Morgunblaðið - 14.08.1991, Page 31

Morgunblaðið - 14.08.1991, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 1991 31 > Helgi Sigurgeirsson, Stafni - Minning Fæddur 13. september 1904 Dáinn 21. júlí 1991 Kær föðurbróðir er látinn eftir stutta legu á Sjúkrahúsi Húsavíkur. Ég var á leið norður í sumarleyfi er ég frétti lát hans. Helgi var fæddur í Stafni í Reykjadal, sonur Kristínar Ingi- bjargar Pétursdóttur og Sigurgeirs Tómassonar bónda í Stafni. Þau hjón eignuðust 8 syni, Jón sem lést um tvítugt, Pétur, Sigurð, Tómas, Helga, Ingólf, Hólmgeir og Ketil. Eina dóttur eignuðust þau en hún lést fárra daga gömul. Bræðurnir ólust upp við öll venjuleg sveita- störf en jafnframt voru þeir hagir mjög á smíðar, bæði tré og járn, tóvinnu ýmsa svo sem spuna og vefnað, einnig bókband og söðla- smíði. En söðlasmíðin varð einmitt aðalstarf frænda míns hin síðari ár. Hann byrjaði hinsvegar snemma á skósmíði og það fyrr en margan grunaði. Eins og áður segir voru þeir bræður 8 og það var ekki skroppið út í búð til að kaupa skó á heimilisfólkið, flest var búið til heima. Ég ræddi oft við frænda minn og fræddist af honum um fólkið mitt í Stafni sem horfið var af sjónarsviðinu. Eitt sinn sagði hann mér hvernig stóð á því að hann fór að fást við skóviðgerðir og skósmíðar, en, sagði Helgi „mér rann svo til riija að sjá mömmu setjast við skóviðgerðir og skótil- búning þegar aðrir gengu til hvíldar að ég fór að grípa í að hjálpa henni og síðan að búa til skó sjálfur““. Auðvitað breyttist efni skónna sem hann smíðaði í tímanna rás. Því fyrstu skórnir voru úr sauðaskinni eða þá nautshúð, sem entist þá betur. Faðir minn Tómas og Helgi frændi voru saman í Hólaskóla ve- turna ’24-’25 og ’25-’26, en þau afi og amma vildu að synir þeirra nytu skólagöngu eftir því sem hægt var. Þeir bræður bjuggust að heim- an haustið 1924 og fóru fótgang- andi til Hóla, komu heldur seinna en aðrir skólasveinar, en var vel tekið af Þórarni ráðsmanni á Hólum og konu hans, Steinunni. Þarna myndaðist vinskapur sem entist ævina á enda. En á Hólum má líka segja að framtíð þeirra bræðra ráð- ist, því Steinunn varð seinna kona Tómasar og 2 ungar stúlkur að vestan komu til að vinna við mat- reiðslu og þjónustu í Hólaskóla, Ingibjörg systirÞórarins og Jófríður Stefánsdóttir frá Kleifarstöðum í Gufudalssveit, en þar var komið konuefni Helga. Margt var mér sagt frá Hólum og allt gott. Móðu- ramma mín var þar hjá dóttur sinni og hún sagði oft „hann Helgi minn, enginn var eins léttur í lund og hann og enginn söng eins vel, nema þá Tómas minn“. Helgi og Jófríður gengu í hjónaband þann 24. apríl 1927 í Flatey á Breiðafirði og brúð- kauþsferðin þeirra var ferðin norður í Stafn þar sem þau hófu búskap þá um vorið með þeim afa og ömmu og þar bjuggu þau allan sinn bú- skap, seinna með Ólöfu dóttur sinni og Kristjáni tengdasyni sínum. Þau tóku síðan alveg við búskapnum ’60 en Helgi gerðist bryti á Laugum og hélt því starfi í 14 ár og var þá Fríða oft að störfum þar líka. í frí- tíma og á sumrin þegar tími var til stundaði hann söðlasmíði og fengu færri en vildu hnakkana hans Helga. Síðasti hnakkurinn var af- greiddur eftir að Helgi fór í sína síðustu för til Húsavíkur. Þegar ég minnist Helga frænda míns komu þeir bræður hans allir, sem ég kynntist fram í huga minn, en Jón sá ég aldrei en þeir voru og eru, því nú er Ingólfur einn eft- ir, allir hinir mætustu menn og eins og Páll H. Jónsson fósturbróðir þeirra ritar í minningargrein um Pétur. „Heimilið var til þess fallið að þroska ástund, áhuga og félags- hyggju. Próf úr þeim heimilisskóla hafa þeir Stafnsbræður staðist með ágætum." Árið 1941 ákváðu Reyk- hólahjón Steinunn og Tómas að reisa nýtt íbúðarhús. Smiðir að því ásamt pabba voru bræður hans Helgi og Ketill. Það ár var ijárlaust í Stafni og voru þeir bræður því lausari við og komu til að hjálpa Grímur Thoraren- sen - Kveðjuorð Kveðja frá Bridsfélagi Kópavogs Grímur Thorarensen er látinn. Hann kom til liðs við Bridsfélagið þegar hann flutti frá Selfossi í Kópavog árið 1965. Allar götur síðan var hann atkvæðamikill í félaginu, sveitarforingi frá því fyrsta og sat í stjórn félagsins í mörg ár. Með Grími er genginn góður félagi sem verður sárt saknað þegar vetrarstarfið hefst. Um leið og við þökkum honum samfylgd- ina sendum við ástvinum innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Gríms Thorarensens. Þorsteinn Berg Birtíng afmætís- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritsljórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn- arstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tek- in til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta til- vitnanir i ljóð, tvö erindi, eftir þekkt skáld, og skal þá höfundar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minning- argreinar birtist undir fullu nafni höfundar. bróður sínum. Þeir komu snemma vors, skruppu svo heim um háslátt- inn en voru síðan aftur mættir síðla sumars og voru langt fram á haust, komu heim í snjóum eins og sagt var í Stafni. Lítil stúlka var ég þá og varð strax ákaflega hænd að þessum frændum mínum, þótti þeir góðir og skemmtilegir. Við systkin- in Sigurgeir og ég fengum Ketil oft til að leika ögn við okkur og stundum komst ég á háhest hjá honum. Aftur á móti fékk ég gjarn- an sæti á hné Helga míns. Smíði hússins gekk vel, enda ekki slegið slöku við vinnuna og frændur mínir stjórnuðu þessu af mildi og festu. í Laugaskóla fór ég 1948 og eft- ir það varð heimili Helga og Fríðu mitt annað heimili rétt eins og dætra þeirra. Þar var ég í öllum fríum, hljóp auðvitað í öll hin húsin í Stafns-hverfi og lét alla hafa fyr- ir mér og elskaði allt þetta frænd- fólk mitt. Og alltaf er ég-að koma heim þegar ég kem í Stafn. Helgi og Fríða eiga sérstakan sess í hugum okkar systkina, það var ekki bara að Helgi væri bróðir pabba og Fríða mágkona, þau voru líka vinir mömmu frá Hólum og er mamma lést sl. sumar mættu allar dætur þeirra til að kveðja hana. Skömmu seinna kom ég í Stafn og Helgi minn sagði: „Ósköp þótti mér vænt um að þær voru þama allar dæturnar mínar“. Helga og Fríðu varð 5 dætra auðið, en þær eru María Kristín gift Halli Jósepssyni, búa á Amdísarstöðum í Bárðardal, Ólöf gift Kristján Jósepssyni, búa í Stafni, Ingibjörg gift Guðlaugi Valdemarssyni, búsett í Reykjavík, Ásgerður ljósmóðir, gift Jóni Hann- essyni lækni, búsett í Garðabæ, Guðrún gift Gunnari Jakobssyni, búsett á Akureyri. Barnabörnin eru 17, barnabarnabörnin 32 og 1 er komið í 5. lið. Hin síðari ár fór heilsu þeirra Helga og Fríðu hrak- andi en þau Ólöf og Kristján hafa gert allt til að þau gætu verið heima. Fríða varð svo fyrir því ól- áni að fótbrotna sl. vetur og liggja á sjúkrahúsi, en var svo nýkomin heim er bóndi hennar Iést. Minning- arnar um frænda minn eru svo margar og góðar að mér endist ekki dagurinn til skrifa um hann, en einhvers staðar skal staðan num- ið. Og þá er ég heyri góðs manns getið minnist ég Helga frænda og þeirra Stafnsbræðra allra. Ég kveð frænda minn svo sömu kveðju og föður minn, með broti úr erfiljóði um afa eftir Sigurð á Arnarvatni. Ingibjörg Helga- dóttir — Minning Fædd 21. nóvember 1910 Dáin 27. júní 1991 Með Ingibjörgu Helgadóttur hef- ur stórbrotin kona og mikill fagur- keri kvatt þennan heim. Ingibjörg ól öll sín æsku- og þroskaár í hjarta Reykjavíkur, á miklu menningar- heimili í Bankastræti. Hún þekkti því vel Austurstræti Tómasar. Nú verður aftur hlýtt og bjart um bæinn. Af bemskuglöðum hlátri strætið ómar, því vorið kemur sunnan yfir sæinn. Sjá sólskinið á gangstéttunum ljómar. Og daprar sálir söngvar vorsins yngja. Og svo er mikill ljóssins undrakraftur, að jafnvel gamlir símastaurar syngja í sólskininu og verða grænir aftur. Eftir nám í Verslunarskóla ís- lands og erlendis, rak Ingibjörg um árabil tískuverslunina Nínon rétt hjá æskuheimili sínu. Nínon þótti afar vönduð verslun enda var við stjórn kona með gott fegurðarskyn. Árið 1961 flutti fjölskyldan sig um set og nam land í Hlíðunum, að Miklubraut 50, þar sem fjölskyldu- heimilið er enn. Ingibjörg bar mjög hag systkinabarna sinna fyrir brjósti sem og allrar fjölskyldu sinn- ar. Ég man það enn glöggt hve andlitið hennar ljómaði þegar hún ræddi um Helga systurson sinn, sem þá stundaði nám í Hlíðaskóla. Mörg minningarbrot sækja á hugann þegar ég minnist Ingibjarg- ar og þá fyrst og fremst vegna Kvenskátafélags Reykjavíkur.Á þeim vettvangi var Ingibjörg ásamt vinkonu sinni Elínu Jóhannesdóttur ætíð tilbúin að' leggja starfínu lið. Einn löngu liðinn sumardagur er mér ofarlega í huga. Sumarið 1962 var fjölmenn norræn skátaforingj- aráðstefna haldin á íslandi. Sam- komustaður ráðstefnu kvenskáta- foringjanna var í Neskirkju og tókst sérlega vel. Eftir messu í kirkjunni gekk fríður og fjölmennur hópur norrænna kvenskátaforingja syngj- andi inn eftir Miklubrautinni og vakti óskipta athygli vegfarenda. Margar kvennanna skörtuðu þjóð- búningum frá ýmsum héruðum landa sinna. Sjaldséð sjón í þá daga. Leiðin lá að Miklubraut 50 til Ingibjargar og fjölskyldu hennar. Öllum þessum konum hafði verið boðið til hádegisverðar. Þegar inn kom, blöstu við borð fagurlega blómum skreytt og matur sem hefði sómt sér í hvaða þjóðhöfðingja- veislu sem er. En dýrmætast var þó það vinarþel og sá hlýleiki sem gestgjafarnir létu í té. Þegar leiðir þessara kvenna lágu saman síðar var oft minnst á mót- tökuna hjá Ingibjörgu á Miklu- brautinni. Mér er það ofarlega í minni, þegar fjórir fulltrúar frá Is- landi sátu alheimsráðstefnu kven- skáta í Nyborg á f’jóni, að Helvi Sipila sem þá sat í alheimsstjórn kvenskáta og varð síðar aðstoðar- aðalritari Sameinuðu þjóðanna, lýsti því yfir að hún hefði skilið eftir hluta úr hjarta sínu á íslandi. Kannski leynist hann á Miklubraut 50. Þessi móttaka var raunar ekk- ert einsdæmi. Mér er kunnugt um það að gestrisni fjölskyldunnar á sé lítil takmörk. Um leið og mér er ljúft og skylt að rifja upp þessi minningabrot, sendi ég systrunum á Miklubraut mínar innilegustu samúðarkveðjur með þökkum fyir löngu liðna tíð sem mér mun seint úr minni líða. Áslaug M. Friðriksdóttir t Þökkum af alhug öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar og móður okkar, ODDNÝJAR GRÍMSDÓTTUR, Stigahlíð 36. Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks á deild 11-E, Landspítal- anum, fyrir frábæra umönnun. Jón Friðrik Möller, Ingibjörg Jónasdóttir, Grimur Þorkell Jónasson. Innilegustu þakkir til allra, er auðsýndu okkur samúð og veittu okkur styrk við andlát og útför elskulegs sonar og bróður, HILMARS ÓLAFSSONAR, Safamýri 44, áður Bólstaðarhlíð 12. Guð blessi ykkur öll. Nú hérvist þrýtur þína, hér vilja allir tjá og sýna, vináttu og virðing sína, vottinn djúpa um snortinn hug sem anda þínum fylgir á flug. Allt þó sé í ættargarði ævistarf þitt traustur varði, en komandi mönnum minning flytur um manndóm þinn og landnámsdug, hljóðlát auðn nú sætið situr situr og víkur ei á bug. Trúrri þér mundu fáir fínnast félagsskyldu og allri dyggð, hugsjónafestu, heiðri og tryggð. Fríðu minni, dætrum hennar og fjölskyldum vottum við systkinin og fjölskyldur okkar innilega sam- úð. Guð blessi minningu góðs manns. Kristín Ingibjörg Tómasdóttir Halldóra Hilmarsdóttir, Ólafur Jónsson, Anna, Birna og Jón Heiðar. t Innilegustu hjartans þakkir færum við öllum þeim fjölmörgu, sem sýndu okkur samúð og hluttekningu með blómum og minningar- gjöfum við andlát og jarðaraför ástkærrar eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, BRYNJU ÞORGRÍMSDÓTTUR, Garðsstíg 3, j ’ Hafnarfirði. Magnús Kristjánsson, dætur, tengdasynir, barnabörn og barnabarnabarn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.