Morgunblaðið - 22.09.1991, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ MIIMIMIIMGAR SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER 1991
Jófríður S. Krist-
insdóttír - Minning
í dag kveðjum við í hinsta sinn
ástkæra vinkonu okkar Jófý. Það
fyrsta sem kemur upp í huga okk-
ar, þegar við hugsum til baka, er
þessi mikli lífskraftur sem fylgdi
henni alla tíð. Jófý var mjög félags-
lynd enda komin af stórri fjöl-
skyldu. Hún var einstaklega góður
hlustandi og alltaf boðin og búin
að aðstoða vini og kunningja ef
með þurfti. Það var gott að vera í
návist Jófýar, því hún var mjög
hreinskilin, jákvæð og leit alltaf á
björtu hliðar tilverunnar. Um nokk-
urra ára skeið starfaði hún hjá
Landsambandi íslenskra rafverk-
taka. Henni gekk mjög vel í starfi
og fljótlega gegndi hún ábyrgðar-
stöðu í fýrirtækinu. Hún var vel lið-
in af samstarfsfólki sínu og innti
störf sín vel af hendi.
í ársbyrjun 1989, 1. mars, öðlað-
ist Jófý þá hamingju að eignast
augastein sinn Elínu Ösp. Árið áður
festi hún kaup á íbúð og þar bjó
hún þeim mæðgum gott heimili.
Stuttu seinna veiktist Jófý og
gekk undir læknishendur. Horfurn-
ar voru góðar. Hún leit björtum
augum til framtíðarinnar og fór út
í stærri íbúðarkaup sumarið 1990.
Skömmu síðar kom í ljós að veik-
indi hennar höfðu tekið sig upp
aftur og hún flutt á spítala. Þar
dvaldist hún löngum fram á síðustu
stund. Þrátt fyrir að veikindi henn-
ar fengju á hana bæði líkamlega
og andlega, var hún ávallt sterk í
sinni baráttu.
Það var gott að ræða við Jófý
um þau litlu vandamál sem maður
lét stundum angra sig því þau hurfu
eins og dögg fyrir sólu eftir að hún
var búin að benda á hve smávægi-
ileg þau voru. Hún sá ætíð björtu
hliðamar í hvetju sem var.
Stórt skarð hefur verið höggvið
í vinahóp okkar, en við eigum yndis-
legar minningar um Jófý og geym-
um þær í hjörtum okkar. Þjáning
hennar er að baki og nú hvílir hún
í friði.
Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert
bresta.
Á grænum grundum lætur hann mig hvílast,
leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis
njóta,
hann hressir sál mína,
leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns
" síns.
Jafnvel þó ég fari um dimman dal,
óttast égekkert illt, því að þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
(Sálmur 23, 2-4.)
Elsku Elín Ösp, Ester og fjöl-
skylda, við vottum ykkur dýpstu
samúð okkar og biðjum Guð að
blessa ykkur öll.
Bryndís Rut, Gitta, Inga
Maja, Jóhanna, Laufey,
María og Ragna Björg
Hún Jófý okkar er dáin. Hvers
vegna er svo ung kona hrifin í burt
frá okkur svo snemma? Þeirri
spurningu fáum við aldrei svarað,
en kannski að henni hafi verið ætl-
að annað hlutverk annars staðar
en hjá okkur. Eftir lifir minning
um góða systur og mágkonu. Um
vor 1989 eignaðist Jófý dóttur sína
og stuttu seinna uppgötvast að hún
er komin með illkynja sjúkdóm.
Sjúkdóm sem rændi hana smám
saman orku og starfsþreki, en samt
hélt Jófý ótrauð áfram við sín dag-
legu störf af miklum dugnaði og
atorku, þar til fyrir tæpu ári að
henni fór versnandi. En hún neitaði
að gefast upp og missti ekki vonina
um að ná heilsu aftur. Jófý var
mjög dugleg og jákvæð og með
óbiiandi dugnaði og viljastyrk barð-
ist hún í sínum veikindum. Dóttur
sína Eiínu Ösp annaðist hún með
hjálp móður sinnar eins lengi og
hún gat. Jófý átti marga góða vini
og viljum við þakka þeim fyrir allan
þann stuðning og styrk sem þeir
veittu henni í veikindum hennar.
Einnig viljum við þakka starfsfólki
á deild 21a á Landspítalanum fyrir
sérstaka umyggju og hýhug í garð
Jófýar. Við munum geyma minn-
ingu um elsku Jófý í hjörtum okkar
og kveðjum hana með söknuði og
þökkum henni fyrir allt sem hún
gaf okkur. Guð geymi Jófý.
Þú Guð míns lífs, ég loka augum minum
í líknarmildum fóðurörmum þínum
og hvíli sætt, þótt hverfi sólin bjarta,
ég halla mér að þínu föðurhjarta.
(M.Joch.)
Dóra og Brandur
Sumarið 1986 var ákveðið að
færa skrifstofur þriggja stofnana
rafíðnaðarmanna undir sama þak.
Keypt var gamalt verksmiðjuhús-
næði í Skipholtinu og okkur starfs-
fólkinu falið að breyta húsinu í
skrifstofur. Allir lögðust á eitt og
unnið var dag og nótt, jafnt í frítíma
sem vinnutíma, við að skrapa af
veggjum og upp úr gólfum, bijóta
niður veggi og reisa nýja, mála og
dúkleggja, leggja nýjar raf- og
vatnslagnir, setja upp nýjar innrétt-
ingar og koma fyrir húsgögnum.
Þetta var skemmtilegur tími, starfs-
fólkið samhent og margt brallað.
Gamla húsið breyttist í fallegan
vinnustað. Þar kynntist ég ungri
stúlku sem var starfsmaður hjá
einni af þessum stofnunum, hún var
hrókur alls fagnaðar og ósérhlífín
í vinnu. Jófríður, eða Jófý eins og
við kölluðum hana, var greinilega
vön að taka til hendinni. Hún sveifl-
aði kössum og verkfærum á svo
áreynslulausan hátt, að maður gat
ekki annað en tekið eftir því. Þarna
var á ferðinni stúlka vestan af Snæ-
fellsnesi, Rifsari, sem ekkert lá á
skoðunum sínum og var fylgin sér
í málflutningi á kaffístofunni eða á
fundum hjá rafverktökum, ef því
var að skipta, sama hvaða mál bar
á góma og við hvern var að etja.
Jófríður ólst upp í foreldrahúsum
á Rifi í stórum systkinahópi. For-
eldrar hennar, Kristinn Haraldsson
vörubílstjóri og Ester Friðþjófsdótt-
ir, áttu 3 syni og 6 dætur. Allt
harðduglegt, traust og vel gert fólk.
Það þarf ekki neinn að fara í graf-
götur með að oft hefur verið líf og
fjör á heimili þeirra Kristins og
Esterar í svona stórum barnahópi,
sem hefur örugglega haft mótandi
áhrif á uppeldi barnanna. Trúrækni
og tónlist var ríkur þáttur í heimilis-
haldinu hjá þeim og bjó Jófríður
alla tíð að því. Hún lauk grunnskól-
anum heima hjá sér, var síðan 2
vetur í Reykjaskóla og fór þaðan í
Fjölbrautaskólann í Breiðholti og
lauk þaðan stúdentsprófi. Á þessum
árum er Jófríður farin að vinna alf-
arið fyrir sér sjálf, þrátt fyrir að
hún sé flutt úr foreldrahúsum og
stundi skólanám. Hún var ráðin til
starfa hjá rafverktökum sem skrif-
stofustjóri. Þótti mörgum sem þar
væri á ferðinni fullungur starfs-
kraftur í svo ábyrgðarmikið verk-
efni, en þeir hinir sömu skiptu um
skoðun eftir stutt kynni af Jófý.
Hún hafði gaman af tónlist, spilaði
nokkuð á píanó og söng með Pólý-
fónkórnum. Jófríður stundaði
líkamsrækt og hafði mjög afgerandi
skoðanir gegn reykingum. Mér eru
minnisstæðar þær orrustur sem við
Jófý háðum í kaffístofunni í Skip-
holtinu um reykingar mínar þar og
ekki síður þau skoðanaskipti sem
við áttum um stöðu konunnar í þjóð-
félaginu.
Foreldrar Jófríðar fóru í ferðalag
um jólin 1986 með kirkjukórunum
á Snæfellsnesi til ísraels, þar veikt-
ist Kristinn mjög alvarlega og féll
frá eftir örskamma sjúkdómslegu
og Ester stóð skyndilega ein. Jófríð-
ur var þá á ferðalagi á svipuðum
slóðum á sama tíma. Hún fór til
móður sinnar og var með henni í
þessari baráttu þar suður frá.
Jófríður réðst í að kaupa sér íbúð
og eignaðist skömmu síðar litla
stúlku, Elínu. Þær mæðgur komu
sér fyrir í litlu íbúðinni í Bólstað-
arhlíð, en Jófríður keypti skömmu
síðar rúmbetri íbúð og stússaðist í
svo mörgu að sólarhringurinn dugði
vart. Jófríður átti stóran vinahóp,
var trygg vinum sínum og frænd-
rækin.
En það leið ekki langur tími þar
til dimmdi aftur í fjölskyldunni, það
greindist illkynja sjúkdómur hjá
Jófríði. Upphófst þá nær tveggja
ára hatrömm barátta við sjúkdóm
sem smám saman lagði þessa glæsi-
legu og lífsglöðu stúlku að velli.
Einbeitni og staðföst trú Jófríðar
var aðdáunarverð. Það var sama
hversu kvalin hún var, alltaf stóð
hún teinrétt og tapaði aldrei reisn
sinni, né trúnni á að henni myndi
takast að sigra í þessari baráttu.
Ester flutti suður til þeirra
mæðga til þess að hjálpa til í þess-
ari baráttu. Það að halda á barninu
sínu í örmum sér og horfa á það
tærast upp án þess að fá nokkuð
að gert, er átakanlegt og harður
skóli fyrir einstæða móður. Sam-
staða systkinanna og hjálpsemi
þeirra við móður sína, systur og litlu
frænku í þessari hörðu baráttu var
eftirtektar- og aðdáunarverð.
Einhvers staðar stendur, að það
eina góða við illviðri sé sú vissa að
það létti einhverntíma til. Sterk tré
svigna í óveðri, en brotna ekki. Þau
rétta við, er léttir til og taka í mót
sólskininu þegar það biýst fram í
gegnum óveðursskýin. Eg er viss
um að þetta eigi við um Ester og
böm hennar. Ég vona að góður guð
gefí þeim og EKnu litlu styrk og
sendi þeim innilegar samúðarkveðj-
ur.
Guðmundur Gunnarsson
Nú kveð ég elsku bestu vinkonu
mína í hinsta sinn. Það er sárt að
þurfa að sjá á bak henni. Þó svo
að vitað hafí verið að hverju dró
er maður aldrei fullkomlega undir-
búinn þegar að dauðanum kemur.
Um leið og Jófý er farin hellast
yfir mig minningarnar um hana og
allt það sem við gerðum saman.
Við vorum meira en bara vinkonur,
við vorum líka frænkur og á sama
aldri. Á okkar yngri árum, eða al-
veg til 18 ára aldurs, vorum við
óaðskiljanlegar. Við vildum líkjast
hvor annarri í klæðaburði og í því
sem við tókum okkur fyrir hendur.
Jófý var á margan hátt fyrirmynd
mín; svo dugleg, sterk og metnaðar-
full. Hún var alltaf foringinn í
bekknum, í íþróttum og í félagslífí.
Að grunnskólanámi loknu kom ekk-
ert annað til greina hjá okkur en
að fara í sama skóla í framhalds-
nám, okkur datt ekki í hug að fara
í sitt hvoru lagi. Að fara í fyrsta
sinn að heiman 16 ára getur verið
erfítt, en ég hafði Jófy mína og hún
hafði mig og þannig höfðum við
styrk hvor af annarri.
Þegar við urðum fullorðnar fór-
um við að gera ólíka hluti og hafa
önnur áhugamál eins og gjarnan
gerist með æskuvinkonur en samt
vorum við alltaf til staðar þegar á
þurfti að halda og tókum þátt { við-
burðum í lífi hvorra annarrar.
Mér fannst það svo táknrænt
fyrir Jófy að þegar ég gifti mig í
mars síðastliðnum lét hún mig finna
það glöggt að ég átti alveg sér-
stakan stað í hjarta hennar. Hún
var mjög veik þá og búin að ganga
í gegnum mjög erfiða læknismeð-
ferð en hún gerði þennan dag enn-
þá bjartari í mínum huga og fyrir
það er ég þakklát.
Jófý eignaðist yndislega dóttur
fyrir rúmum tveimur árum, sem gaf
henni svo mikið, hún fyllti líf henn-
ar gleði. Jófy sagði mér frá þeim
tilfínningum sem fylgja því að verða
móðir og óskaði þess að ég upplifði
það sama.
Ég trúi því að Guð hafi ætlað
henni að gegna einhveiju mikil-
vægu hlutverki, hann hefur leyst
hana frá kvölum og nú líði henni
vel. Fari hún í friði.
Að lokum vil ég færa dóttur
Jófríðar, móður og systkinum sam-
úðarkveðjur frá mér og eiginmanni
mínum, megi góður Guð styrkja þau
í þeirra miklu sorg.
Sæunn Sævarsdóttir
Kveðja frá vinkonum
Dóttir, í dýrðar hendi
Drottins, mín, sofðu vært,
hann, sem þér huggun sendi,
hann elskar þig svo kært.
Þú lifðir góðum Guði,
í Guði sofnaðir þú,
í eilífum andarfriði
ætíð sæl lifðu nú.
(H. Pétursson)
Elsku Elín, Ester og systkini.
Megi góður Guð styrkja ykkur og
styðja.
Anna og Hulda
Fleiri greinar um Jófríði S. Krist-
insdóttur bíðu birtingar og verðn
birtar í blaðinu næstu daga.
t
Móðir og fósturmóðir okkar,
SIGRÚN VALDIMARSDÓTTIR,
Hliðarvegi 1, Kópavogi,
lést 7. september sl. Útförin hefur farið fram.
Þökkum auðsýnda samúð.
Úlfar Helgason,
Þorsteinn Óttar Bjarnason.
t
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma,
JÓHANNA KOLBEINS,
Miðleiti 7,
Reykjavík,
sem lést á heimili sínu laugardaginn 14. september, verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 23. september kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er vinsamlegast bent á
Krabbameinsfélagið.
Björg Árnadóttir,
Jón Stefán Árnason,
Hildur Árnadóttir,
Þorvaldur Kolbeins Árnason,
Sveinn Vfkingur Árnason,
Sigrún Árnadóttir,
Árni Þór Jónsson,
Vernharður Gunnarsson,
Ingibjörg Á. Hjálmarsdóttir,
Magnús Halldórsson,
Guðfinna Emma Sveinsdóttir,
Lilja Sigrún Jónsdóttir,
Einar Birgir Haraldsson
og barnabörn.
LEGSTEINAR
Grcrnil s/P
HELLUHRAUNI 14 -220 HAFNARFIRÐI • SIMI 652707
OPIÐ 9-18. LAUGARDAGA FRÁ KL. 10-15.
t
Dóttir mín og systir okkar,
SIGRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR RINEER,
lést 17. september sl. á heimili sínu í Lancaster Pa., USA.
Markúsina S. Markúsdóttir,
Guðmundur R. Karlsson,
Ólafur R. Karlsson.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
SVEINN BJÖRNSSON
forseti íþróttasambands íslands,
verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju miðvikudaginn 25. sept-
ember kl. 15.00.
Þeim, sem vildu minnast hans, er vinsamlega bent á Minningar-
sjóð íþróttamanna og Krabbameinsfélag íslands.
Ragnheiður Thorsteinsson,
Björn Ingi Sveinsson, Katrín Gísladóttir,
Margrét Jóna Sveinsdóttir, Jón Þór Sveinbjörnsson,
Geir Sveinsson, Guðrún Arnarsdóttir,
Sveinn Sveinsson, Ingigerður Guðmundsdóttir
og barnabörn.
Legstelnar
Framleiöum allar stærðir og gerðir af legsteinum.
Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf
um i
BS.HELGASONHF
STEINSMIÐJA
I SKEMMUVEOI 4S-SIMI76677
I
I
I
I
I
(
(
i
i
Í