Morgunblaðið - 22.09.1991, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 22.09.1991, Blaðsíða 26
26 C MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFNK) .SUNNUPAGUR 22. SEPTEMBER 1991 ÆSKUMYNDIN... ER AF SÉRA HEIMISTEINSSYNIÚTVARPSSTJÓRA DÁLÍTILL SPEKINGUR Hann var foringinn í hópnum og sljórnaði af röggsemi en aldrei hörku. Leikirnir einkenndust oft af því stríði sem háð var í útlöndum og menn nefndu heimsstyrjöldina hina siðari. Þegar ímynduðum flugvélaorustum lauk, tóku við hetju- dáðir Islendingasagnanna, þar sem snúrustaur- arnir voru vondu kallarnir en barnahópurinn allur í sigurliðinu. Heimir Steinsson nýskipaður útvarpsstjóri, er fæddur á Seyðisfirði 1. júlí 1937, sonurhjón- anna Amþrúðar Ingólfsdóttur og Steins Stefánssonar skólastjóra. Hann er elstur fimm systkina, yngri eru Iðunn og Kristín, rithöf- undar, Ingólfur, framhaldsskóla- kennari, og Stefán, læknir. „Þegar ég hugsa til baka, finnst mér hann hafa verið fullorðinsleg- ur krakki í sér. Móðurafi okkar var með búskap og Heimir var mikið hjá honum að snudda í bú- skapnum og ræða við gamla manninn. Hann var dálítill spek- ingur í sér, hann Heimir,“ segir Iðunn systir hans. Eins og spekingi sæmdi, gekk Heimi vel í skóla. Systur hans þótti hann teikna ákaflega vel auk þess sem hann var tónelskur. Kennari hans og síðar fermingar- faðir, séra Erlendur Sigmundsson, segir Heimi hafa verið afburða námsmann. Sérlega opinn fyrir öllu námi, en íslenskan hafi þó legið best fyrir honum. „Hann var hress piltur og gagnrýninn, vildi fá svör við spumingum og þá svör sem hann skildi. Þetta kom einna berlegast í ljós í fermingarundir- búningnum og var fremur óvana- legt. I kennslu minnist ég þess er ég lét hann lesa „Austurstræti“ eftir Tómas Guðmundsson. Hann hóf lesturinn og ég spyr hann hvort hann geti ekki lesið af örlít- ið meiri inhlifun. „Hvemig eigum við að lesa af innlifun um Austur- Sterkur; Heimir á fyrsta ári, steytir hnefana og er sterk- ur. Hann þótti skapmikill en skapgóður. liðið sá dagur að Heimir hafi ekki strítt yngri systkinum, ekki síst systrunum, sem vom honum næst- ar að aldri. „Hann átti það til að semja vísur um okkur og ein- hveija stráka og kyijaði þær svo yfir okkur. Þetta var prýðilega gerður kveðskapur, ein vísan um Kristínu systur endaði man ég á línunni „ætli það verði gaman“ og lengi eftir að Heimir samdi hana, þurfti hann ekki annað en að líta á hana og syngja „ætli það verði garnan" til að allt færi í háaloft." stræti þegar við höfum aldrei séð það,“ var þá svarið.“ Heimir þótti skapmikill en skemmtilegur, hafði ágæta frá- sagnargáfu. Séra Erlendur segist telja að Heimir hafí alltaf haft nokkuð góða sjálfsmynd, sem svo mikið sé talað um nú til dags að menn þurfi að hafa. „Það var grunnt á grallaranum í honum þó að við höfum báðir haldið fremur aftur af okkur, syn- ir skólastjóra og sýslumanns," segir æskuvinur Heimis, Jón Er- lendsson. Iðunn segir að vart hafi ÚR MYNDASAFNINU ÓlafurK. Magnússon Ein valdamesta kona heims Ein valdamesta kona heims, Golda Meir, sem þá var ut- anríkisráðherra ísraels, kom í heim- sókn til íslands í maímánuði 1961. Sem utanríkisráðherra hafði Golda Meir mikil áhrif á þró- un mála fyrir botni Miðjarðarhafs og áhrif hennar áttu eftir að vaxa mjög eftir að hún varð forsætisráðherra Israels á árunum 1969 til 1974. Hún fæddist í Kiev í Rússlandi 1898 en fjölskylda hennar átti erfitt uppdráttar í rússneska keisaradæminu og fluttist til Bandaríkjanna þegar Golda var átta ára og þar ólst hún upp. Hún helg- aði sig ung baráttunni fyrir endur- heimt hins forna ættlands síns og gekk í lið með Ben-Gurion, Ben-Ziv og fleiri baráttumönnum fyrir stofnun ísraelsríkiSj og hún sá draum sinn rætast. A meðan á dvöi hennar hér á lándi stóð ræddi hún við íslenska ráðamenn, heimsótti Þingvelli, eins og siður er þegar erlendir gestir-- sækja okkur heim, og í samtölum við blaðamenn Morg- unblaðsins kom fram að hún hreifst mjög af landi og þjóð. „Það kom mér á óvart hve hlýtt og byggilegt ísland er. Nafnið á landinu er hreinasta öfugmæli og ekki á það síður við um fólkið í landinu. íslend- ingar eru meira í ætt við hverina en jökulárnar. Hlýja íslendinga og gestrisni hefur yljað mér um hjartarætur," sagði hún. Golda Meir lést á sjúkrahúsi í Isra- el 8. desember 1978 og var bana- mein hennar blóðkrabbi. Myndimar eru hins vegar frá heimsókn hennar til íslands tæpum tuttugu árum áður. SVEITIN MIN ER... GAUL VERJABÆJARHREPPUR ÞANNIG... SPÁIR Þorleifshóll í landi Seljatungu, sumarhús Gunnars Sigurðssonar Sveitin mín sem var, og er að nokkru enn, er falleg sveit með friðsælt og farsælt yfirbragð, segir Gunnar Sigurðsson fyrrum bóndi í Seljatungu í Gaulverja- bæjarhreppi. Sveitin er í mínum huga merkust fyrir það, að þar er.gróandi í algleymi jafnt í efnahagslegu sem félagslegu tilliti. í Gaulveijabæjar- hreppi hefur í gegnum áratugina valið sér búsetu framkvæmdasamt og harðduglegt fólk, skilningsríkt um annarra hagi og félagslynt. Félagslyndi þess hefir verið kyndillinn undir bættum samgöng- um, bættum félagslegum skilyrðum hið ytra, styrkri stjórn fræðslukerf- is og virðingu fyrir kristnu safnað- arlífí. Allt þetta hefir verið uppistaða og ívaf hins daglega lífs í Gaulveija- bæjarhreppi í gegnum áratugina. Þetta er umhverfið sem ég, yngstur Gunnar Sigurðsson í átta systkina hópi, ólst upp í við frábæra umönnun forelra og urh- burðalyndra, elskulegra systkina. Minningin um sveitina mína get- ur þess vegna ekki verið öðruvísi en góð. Ekki síður fyrir það, að ég fékk sem fulltíða maður að taka þátt í sameiginlegu félagsstarfi og þroskandi athöfnum hins daglega starfs, eignast traust sveitunganna í einu og öðru sameiginlegu starfi °g 'eggja með því lítið lóð á skál minninganna um þá sem áður lögðu sig fram um íramfarir sveitarinnar. Þannig merla minningar þess sem í sextíu ár fékk að vera samof- inn hluti sveitar sinnar, en er nú með ítak í litlum bletti úr landi föð- urleifðarinnar, gistivinur sinnar heimabyggðar." Sesselja Jóns- dóttir í bolla „Það er nú aðallega yngra fólk, sem er að spá í einhvern af hinu kyninu, sem biður mig að líta í bollann sinn,“ segir Sesselja Jónsdóttir bóndi. í áratugi hefur hún spáð í bolla sveitunga, vina og ættingja en vill ekki að spádómarnir séu teknir of alvarlega, tekur enda ekki borgun fyrir. Þegar spá á í bolla verður að hafa nokkur atriði í huga. „Bollinn má helst ekki vera munstraður innan í og það er verra ef það er rönd í barminum, því þar kemur það fram, sem gerist í nánustu fram- tið. Bestu bollarnir eru hvítir og víkka örlítið upp því þá er betra að sjá ofan í þá. Kaffíð verður að vera frekar sterkt og best er að hella upp á, á gamla mát- ann. Þá er vatnið soðið og því hellt á kaffið. Ég hef alltaf notað gulan Braga en það er auðvitað í lagi að hella upp á Kaaber. Sá sem á að spá fyrir, drekkur kaffið svart og sykur- laust og nóg er að drukkið sé úr hálfum bolla. Síðan er hann lagður á volga hellu, ég læt fólk ekki snúa honum í hringi því þá er hætt við að kaffið renni úr bollanum. Verra er að það sé korgur í kaffínu, í gamla daga var reyndar sagt að hann táknaði biðil. Þegar ég spái, tek ég í haldið og byija þar, les bollann réttsælis. Fyrst skoða ég allan hringinn án þess að segja nokkuð og svo les ég bollann fyrir þann sem úr honum drakk. Mest er að marka það sem er næst haldinu, enda er það nánasta framtíð. Ég reyni að haga spádómnum ekki eftir þeim sem spáð er fyr- ir, heldur segi það sem mér dettur fyrst í hug, þó það virðist skringilegt. Þegar ég hef spáð hringinn lít ég í botninn, þar eru barneignir, giftingar og mannsand- Morgunblaðið/Kristjana „Bestu bollarnir eru hvítir og víkka örlítið upp því þá er betra að sjá ofan í þá,“ segir Sesselja." lit, en þau tákna t.d. fólk sem maður á eftir að kynnast. Það sem sést skýrast í bollum eru mannfagnaðir og ferðalög, fólk sem er nálægt þeim sem spáð er fyrir, t.d. mjög hrifíð eða snýr baki í viðkomandi. Á fólki í bolla sést oft háralitur, hæð og skapferli. Tákn- in hef ég ákveðið sjálf og svo fer ég mikið eftir tilfinn- ingunni þegar ég spái.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.