Morgunblaðið - 22.09.1991, Side 26

Morgunblaðið - 22.09.1991, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER 1991 miðlunarblað, skrifast fyrst á og rætt síðan saman í síma. Þarna var það að hittast í fyrsta sinn! Síðan gekk umræðan út á hvað píslirnar sáu við þungar konur og hvers vegna þeir vildu slíkar konur umfram aðrar. Þyngdarmunurinn á fólkinu var slíkur að það virtist með ólíkindum að karlarnir skyldu lifa það af er konumar fóru að knúsa þá í sjónvarpssal. Þetta virt- ist mér vera gott dæmi um firring- una og vitleysuna sem Bandaríkja- menn eiga til. En þetta reyndist vera rétt að byrja. „Við tók næsta dag atriði sem var með ólíkindum. Settur var upp hnefaleikahringur innan um alla áhorfendurnar og þar gengu inn smókíngklæddi kynnirinn, feiti dómarinn í röndóttu fötunum og klæðalitla fegurðardrottningin með númeraspjöldin. Þarna voru sem sé að hefjast átök. Þrenn slagsmál voru á dagskrá. Fyrst áttu að beijast 25 ára gamlar tví- burasystur sem höfðu ekki talast við í heilt ár vegna misklíðar um einhvern kjól. Annar slagurinn var milli tveggja nágranna á sextugs- aldri frá Pennsilvaniu. Annar átti 3 hunda og hinn hafði átt 8 ketti, en þeir voru nú orðnir 6 talsins vegna þess að hundarnir vom farn- ir að leggjast á kettina og éta þá! Þriðja og síðasta glíma kvöldsins var slagur hörundsdökkra mæðgna, sem báðar voru risavaxn- ar á hæð og þverveginn. Móðirin var 55 ára og dóttirin 23 ára. Þær slógust vegna þess að sú gamla hafði stungið undan dóttur sinni 24 ára kærasta hennar. Og þar sem þær börðust, sat pilturinn á fremsta bekk og hélt með þeirri gömlu! Slagsmálin voru þannig, að fyrst börðu keppendur hveijir aðra með tvöföldum boxhönskum og til að tryggja að enginn slasaðist al- varlega var bardagafólkið gert út með eyrnaskjól og hjálma. í öðru lagi gekk slagurinn út á að sprauta súkkulaðidrullu hver á annan og sá sigraði þá lotu sem varð fyrri til að fiðra andstæðinginn. í þriðju lotu áttu keppendur að reyna að koma keppinautnum ofan í drullukar. Auðvitað var svo drulla líka á gólfinu, en plastdúkur var breiddur yfir áhorfendur. Yfir þessu skemmti fólk sér konunglega og það var látið fylgja sögunni, að yfirleitt stæði fólkið brosandi upp úr rimmunum og sættist heil- um sáttum og það væri jú æski- legra heldur en að fólkið væri að bæla í sér reiði sem myndi ef til að því frægara sem fólkið var, þeim mun elskulegra var það og laust við allan hégóma. Áður en ég snéri mér að viðtals- og skemmtiþáttunum sat ég með stjórnendum þáttar sem heitir „Life with Regis and Cathy Lee“, sem er svona notalegur morgun- þáttur hjá ABC. Það eru allir í góðu skapi og ekki allt of mikill fíflagangur.“ „Síðan var röðin komin að tveim- Það nýjasta, óvinir sprauta drullu hvor á annan og sá vinnur sem fyrr fiðrar hinn. Hermann Gunnarsson í einum frægasta morgunþætti í USA, „Good Morning America" ásamt stjórnendum þáttarins, Charles Gibson og Joan Linden. Á innfelldu myndinni: Með Phil Donahue, einum vinsælasta viðtalshauk bandaríska sjónvarpsins. STARFSFRÆÐSLA Hemmi Gunn kynnti sér gang mála fyrir vestan haf Það styttist í að sjónvarps- maðurinn góðkunni Hermann Gunnarsson fari af stað með nýja syrpu af hinum vinsælu þáttum sínum, „Á tali hjá Hemma Gunn“. Skjótt verður meira að segja fimm- - Hugasti þátturinn á dagskrá og hefur því verið fleygt að sá þáttur verði sérstaklega athyglisverður án þess að það sé nánar skilgreint á þessu stigi málsins. Hermann hefur ekki setið auðum höndum í sumar, heldur er hann nýkominn heim úr þriggja vikna reisu til Bandaríkjanna. Þar var hann í nokkurs konar „strafsfræðslu“ eins og hann orðar það sjálfur hjá stóru sjónvarpsstöðunum ABC, NBC og CBS. Morgunblaðið tók Hermann tali og spurði hann um tilurð þessarar ferðar og hvað segja megi að komið hafi út úr henni. „Þetta byijaði nú þannig, að ég kynntist Olafi Jóhanni Olafssyni síðasta vetur er ég fór vestur um haf og tók við hann viðtal. Það vita allir íslendingar hvaða maður það er og hvað hann hefur náð langt. Þá bar það á góma hvort ég hefði ekki áhuga á því að kom- ast inn á gafl hjá hinum stóru sjón- varpsstöðvum, sjá hvernig haldið er utan um hlutina þar. Slíkt hefur alltaf verið draumur minn sem fjöl- miðlamaður, en að sama skapi fjar- lægur draumur. Svo hitti ég Olaf aftur í sumar og þá impraði hann á þessu aftur og ég tók vel í það. Hann fór þá að toga í spotta og óðar var ferðin á dagskrá og fyrir um mánuði síðan hélt ég vestur um haf vopnaður bréfi frá RUV þess efnis að ég væri í rauninni þessi Gunnarsson sem um væri rætt! Það opnuðust fyrir mér allar dyr og mér var tekið með ólíkind- um vel hvar sem ég fór.“ Fyrstu tveir þrír dagarnir fóru í það að vinsa úr hvaða þætti ég hefði mestan áhuga á því að fylgj- ast með og ég byijaði á fréttaskýr- ingarþætti sem heitir „Good morn- ing New York“. Svo var það „Good Morning America", sem er einn virtasti og vinsælasti morgunþátt- urinn í Norður Ameríku. Það er tveggja klukkustunda bein útsend- ing og við hana starfa 120 manns. Þeim þætti stjórnar Jack Reilly og Gene Linden og Charles Gibson eru kynnar. Þetta var allt saman stórfróðlegt og gaman að hitta frægar stjörnur á borð við rithöf- undinn Sidney Sheldon og leikar- ann Tom Selleck og þar sannaðist, ur stómöfnum í viðtalsbransanum, Geraldo hét sá fyrri sem ég mætti hjá og hinn frægi Phil Donahue var sá síðari. Geraldo þessi er rúm- lega fimmtugur og harður karl. Hann er yfirleitt að fást við vanda- mál í þáttum sínum og getur verið fullágengur. Þannig hefur verið ráðist á hann í beinni útsendingu. Hann hefur hins vegar verið að missa niður um sig, því nýlega komu út æviminningar hans sem snúast að mestu um þær konur sem hann hefur náttað sig með síðan að hann skildi við eiginkonu sína. Þetta hefur ekki fallið í kra- mið og Geraldo á í vandræðum þessa daganna. „En segja má að þá hafi ég fyrst farið að sjá fjör og furður er ég mætti í þáttinn hjá Donahue. Eftir hann bað karlinn mig afsökunnar, ég hefði hitt á þennan tíunda hvern þátt þar sem reiknað væri með því að stjómandinn færi gjörsamlega yfír strikið og að teflt væri fram til að blása glæðum í áhuga áhorf- enda, en baráttan um þá er ógur- leg. Þama mættu sex manns, þijár konur, þær þyngstu sem ég hef séð og þrír karlar, einhveijar mestu píslir sem ég hef séð. Þetta fólk hafði kynnst í gegn um hjúskapar-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.