Morgunblaðið - 22.09.1991, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 22.09.1991, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER 1991 C 13 Gýgjarsteinn við Elliða, en hann er þekktur álfabústaður í Staðar- sveit á Snæfellsnesi. ekki haft ástæðu til þess heldur. Þrætur eru til einskis. Fegurðin lyftir hugum manna hátt, hjálpar þeim til að gleyma þrætum öllum, en minnast þess, hve margir eiga bágt. — Hvað telur þú mikilvægast í lífinu? „Það er nú erfitt að svara því, Gunnar minn. Það er nauðsynlegt að fólk geri sitt besta, að allir geri sitt besta í sátt og samlyndi." — Áttu trú? „Já, og ég efast ekkert um fram- haldslíf. Mér finnst ég eiga það al- veg víst. Ég er búin að missa svo mikið af mínu fólki og mér finnst ég bara eiga það hinum megin. Enda dreymir mig það nú oft. Sérstaklega í seinni tíð. Við erum öll saman í draumunum alveg eins og í lifandi — Hefur þú alltaf verið trúað? „Já, mér var innrætt það í bernsku, en henni var ekki haldið stíft að okkur. Mamma var aldrei að predika yfir okkur, en hún hélt allta lifandi trú.“ — Hvernig gekk móður þinni ann- ars að ala ykkur upp? „Það virtist vera svo ákaflega árekstralaust. Við systkinin rifumst aldrei og ég hef oft hugsað um það á sinni árum hvað við vorum mikið samhent og kom vel saman. Það var aldrei nokkurn tíma misklíð á milli okkar. Mamma þurfti ekkert að segja ef henni líkaði ekki við okkur, hún þurfti ekki annað en að líta á okkur. Og við vildum alls ekki gera henni á móti. Það kom ekki til.“ Besta vörnin gegn myrkfælni „Ég skal segja þér smá sögu. Þegar ég var sex ára árið 1908, veiktist ég af lungnabólgu rétt fyrir jólin. Pabbi var þá lifandi, en hann treysti sér ekki til að fara gangandi inn í Stykkishólm til læknis. Hann bað ungan mann á næsta bæ að fara. Það var svo mikill holklaki, að það var ekki hægt að fara á hestum. Það varð að fara gangandi og hann lagði af stað í svartasta skammdeg- inu til þess að sækja meðul handa mér. Ég man hvað ég grét og grét, en hann var samt alveg ótrúlega fljótur í ferðum. Hann sagðist aldrei myndi gleyma hvað hann varð glað- ur þegar búið var að gefa mér meða- lið. Ég hætti strax að gráta og sofn- aði síðan. Hann var alltaf mikill vin- ur minn. En þetta var löng lega hjá mér. Einhver hafði gefið mér voða falleg spil í jólagjöf. Elsta bróðir minn langaði til að eiga spilin og spurði hvort ég vildi ekki skipta á þeim og barnasálmunum. Það voru Barna- sálmar(útg. í Rvík 1893) eftir Valdi- mar Briem. Ég gerði það, þó ég kynni ekki annað en stafina sjálfa og að kveða að. Svo lá ég lengi lengi í rúminu og var alltaf að veltast með bamasálmana. Og ég lærði brátt að lesa af þeim. Ég lærði heil- mikið á þeim. Bara í hljóði. Síðasta sálminn í bókinni, en það eru bless- unarorðin, les ég ennþá alltaf á kvöldin. Á ég að fara með þau fyrir þig? Ég var nú alltaf voðalega myrk- fælin og mér fannst að þetta væri besta vörnin, að tauta þetta fyrir munni sér þegar ég var í myrkri: Drottinn blessi mig og mína morgun, kveld og nótt og dag. Drottinn ve§i vængi sína vom um lífs og sálar hag. Drottinn allra veri vöm; varðveit, faðir, öll þín böm. Drottinn ljós sitt láti skína, ljómar fögur ásýnd hans. Drottinn geisla sendi sína: sólargeisla kærleikans. Drottinn yfir lög og láð láti skína sína náð. Drottinn ásýnd birti bjarta bömum sínum alla tíð. Drottinn vérmi hvert eitt hjarta hressi’ og gleði allan lýð. Drottinn veiti líkn og lið, lýsi, blessi’ og gefi frið. Og þetta fer ég alltaf með á kvöld- in. Bókin á hinn bóginn varð ósköp snjáð með tímanum. Ég veit ekki hvað varð af henni, en innihaldið var ákaflega gott. Hún var á auðveldu máli og sett fram fyrir böm. Ég hugsa að blessunarorðin séu óvíða til í Ijóðum." Ekki skyggn, en finn fyrir framliðnu fólki — Þú varst myrkfælin. „Ég hef þó aldrei séð neitt, en ég finn á mér ef eitthvað er í kringum mig. En mamma var ákaflega skyggn. Hún sá framliðið fólk sem hún þekkti. Ég finn það aftur á móti á mér, hvar það er statt við mig, til hvorrar hliðar, framan eða aftan.“ — Getur þú fundið hver það er? „Já, það var einu sinni, að ég vissi hver það var. Það var piltur sem var á sama skipi og bróðir minn. Hann féll útbyrðis og drukknaði. Mér fannst hann fylgja mér og vera allt- af í kringum mig. Mamma sagði mér löngu seinna, að hann hafi allt- af verið með mér. Ég hafði sagt henni frá því að mér fyndist hann alltaf vera í kringum mig. En hún gaf ekkert út á það. En löngu síðar, þegar þetta var allt búið, þá sagði hún mér að hún hefði séð hann.“ — Þú ert sannfærð um framhalds- lífið. „Já, ég efast ekkert um það. Maður veit ekki hvernig þetta er, en ég kvíði ekkert fyrir því að deyja. Ég kvíði bara fyrir því, ef ég þarf að vera mikið veik. Eg vona að það verði ekki lagt á mig.“ — Áttu þér einhveija trúarlega reynslu? ;,Ég veit ekki hvað ég á að segja um það, en mér líður alltaf betur þegar ég er búin að biðja vel fyrir einhveijum. Ég veit ekki hvort fólk var trúaðra áður fyrr. Það eru nú margir trúaðir ennþá. Já, já, en kannski var það almennara. Ánnars er ómögulegt að leggja mælikvarða á trú fólks. Við vitum ekki hvað inni fyrir býr.“ Ég þakka Fríðu kærlega fyrir samtalið, en hún býr á Dalbrautinni í Reykjavík. Hun er innileg kona eins og ljóðin og hlédræg. Hefur ekki haft sig í frammi. Hún er sér- lega vinveitt og rödd hennar er þýð, lág og þýð. Hún býr yfír innri ró, og trú sem hefur hjálpað henni á erfiðum stundum. Vistarverur henn- ar prýða margar góðar bækur sem hafa fylgt henni um ævina. Á veggn- um gegnt glugganum slær gömul klukka hlóðlát högg, en orgelið þeg- ir þeirra tóna sem leikur um ljóðin hennar. Málverk af fjöllum hanga á veggjum og ljósmyndir af lífs eða liðnum fjölskyldumeðlimum, en dauðinn hefur þrálega sveipað Fríðu sorginni í lífinu. Hann hefur kvatt dyra hjá hennar nánustu aðstand- endum með þungbæra sjúkdóma sem fylgdarmenn. Yngsti sonur hennar, Gunnar, dó 18. júní síðastlið- inn, og Guðmundur Ingólfsson píanó- leikari lést 12. ágúst síðastliðinn. 4* ít-iAc $ o p- 1 \ P />STOFt*&sS ' im & Aðalfundur Þjóðdansafélags Reykjavíkur verður haldinn í húsi félagsins að Álfabakka 14A í Mjódd fimmtu- daginn 26. september kl. 20.30. Stjórnin. Laugardalsvöllur miðvikudaginn 25. september kl. 17.15 ÍSLAND - SPÁNN Sigurður Eyjólfur williams FLUGLEIDIR FjARFESTINGARFELAGIÐ Hafnarstræti 7 101 Roykjavík mm EPOÓO Fcrskur ilniur Ivrir íriska mcnn BRIMBORG SIDASTISTORUIKUR ÁRSINS! FORSALA aðgöngumiða erá Laugardalsvelli 24.-25. sept. frá kl. 10.00. Fyrstu 100 kaupendurnir fá SPORT WILLIAMS rakspíra að gjöf frá Stefáni Thorarensen hf. Komdu og sjáðu spænsku stjörnurnar Butragueno og Michel. Dómari: Bakker frá Hollandi. Olympíuliö Islands og Spánar leika þriðjudaginn 24. sept. á Kópavogsvelli og hefst leikurinn kl. 17.15.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.