Morgunblaðið - 22.09.1991, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 22.09.1991, Qupperneq 8
8 C MORÓÚIÍBLAÐIÐ MANNUFSSTRAUMAR sunnúdagur 22. septembeii 19» SIDFRÆDI/ Hvenær slœr hugsunarklukkán 12? FreJsið er barn tilvUjumr HEIMSPEKINGURINN og stœrð- fræðingurinn René Descartes (1596—1650), sem er frægur fyrir að hafa fundið upp-hnitakerfið og sagt: Cogito ergo sum, eða ég hugsa, þess vegna er ég, hafði þann skemmmtilega sið að liggja í rúminu til hádegis og hugsa. Það varð honum að tjóni að ráða sig til kennslu hjá Svíadrottningu seint á sinni ævi. Drottningin vildi fá kennslu klukkan nákvæmlega 5 sérhvern morgun, og aumingja Ðescartes dó mánuði síðar með bláa bauga undir augum. Eg mun aldrei ráða mig til starfa hjá Svíadrottningu, en ég get vel hugsað mér að liggja í rúminu til hádegis og íhuga í anda Descart- es. Ég vaknaði einn sunnudagsmorg- un og varð hugsað til þessa heimspek- ings, og ákvað að stilla vekjaraklukk- una, sem nú hlaut nafnið hugsana- klukkan, á 12.00. Á náttborðinu var blað, blýantur, bók, sími og klukkan. Sólin skein inn um gluggann og jám- brautarlest brunaði hjá og flautaði. íhugunarefnið átti að vera frelsið. Tími og tilviljun mætir öllum. Til- viljunarkennd lífsins gerir það að verkum að við getum aldrei verið fullviss um gang þess. Tilviljunin gerir lífið bæði spennandi og hættu- legt. Það má reikna út gang himin- tunglanna, en gangur mannlegrar tiktúru er óútreiknanlegur. Öruggt má telja að sólargangurinn verði með öllum mjalla á morgun, en það er öldungis óvíst hvort einstaklingur, sem gaf sitt heilaga loforð í gær, haldi það í dag eins og um var sam- ið. Þórbergur benti á þetta í samtali sínu við Matthías, í kompaníi við allífið. „Einu sinni var það hugsjón mín að vera eins áreiðanlegur og stjómendur náttúrulögmálanna. Ég var að reyna að efna öll mín loforð á þeirri mínútu, sem ég hafði lofað að efna þau. Ef ég lofaði að koma klukkan níu að kvöldi, þá kom ég nákvæmlega klukkan níu o.s.frv. Svo fór mér að ganga hálfilla að halda þetta, en það munar sjaldan miklu, við skulum segja svona álíka og því, að sólin kæmi upp tíu mínútum seinna en hún á að koma upp að réttu lagi. Fólk er orðið skelfilega eftir Gunnor Hersvein " Lausnin er: cnzymol JVýrt í Evrópu i EUQO-HAIB á Islandi ■ Engin hárígræðsla ■ Engin gerfihár ■Engin lyfjameðlerð ■ Einungis timabundin notkun Eigid hár rned hjálp lífefha-arku (D91 -676331e.kM6.oo Landsbyggð M., Ármúla 5. Viðskiptaleg fyrirgreiðsla og ráðgjöf fyrir fólk og fyrirtæki á landsbyggð- inni og í Reykjavík. Sími 91-677585. Fax: 91-677586. Pósthólf: 8285,128 Reykjavík. Umboósmaóur óskast Útgáfufyrirtæki leitar að hæfum umboðsmanni til að kynna og sjá um dreifingu á nýjum og nýstárlegum póstkortum. Verður að tala ensku. Sendið svör inn á auglýsingadeild Mbl. merkt: „U -9816“ NYTT SIMANUMER PRENTMYNDAGERÐAR (MYNDAMÓT); ósköp óorðheldið.“ (149.) En áður hafði meistarinn spurt: „Hvemig heldurðu, að færi nú, ef pólitískir flokksleiðtogar á íslandi ættu að stjóma sólarganginum? Heldurðu ekki, að gangur hennar yrði nokkuð dyntóttur?" (148.) Tilviljunin mætir ekki sólinni, heldur mönnum. Það má segja að gangur sólarinnar sé fyrirfram ákveðinn, en það er ekki hægt að segja hið sama um gang mannlífs- ins. Ef allt væri fyrirfram ákveðið, væri ekkert rúm fyrir frelsið. Sólin hefur ekkert frelsi, en það hafa mennimir. Það er svo skrýtilegt, að hið smáa skuli hafa nokkuð sem hið stóra ekki hefur. Ef líf mannsins væri eins og gangur sóiarinnar, væri það tilbreytingarlítið og viðburðar- snautt. Sólin heilsar stjörnunum dag hvem og kveður þær að kvöldi í ei- lífri rás tímans. Ég er sannfærður um að sólin, hneppt í fjötra lögmál- anna, þrái ekkert heitar en tilviljun- ina. „Aðeins ef eitthvað óvænt gerð- ist í dag,“ hugsar hún. Frelsið á sér nefnilega upptök í tilviljuninni, og sólin myndi rífa sig upp og svífa á braut nýrra veralda ef henni yrði gefið frelsi. Maðurinn, að hinu leytinu, er svo heppinn að eiga frelsið allt í brjóst- inu, og ekkert getur sett hann í hlekki nema hann sjálfur. Einstakl- ingar ganga jafnan sporbrautir mannlífsins hugsunarlaust, en sumir fara út af sporinu til falls eða frægð- ar. Hugsunin er stjómin í sporvagni mannsins, og hún getur stýrt vagnin- um inn á nýjar brautir. Vagninn stöðvast aldrei. Hann er alltaf á ferð, og rennur hindrunarlaust sína teina, en spor mannsins eru mörg, og hugs- unin getur með aðstoð viljans, víxlað yfir á næstu sporbraut. Lífíð er óend- anlega margar sporbrautir, sem við getum valið um. Sorgin felst í því að menn hafa tilhneigingu til að hjakka í sama farinu, eða standa í sömu sporum, svo ég noti viðeigandi líkingarmál. Hvar er frelsið? Það er í bijóstinu, það er í vitundinni, það er innra með mönnum og enginn getur stolið því. Frelsið er ekki síst í hugsuninni. Þar á það heima. Stundum fer það ekki út, heldur hangir inni alla daga, og horfir út um glugga augnanna. Stundum læðist það út og tiplar á tánum í skuggalegu hverfi. Stundum er það hrakið inn með refsivendi valdhafans. Stundum brýst það út um rimlaglugga og neitar að láta loka sig inni á nýjan leik. Frelsið er afl. Það er meginkraftur sálar og hugsunar. Það verður ekki kveðið niður. Það getur fengið sér blund, en þá fljóta menn sofandi að feigðarósi. Vakið, og hugið að frels- inu! Ef heimurinn væri án tilviljunar, þá gætu einstaklingar ekki valið sér hlutverk. Þeir yrðu að sinna því hlut- verki sem þeim væri skapað. Það væri ekkert val, aðeins nauðsyn. Við fengjum úthlutað sporbaug til að fylgja í eilífum spíral endurtekning- arinnar. En í heimi sem hefur tilvilj- unina að forsendu, eru börn getin af einskærri tilviljun og persónur þeirra hafa ekkert fyrirfram ákveðið hlutverk í heiminum. Þær eiga ekki að gera neitt. Náttúran ætlaði þeim ekkert sérstakt hlutskipti, og einmitt þess vegna eru þær ftjálsar. Þær hafa fijálst val. Þær geta valið sér sporbraut eftir íhugun og mat. Einn- ig gætu þær valið að vera værukær- ar og látið aðra velja fyrir sig. Sókrates fetaði öruggur braut heimspekinnar allt sitt líf, en í fang- elsinu efaðist hann og skipti snarlega inn á sporbraut ljóðlistarinnar. Mikið er frelsi mannsins! Sólin, á hinn bóg- inn, getur ekki valið sér stjömur til að skína á. Mikil eru lögmál alheims- ins! Sunnudagsmorgunninn er á enda og sólin eltir enn hinn ósýnilega og stærðfræðilega sporbaug á röndum. Hugsunarklukkan er hætt að telja mínútumar í hljóði og gólar 12. Desc- artes stígur fram úr rúmina árið 1649, og ég neyðist til að hverfa frá frelsinu. Síminn hringir. Ég legg blý- antinn frá mér og svara. Svíadrottn- ing er í símanum. Speki: Ég er ekki bundinn neinu, en ég er háður öllu. SÁLARFRÆDI/Leió ir sy?idin til skilnings? ___ Adam og Eva FRÁSAGNIR Biblíunnar skipa stórt rúm í hugum flestra ef ekki allra kristinna manna, hvort sem þeir telja sig sanntrúaða eða ekki. Síst er það að undra. Við lærðum margar þeirra í bernsku meðan hugurinn var enn móttækilegur og gljúpur og ímyndunaraflið frjótt. Margar voru spurningar okkar við þessum undariegu og áhrifa- miklu sögnum. Flestum þeim spurningum er líklega ósvarað enn, þrátt fyrir ötula viðleitni prestanna. Ein hinna áhrifamiklu frásagna er sagan um Adam og Evu. Þau voru fyrstu mannverurnar á jörðinni, forfeður mannkyns, sköp- uð af guði, annað af mold, hitt úr rifbeini. Himna- faðirinn fékk þeim til bústaðar aldin- garðinn Eden, öðru nafni Para- dís. Þar lifðu þau í allsnægtum í eftir Sigurjón sakleysi bemsk- Björnsson unnar og þurftu ekkert fyrir lífinu að hafa og enga ábyrgð að bera. Einungis einn hængur var á: Af einu tré máttu þau ekki eta, skiln- ingstré góðs og ills. Maður skyldi ætla að vandalaust hefði verið að hlíta þessu banni, því að nóg væri viðurværið. En þá er það sem djö- fullinn í líki höggorms freistar Evu. Hann telur henni trú um að hættulaust sé að eta af trénu. Raunar sé það æskilegt, því að þá verði þau jafnvitur guði. Og Eva etur af trénu og gefur Adam bita. Þá bregður svo við að þau upp- götva að þau eru nakin og taka að hylja blygðun sína. Guð kemst vitaskuld að þessari óhæfu og bregst illa við. Hann rekur þau út úr aldingarðinum og þar með hefst baslið. Þau verða að strita sér til lífsyiðurværis og Eva má ala böm sín með þraut. Víst er þessi saga stórkostleg lýsing á þroskasögu mannsins, sögð á einföldu myndmáli. Adam og Eva eru bömin sem við öll höfum verið. Guð er for- eldravald og forsjá. í upphafi þekktum við ekki mun á réttu né röngu, góðu né illu. Við vissum einungis hvað mátti og hvað var bannað. Meðan við kunnum ekki skil á réttu og röngu var synd ekki til í huga okkar. Syndin verð- ur til með skilningnum. Athyglis- vert er til hvaða uppgötvunar skiln- ingurinn leiðir fyrst samkvæmt þessari frásögn: Uppgötvun nekt- ar, blygðunar og mismunar kynja. Maðurinn uppgötvar mennsku sína og hann verður jafn guði. Barnið fullorðnast og þá á það ekki lengur heima í foreldrahúsum, því að það verður sjálft foreldri. Nú ber það eitt ásamt maka sínum alla ábyrgð, alla kvöl og alla völ. Mælikvarði góðs og ills, rétts og rangs verður hér eftir hjá því sjálfu og eitt ber það sina nekt. Ef ég hverf aftur í tímann og set mig í spor sjálfs mín fyrir rúm- lega hálfri öld, hvað skyldi ég þá hafa hugsað og hvers skyldi ég hafa spurt? Af hveiju var guð svona harður? Hefði hann ekki getað valið þeim vægari refsingu eða jafnvel fyrirgefið þeim? Hafi ég hugsað þannig hefur mér vissu- lega yfirsést að hér er verið að tjá m

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.