Morgunblaðið - 14.08.1991, Síða 38

Morgunblaðið - 14.08.1991, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 1991 KNATTSPYRNA Morgunblaðið/Árni Sæberg „Höfum rétt við“ er kjörorð átaks sem VISA ísland og KSÍ standa fyrir þar sem knattspymumenn era hvattir til að sýna prúðmannlega framkomu. Háttv- ísis-verðlaunin fyrir júlí voru afhent á blaðamannafundi með Pelé í gær. Frá vinstri: Einar S. Einarsson, frá VISA ísland, Tim Hawkinson, Tindastóli, var kjör- inn prúðasti þjálfari 2. deildar, Ásgeir Elíason, Fram, var kjörinn prúðasti þjálfari 1. deildar, Bjöm Jónsson, FH, sem útnefndur prúðasti leikmaður 1. deildar, Laufey Sigurðardóttir úr ÍA sem var kjörið prúðasta lið 1. deildar kvenna, Pelé, Jónína Víglundsdóttir, fyrirliði ÍA, Bjarni Sveinbjörnsson úr Þór var kjörinn prúðasti leikmaður 2. deildar, Gústaf Ómarsson, fyrirliði UBK, tók við verðlaunum Breiðabliks sem var kjörið prúðasta lið 1. deildar, Gísli Sigurðsson úr Tindastóli tók við verðiaunum Tindastóls sem var kjörið prúðasta lið 2. deildar og Eggert Magnússon, formaður KSÍ. „Mikilvægt að hvetja til prúðmannlegrar framkomu" - sagði knattspyrnusnillingurinn PELÉ eða Edson Arantes do Nascimento eins hann heitir réttu nafni hefur heiðrað íslenska knattspyrnunnendur með nærveru sinni síðustu þrjá daga og farið víða um land. Hann hélt af landi brott til ít- alíu í morgunn. Pelé er af flest- um talinn mesti knattspyrnu- maður sem uppi hefur verið. Á blaðamannafundi í gær lýsti hann ánægju sinni með heim- sóknina til Islands. Pelé hefur einstaklega gaman af því að vera innan um börn og og gerir allt sem hann getur ^ fyrir þau. Á sínum leikmannsferli sem spannaði yfir ValurB. 21 ár var hann alla Jónatansson tíð framúrskarandi skrífar ímynd fyrir knatt- spyrnumann. Hann fékk aldrei áminningu á ferlinum hvað þá rautt spjald. Hann sagðist hafa byijað að leika sér í fótbolta 6 ára gamall og þá aðallega á göt- um Sao Paulo. Faðir hans var knatt- spymumaður og kenndi honum grundvallaratriði knattspyrnunnar. Hann starfar nú sem sendiherra fyrir Alþjóða knattspymusamband- ið FIFA hvað varðar Fair Play eða háttvísi og er það fyrst og fremst tilgangurinn með komu hans til ís- lands að hvetja til prúðmannlegrar Morgunblaðíð/Árni Sæberg >Pelé afhendir hér Jónínu Víglundsdóttur, fyrirliða ÍA, verðlaun fyrir prúðasta lið 1. deildar kvenna. Pelé á blaðamannafundinum í gær Pelé - „Svarta perlan“ Nafn: Edson Arantes do Nascimento Fæddur: 23. október 1940 í Tres Coracoes, Minas Gerais, Brásilíu. Leikmaður: Hjá Santos í Brasilíu 1956 - 1974, lék alls 1.036 leiki og skoraði í þeim 1.216 mörk. Lék síðan með New York Cosmos frá 1975 - 1977. Landsleikir: Alls 111 landsleikir fyrir Brasilíu og skoraði í þeim 96 mörk. Fyrsti leikur hans með landsliðinu var 1957 á móti Arg- entínu. Hann vann þijá heimsmeistaratitla með Brasilíu; 1958, 1962 og 1970 og hefur enginn annar knattspyrnumaður náð þeim árangri. framkomu. Pelé er ekki aðeins sendiherra fyrir FIFA því nýlega var hann skipaður sérstakur sendi- herra Sameinuðu þjóðanna í sam- bandi við umhverfismál. Það má því segja að hann komi víða við. „Það er mér mikil ánægja að hafa fengið tækifæri til að heim- sækja ísland og taka þátt í þessu átaki um háttvísi og drengilegan leik. Það er mjög mikilvægt að hvetja unga leikmenn til prúðmann- legrar framkomu jafnt utan vallar sem innan,“ sagði Pelé á blaða- mannafundinum í gær. Pelé var spurður um minnisstæð- asta leikinn á ferlinum. „Það er mjög erfitt að velja einn leik, en í fljótu bragði held ég að það sé leik- ur Brasilíu og Wales í undanúrslit- um Heimsmeistaramótsins 1958. Við unnum þann leik 1:0 og gerði ég sigurmarkið og það tryggði okk- ur sæti í úrslitaleiknum. Ánnars eru margir aðrir minnisstæðir leikir og of langt mál að telja þá upp,“ sagði hann. Þjálfarar hræddir viö sóknarknattspyrnu Hann sagðist vilja sjá meiri sókn- arknattspyrnu en verið hefur und- anfarin ár. „Þegar ég lék með Sant- os lékum við sóknarbolta og gerðum mikið af mörkum. í landsliðinu var einnig lögð mikil áhersla á sóknar- knattspymu. Leikirnir voru opnari og skemmtilegri fyrir áhorfendur. í dag er leikin meiri vamarleikur og ég held að þjálfarar eigi þar stærstan þátt því þeir eru hræddir um að missa þjálfarastarfið ef liðið tapar.“ Hann sagði að knattspyrnan væri ekki betri eða verri en áður. „Knattspyrnan hefur ekki breyst mikið innan vallar. Helstu breyting- amar eru utanvallar. Áhorfendur taka nú meiri þátt í leiknum en áður og hafa oft sett svartan blett á knattspyrnuleiki þar sem tugir manna hafa látið lífið. Þetta hefur verið mikið vandamál til dæmis í Englandi. Knattspyrnumenn verða að leggja sitt að mörkum til að bæta ástandið." Matth'aus bestur Hann var spurður hver væri að hans mati besti knattspyrnumaður Evrópu. „Það er erfitt að benda á einn leikmann. í síðustu Heims- meistarakeppni var enginn sem skaraði verulega framúr. Ástæðan er líklega sú að liðin leika nú meira sem liðsheild en áður og því minna um einstaklingsframtak. En ef ég ætti að néfna einn þá held ég að Lothar Mattháus sé besti leikmaður Evrópu um þessar mundir." Pelé Hvaðan er nafnið Pelé komið? „Þegar ég var sex eða sjö ára og við strákarnir vorum að leika okk- ur, kallaði einn strákurinn mig Pelé. Ég veit ekki af hveiju. Þetta fór fyrir bijóstið á mér og ég skamm- aði strákinn fyrir að kalla mig þessu nafni. Síðan festist nafnið við mig og í skólanum var ég alltaf kallaður Pelé þó svo ég hafi barist mjög á móti því í fyrstu. Var reyndar rek- inn úr skólanum einu sinni fyrir að slást við félaga minn sem kallaði mig þessu undarlega nafni. Ég var stoltur af Edson nafninu því Thom- as Edison fann upp rafmagnið og ég vildi halda því. Núna er ég mjög sáttur við nafnið Pelé.“ ÍÞRÚWR FOLK ■ NJARÐVÍKINGAR hafa ráðið Bandaríkjamanninn Patric McCall, 24 ára, sem þjálfara allra yngri flokka félagsins í körfuknatt- leik. ■ PREBEN-Elkjær Larsen, fyrrum landsliðsmaður Dana í knattspymu, mun koma til íslands í sambandi við vináttulandsleik ís- lendinga og Dana á Laugardals- vellinum 2. september. Preben- Elkjær mun starfa við lýsingu á leiknum til Danmerkur. ■ PELÉ fékk ekki farangurinn sinn er hann kom til landsins með SAS flugfélaginu á sunnudags- kvöld. Hann varð því að kaupa sér spariföt í Herragarðinum áður en hann fór í boð Borgarstjórans í Reykjavík í Höfða í gærkvöldi. ■ CRYSTAL Palace átti að leika við Leeds heima í fyrstu umferð endsku deildarinnar sem hefst á laugardaginn. Leiknum hefur verið ■■■■■■I frestað því eridur- Frá Bob bætur á velli Palace Hennessy Selhurst Park hafa íEnglandi dregist á langinn og hann verður ekki til- búinn. Félagið verður líklega sektað fyrir vikið. ■ PORT Vale keypti í gær varn- armanninn stæðilega, Peter Swan frá Hull fyrir 300.000 pund, eða um 31 milljón ÍSK. ■ STEVE McMahon mun ekki leika á laugardaginn með Liverpo- ol þegar þeir mæta Oldham. Lið- bönd í hnéi tognuðu hjá honum í æfingaleik um helgina. ■ CHELSEA seldi í gær sóknar- manninn Kevin McAllister til Fal- kirk í Skotlandi fyrir 200.000 pund, eða um 21 milljón ÍSK. ■ TONY Park fyrrverandi mark- vörður Tottenham, var í gær seld- ur til West Ham og á að vera vara- markvörður þar á bæ. ■ WEST HAM keypti einnig í gær Mick Small frá Brighton fyr- ir um 40 milljónir ÍSK. Small er hörundsdökkur sóknarmaður og mun leika fyrsta leik sinn með nýja liðinu á laugardaginn gegn Luton. GOLF Keppni handknatt- leiksmanna Akveðið hefur verið að endurvekja golf- keppni handknattleiksmanna, sem var árlegur viðburður fyrir nokkrum árum. Keppnin í ár fer fram á Strandarvelli við Hellu á fostudaginn kemur og hefst kl. 14. Rútuferð verður frá Teppabúiðnni við Suð- umaldsbaut kl. 12. Þátttökurétt eiga allir þeir sem leikið hafa með meistaraflokki félagsliða, starfað í stjóm félaga, í stjóm HSl, verið dómarar eða starfað sem íþróttafréttamenn. Keppn- isfyrirkomulag að þesdsu sinni verður punk- takeppni (Stableford), þannig að enginn fær meira en eitt högg í forgjöf á hveija holu. Þá verður einnig sveitakeppni á milli fé- laga, stjórnarmanna HSl, dómara og iþrótt- afréttamanna. Þátttökutilkynningar þurfa að berast í síasta lagi í dag - til Gunsteins Skúlasonar (sími 43988), Jóns H. Karlssonar (681950) og Bjama Jónssonar (641150). í kvöld Knattspyrna kl. 19 1. deild karla: Stjömuvöllur Stjaman - FH Laugardalsvöllur B’ram - Víðir 1. deild kvenna: Kópavogsvöilur UBK - Týr Bikarkeppni kvenna, undanúrslit: Keflavík IBK - Þór Akranes ÍA - Valur 3. deild karla: Húsavíkurvöllur Völsungur - Skallagr. Siglufjarðarvöllur KS - Magni 4. deild: Sauðárkr. Þrymur - Kormákur Blöndósvöllur Hvöt - Neisti Laugarlandsvöllur UMSE b - SM Fáskrúðsfjarðarv. Leiknir - Sindri Reyðai-fjarðarv. Valur - Einheiji Seyðsiíjarðarv. Huginn - Höttur Þorlákshafnarv. Ægir - Reynir S. Utandeildakeppnin: KMF - Flugleiðir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.