Morgunblaðið - 13.10.1991, Page 2
2 FRÉTTIR/INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 1991
EFNI
Boeing- 747-400 vél Lufthansa á Keflavíkurflugvelli í gærmorgun.
Keflavíkurflug-völlur:
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Farþegarnir reyndu að láta fara vel um sig í Leifsstöð.
Þota frá Lufthansa lenti vegna
gruns um eld í farangur srými
FLUGVÉL af gerðinni Boeing 747-400 frá þýska flugfélaginu
Lufthansa þurfti að nauðlenda á Keflavíkurvelli í gærmorgun
vegna gruns um að eldur væri laus í farangursrými vélarinnar.
Viðvörunarljós í stjórnklefa gáfu merki um eld í farangursrými
en síðar kom í ljós að enginn eldur var Iaus í vélinni.
Vélin var á leið frá Torontó í
Kanada til Frankfurt í Þýskalandi
og um borð voru 275 farþegar
auk 15 manna áhafnar. Með vél-
inni voru einnig um 30 nautgrip-
ir, 15 hross og talsvert af hænsn-
um.
Það var klukkan 4.25 sem til-
kynnt var um að eldur væri laus
í farangursrými vélarinnar og að
hún yrði að lenda í Keflavík. Allt
tiltækt slökkvilið vallarins var í
viðbragðsstöðu þegar vélin lenti
16 mínútur yfir fimm og einnig
var neyðaráætlun Almannavarna
sett í gang og lætur nærri að um
1.000 manns hafi verið í við-
bragðsstöðu.
Rannsókn stendur yfir en líkleg
skýring er talin vera að frá naut-
gripunum í framlestinni hafi kom-
ið iofttegundir sem komu eld-
skynjurunum af stað. Önnur vél
kom frá Frankfurt til að sækja
farþegana og flytja þá til síns
heima en á meðan var farið með
þá í skoðunarferð um Reykjanes.
Farþegar voru ekki ánægðir
með þá töf sem varð á ferð þeirra
vegna þessa. Þeir sögðust hafa
heyrt hávaða í nautgripunum og
töldu það stafa af því að áhöfnin
hafi sett sjálfvirkan slökkvibúnað
í farangursrýminu í gang og við
það hafi dýrin fælst. Sitwent Diol
frá Indlandi sagði að flugstjórinn
hefði tilkynnt að vélin yrði að
lenda vegna minniháttar bilunar
og þá hafi farþegar heyrt skruðn-
inga og læti úr lest vélarinnar.
„Það er slæmt að farþegar skuli
þurfa að lenda í vandræðum sem
þessum vegna dýra sem flutt eru
með sömu vél. Vélin var fullhlaðin
og flugfélagið virðist bara vera
að hugsa um að græða sem mest
á þessu flugi. Það er ekki verið
að hugsa um farþegana, og þetta
er örugglega í síðasta sinn sem
ég ferðast með Lufthansa,” sagði
hann.
Veiðitímabil að hefjast:
Talið að ijúpnastofninn
sé í algjöru lágmarki í ár
Rjúpnaveiðitímabilið hefst nk. þriðjudag, 15. október, og stend-
ur til 22. desember. Undanfarin ár hefur lítið verið um rjúpu víð-
ast hvar á landinu og talið er að í ár sé stofninn í algeru lág-
marki. Að sögn Ævars Petersens, fuglafræðings hjá Náttúrufræði-
stofnun íslands, má búast við að stofninn fari stækkandi á næsta
ári.
„Sveiflumar í ijúpnastofninum
eru nokkuð reglulegar og ekkert
séríslenskt fyrirbrigði heldur vel
þekkt á öllu norðurhveli jarðar
bæði hjá ijúpum, fuglum sem em
skyldir þeim svo og snæuglum og
litlum nagdýrum,” sagði Ævar
Petersen í samtali við Morgunblað-
ið.
Sveiflurnar virðast ekki vera
tengdar varpinu heldur breytist
stofnstærð fuglsins á haustmánuð-
um en að sögn Ævars hafa fugla-
fræðingar ekki tekið undir þær
hugmyndir að sveifiurnar tengist
ijúpnaveiðinni. „Það hefur verið
sýnt fram á það mjög skýrt að
veiðin hefur ekki áhrif á sveiflur í
stofnstærðinni. í kringum árið
1950 voru uppi hugmyndir um að
Patreksfj ör ður:
Ahaldahús-
in gerónýt
ÁHALDAHÚS Patrekshrepps
brunnu til kaldra kola á föstu-
dagskvöldið, en eldur kom upp í
húsunum um kl. 22.
Slökkvistarfi var lokið um kl. eitt
aðfaranótt laugardagsins og þá stóð
grindin ein eftir, _ allt annað var
brunnið. í húsinu voru geymd öll
áhöld sveitarfélagsins en vélar voru
geymdar annars staðar. Upptök
eldsins eru ókunn en málið er í rann-
sókn.________________
friða ijúpnastofninn með sérstök-
um lögum þar sem hann var þá í
mikilli lægð. Það var ekki gert og
fimm árum síðar var mjög mikil
veiði,” sagði Ævar. „Hitt er svo
annað mál að það getur fækkað
eða fjölgað í ijúpnastofninum sé
litið á landið í heild þó að þessar
sveifiur verði áfram. Þessu má ekki
rugla saman.”
Ævar segir að niðurstöður bendi
til að á sumum stöðum á landinu
hafi ijúpum fjölgað en fækkað ann-
ars staðar. „Ég tel að í tengslum
við þetta beri okkur að líta á land-
nýtingarmálin á viðkomandi svæð-
um. Rjúpur eru grasbítar og því
ekkert skrýtið þótt breytingar verði
á tjúpnastofninum ef gróðurbreyt-
ingar verða. Sé það rétt, eins og
margir telja, að það sé miklu minna
af ijúpu nú heldur en áður fyrr,
þá vaknar sú spurning hvort upp-
blástur og óhófleg landnýting séu
ekki skýringin,” sagði Ævar.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni í Borgarnesi hefur enn
ekkert borið á því að ijúpnaskyttur
séu byijaðar að veiða í leyfisleysi.
Að sögn Theódórs Þórðarsonar
varðstjóra er meiri hætta á að slíkt
gerist þegar veiðitímabil hefst í
fyrri hluta viku eins og nú er. „Við
slíkar kringumstæður verður meiri
freisting fyrir ijúpnaskyttur en ella
að halda til veiða helgina áður en
veiðitímabil hefst,” sagði Theódór.
Heiðar Jónsson, varðstjóri á Sel-
fossi, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að lögreglan þar hefði enn
ekki orðið vör við ijúpnaskyttur .
. Jlina yegar.hefuiiþað.færsL í vöxt.
á síðustu árum að bændur og aðrir
landeigendur kvarti yfir miklum
átroðningi ijúpnaskyttna eftir að
veiðar eru hafnar. Oft kemur fyrir
að stórir flokkar veiðimanna vaða
yfir lönd bænda án þess að spyija
kóng né prest og er slíkt mjög
hvimleitt. Ásóknin í ijúpnastofninn
hefur aukist mjög á síðustu árum
og tæknin í þessu hefur aukist að
sama skapi. Nú hika sumir veiði-
menn ekki við að nota fjórhjól og
Ari Kristins Gunnarsson.
Nafn manns-
ins sem lést
ÍSLENDINGURINN, sem talinn
er af í Himalajafjöllum í Nepal,
hét Ari Kristins Gunnarsson, til
heimilis að Hjallalundi 13 á Akur-
eyri. "
Ari var þijátíu ára gamall, sjó-
maður að atvinnu. Hann var jafn-
framt fær fjallgöngumaður, og hafði
meðal annars klifið Mont Blanc og
ýmsa tinda í Alpafjöllum. Hann læt-
. uc eftir-sig-ivo-unga-sypi.--
snjósleða við veiðarnar ásamt þjálf-
uðum hundum. Mér finnst slíkar
aðferðir villimannslegar og þegar
svo er komið í þessum veiðum er
harla litið eftir af sportmennsk-
unni,” sagði Heiðar að lokum.
Dómsmálaráðherra:
Athugað með
nýtt hús fyr-
ir Hæstarétt
ÞORSTEINN Pálsson dómsmála-
ráðherra skipaði á fimmtudag
nefnd til að gera tillögur um fram-
tíðarlausn í húsnæðismálum Hæst-
aréttar íslands. Hún skal huga að
því hvort safnahúsið við Hverfis-
götu, í heild eða að hluta, geti
hentað Hæstarétti en aðrir kostir
skulu einnig athugaðir, þ.á.m.
bygKing nýs húss.
Ráðherra greindi frá þessu í ávarpi
á dómaraþingi á fimmtudag og sagði
þá jafnframt að dómhús Hæstaréttar
við Lindargötu gæti alls ekki talist
viðunandi fyrir æðsta dómstól þjóð-
arinnar, „svo ekki sé tekið dýpra í
árinni,” sagði ráðherra.
Auk Guðrúnar Erlendsdóttur, for-
seta Hæstaréttar, sitja í nefnd þeirri
sem dómsmálaráðherra skipaði,
ráðuneytisstjórarnir Þorsteinn Geirs-
son, dómsmálaráðuneyti, Knútur
Hallsson, menntamálaráðuneyti,
Magnús Pétursson, fjármálaráðu-
neyti og Björn Friðfinnsson, viðskipt-
aráðuneyti og Garðar Halldórsson
húsameistari ríkisins, tilnefndur af
forsætisráðuneyti. Þess er vænst að
-nefndin ljúki- störfum fyrir árslok:
Reynt að koma bönd-
um á húsbréfin
►Um 33 milljarðar hafa farið út
á markaðinn á þremur árum og
varlega áætlað fara um 1,5 millj-
arðar af húsbréfalánum í aðra
neyslu en íbúðarkaup í ár /10
IMú tala þeir um Tóm-
asson
►Helgi Tómasson brá sér hingað
heim á Frón eftir glæsta för með
San Francisco-ballett sinn til New
York í sl. viku, þar sem hann heill-
aði gagnrýnendur háborgar lists-
dansins upp úr skónum. Hér segir
Helgi frá því hveiju þetta breytir
fyrir hann og dansflokkinn/12
Við verðum að nauð-
hemla
►Einar Oddur Kristjánsson, for-
maður Vinnuveitendasambands-
ins, segir raunveruleikann nógu
sótsvartan — VSÍ þurfí ekki að
mála skrattann á vegginn /14
Kasparov er lýðskr-
umari
►Svo mælir keppinautur hans
Anatólíj Karpov, hagfræðingur,
þingmaður og frímerkjasafnari en
fyrst og fremst skáksnillingur sem
sýnir engin elliglöp á því sviði /16
Bheimili/
FASTEIGNIR
► 1-28
Þörf fyrir meira versl-
unarrými í miðbænum
►MiðbærHafnarfjarðar hf. undir-
býr byggingu verslunarmiðstöðvar
/14
Vettvangur næturlífs-
ins
►Slegist í för með húshóp ung-
mennahreyfíngar Rauða krossins
um miðbæinn þegarunglingamir
ráða þarríkjum/1
Af fjölunum í fiskinn
►Leikarinn og kvikmyndaleik-
stjórinn Zeljko Vukmiricaer
þekktur maður í tilraunaleikhúsi
heimalands sín, Júgóslavíu, og víð-
ar í Evrópu. Hann er nú landflótta
og vinnur í físki á Flateyri /6
Forfaðir fundinn
►Einn merkasti fornleifafundur
síðari ára er bronsaldarmaðurinn
sem hvílt hafði um 4000 ára skeið
í Ölpunum og vísindamenn telja
að veitt geti ómetanlega innsýn í
líf forfeðra okkar /12
Komdu, Georg við er-
um að fara
►Nú eru liðin fimm ár frá leið-
togafundi Reagans og Gorbatsjovs
í Reykjavík. Hér er frásögn banda-
rísks blaðamanns af Höfðafundin-
um, byggð á ítarlegum rannsókn-
um og hundruðum viðtala við þá
sem þar komu við sögu /14
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak Útvarp/sjónvarp 32
Dagbók 8 Mannlífsstr. 8c
Hugvekja 9 Fjölmiðlar 18c
Leiðari 18 Kvikmyndir 20c
Helgispjall 18 Dægurtónlist 21c
Reykjavíkurbréf 18 Minningar 24c
Myndasógur 20 Bíó/dans 26c
Brids 20 A fomum vegi 28c
Stjörnuspá 20 Velvakandi 28c
Skák 20 Samsafnið 30c
Fólk í fréttum ' 30
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-6-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1-4