Morgunblaðið - 22.09.1991, Page 2
EFNI
2 FRÉTTIR/INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER 1991
Svefnstellingar hafa áhrif á vöggndauða:
Ekki ráðlegt að hvít-
voðungar sofi á bakinu
segja íslenskir læknar
í RÍKINU Viktoríu í suðurhluta Ástralíu hefur tíðni vöggudauða
lækkað um helming í kjölfar herferðar þar sem foreldrum var ráð-
lagt að forðast að láta börn sín sofa á maganum, að sögn Reuters-
fréttastofunnar. Læknar hér á landi ráðleggja foreldrum að láta
börn sín sofa á grúfu og Atli Dagbjartsson, barnalæknir á vöku-
deild barnadeildar Landspitalans, segir tölurnar frá Ástralíu vera
fljótfærnisályktanir sem ekki beri að taka tillit til að svo stöddu.
Ástralska herferðin hófst í júlí á
síðasta ári en eitt barn á móti hveij-
um 500 fæddum börnum í Viktoríu
dó áður úr vöggudauða; nú er hlut-
fallið eitt á móti þúsund.
Árlega dóu á bilinu 120—135
böm vöggudauða en á síðasta ári
létust 76 böm af þessum sökum í
Viktoríu.
Hér á landi er tíðni vöggudauða
0,73 á hver þúsund lifandi fædd
böm. A ári hveiju fæðast hér um
4.000 böm þannig að um þrjú börn
Stöð 2:
I athugnn að
senda beint
frá Alþingi
STOÐ 2 kannar nú möguleika á
að hefja reglulegar sjónvarpsút-
sendingar frá Alþingi. Páll
Magnússon sjónvarpsstjóri segir
að þetta sé til skoðunar og ef
samningar takist geti stöðin haf-
ið útsendingar frá þinginu með
litlum fyrirvara.
„Það verður kannað hvort fýsi-
legt sé að heija útsendingar frá
Alþingi en um það verður að semja
við þingið. Þetta verður skoðað á
allra næstu vikum,“ segir Páll.
Eigendur Stöðvar 2 stefna að því
að heija sjónvarpsútsendingar Sýn-
ar hf. í lok nóvember og er talið
líklegast að um helgarsjónvarp
verði að ræða með áherslu á íþrótta-
og skemmtiefni. Er hugmyndin sú
að útsendingar frá Alþingi færu
fram á útsendingarás .Sýnar á
starfsdögum þingsins.
Hjá Ríkisútvarpinu eru einnig
ýmsar breytingar á döfínni. Vetrar-
dagskrá hefst 1. október eða fyrr
en venja er og verður framsetning
á efni sjónvarpsins þá með breyttu
sniði, að sögn Harðar Vilhjálmsson-
ar starfandi útvarpsstjóra. Þá
stefnir ríkisútvarpið einnig að því
að hefja steríóútsendingar sjónarps--
ins um næstu áramót.
deyja hérlendis vöggudauða á ári
hveiju. Vöggudauði er skilgreindur
sem skyndidauði þar sem að engin
önnur -dánarörsök_ fínnst.
Önnur ríki í Ástralíu hafa nú
ákveðið að senda nýbökuðum for-
eldrum skriflegar leiðbeiningar um
það hvemig minnka megi hættuna.
Auk þess sem foreldrum er ráðlagt
að láta börn sín sofa á hliðinni eða
á bakinu er þeim bent á að láta
bömunum ekki vera of heitt, halda
þeim frá reyk og hafa þau á bijósti
svo fremi sem það er mögulegt.
Atli Dagbjartsson, barnalæknir,
segist ekki kannast við skýrslu um
að tíðni vöggudauða minnki ef börn
sofí ekki á maganum. „Við ráð-
leggjum fólki að láta börnin sofa á
grúfu en ekki á mjúkum kodda
heldur bleyju eða einhveiju þess
háttar,“ segir Atli og bætir því við
að læknar vari fólk við því að láta
börn liggja á bakinu því ef þau
kasti upp þá sé hætta á því að þau
gleypi vökvann ofan í lungun sem
sé stórhættulegt þar sem það geti
valdið lungnabólgu eða köfnun.
Jóhann Heiðar Jóhannsson,
læknir og barnameinafræðingur á
rannsóknarstofu Háskólans, hefur
fengist við rannsóknir á vöggu-
dauða mörg undanfarin ár. Hann
segir skilgreininguna á vöggudáuða
mjög vandmeðfarna og mikið vanti
upp á að samræmi sé á milli landa.
Til þess að staðfesta að um raunver-
ulegan vöggudauða sé að ræða
þarf krufning að hafa farið fram
og segir Jóhann mikinn misbrest á
að það sé alls staðar gert.
Áðspurður um þessar tölur frá
Ástralíu segir Jóhann: „Ég hef enga
trú á því að það að leggja börnin
á bakið skipti máli því ef það væri
þá værum við ekki með svona lágar
tölur yfír vöggudauða hér á landi.“
Að sögn Jóhanns er tfðni vöggu-
dauða hér á landi með því lægsta
sem gerist í heiminum.
í haust fer af stað sameiginleg
rannsókn Norðurlandanna á vöggu-
dauða og að sögn Jóhanns Heiðars
er eitt meginmarkmiðið að tryggja
að samræming verði á skráningu á
vöggudauða milli landanna og gerð
verði krafa um krufningu í hvert
sinn.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Anatolíj Karpov, fyrrum heimsmeistari í skák, við komuna til
landsins í gærmorgun. Hingað kom hann frá Bandaríkjunum,
þar sem hann dvaldi í einkaerindum, og samferða Honum til
landsins voru Boris Gulko sem keppir fyrir Bándaríkin og Lju-
bormir Ljubojevic frá Júgóslavíu.
Heimsbikarmót Flugleiða í skák:
Allir vilja vinna
- sagði fyrrum heimsmeistari Anatolíj
Karov sem verður meðai keppenda
Keflavík.
„Þetta er geysisterkt mót þar sem allir vilja standa uppi sem
sigurvegarar og ég er einn af þeim,“ sagði Anatolíj Karpov
stórmeistari og fyrrum heimsmeistari þegar hann kom til ís-
lands í bítið í gærmorgun. Hingað er Karpov kominn til að taka
þátt í Heimsbikarmóti Flugleiða í skák sem verður skipað 16
stórmeisturum. Mótið hefst á morgun, mánudag, á Hótel Loft-
leiðum.
Karpov sagði að hann hefði
síðast teflt á móti fyrir um mán-
uði þegar hann atti kappi við
Indveijann Anand í 8 manna
úrslitum áskorendaeinvígisins í
Brussel í Belgíu. Þegar Karpov
var spurður hvort hann væri í
góðu formi um þessar mundir tók
Júgóslavinn Ljubomir Ljubojevic,
sem einnig verður meðal kepp-
enda á mótinu og kom til lands-
ins með sömu vél, orðið af
Karpov. Sagði hann að Karpov
væri alltaf sterkur en tefldi að-
eins misvel.
Mótið verður eitt fimm móta
í heimsbikarkeppninni í skák sem
haldin verða á vegum Stór-
meistarasambandsins á næstu
tveim árum og sagði Karpov
að sú breyting hefði verið gerð
á keppnisfyrirkomulaginu frá
síðustu mótaröð að árangur
allra mótanna væri látinn gilda
núna í stað þess að menn hefðu
getað sleppt einu áður. Því
væri enn mikilvægara að
standa sig nú og það yrði ör-
ugglega hvergi . gefið eftir.
Jóhann Hjartarson stórmeist-
ari tekur þátt í mótinu sem
gestur því enginn íslenskur
skákmaður náði að tryggja sér
rétt til þátttöku í heimsbikar-
keppninni að þessu sinni;
-BB
Hekla og Toyota breyta
verðlagnÍHgii notaðra bfla
Staðgreiðsluverð sett upp og lántökukostnaður leggst ofan á það
SÖLUDEILDIR notaðra bíla hjá Toyota-umboðinu og Heklu hf.,
sem er með umboð fyrir Volkswagen og Mitsubishi-bila, hafa
tekið upp nýja verðlagningu á notuðum bílum. Að sögn Boga
Pálssonar, framkvæmdastjóra P. Samúelssonar, er nýbreytnin sú
að sett er staðgreiðsluverð á alla notaða bíla en sé óskað eftir
afborgunarskilmálum leggst á upphæðina lántökukostnaður. Stað-
greiðsluverðið er fundið með því að skoða sölusögu bílanna, hvað
þeir hafa selst á í staðgreiðslu.
Bogi sagði að sala á notuðum
bílum hefði gengið vel. Hann sagði
að ýmis tilboð sem hefðu sést um
staðgreiðsluafslátt á notuðum bíl-
um, allt frá 10% upp í 30%, sýndu
það eitt að verðlagningin á bílun-
um væri mjög skökk. „Fjármagns-
kostnaðurinn sem kaupandi slepp-
ur við með því að staðgreiða bíl
er sá sami á öllum bílum. Það á
því ekki að þurfa að gefa 15%
afslátt af einum bíi og 30% af
öðrum. Við erum búnir að breyta
þessu hjá okkur í þá veru að setja
á alla bíla staðgreiðsluverð, þar
er ekki verið að tala um einhveija
afslætti, tilboð eða útsölur heldur
breytta verðlagningu notaðra bíla,
þar sem þeir eru settir inn í sama
verðlagningarmynstur og gildir
um nýju bíiana. Tilgangurinn með
þessu er sá að auðvelda venjulegu
fólki sem þekkir ekki þetta svo-
nefnda bílabrask að kaupa sér
notaðan bíl og fullvissa það um
að ekki sé verið að plata það,“
sagði Bogi.
Marinó Björnsson sölustjóri hjá
Heklu sagði að nú væri í vaxandi
mæli farið að setja staðgreiðslu-
verð á bílana, einkum á nýrri bíla.
„Þetta þýðir það að við munum
sýna raunverð bílanna í stað ein-
hverrar upphæðar sem bílarnir
aldrei seldust á. Þetta vona menn
í greininni að verði til góða.
Hann sagði að heldur dauf sala
hefði verið á notuðum bílum og
kvaðst hann varla muna eftir
meira framboði af þeim. Um síð-
ustu- mánaðamót hefðu notaðir
bílar verið settir á útsölu í þijá
daga og þá hefðu selst 120 bílar,
en síðan hefði hægst um.
Hjá bílasölunni Bílahöllinni
fengust þær upplýsingar að eitt-
hvað væri orðið um að slíka verð-
lagningu en ekki væri stefnt að
því að taka hana alfarið upp.
Umrót á fjölmiðla-
markaði
►Mikið umrót á sér nú stað á
íslenskum fjölmiðlamarkaði.
Stjórnmálaflokkar að missa tökin
á dagblöðunum og aukin umsvif
ljósvakamiðla. /10
Albanirflýja hungurv-
ofuna
►Hungursneyð bíður Albana eftir
nokkra mánuði, nema matur og
mikil hjálp berist þeim frá öðr-
um./12
Sumir græða og aðrir
fapa
► Mikil umræða er nú um um svo-
nefnd gróðurhúsaáhrif og spurn-
inguna um nþað hvort farið sé að
gæta hækkandi hitastigs á jörð-
inni. 14
Eg gleðst með þjóð
minni
►Rætt við Eðvald Hinriksson,
sem átt hefur viðburðaríka ævi
sem Eistlendingur og íslending-
ur./20
Bheimili/
FASTEIGNIR
► 1-32
Nýtt byggingasvæði í
Kópavogi
►A Nónhæð á eftir að rísa glæsi-
legbyggð./14
Úr myrkviði sálsýkinn-
ar
►Rithöfundurinn William Styron
hélt að hann hefði endanlega gert
upp hug sinn. Sextugur að aldri
ætlaði hann að feta dauðaslóð
margra frægustu rithöfunda aldar-
innar: Hann var staðráðinn í að
stytta sér aldur. /1
Greindartaflan
►Geta menn aukið greind sína
með nýjum töflum? /6
Músíkin í höfði mér
►Rætt við hljómsveitarstjórann
Robin Stepleton /10
Hef aldrei rifist við
nokkra manneskju
►Samtal við Oddfríði Sæmunds-
dóttur frá Elliða, en hún hefur
samið bæði ljóð og dægurlagatexta
undir höfundanafninu Fríða. /12
Þessi gullnu blik
►Félag íslenskra leikara 50 ára
/12
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak Skák 20
Dagbók 8 Minningar 24
Hugvekja 9 Mannlífsstr. 8c
Leiðari 16 Fjölmiðlar 16c
Helgispjall 16 Kvikmyndir 18c
Reykjavíkurbréf 16 Dægurtónlist 19c
Fólk í fréttum 26 Bió/dans 22c
Útvarp/sjónvarp 28 A fómum vegi 24c
Myndasögur '20 Velvakandi 24c
Brids 20 Samsafnið 26c
Stjörnuspá 20
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-6-BAK
ERLENDAR FRETTIR:
1-4