Morgunblaðið - 22.09.1991, Side 18
MORGUNBLAÐIÐ MYIMDASOGUR SUNNyDAGUR 22, SEPTEMBER 1991
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl) IP*
Nýju áhugamálin reynast
mjög uppörvandi en smá-
munasemi vinar fer hugsan-
lega í taugamar á þér. Gættu
þín á því að slá ekki slöku við
í vinnu. Síðdegið og kvöldið
henta tii hugleiðslu.
Naut
(20. apríl - 20. maf) t&K
Þér er í mun að koma ein-
hveiju í framkvæmd heima
fyrir en eitthvað fer aflaga þar
sem kappið er full mikið.
Bjóddu vinum heim í kvöid.
Tvíburar
(21. maí - 20. júnf) 5»
Ekki lofa upp í ermina á þér
þvi verra er að sitja uppi með
svikin loforð en engin. Síðdeg-
is færð þú mikinn áhuga á því
að skipta um vinnu.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Rétt er að leita inn á nýjar
brautir til þess að fá útrás
fyrir hæfileikana. Deildu ekki
við þína nánustu um fjármál.
Fjarlægur vinur hefur sam-
band.
Ljón
(23. júlf - 22. ágúst)
Nú er tími til kominn að láta
einstaklingseðlið njóta sín en
forðastu eigingimi. Þú munt
gleðjast mjög yfir óvæntum
vinafundi. Kvöldinu skaltu
veija f bókhaldið og minn-
isbækumar.
Meyja
(23. ágúst - 22. scptember)
Rannsóknir þínar leiða þig inn
á mjög áhugaverðar brautir.
Varpaðu af þér fullkomnunar-
áráttunni, láttu heldur fróð-
leiksfýsnina leiða þig áfram.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Vertu sjálfum þér samkvæmur
og hafðu ekki áhyggjur af því
hvað aðrir halda. Vertu hvorki
of gagnrýninn né umburðar-
lyndur.
Sþorðdreki
(23. okt. -21. nóvember)
Þú skoðar máliri í mjög víðu
samhengi í dag, einkum þegar
starf þitt er annars vegar.
Forðastu fjölskyldudeilur og
reyndu að komast hjá sjálfs-
dekri.
Bogmaöur
(22. nóv. - 21. desember) m
Hugmyndir þínar em ekki
nógu mótaðar til þess að bera
þær upp við aðra. Það fer illa
að blanda starfi og skemmtan
saman í dag. Ljúktu verkum
heima fyrir.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Fjármálin em óljós, þú verður
að skoða stöðuna betur ofan
í kjölinn og farðu hægt í gagn-
rýni á eyðslusemi annarra.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Þú finnur upp á snjöllum leið-
um til tekjuöflunar í dag og á
næstunni. Gagmýndu ekki
aðra og forðastu óþarfa bmðl.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) Za*
Þrátt fyrir deilur á vinnustað
kunna þér að opnast nýjar dyr
í starfí. Aukið sjálfstraust leið-
ir til meiri skilvirkni og-auk-
innar fæmi.
Stjörnuspána á að lesa sem
dœgradvöl. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindategra staóreynda.
DÝRAGLENS
FERPBNAND
SMAFOLK
I D0NT UNPER5TAND... I
5I6NALEP F0R. A FASTBAll
CHARLIE BROWN...
Y00 TMREU) A FA5T0ALL,
ANP THE BATTER 5WUN6
AT IT ANP MI55EP...
Ég skil ekki ... ég gaf merki um
fastan bolta, Kalli Bjarna.
Þú kastaðir föstum bolta, og kylf-
ingurinn sveigði sig að honum og
hæfði ekki ...
Hvernig vildi það til?
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Sagnirnar dobl og redobl em
bridsspilurum vel kunnar.
„Afdobl“ er hins vegar nýtt hug-
tak.
Norður gefur; enginn á hættu.
Vestur
♦ 10764
▼ 107
♦ 10953
♦ D106
Norður
♦ KD83
▼ ÁG2
♦ KG762
+ 2
Austur
♦ ÁG92
♦ ÁD84
+ G9873
Suður
♦ 5
▼ KD986543
♦ -
+ ÁK54
Vestur Norður Austur Suður
— 1 tígull Pass 1 hjarta
Pass 2 spaðar Pass 3 lauf
Pass 3 l\jörtu Pass 5 tíglar
Pass 5 spaðar Pass 6 hjörtu
Pass Pass Dobl Redobl
Pass Pass Afdobl Allir pass
Spilið kom fyrir í Vanderbilt-
keppninni í Bandaríkjunum sl.
vor. Bandaríkjamenn spila þá
keppni með skermum, eins og
gert er í alþjóðamótum. Það kom
því í hlut norðurs að upplýsa
austur um sagnir. Hann sagði
að við stökk sitt í 2 spaða hefði
hann sýnt 5-lit í spaða og 6-lit
í tígli, en makker léti eins og
hann ætti sjálfspilandi hjartalit
og eyðu í tígli. Austur doblaði
samt í þeirri von að hjartað lægi
illa.
Þegar sagnbakkinn kom aftur
til baka með redobli suðurs,
bætti norður við þeirri skýringu
að stökk hans í 2 spaða gæti
líka verið byggt á 3-litar-stuðn-
ingi í hjarta. Austur fékk hland
fyrir hjartað þegar hann sá
redoblið og kallaði keppnisstjóra
að borðinu; sagðist hafa fengið
ófullnægjandi skýringar á sögn-
um þegar hann doblaði og vildi
taka sögnina upp. Samkvæmt
bridslögunum er slíkt heimilt ef
sannað þykir að spilari hafi beð-
ið tjón af ófullnægjandi eða
rangri skýringu. Keppnisstjóri
taldi svo vera í þetta sinn og
gaf austri heimild til að breyta
sögninni. NS fengu því aðeins
980 fyrir slemmuna ódoblaða, í
stað 1.570. Ogtöpuðu 9 IMPum,
því hinum megin doblaði austur
5 hjörtu og fékk líka redobl í
hausinn. Út kom tígull, sagnhafi
lét lítið úr borðinu og austur
drottninguna. Suður fékk því
alla slagina og 1.400, sem er
býsna sjaldgæf tala fyrir UNN-
IÐ spil.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á opnu móti í Somerset í
Bandaríkjunum fyrr á þessu ári
kom þessi staða upp í skák alþjóð-
lega meistarans Sherzer (2.435),
sem hafði hvítt og átti leik, og
Lunna (2.260).
22. Bg5! (Eftir þennan öfluga
leik tapar svartur óumflýjanlega
drottningunni.) 22. — Dxg5, 23.
Bxe6+! - Bxe6, 24. Hf8+! -
Hxf8, 25. Hxf8+ - Kxf8, 26.
Rxe6+ og með drottningu og peð
fyrir hrók og biskup vann hvítur
auðveldlega.