, hefur líklega mesta
reynslu allra skákmanna af því
að veija slíkar stöður á svart.
II. Bd3 - e5 12. Dc2 - He8
13. Rxe5 — Rxe5 14. dxe5 —
Dxe5 15. f3 - Bd7 16. a4 -
Hac8
í 10. einvígisskák sinni við
Portisch í Genf 1977 tefldi
Spasskíj öllu markvissar en ívant-
sjúk hér: 16. — Had8 17. e4 —
Bc6 18. Bc4 - Hd7 19. Db3 -
Hed8 20. Ha2 - Rh5 21. g3 og
nú þvingaði Spasskíj fram jafn-
tefli á afar laglegan hátt: 21. —
Rxg3! 22. hxg3 - Hd2! 23. Hxd2
— Hxd2 24. Bxd2 — Dxg3+ og
svartur þráskákaði.
17. Hel - Hed8 18. e4 - Rd5?!
Hvítur hótaði 19. f4 og ívant-
sjúk stofnar nú til sviptinga án
þess þó að staðan gefi tilefni til.
Til greina kom 18. — Rh5. Hér
er hins vegar ekki gott að leika
c5-c4, því þá kemur hvítur yfir-
leitt síðar biskupi til d4. Spasskíj
gerði sig einmitt sekan um slík
mistök í 21. skák heimsmeistara-
einvígisins við Petrosjan 1966 og
kostuðu þau hann skákina og titil-
inn.
19. Bd2 - Rb6 20. a5 - c4
Ivantsjúk er að vonast eftir
svarinu 21. Bfl — Ra4!, sem er
betra á svart, en Júsúpov fer ein-
földustu leiðina.
21. axb6 — cxd3 22. Dxd3 —
Be6 23. De3 - axb6 24. Hebl -
Dc5?
Svo virðist sem ívantsjúk hafi
yfirsézt styrkur 27. leikjar hvíts,
eftir drottningakaupin kemst hann
ekki hjá peðstapi. Betra var 24. —
b5, þótt möguleikar hvíts séu betri
vegna heilbrigðari peðastöðu.
25. Dxc5 - bxc5 26. Bel - Hd7
27. Hb5!
Undirbýr ekki aðeins tvöföldun
á b línunni, heldur hótar hvítur
fyrst og fremst 28. Hxc5. í fram-
haldinu finnur ívantsjúk enga
haldgóða vöm, enda orðinn naum-
ur á tíma.
27. - h6 28. Habl - Bc4 29.
Hxb7 - Hxb7 30. Hxb7 - Ha8
31. Hd7 - Ha2 32. h4 - He2
33. Bd2 - Kf8 34. Bf4 - Hc2
35. Hd8+ - Ke7 36. Hg8 - Kf6
37. Bd6 - Hxc3 38. Bxc5 -
Hcl+ 39. Kh2 - g6
Vegna hótananna 40. Bd4+ og
40. Bf8 komst svartur ekki hjá
því að tapa öðru peði. Úrslitin eru
þar með svo gott sem ráðin og í
framhaldinu slakar Júsúpov
hvergi á klónni. Lokahnykkur
hans í 53. leik er einkar laglegur.
40. Be3 - Hc2 41. Bxh6 - Bfl
42. Bg5+ - Ke6 43. He8+ -
Kd7 44. Hd8+ - Kc7 45. Hf8 -
Hxg2+ 46. Khl - Kd6 47. Hxf7
- Hg3 48. Hf6+ - Ke5 49. Hf8
- Kd4 50. Hd8+ - Kc4 51. e5
- Bh3 52. Hf8 - Bf5 53. Hxf5!
- gxf5 54. e6 — Hxf3 55. e7 —
Hfl+ 56. Kg2 - Hel 57. h5 og
svartur gafst upp.
Gelfand missti
hrókunarréttinn-
og tapaði illa
Það er mikill dagamunur á þeim
Gelfand og Short, þeir hafa verið
heillum horfnir í sitthvorri skák-
inni. Báðir leikið af sér strax í
byijuninni með hvítu og ekki séð
til sólar. í annarri skákinni lét
Gelfand gabba af sér hrókunar-
réttinn og í miðtaflinu hringsóluðu
þungu menn svarts eins og hræ-
gammar yfir hvíta kóngnum sem
strandaður var á miðborðinu.
Hvítt: Borís Gelfand
Svart: Nigel Short
Drottningarbragð
I. d4 - d5 2. c4 - e6 3. Rf3 -
Rf6 4. Rc3 - Rbd7 5. Bg5 -
Be7 6. e3 - 0-0 7. Hcl - b6!?
8. cxd5 — exd5 9. Da4 — c5 10.
Ba6
Capablanca lék 10. Dc6 gegn
Lasker í 5. einvígisskák þeirra um
heimsmeistaratitilinn í Havana
1921 og hafði sigur, en leikur
Gelfands er nú talinn betri.
10. - h6!?
Þessi nýjung Shorts heppnast
vonum framar, eftir svar Gelfands
virðist hvítur ekki eiga minnstu
von um að halda frumkvæðinu.
Rétta svarið hlytur að vera 11.
Bf4.
II. Bh4?! — cxd4 12. exd4 —
Rh5! 13. Bg3 - Bxa6 14. Dxa6
- Bg5 15. Hdl?
Þótt svartur hafi ekki yfir neinu
að kvarta eftir 15. Rxg5 — He8+
16. Re2 — hxg5 er það örugglega
skárra en að missa hrókunarrétt-
inn.
15. - He8+ 16. Kfl - Rdf6 17.
Rxg5 - hxg5 18. f3 - b5! 19.
Dxb5 - Rxg3+ 20. hxg3 - Hb8
21. Dd3 - IIxb2 22. Hd2 - Db6
23. g4 - Db8 24. Rdl - Dg3!
Hvítur er í hroðalegri klemmu
og það kemur reyndar á óvart hve
lengi vamir hans halda. Short
reynist þurfa að fara út í endatafl
til að knýja fram sigur.
25. Rf2 - Hb6 26. Hh3 - Hbe6!
27. Hdl - Dc7 28. Dd2 - He3
29. Hcl - Df4 30. Hdl - g6
31. Kgl - Kg7 32. Dcl - He2
33. Dxf4 — gxf4 34. Rd3 — g5
35. a4 - Ha2 36. g3 - fxg3 37.
Rc5 - g2 38. Hg3 - Hee2 39.
Rb3 - Heb2 40. Rcl - Hxa4
41. Rd3 - Hba2 42. Hxg2 -
Hxg2+ 43. Kxg2 - Hxd4 44.
Kf2 - Rd7 45. Ke3 - Ha4 46.
Hcl - Rb6 47. Hc7 - Rc4+ 48.
Ke2 - Ha2+ 49. Kel - Ha3 50.
Ke2 - Ha2+ 51. Kel - a5 52.
f4 - gxf4 53. Rxf4 - Re3 54.
Ha7 - a4 55. g5 - a3 56. g6 -
Rg2+ 57. Rxg2 - Hxg2 58.
Hxa3 - fxg6 59. Ha6 - Kh6
60. Hd6 - Hg5 61. Kf2
Hér fór skákin í bið.
61. - Kh5 62. Kf3 - Kh4 63.
Ha6 - Kh3 - 64. Kf2 - Hg4
65. Ha3+ - Kh2 66. Ha6 - Hf4
og nú loksins hafði Gelfand fengið
nóg og gafst upp.
Skák hinna forsmáðu fórna
Jan Timman vann glæsilegan
sigur með svörtu í langmestu has-
arskák áskorendaeinvígjanna til
þessa. í síðustu viðureign þeirra
Kortsjnois fyrir einvígið, í Ámst-
erdam í maímánuði, langhrókaði
gamli maðurinn og burstaði
Timman með stórsókn gegn kóngi
Hollendingsins. Nú ætlaði hann
vígreifur að höggva í sama knér-
unn, en að þessu sinni tefldi Timm-
an vörn og sókn af mikilli hug-
kvæmni. Svo virðist sem skemmti-
leg peðsfórn hans í 14. leik hafi
alveg ruglað Kortsjnoj í ríminu.
Timman hefur fengið óskabyij-
un í einvíginu, hefur vinningsfor-
skot og virðist mjög sigurstrang-
legur.
Hvítt: Yiktor Kortsnoj
Svart: Jan Timman
Enski leikurinn
1. c4 - Rf6 2. Rc3 - e6 3. e4
- d5 4. e5 - Re4 5. Rf3 - Be7
6. Dc2 - Rg5!?
í skákinni Jóhann Hjartarson-
Gallego á síðasta Ólympíumóti lék
svartur hér 6. — Rxc3 og fékk
slæma stöðu eftir 7. dxc3 — b6
8. Bf4 - Bb7 9. 0-0-0
7. Rxg5 — Bxg5 8. cxd5 — exd5
9. d4 - Be7 10. Be3
Það væru mistök að leika 10.
Bd3 - Rc6.
10. - 0-0 11. 0-0-0 - Rc6 12.
a3 - Ra5 13. Bd3 - h6 14. De2
- b5!?
Það duga engin vettlingatök í
baráttunni um frumkvæðið.
Timman er reiðubúinn til að fórna
peði til að opna b línuna að svarta
kóngnum. Kortsjnoi hefur ávallt
verið allra manna fúsastur til að
þiggja slíkar fórnir, en nú vill
hann ekki missa neinn tíma úr
sókninni, vinnur reyndar peð hin-
um megin á borðinu.
15. Bc2?! - Hb8 16. Dd3 - g6
17. Bxh6 — b4 18. axb4 — Hxb4
19. Dg3!? - Bh4 20. Df4 - c6!
21. Hdel - Be6 22. He3 - c5
Hvíta sóknin er sigld í strand
en svarta staðan heldur betur að
lifna við. Nú loks tekur Kortsjnoj
af skarið og hirðir skiptamuninn
á f8 og í kjölfarið fylgir darraðar-
dans.
23. Bxf8 - Bg5 24. Dg3 - Kxf8
25. h4 - Bh6! 26. h5 - g5!
Timman gerir sér fulla grein
fyrir því að hann verður að halda
kóngsvængnum lokuðum. í svo
hvassri stöðu eru peð og skipta-
munur algert aukaatriði.
27. Ra2 - Hb8
Timman gat einnig sér að
meinalausu leikið 27. — Hxd4, en
hefur líklega verið illa við svarið
28. Ha3.
28. dxc5 - g4 29. Kbl - Rc4
30. Hb3 - Rd2+ 31. Kal -
Rxb3+ 32. Bxb3 - Da5 33. Hdl
- Db5 34. Hd3 - Bf5
34. — d4! virðist einfaldari vinn-
ingsleikur. T.d. 35. c6 — Bxb3 37.
c7 (Eða 37. Hxb3 - Dfl+!) -
Hc8 38. Hxb3 - Dfl+ 39. Rcl -
Dxcl+ 40. Ka2 — Dxc7 41. Dxg4
- Da5+ og vinnur létt. Nú þarf
Tlmman að tefla af talsverðri ná-
kvæmni í endatafli.
35. Hxd5 - Dxb3 36. Dxb3 -
Hxb3 37. c6 - Hd3 38. Rb4 -
Hxd5 39. Rxd5 - Ke8 40. Rf6+
40.c7 — Bg5 hefði engu breytt
um niðurstöðuna.
40. - Kd8 41. f3 - gxf3 42.
gxf3 - Be6 43. Rg8 - Bf4 44.
h6 - Bxe5 45. h7 - Kc7 46. f4
- Bg7 47. Rh6 - Kxc6 48. f5
Bb3 49. Kbl - Kd6 50. Rg4 -
Bd5 51. Rh6 - Ke5 52. Kc2 -
Kf4 og Kortsjnoi gafst upp.
Anand þjarmaði
harkalega að Karpov
Karpov tefldi alltof rólega með
hvítu og Indveijinn hrifsaði
snemma til sín frumkvæðið.
Heimsmeistarinn fyri-verandi var
í krappri og erfiðri vöm og það
verður að segjast honum til hróss
að það er ekki á hvers manns
færi að veijast hraðri og hvassri
taflmennsku Indveijans jafnlengi
og hann þurfti að gera í þessari
skák.
En ef Karpov hefur haldið að
hann myndi vinna þetta einvígi
sjálfkrafa á fljótfærnisafleikjum
andstæðingsins er sá misskilning-
ur örugglega leiðréttur, hann
verður að sýna miklu meira en
þetta.
Hvítt: Anatolí Karpov
Svart: Vyswanathan Anand
Slavnesk vörn
1. d4 - d5 2. c4 - c6 3. Rf3 -
Rf6 4. Rc3 - e6 5. e3 - Rbd7
6. Be2 - Bd6 7. 0-0 - 0-0 8.
Dc2 — dxc4 9. Bxc4 — a6 10.
Hdl De7 11. h3 - b5 12. Bd3 -
c5 13. Re4?!
Aldrei þessu vant virðist stöðu-
mat Karpovs bregðast honum og
hann ofmetur biskupaparið.
13. - c4! 14. Rxd6 - Dxd6 15.
Be2 - Bb7 16. Bd2 - Hfc8
Svartur er kominn með mjög
þægilega stöðu, því hann heldur
báðum hvítu biskupunum alger-
lega niðri. Staða Anands er heldur
ekki vandtefld þannig að hann
getur leyft sér sína venjulegu
hröðu taflmennsku. Aðstaða
Karpovs er ekkert öfundsverð,
með óvirka stöðu gegn andstæð-
ingi sem teflir hratt og leggur
sífelldar gildmr fyrir hann. Tíma-
hrakið tekur líka sinn toll af hon-
um.
17. Hdcl - Re4 18. Ba5 - f5
19. Ddl - Bd5 20. Del - De7
21. a4 — Rg5 22. Rxg5 — Dxg5
23. Bfl - Rf6 24. axb5 - axb5
25. Bd2 - Re4 26. Bb4 - h6
27. Hxa8 - Hxa8 28. Hal -
Hxal 29. Dxal - Kh7 30. Del
- Dg6 31. Be7 - Df7 32. Ba3
- Da7 33. Db4?
33. - f4! 34. Del - f3 35.gxf3
- Rg5 36. Dbl+ - Kh8 37. Bg2
- Rxf3+ 38. Bxf3 - Bxf3 39.
Bd6 - Df7 40. Kh2 - Ba8 -
Karpov er sloppinn úr tímahrakinu
og ljóst er að hans bíður áfram
mjög erfið vörn. Þrátt fyrir mjög
vænlega stöðu nær Indveijinn ekki
að knýja fram vinning.
41. Dgl - Kh7 42. Dg3 - b4!
43. f3! - b3 44. Bb4 - Bxf3 45.
Df4 - Db7 46. Bc3 - Bd5 47.
h4 - Bhl 48. Dg3 - Dd5 49.
Kgl - Db7?!
Þetta gefur Karpov færi á að
skipta upp á e peðunum og við
það minnka vinningslíkur svarts.
50. Dh3! - Bd5 51. e4 - Bxe4
52. Dxe6 - Bd5 53. Df5+ - Kg8
54. Kf2 - Da8 55. Bb4 - Dd8
56. Ke3 - Bf7 57. Df4 - Dd7
58. Bc3 - Dh3+ 59. Kf2 - Bd5
60. Db8+ - Kh7 61. Dg3 -
Df5+ 62. Kel - De4+ 63. Kf2
- Dc2+ 64. Kel - Dcl+ 65.
Kf2 - Ddl 66. Ke3 - Dfl 67.
Dg4 - Dbl 68. Kf2 - Dd3
I þessari stöðu fór skákin í bið.
69. Dg3 - Dc2+ 70. Kel -
Dcl+ 71. Kf2 - Dbl 72. Dg4 -
Dd3 73. Dg3 - Ddl 74. Ke3 -
h5 75. Kf2 - Dbl
Þetta eru mistök sem gefa
Karpov færi á að þvinga fram jafn-
tefli þegar í stað, en það var orðið
sýnt að svartur kæmist ekkert
frekar áfram.
76. De5! - Dc2+ 77. Kel og hér
var samið jafntefli, því svartur á
ekkert betra en að taka þráskák.
77. - Bf3 og 77. - Bf7 er báðum
svarað með 78. d5.