Morgunblaðið - 22.09.1991, Side 24

Morgunblaðið - 22.09.1991, Side 24
 MORQt’NHLAfM) VELVAKANDINAMUd3ySBHT£MB&R ,199» HÖGNI HREKKVÍSI ///JlÍLT í LfiGl.1... ÉG HEVR/ T\L þÍM.'" Með morgunkaffínu Finnst þér megrunarform- úlan hafa hjálpað þér? Ég sé það ekki. kÆRL/MMMA- FOT____ nú... þaémun ckkL Uta sitwa út cL þcr." Vöm ógæfumanna IMorgunblaðinu 19. september er örsmá grein eftir ágætan kunningja, Þorgeir Kr. Magnús- son. Þorgeir rekur einn hnýfil sinn í Félagsmálastofnun Reykjavíkur- borgar vegna opnunartíma í Gisti- skýlinu í Þingholtsstræti 25. Mig langar að upplýsa nánar um Gistiskýlið. Samhjálp hvíta- sunnumanna tók að sér rekstur skýlisins 1. október 1990 fyrir Félagsmálastofnun Reykjavíkur- borgar. Skýlið hýsir húsnæðislaust fólk alla daga ársins frá kl. 19 á kvöldin til kl. 10 á morgnana. Laugardaga, sunnudaga og helgi- daga er einnig opið frá kl. 10 á morgnana til kl. 19 á kvöldin. Laugardaginn 14. september hlustaði ég á viðtal við tvo aðstandendur barnaleikritsins Bú- kollu í ríkisútvarpinu, leikrit sem ég er viss um að margur ungur landinn á eftir að hafa mikið gam- an af. Mér fannst heldur undarlegt að heyra fyrri viðmælandann tala um, að kýrinni hefði verið stolið. Þetta þágufall notaði hann ekki bara einu sinni eða tvisvar heldur a.m.k. þrisvar. Seinni viðmæl- andinn sagði að Búkolla væri kú, ekki bara einu sinni heldur oftar með þessu nefnifalli. Að vísu hafa búskaparhættir okkar íselndinga breyst mikið hin síðari ár og fólkið ekki orðið eins handgengið húsdýrunum okkar, en Kaffistofa Samhjálpar á Hverfis- götu 42 er opin alla virka daga kl. 13—17 og hafa gestir Gistiskýl- isins nýtt sér hana, en kaffi og lít- ilsháttar meðlæti er þar borið fram ókeypis. Á milli 30 og 40 manns koma þar daglega. Á þriðjudögum er svokallað súpukvöld í kaffistofunni, kl. 18—20. Þá er gefin súpa og brauð- samlokur. Flestir hafa 22 menn komið í súpukvöld. Eru þessar veit- ingar ókeypis. Þá köllum við Gistiskýlið „Gisti- skýli Samhjálpar“ á meðan við önnumst rekstur þess. Með þakklæti. Óli Ágústsson forstöðumaður. ég held að það sé ekki mjög langt síðan hver sveinstauli eða stelpa kunni að beygja þetta orð rétt. Eg er ekki alin upp í sveit eða við bústörf en ekki veit ég hvað kenn- arinn minn, jafnvel í barnaskóla, hefði sagt um svona málnotkun. Mikið er talað um íslensku- kennsluna núna, búið að kasta ze- tunni vegna þess að börnin og ungl- ingarnir hafa ekki getað lært að skrifa hana eða kennararnir ekki getað kennt hana. Næst hverfur sjálfsagt ypsilonið og sennilega ekki langt þangað til kúnni verður fargað og einungis talað um bless- aða beljuna hana Búkollu, hvort sem er á sviði eða utan þess. R. Módel: Litrík flug- sýning* FJÖLDI fólks fylgdist með flug- förum, stórum og smáum, á ár- legri flugsýningu flugmódelfé- lagsins Þyts, sem haldin var á svæði félagsins við Hamarsnes fyrir ofan Hafnarfjörð á laugar- daginn. Flugu fullbúnar farþega- þotur Flugleiða fyrir svæðið, skrúfuþotur, þyrlur, einkaflug- vélar og listflugvélar í kapp við módel Þytsmanna, sem skiptu tugum á svæðinu. Vænghaf nokkurra módela var á við tvo meðalmenn en önnur voru fínlegri og fyrirferðarminni, en áhugi á smíði flugmódela fer sífellt vaxandi, ekki síst þar sem aðstaða er mjög góð við Hamars- nes. Þar eru tvær flugbrautir fyrir módelin og skýli fyrir félagsmenn, sem skipulögðu skrautlega sýningu á laugardaginn með þátttöku margra helstu flugáhugamanna landsins á raunverulegum flugvél- um. „Það eru margir einka- og at- vinnuflugmenn innan okkar hóps og ég held að menn séu sammála um það að það sé erfiðara að fljúga módelum en alvöru flugvélum. Menn hafa ekki sömu tilfinningu fyrir hreyfíngu módelflugvélanna, stjórntækin eru á jörðu niðri en flugvélin hátt uppi og snýr stundum á móti þeim sem flýgur. Þá er erfið- ast að stýra. Þetta er mjög skemmt- ilegt og líflegt áhugamál," sagði Ásgeir Long, sem er formaður Þyts. Sum flugmódelin eru í stærra lagi, eins og þessi Piper Cup Skjaldar Sigurðssonar, sem stendur við aðkeyrslu að flug- brautunum tveimur. Þágufallssýki: Blessunin hún Búkolla Yíkveiji skrifar Viðhorfskönnun Félagsvísinda- stofnunar á lífsskoðunum og gildismati íslendinga, sem frá var sagt í Morgunblaðinu síðastliðinn þriðjudag, hefur valdið Víkveija dagsins nokkrum heilabrotum. Þar kemur að vísu fátt á óvart; allra sízt það lífsviðhorf þorra íslendinga, sem að hálfu mótast af einstaklings- hyggju ffrelsi einstaklinga til at- hafna, eignar og skoðana] og að hálfu af jafnrétti [jafnstöðu] ein- staklinganna í samfélaginu. Það kemur heldur ekki á óvart, hve þjóð- ræknin er rík hjá íslendingum, fjöl- skylduböndin sterk eða hve vinnan vegur þungt í hugum þeirra, enda verðum við af ýmsum ástæðum að leggja harðar að okkur en grann- þjóðir til að tryggja sambærilega velferð. Það kemur raunar heldur ekki á óvart hvað trúin skipar háan sess í hugum íslendinga, en þrír fjórðu þeirra „segja að trúin veiti þeim huggun og styrk, sem eru mun fleiri en hjá öðrum þjóðum og miklu fleiri en á öðrum Norðurlöndum ..." I ljósi þes'sa veltir Víkveiji dagsins vöngum yfir því, að könnunin virðist benda til þess að Islendingar séu lítt kirkju- ræknir. „Aðeins 1% þjóðarinnar seg- ist fara í kirkju vikulega." Niðurstöður könnunarinnar benda til þess að mikill meiri- hluti íslendinga sé trúhneigður „en að mjög fáir sæki kirkju“. Með öðr- um orðum: íslendingar sýna lítt trú sína í verki, með hegðan sinni eða breytni, a.m.k. ekki í kirkjusókn. Einn þeirra, sem fyrir könnuninni stóð, segir að vísu um þetta efni: „Ef við tökum allar athafnir, sem tengjast trúmálum á íslandi, t.d. jarðarfarir, skímir, giftingar, gjafir til hjálparstarfs og svo framvegis og reiknum út meðaltalstíðni þessara athafna, fengjum við sennilega gott samræmi milli athafna og almennrar afstöðu til kirkjunnar. Það er hins vegar ekki hægt að taka einstaka athöfn á borð við kirkjusókn og leita að samræmi milli hennar og hins almenna viðhorfs." Þessi skýring er góð og gild, svo langt sem hún nær. Engu að síður hlýtur kirkjan að leita leiða til að örva kirkjusókn. Þegar grannt er gáð hefur nútímamaðurinn, sem býr við meiri eril, skarkala og streitu en áar hans, ríkulega þörf fyrir allt það, sem hefðbundin kirkjuleg guðs- þjónusta hefur upp á að bjóða. Islendingar hafa, þrátt fyrir mikla vinnusemi, fleiri frístundir en nokkru sinni fyrr. Fjölbreytni þess, sem þeim stendur til boða í tómstund- um, er og meira en nokkru sinni: tvær innlendar sjónvarpsstöðvar, auk fjölbreytts sjónvarpsefnis um gerfi- hnetti, fjöldi útvarpsstöðva, efnis- mikil dagblöð, tímarit, leikhús, félög af öllum gerðum, margs konar íþrótt- ir og „skemmtanir" af óteljandi toga. Samkeppnin um frístundir fólks er harðari en orð fá lýst. Þetta er með- al annars ástæða þess að þrengt hefur að hinu og þessu, sem áður fyrr var „daglegt brauð“ í lífi fólks, svo sem heimsóknir til vina og vanda- manna, spjall um daginn og veginn, lestur góðra bóka - og kirkjusókn. Meinta lélega kirkjusókn er ekki hægt að skrifa einhliða á presta og preláta eða forystumenn þjóðkirkju eða annarra trúfélaga. Fyrir kirkju- legu starfi fara margir mikilhæfir ágætismenn. Það er samt sem áður tímabært að virkja leikmenn betur en gert hefur verið í kirkjulegu starfi. Það þarf að styrkja „samkeppnis- stöðu“ kirkjunnar um hugi fólks. Ekki fyrst og fremst kirkjunnar vegna. Heldur vegna þess sem hún hefur að gefa einstaklingunum í háv- aða og erli samtímans.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.