Morgunblaðið - 14.08.1991, Page 32

Morgunblaðið - 14.08.1991, Page 32
32 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 1991 STJÖRNUSPÁ eftir Frances Drake Hrútur (21. mars - 19. apríl) Hrúturinn vinnur að verkefni sem tengist listum og er i mikl- um ham. Hann fer í rómantíska og eftirminnilega útivistarferð með maka sínum . Naut (20. apríl - 20. maí) Nautið vinnur að viðhaldi og endurbótum heima fyrir um þessar mundir. Það ætti að slappa af í kvöld og njóta þess að vera með fjölskyldunni. Tvíburar (21. maí - 20. júní) 9» Tvíburinn leggur síðustu hönd á verkefni sem hann hefur iengi unnið að. I kvöld verður hann í skapi til að fara út á meðal fólks. Ferðalag verður bráðlega á dagskrá hjá honum. Krabbi (21. júní - 22. júií) Krabbinn er mjög aðlaðandi og sannfærandi í dag. Hann er orðheppinn og mælskur. Fjöi- skyldan og heimilið njóta ai- gjörs forgangs hjá honum í kvöld. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Ljónið er öruggt í framkomu og fullt af bjartsýni í dag og hrífur með sér þá sem það umgengst. Það fær kærkomið tækifæri til að ferðast. Meyja (23. ágúst - 22. september) Fjármál meyjunnar taka já- kvæða stefnu í dag, en hún hefur ekki hátt um það. Hún gerir allt mjög persónulega og er aðlaðandi í framkomu. Vog (23. sept. - 22. október) Vogina langar að fá tíma til að sinna listrænu verkefni. Hún hlýtur upphefð í hópstarfi sem hún tekur þátt í. Vináttutengsl koma henni að góðu haldi. Sþorðdreki (23. okt. - 21. nóvember) Sporðdrekinn slær í gegn í fé- lagsstarfi núna. Honum gefst einnig spennandi tækifæri í viðskiptum. Það sem gerist á bak við tjöldin kemur sér vel fyrir hann. Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) #3 Bogmaðurinn ætti að nota heppilegt tækifæri sem honum gefst núna til að heimsækja vini sem búa í fjarlægð. Ráð- gjafi hans reynist honum holl- ráður. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Steingeitinni kann að bjóðast launahækkun í vinnunni í dag. Nú mætti ætla að hennar tími væri kominn. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) dk Vatnsberinn er að hugsa um að fjárfesta í listaverki núna. I dag er tilvalið fyrir hann að undirrita samninga og ná sam- komulagi. Maki hans styður hann dyggiiega. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Fiskurinn á einlægar viðræður við sína nánustu. Hann tekur mikilvæga ákvörðun ásamt maka sínum. Honum gæti boð- ist álitlegt starf í dag og hann kann að verða heppinn í fjár- málum. Stjörnuspána á aó lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni vt'sindalegra staðreynda. DÝRAGLENS »-• þO BAKJCA^., OS þ/i S/C4L ÉSBKkJ H&./ND/) þÉft EG L£(SG T/l. AdAÍA/ytlDLOtsl. GRETTIR TOMMI OG JENNI FERDINAND SMÁFÓLK Gledilegan þakkargjörðardag, í tilefni af þessu tækifæri notaði ég Ég mana þig til að sleikja hann í gamli félagi! fingurinn til þess að teikna kalkún burtu! í hundamatinn þinn ... BRIDS Umsjón: Guðm. Páil Arnarson Þegar skiptingin er mikil veit í rauninni enginn við borðið hvað er sagt til vinnings og hvað til fórnar. I slíkum stöðum er far- sælt að fylgja gömlu reglunni: „Ef þú ert í vafa, segðu þá ein- um meira.“ Aðalsteinn Jörgens- en gerði það með góðum ár- angri í þessu spili gegn Belgum á EM: Austur gefur; AV á hættu. Norður ♦ KG V8 ♦ ÁG654 Vestur *Á10432Austur ♦ 6432 4ÁD1095 ♦ ÁG63 VKD10754 ♦ 83 4D ♦ G86 _ . ♦ 7 Suður ♦ 87 ¥92 ♦ K10972 ♦ KD95 Aðalsteinn og Jón Baldursson voru með spil AV í lokaða saln- um: Vestur Norður Austur Suður Jón Aðalst. 4 - - 1 hjarta Pass .2 tíglar Dobl 4 hjörtu 5 tíglar Pass Pass 4 hjörtu 5 tíglar Pass Pass 5 hjörtu Allir pass Tveggja tígla sögn Jóns var „yfirfærsla“, Þ.e. hækkun í hjarta, og því sýndi dobl norðurs tígullit. Fimm tíglar gátu hæg- lega unnist, svo Aðalsteinn sagði „einum meira“, allt eins til fórn- ar sem vinnings. En spaðin lá„ vel og Aðalsteinn gaf aðeins á láglitaásanna: 650 í AV. í opna salnum eftirlétu Belgar Guðlaugi R. Jóhannssyni og Erni Arnþórssyni samninginn í 5 tíglum: Vestur Norður Austur Suður Guðl. Öm - - 1 hjarta Pass 1 grand Pass 2 hjörtu Pass Pass 2 grönd 3 spaðar 4 tíglar Pass 5' tíglar Allir pass Vestur kom út með hjartaás og skipti yfir í spaða: 50 í AV og 12 IMPar. Emi fannst spað- inn liggja „illa“, því hann vinnur spilið ef vestur á drottninguna. En í raun lá spaðinn hvorki vel né illa. Ef drottningin er í vest- ur, vinnur Örn sitt spil en Aðal- steinn fer einn niður. SKÁK Umsjón Margeir Pétursson Á stórmótinu í Biel í Sviss, sem lauk í síðustu viku, kom þessi at- hyglisverða staða upp í viðureign stórmeistaranna Aleksei Shirov (2.615), Lettlandi, sem hafði hvítt og átti leik, og Larry Christian- sen (2.600), Bandaríkjunum. Sem sjá má eru liðsyfirburðir hvíts miklir, en svartur hótar máti í þriðja leik, með 49. — Bgl+ 50. Khl — Bf2+ o.s.frv. Shirov fann réttu leiðina til að hindra að hvítur kæmi hótun sinni í framkvæmd: 49. Df4+! - Bxf4+ 50. Hxf4 — Dcl 51. Hf7! (En alls ekki 51. Hf8?? — Dc7+) og svartur gafst nú upp, því hvítur fær nýja drottn- ingu. Shirov sigraði örugglega á mótinu, hlaut 9'A v. af 14 mögu- legum, vinningi á undan fjórða stigahæsta skákmanni heims, Evgení Bareev (2.680). Röð ann- arra þátttakenda: 3.-4. Andersson og Lautier Vh v. 5. Christiansen 6 v. 6. Adams 6 v. 7. Gavrikov 5‘A v. og Júgóslavinn Kozul rak lestina með 4'/2 v.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.