Morgunblaðið - 22.09.1991, Page 25
MOEGUNBLÁÐIÐ VELVAKANDI SUNNUDÁÖUR 22.'SEPTEMBER 1991
C 25
Á FÖRNUM VEGI
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Risavaxin Boeing 757-þota Flugleiða var meðal flugvéla sem flaug
yfir sýningarsvæði Þyts, en Tigermouth-tvíþekja Hinriks Einarsson-
ar stendur í forgrunni ásamt fleiri flugmódelum sem flogið var á
sýningunni.
Lyfja-
kostnaður
Mikið hefur verið rætt og ritað
um nýju reglugerðina um lyfj-
akostnað. Ymsir kostir og gallar
komið fram. En einn er sá galli sem
virðist ekki hafa komið fram eða þá
það hefur farið fram hjá mér. Hann
er um fastagjaldið sem greitt er fyr-
ir hvern 60 daga lyfjaskammt. Þann-
ig er að ég tek inn blóðþrýstingslyf
og á að taka 1 töflu daglega. Pakka-
stærðirnar eru tvær, 98 stk. og 28
stk. Ég fékk uppáskrifað 98 stk.
pakka og taldi mig í sakleysi mínu
þurfa að greiða bara 850 kr. fyrir.
En annað kom á daginn. Ég átti að
greiða 1700 kr. Það voru nefnilega
38 stk. fram yfir 60 daga skammt,
sem sagt 850 kr. fyrir 60 stk.'og
850 kr. fyrir 38 stk. Mér fannst
hart að fá ekki fullan töfluskammt
fyrir seinni 850 kr. Ég spurði því
hvort hægt væri að fá uppáskrifað
2x60 daga skammt ef það kæmi
betur út. Var mér sagt að það væri
hægt og var nú farið að reikna út
hvað kæmi best. Var tekin til 1 stór
pakkning og 1 lítil, sem 126 stk. Þá
kom í ljós að komnar voru 6 töflur
fram yfir 2x60 daga skammt og þá
þyrfti ég að greiða þriðja gjaldið
fyrir þessar 6 töflur. Ekki var sá
kostur fýsilegur og var nú reiknað
aftur og þá 4 litlar pakkningar sem
gera 112 stk. Tapa ég þá 8 stk. sem
ég er í raun búin að greiða fyrir.
En þetta er það næsta sem ég kemst
að fá það sem ég greiði fyrir. Kannski
er þetta ekki mikið, en í mörgum
tilfellum munar áreiðanlega meira.
Þá er það spurning hvort þetta kall-
ar ekki á að apótekarar afgreiði ná-
kvæmlegan stykkjafjölda eftir fyrir-
mælum læknis? Eða á að sætta sig
við svona þjófnað? Mér verður hugs-
að til eldra fólksins sem hefur ekki
sinnu á því að biðja lækninn um
„hæfilegar" pakkningastærðir og
borgar því jafnvel fastagjald fyrir 1
töflu fram yfir 60 daga skammtinn.
Þetta verður að lagfæra.
Lára Guðmundsdóttir
Eiga tannréttingar að verða
forréttindi hinna efnameiri?
Er hægt að láta lögbundinn rétt
almennings til endurgreiðslu
á tannréttingakostnaði stranda á
því að Tryggingastofnun tekst ekki
að semja við tannlækna um eitt
eyðublað? Skortir ráðherra vald
eða skortir hann vilja til að leysa
deiluna? Almannatryggingalögin
segja að ráðherra geti ákveðið
sjálfur gjaldskrá, þegar samningar
eru ekki fyrir hendi eins og í þessu
tilviki. Eða er það kannski stefna
Alþýðuflokksins og heilbrigðisráð-
herra að tannréttingar verði aftur
forréttindi hinna ríku?
Faðir
Músíkleikfimin
hefst fimmtudaginn 26. september
Styrkjandi og liðkandi æfingar fyrir konur á
öllum aldri.
Byrjenda- og framhaldstímar.
Kennsla fer fram í íþróttahúsi Melaskóla.
Kennari Gígja Hermannsdóttir.
Upplýsingar og innritun í síma 13022 um
heigar og virka daga i sama síma eftir kl. 17.
t "
Rekstrarráógíöf
Stuðull hf. óskar eftir að ráða duglegan starfs-
kraft til ráðgjafastarfa. Fyrirtækið hefur starfað
að rekstrarráðgjöf um 5 ára skeið fyrir fjölda fyrir-
tækja og stofnana. I boði er fjölbreytt og krefj-
andi starf með góða framtíðarmöguleika.
Æskilegir eiginleikar umsækjanda:
- A.m.k. tveggja ára starfsreynsla.
- Staðgóð þekking í fjármálafræðum, markaðs-
fræðum og stefnumótun.
- Æskilegt er að umsækjandi hafi MBA próf.eða
sambærilega menntun.
- Þarf að geta unnið sjálfstætt.
Umsóknir skulu sendar til auglýsingadeildar Mbl.
fyrir 25. september merktar: „Stuðull - 14044“.
Upplýsingar verða ekki veittar í síma.
Umsækjendum er heitið fullum trúnaði.
SS3Si3SlSiSiSiSi2i2lSiSl
REKSTRARRÁÐGJÖF
Gisli S. Arason - Jóhann Magnússon
Leikfélag Akureyrar
leikárið 1991-1992:
Stálblóm
eftir Robert Harling.
Frumsýning 4. október.
Tjútt&tregi
söngleikur eftir Valgeir Skagfjörð.
Frumsýning 27. desember.
W
Islandsklukkan
eftir Halldór Laxness.
Frumsýning um miðjan mars.
Áskriftarkort á þessar 3 sýningar
aðeins 3.800 krónur.
Frumsýningakort 8.000 krónur
Sala áskriftarkorta og miðasala á
Stálblóm hefst þriðjudag 24. sept.
Miðasalan er opin í Samkomuhúsinu,
"’Hafnarstræti 57, Akureyri, alla daga
nema mánudaga frá kl. 14-18 þar til
sýningar hefjast.
Sími í miðasölu: (96) 24073.