Morgunblaðið - 22.09.1991, Qupperneq 19
MORGUNBXÁÐIÐ
MENNINGARSTRAUMAR ÍÍnhúMMSí Eptembér
1991
Ö
1$
AIls hafa nú um 46.500
manns séð gaman-
myndina Beint á ská með
Leslie Nielsen í
Háskólabíói að sögn Frið-
berts Pálssonar
bíóstjóra.
Þ,á er sakamálamyndin
Lömbin þagna með
Jodie Foster og Anthony
Hopkins komin í 44.000
46.500 SEÐ
BEINTÁSKÁ
manns, Alice, gamandrama
Woody Allens, er komin í
4.500 manns og Hamlet
með Mel Gibson í hlutverki
prinsins lífsþreytta undir
leikstjórn Franco Zeffirellis
er komin í 3.000 manns.
Næstu myndir á dagskrá
Háskólabíós eru „Til There
Was You“ með Mark Harm-
on, gamanmyndin „Soap-
dish“ með Sally Field og
Kevin Kline, en myndin sú
gerir grín að sápuóperum
sjónvarpsins, og loks má
nefna nýjustu mynd Alans
Parkers, „The Commit-
ments“, um unga krakka á
írlandi sem stofna soul-
hljómsveit.
Ryð keppir um Felixinn
Ryð, bíómynd Lárusar Ýmis Óskarssonar, keppir um
hin nýju Evrópuverðlaun kvikmyndanna, Felixinn, af
Islands hálfu.
Böm náttúrunnar eftir
Friðrik Þór Friðriks-
son tekur þátt í keppni
ungra leikstjóra og Viðar
Víkingsson tekur þátt í
heimildamyndakeppninni
með myndinni Harðlífur í
heimi hér um Guðmund
góða biskup en hún var sýnd
í ríkissjónvarpinu á jóladag
í fyrra.
Af þátttakendum í keppn-
inni úm bestu mynd Evrópu
í ár má nefna „Riff-Raff‘
frá Bretlandi eftir Ken Lo-
ach, Fjallið eftir Markus
Imhoof frá Sviss, Bréf frá
Alou eftir
Montxo
I BIO
í síðustu viku var
þess getið í þessum
dálki að óvenju mikið
hefði verið af kvik-
myndahátíðum í
Reykjavík það sem af
er árinu. Þeim er alls
ekki lokið.
Nú þegar þýska kvik-
myndahátíðin rennur
sitt skeið á enda hefst
í Háskólabíói norsk
kvikmyndavika með
fímm nýlegum norskum
myndum, á eftir henni
kemur Kvikmyndahátíð
Listahátíðar í Regnbog-
anum en strax þar á
eftir verður bresk kvik-
myndahátíð í Háskóla-
bíói.
Það verður sjöunda
hátíðin frá jafnmörgum
löndum það sem af er
árinu. Við munum þá
hafa séð myndir á sér-
stökum vikum frá Sviss,
Finnlandi, Frakklandi,
Danmörku, Þýskalandi,
Noregi og Bretlandi.
Þetta hlýtur að teljast
met því á undanförnum
árum hafa að meðaltali
verið haldnar um þijár
í mesta lagi fjórar kvik-
myndahátíðir á ári að
undanskilinni Kvik-
myndahátíð
Listahátíðar.
Armendariz frá Spáni, Gott
kvöld, herra Wallenberg,
eftir Kjell Grede frá Svíþjóð,
Bix eftir Pupi Avati frá ít-
alíu, Ósæmilega konan eftir
Ben Verbong frá Hollandi,
Herman eftir Erik Gustav-
son frá Noregi, Kraftaverk-
ið eftir Neil Jordan frá ír-
landi, Eg réð mér leigu-
morðingja eftir Aki Kauri-
smaki frá Finnlandi (var
sýnd hér á fínnskri viku í
Háskólabíói sl. vetur), Litli
þijóturinn eftir Jacques Do-
illon frá Frakklandi og Af-
mælisferðin eftir Lone Sc-
herfíg frá Danmörku.
Kraftaverkið eftir Neil Jordan er ein af þeim myndum
sem keppir um Felixinn.
Úr myndinni Umrenningar, sem gerð er eftir sögu
Knut Hamsuns.
NORSK KVIK-
MYNDAVIKA
NÚ UM helgina hófst í Háskólabíói norsk kvik-
myndavika sem stendur til 27. sept. en á henni
verða sýndar fimm norskar bíómyndir, þ.á m. Leið-
sögumaðurinn með Helga Skúlasyni, sem sýnd var
í Regnboganum á sinum tíma.
Dauðinn á lestarstöð-
inni er ein af myndum
vikunnar en hún var gerð
á síðasta ári og er eftir
Evu Isaksen. Myndin er
byggð á sögu Ingvars
Ambjömsens og segir frá
ungu fólki í Osló, sem er
gagntekið af leynilögregl-
usögum.
Þá verður sýnd myndin
Tvennir tímar frá 1989
eftir Martin Asphaug.
Aðalsöguhetjan er Martin,
leikinn af Espen Skjön-
berg, sem lítur yfír farinn
veg á gamals aldri og á
langar samræður við konu
sína, Önnu, sem reyndar
lést af bamsfömm fyrir
50 árum. Sektarkenndin
þjakar hann og hann reyn-
ir enn að bæta úr því sem
mislaga fór.
Orionbeltið er frá 1985
og er leikstýrt af Ola Sol-
um. Þetta er spennumynd
úr stórveldapólitíkinni en
hún er byggð á sögu eftir
Jon Michelet. Myndin ger-
ist í kringum Svalbarða þar
sem þrír Norðmenn lenda
í dularfullum málum.
Einnig verður sýnd
myndin Umrenningar sem
byggir á frægri skáldsögu
Knut Hamsuns. Hún var
gerð árið 1989 og er líka
eftir Ola Solum. Sagan seg-
ir frá vinunum Eðvarði og
Ágústi en sá síðarnefndi
kemur til fátæka þorpsins
Polden við strönd Norður-
Noregs og veldur breyttum
högum.
Og loks er það Leiðsögu-
maðurinn með Helga Skúl-
asyni. Hún var útnefnd til
óskarsins sem besta er-
lenda myndin árið 1987.
Leikstjóri er Nils Gaup en
myndin gerist á slóðum
Lappa og segir frá árás ill-
menna á friðsælar búðir
Lappa og hvernig ungur
drengur bjargar fólki sínu
undan þeim.
MBreski leikarinn Jeremy
Irons leikur aðalhlutverkið
í nýjustu mynd franska
leikstjórans Louis Malle,
sem heitir „Damage“.
Myndin er byggð á skáld-
sögu Josephine Hart og
fjallar um hjónaband sem
fer í hundana þegar eigin-
maðurinn verður yfír sig
hrifínn af kærustu sonar
síns. Isabelle Adjani fer
með hlutverk eiginkonunn-
ár en myndin gerist í Lon-
don.
MAIlir muna eftir metað-
sóknarmyndinni Elskan,
ég minnkaði börnin. Nú
er framhaldið í undirbún-
ingi en leikstjóri þess verð-
ur maðurinn sem gerði
„Grease“, Randall Kleis-
er. í fyrri myndinni minnk-
uðu bömin í maurastærð
en ef eitthvað er að marka
titilinn á nýju myndinni
eiga þau jafnvel nokkuð
enn verra í vændum. Mynd-
in heitir Elskan, ég
sprengdi barnið.
MBandariski leikarinn
Tom Hanks hefur verið í
nokkurri lægð upp á síðk-
astið eða eftir skelli eins
og Jói og eldfjallið og
Bálköstur hégómans.
Hann hefur enda snúið sér
að handritsgerð og vinnur
nú við handritið að mynd-
inni „Lonely Hearts Of
The Cosmos“, sem fjallar
um hóp geimfara.
MNokkuð er liðið frá því
bandaríski leikstjórinn Art-
hur Penn (Litli risinn)
sendi frá sér bíómynd.
Hann vinnur nú að undir-
búningi á mynd sem heitir
„Beyond Love“ og er gerð
eftir sögu Dominique
Lapierre er fjallar um
rannsóknir Frakka og
Bandaríkjamanna á eyðni.
—KVIKMYNPIft.............
Hvemig var absóknin á síbasta ári?
Nokkur aukning gesta
ogfleirimyndir
HVER íslendingur fór að jafnaði fimm sinnum í bíó árið
1990 samkvæmt tölum Hagstofu íslands um bíóaðsókn á
síðasta ári. Alls sóttu 1.234.792 gestir kvikmyndahúsin í
Reykjavík á almennum sýningum en það er nokkur aukn-
ing frá árinu 1989 þegar 1.201.743 gestir fóru í bíó og
talsverð aukning frá 1988 þegar „aðeins“ 1.094.185 gest-
ir sóttu bíóin.
Bíóaðsóknin hefur farið
minnkandi frá árinu
1985 þegar hún var
1.418.158 manns en hún tók
að aukast aftur árið 1989
og enn
meira á
síðasta ári.
Á sama
hátt hefur
myndum
sem sýndar
eftir Ainald eru á al-
Indriðason mennum
sýningum farið fækkandi frá
1985 en á síðasta ári fjölg-
aði þeim aftur. Árið 1985
voru sýndar 234 bíómyndir
í 21 sal en síðan fækkaði
þeim ofaní 157 árið 1989.
Árið 1990 fjölgaði þeim
aftur í fyrsta sinn í a.m.k.
sex ár og voru samtals 179.
Ef fjöldi sýningargesta í
bíóunum 1990 er margfald-
aður með verði bíómiðans á
árinu, 400 krónum, kemur í
ljóst að miðasala kvik-
myndahúsanna, samkvæmt
ofangreindum tölum, nam
tæpum hálfum milljarði
króna. Ef við það bætist
sælgætissala og gert er ráð
fyrir að hver gestur hafi
keypt sér gotteri fyrir um
130 krónur nemur sælgæt-
issalan rúmum 160 milljón-
um króna. Sætafjöldi bíó-
anna í Reykjavík var sam-
kvæmt Hagstofunni 5.472
talsins árið 1990 en 4.655 á
þarsíðasta ári og 5.843 árið
1985. Þá hefur fjöldi sýninga
í viku hverri aukist jafnt og
þétt með árunum en þær
voru 628 á síðasta ári miðað
við 581 árið 1985.
Af þeim 179 bíómyndum
sem komu hingað á almenn-
ar sýningar á síðasta ári
voru 157 bandarískar. Það
þýðir að tæp 90 prósent allra
mynda, sem hér eru sýndar,
koma frá Bandaríkjunum.
Næstar koma myndir frá
Bretlandi, alls fimm talsins,
fjórar komu frá Frakklandi
og merkilegt nokk, þijár frá
Danmörku og tvær frá Sví-
þjóð. Ein mynd kom frá
hveiju eftirtalinna landa^
Kanada, Þýskalandi, Ítalíu
og írlandi en ein mynd er
skráð bresk/bandarísk og
önnur bresk/júgóslavnesk.
Þegar litið er yfir tölur
um íslenskar myndir á árun-
um 1985 til 1990 kemur í
ljós að sex myndir voru sýnd-
ar árið 1985, fjórar 1986
(aðsóknartölur á þær eru
ekki birtar), tvær 1987 með
9.253 áhorfendur, tvær
1988 með 45.091 áhorfanda,
-i#: mbp ;q-M
m '
1985 '86 ‘87 '88 '89 ’90
Frumsýndar myndir V<
Frumsýning er u.þ.b. i Fjöldi
annan hvern dag
tvær 1989 með 50.670
áhorfendur og tvær árið
1990 með 19.683 áhorfend-
ur. Aðsókn á kvikmyndahá-
tíðir á tímabilinu var mest
árið 1985 þegar 20.944 gest-
ir mættu á þær fimm hátíðir
sem í boði voru á árinu,
þ.á m. Kvikmyndahátíð
Listahátíðar.
y