Morgunblaðið - 22.09.1991, Síða 27

Morgunblaðið - 22.09.1991, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER 1991 27 vill enda með voðaverknaði síðar. Svona uppákomu varð ég sem sagt vitni að í virtum viðtalsþætti á bandarískri sjónvarpsstöð. Enn hélt dagskráin áfram. Ég fylgdist með að hluta til þætti með hinni frægu Baröru Walters, en það er þáttur sem gengi ekki á íslenska vísu. Hún fer alveg inn í kvikuna á viðmælendum sínum, nema að henni sé vel við þá, þá hlífir hún þeim. Ég var ef til vill spenntastur fyrir því að kynnast David Letterman, sem er með klukkustundar langan blandaðan skemmtiþátt hjá CBS um mið- nætti. Þetta er vinsælasti þátturinn af þessu tagi í Bandaríkjunum og Letterman hefur verið að í tíu ár. Arsenio Hall sækir mjög á, en Letterman hefur enn vinninginn. Ég tók eftir því að þættirnir eru ekki í beinni útsendingu og menn urðu undrandi er ég sagði þeim að heima á Islandi væru svona þættir sýndir beint. Letterman er fínn karí, en óhætt er að segja að hann geri ósköp lítið. Þeir eru ijór- ir sem skrifa fyrir hann handrit og aðrir fímm ganga um með spjöld með textum. Auk þess gerir hann í því að láta eins og hann viti ekki neitt í sinn haus. I byijun þáttar eru tveir náungar að reita af sér brandara og þegar hann er sjálfur kominn á svið fer annar brandara- karlinn á stjá, tveggja metra rum- ur, og lætur öllum illum látum. Hann þeysir um allt með spjald sem segir hvenær á að klappa og menn klappa þótt ekki væri fyrir annað en að þeir eru óttaslegnir við ruminn." Én hvað með hetju- dýrkun Bandaríkjamanna, er hún þama á fullri ferð? „Já, já. eg bjó á einu af betri hótelum New York og það varð uppi fótur og fit þegar Mr. Reilly og Mr. Letterman voru að hringja, bara til að staðfesta að þetta eða hitt væri klárt. Hver var hann eig- inlega þessi Gunnarsson? Það liðu ekki nema tveir dagar frá því að fyrstu skilaboðin af þessu tagi bárust til min, að ég fékk sérstakt boðskort frá hóteleigandanum um að snæða með honum prívatkvöld- verð! Og þriðja hvem dag var sér- stök móttaka fyrir svokallaða V.I.P’s. Þetta voru hanastél og snakksamkundur fyrir ríkasta og frægasta fólkið sem á hótelinu bjó hveiju sinni. Og þama var auðvitað reiknað með Mr.Gunnarsson í öll- um herklæðum! En hann mætti sjaldan.“ En var hægt að draga einhvem lærdóm af þessari ferð? „Vissulega, en ekki þó efnislegan. Það var að vísu undur að sjá alla tæknina, alla peningana og allan mannskapinn sem fylgja hveijum einasta þætti þarna. En við þurfum ekki að standa kengbognir í samanburði. Þarna ultu upp marg- ar hugmyndir sem ultu burtu jafn harðan, því þær eru óframkvæm- anlegar á íslandi og sumar meira að segja þess eðlis að það hæfði betur að loka hreinlega sjónvarp- inu en að innleiða þær. Hugarfar Bandaríkjamanna og íslendinga er gerólíkt. Carson gamli á „The ton- ight show“ hefur verið eins í 30 ár en á íslandi getur ekkert í þess- um bransa gengið svo lengi án breytinga. Svo er annað, hann er dálítið yfirþyrmandi þessi glans allur. Það er ekkert þarna sem heitir menning og listir, hvað þá samkeppni um slíkt á milli stöðva. Fólkið virðist eingöngu ganga fyr- ir léttmeti, svona þáttum eins og ég hef lýst og'síðan sápuóperum og kvikmyndum." Munum við sjá gerbreyttan þátt hjá Hemma Gunn nú í haust? „Ætli það. Eitt er þó víst að ég mæti til leiks vissari en fyrr að við erum á réttri braut og eigum litla samleið með Bandaríkjamönnum í efnisvali. Svo er eitt, mér hefur oft verið legið á hálsi fýrir að vera með alls konar fíflagang, ýmist í þættinum, eða annars staðar. Svona tilgangslaust sprell. Þama úti sá ég að það er alger barnaleik- ur miðað við það sem best gengur þar um slóðir. Það er gott að vita það. TÍSKA 20 ný módel sýndu FFyrir skömmu útskrifaði Unnur I liðið fimmtudagskvöld í Naustkjall- Amgrímsdóttir^ 20 nemendur aranum og eru meðfylgjandi mynd- úr Módelskólanum. í tilefni áfang- ir frá þeim vattvangi. Þarna sýndu ans var efnt til tískusýningar síðast | nýju módelin nýjustu vetrartískuna. VIGSLUR Busar í kaffi o g kökum Verslunarskólinn fagnar ekki busum sínum með ofbeldi eins og margir hinna menntaskólanna gera. Þeir em ekki tolleraðir, ekki baðaðir í lýsi eða skyri eða látnir anda að sér reyk í lokuðum sturtu- klefa. Nei, það era öllu heilbrigðari og mannlegri aðfarir í Versló. Ný- nemum er boðið upp á kaffí og kökur ásamt léttum skemmtiatrið- um eins og sjá má af meðfylgjandi myndum sem teknar voru á dögun- um, er eldri nemendur Versló tóku á móti busunum sínum. ► 1 ► ruccA 1 ^ ;%} i ja 1 ‘ ( 1 U L L ◄ I ◄ I ◄ I ► I ► I ► I ► FÆÐUBÓTAEFNIÐ FÆST LOKSINS Á ÍSLANDI FRÁ ÖRÓFI ALDA HEFUR YUCCA PLANTAN VERIÐ MIKILVÆGUR HLEKKUR í FÆÐUKEÐIU INDÍÁNA NORÐUR-AMERÍKU, OG HAFA ÞEIR KALLAÐ HANA GULL EYÐIMERKURINNAR, ENDA TÖLDU ÞEIR AÐEINS VATN MIKILVÆGARA. ÚR PLÖNTUNNI HEFUR NÚ VERIÐ UNNIÐ FÆÐUBÓTAREFNIÐ YUCCA GULL HVAÐ GERIR YUCCA GULL FYRIR ÞIG? ■ HREINSUN: YUCCA GULL INNIHELDUR EFNI SEM ER TALID HAFA HREINSANDI ÁHRIF Á MELTINGARFÆRIN OG RISTILINN OG LOSA UM ÚRGANGEFNI SEM LÍKAMINN HEFUR EKKI HREINSAÐ SIÁLFUR. ■ GIGT: YUCCA GULL ER TALIÐ DRAGA ÚR GIGTAREINKENN- UM - RANNSÓKNIR í BANDARÍKIUNUM SÝNDU VERULEGAN BATA H|Á 85% GIGTARSIÚKLINGA SEM NOTUÐU YUCCA GULL ■ STREITA: YUCCA GULL ER TALIÐ DRAGA VERULEGA ÚR STREITU OG STYRKIA LÍKAMANN ■ HAGSTÆTT VERÐ: DAGSKAMMTUR ER 2 TÖFLUR Á DAG, SEM TAKA MÁ INN KVÖLDS EÐA MORGNA. EITT GLAS AF YUCCA GULLI MEÐ MÁNADARSKAMMTI KOSTAR AÐEINS 490,- SVIPAÐ UC 2 SÍCAKETTUPÁKKAR. 4 I ◄ I -W GREIÐSLUKORT EINKAUMBOD A ISLANDI: PÓSTKRÖFUÞIÓNUSTA beuRi#ip LAUGAVEGI 66, 101 R.VÍK. SÍMAR: 623336, 626265 ◄

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.