Morgunblaðið - 22.09.1991, Qupperneq 11
MOUUUNBLAÐIÐ SUXNUDAGUR/22. SEFl'KMBER>I9íU
ií
Morgunblaðið/Þorkell
Framkvæmdastjórn Alþýðuflokksins kom saman sl. fimmtudag til að
ræða framtíð útgáfu Alþýðublaðsins og Pressunnar. Fyrir liggur ósk
blaðstjórnar um 5 millj. kr. framlag til blaðanna og er framtíð þeirra
talin geta oltið á því. Framkvæmdastjórnin frestaði umfjöllun um
málið fram í næstu viku.
Hörður Vilhjálmsson, starfandi útvarpsstjóri RÚV til bráðabirgða, og
Páll Magnússon, sjónvarpsstjóri á Stöð 2, undirrituðu í vikunni samn-
inga við fulltrúa Pósts og síma um uppsetningu sjónvarpssenda en það
gerir Sýn hf. kleift að hefja sjónvarpsútsendingar eftir tvo mánuði.
augljósa hagsmuni Odda af áfram-
haldandi útgáfu blaðanna segir
Knútur Signarsson skrifstofustjóri
prentsmiðjunnar að ekki standi til
að Oddi taki þátt í útgáfu eða eign-
ist hlut í blöðunum.
Alþýðublaðinu er haldið utan við
þær hugmyndir sem eru ræddar um
sameiginlega blaðaútgáfu á grunni
Tímans og Þjóðviljans. Þar ríkir reiði
í garð Alþýðuflokksins fyrir að hafa
látið óátalið þegar fjármálaráðherra
ákvað í sumar að skera niður kaup
ríkisins á 500 eintökum hjá hveiju
blaði. „Sú ákvörðun stjórnar Blaðs
hf. að leita eftir kaupendum að Press-
unni er túlkuð svo, að ekki geti ver-
ið mikill hagnaður af því blaði. Það
er þá ekki talið að mikið verði eftir
hjá útgáfu Blaðs hf. sem mætti
leggja fram til sameiginlegrar útgáfu
á nýju blaði,“ sagði einn viðmælandi
blaðsins.
Aðskilnaður Alþýðuolaðs
og Pressu
Blað hf., útgáfufélag Alþýðublaðs-
ins og Pressunnar, hefur ákveðið að
aðskilja rekstur þessara tveggja
blaða og að sögn Guðmundar Odds-
sonar verður aðskilnaðurinn frá-
genginn um næstu mánaðamót.
A síðustu árum hafa verið gerðar
ýmsar breytingar á Alþýðublaðinu
sem miðuðu að því að það yrði sam-
keppnisfært á dagblaðamarkaðinum
og stofnað var til síaukins kostnaðar
til að hefja útrásina, sem svo var
kölluð. Pressan var stofnuð haustið
1988 en eftir mikið umrót innan út-
gáfunnar og brottrekstur starfsfólks
var ráðist í markaðsátak fyrir blaðið
og nýrri ritstjórn fengið blaðið í hend-
ur sl. haust. Frekari aukning um-
svifa Alþýðublaðsins var hins vegar
stöðvuð. Sl. vor var blaðið svo skorið
niður í fjórar síður og starfsfólki
fækkað.
Hagnaður var á útgáfu Blaðs hf.
árið 1989, en á síðasta ári var rúm-
lega 14 millj. kr. tap á rekstrinum
og tæplega 7 millj. kr. tap á fyrri
hluta þessa árs. Heildarskuldir eru
rúmlega 20 millj. skv. upplýsingum
fulltrúa í framkvæmdastjórn flokks-
ins. Áætlanir fyrir þetta ár hafa
brugðist, og alþýðuflokkSmenn sem
rætt var við segja að hálfgert stjórn-
leysi ríki á blaðinu.
Flokkstíðindi
Innan flokksins er deilt um fram-
tíð útgáfunnar. Ýmsir vilja að Al-
þýðublaðinu verði haldið í þeirri
stærð sem það er í nú og að það
gegni framvegis því hlutverki að
flytja flokkstíðindi til flokksmanna
en flokkurinn losi sig alveg við Press-
una með sölu ef hægt er. Innan útg-
áfustjórnar er hins vegar mikill vilji
fyrir því að Blað hf. selji meirihluta
í Pressunni fyrir 11-12 millj. kr. en
eigi áfram minnihluta í blaðinu þar
sem það er álitið eiga möguleika á
markaðinum. Að sögn Guðmundar
Oddssonar lagði flokkurinn fram um
3 millj. kr. til útgáfunnar fyrir
nokkru en hann segir að enn sé óaf-
greidd ósk blaðstjómar um fimm
millj. til viðbótar. Framkvæmda-
stjórn flokksins kom saman sl.
fimmtudag til að taka afstöðu til
þessarar beiðni en henni hefur verið
tekið þunglega. Frestaði stjórnin
umfjöllun um málið fram í næstu
viku. Heimildir innan forystu flokks-
ins herma að framtíð þessarar útg-
áfu eins og hún er nú velti á því
hvort fimm millj. kr. verða lagðar
- fram.
„Alþýðublaðið verður gefið út
áfram, þó það sé nú í þessum sendi-
bréfastíl þá eru menn ekki tilbúnir
til að taka þá ákörðun að leggja
Alþýðublaðið niður. Eftir aðskilnað-
inn á Alþýðublaðið ekki að verða
baggi á útgáfunni," sagði Guðmund-
ur. „Óvíst er hvað verður um Press-
una. Margir telja óeðilegt að flokkur-
inn standi að slíkum rekstri og ég
er einn af þeim. Þetta er allt í skoð-
un,“ sagði Guðmundur en afstaða
hans skiptir miklu þar sem hann fer
með atkvæði flokksins á hluthafa-
fundi sem haldinn verður í næsta
mánuði.
Flokkurinn eigi minnihluta
í Pressunni
„Eina blaðið sem á einhveija vaxt-
armöguleika er Pressan, sem stendur
allvel á markaði,“ segir Hákon Há-
konarson framkvæmdastjóri útgáf-
unnar í samtali við Morgunblaðið.
„Við erum að skilja á milli Alþýðu-
blaðsins og Pressunnar og ætlum að
laða nýtt hlutafé í Pressuna. Þegar
búið verður að samþykkja hlutafjár-
aukningu gæti farið svo að flokkur-
inn yrði minnihlutaaðili. Þetta gefur
möguleika á að skoða frekari útgáfu-
möguleika eins og tvö eða þijú blöð
í viku eða jafnvel tímaritaútgáfu,“
segir hann.
Heimildir herma að hugsanlegir
kaupendur hlutafjár í Pressunni séu
ekki tilbúnir til að greiða meira en
11-12 millj. fyrir blaðið allt en séu
þó ekki fráhverfir því að kaupa meiri-
hluta á móti Blaði hf. Hákon segir
að ekkert tilboð hafi enn borist í
Pressuna en ef einhver ætli að kaupa
útgáfuréttinn þyrfti að bjóða veru-
lega upphæð sem að hans mati væri
ekki undir 15-20 millj. kr.
íhuga kaup á Pressunni
Hópur ungra manna í viðskiptalíf-
inu hefur um nokkurra mánaða skeið
gert nákvæmar markaðsathuganir á
útgáfu vikublaðs. Pressan kom síðar
inn í þá mynd og hafa þessir aðilar
lauslega skoðað rekstraiyfirlit blaðs-
ins en hafa þó ekki enn kynnt sér
nákvæmlega rekstrarstöðu eða árs-
reikninga. Útgáfuáformin eru þó
ekki bundin kaupum á Pressunni.
Friðrik Friðriksson, framkvæmda-
stjóri hjá Skrifstofuvélum — Sund
hf., tilheyrir þessum hópi en vildi
ekkert um málið segja en staðfesti
að þessi vinna væri í gangi og að
áhugi væri m.a. á að skoða kaup á
Pressunni.
Atvinnuleysi blaðamanna
Samanlagt starfa allt að 100
manns á minni blöðunum og því er
ljóst að útgáfuerfiðleikar þeirra geta
leitt til þess að allt að 15% fastráð-
inna félaga í Blaðamannafélagi ís-
lands sjái fram á að missa atvinnuna
á næstu mánuðum. „Við stöndum
frammi fyrir því að hafa annars veg-
ar tvo volduga fjölmiðla á blaðamark-
aðinum, sem eru meðal 20 stærstu
gjaldenda í höfuðborginni og hins
vegar sýnist fokið í flest skjól í út-
gáfu minni blaðanna," segir Lúðvík
Geirsson.
Hann segir að erfíðleikar Blaða-
prentsblaðanna hafi verið ræddir í
stjórn Blaðamannafélagsins. „Blöðin
tvö sem hafa boðað eða gripið til
uppsagna ætla að reyna að tryggja
útgáfuna en ég heyri að þar geri
menn sér grein fyrir að það verði
að hafa varaáætlun, sem gengur út
á að þessi tvö blöð verði viðbúin því
upp úr áramótum að hleypa nýju
blaði af stokkunum, hugsanlega í
samstarfi við einhveija aðra aðila.
Ég held að sá kostur sé fullkomlega
raunhæfur," segir Lúðvík.
Gisting á hótel Holiday Inn .
íslenskur fararstjóri - farþegar okkar fá.sérstakt leyfi til að versla á heildsöluverði í stóru
vöruhúsi. Hagstætt verð í verslunum. Fjölbreyttar skemmti- og skoðunarferðir.
Edinborg, höfuðborg Skotlands er heillandi og fögur.
Par er margt að sjá, kastala, sögufrægar byggingar og listasöfn.
Edinborg er lífleg borg með fjölbreytilega skemmtistaði og menningu.
Edinborg stendur á fögrum stað á hæðum við Forth fjörðinn.
15.900 mm 16.900
5. nóv., 8. nóv., 15. nóv., 21. okt., 9. des. og 16. des.
22. nóv. og 29. nóv.
Vegna einstaklega hagstæðra samninga okkar um flug og gistingu bjóðum við takmörkuðum
fjölda fólks upp á ótrúlega ódýrar og eftirsóttar ferðir til Edinborgar.
Kynningarverð - fyrstu 180 sætin
2 DAGAR 3 DAGAR
Alltaf með lægsta verðið
FLUGFEROIR
= SOLRRFLUG
Vesturgata 12, Símar 620066, 22100 og 15331
Öll verð eru staðgreiðsluverö án ílugvallaskatta og forfallatryggingar.