Morgunblaðið - 13.10.1991, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ ATVININIA/RAÐ/SMÁ SUNNUDAGUR 43. OKTÓBER 1991 25
ATVINNUA UGL ÝSINGAR
Starfskraftur óskast
strax við frágang og fleira.
Vinnutími kl. 8.00-16.00. Stundvísi áskilin.
Upplýsingar á staðnum.
Þvottahúsið Grýta,
Borgartúni 27.
RÍKISSPÍTALAR
Reyklaus vinnustaður
Geðdeild Landspítala
Hjúkrunarfræðingar
Staða hjúkrunarfræðings á deild 12, mót-
tökudeild á Kleppsspítala, er laus til umsókn-
ar. Starfshlutfall geturverið samkomulagsat-
riði. Gott barnaheimili á staðnum. Hjúkrunar-
fræðingar í 100% starfi geta sótt um hús-
næði á lóðinni á góðum kjörum.
Nánari upplýsingar veitir Margrét Sæmunds-
dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri í síma
602600.
Sölustjóri
prentiðnaður
Heildverslun í borginni, óskar að ráða sölu-
stjóra til starfa. Starfið er laust fljótlega.
Starfssvið: Sala, kynning og markaðssetn-
ing á grafískum Ijósmyndavörum fyrir
prentiðnaðinn, ásamt þeirri kennslu og
leiðbeiningarstarfi sem fylgir.
Viðkomandi skipuleggur sölu og pantanir og
hefur samskipti við erlenda viðskiptaaðila,
ásamt almennri þjónustu við viðskiptavini
fyrirtækisins. Leitað er að kröftugum og
áhugasömum starfsmanni með menntun,
sem hentar þessari atvinnugrein. Reynsla
í sölumennsku er æskileg, enskukunnátta
er nauðsynleg. Starfinu fylgja ferðalög er-
lendis.
Farið verður með allar fyrirspurnir sem trún-
aðarmál. Góð laun í boði ásamt góðri og
þægilegri vinnuaðstöðu.'
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
fást á skrifstofu okkar til 20. okt. nk.
QuðntIónsson
RÁÐCJÖF & RÁÐNI NCAR-ÞJÓNUSTA
TJARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI 62 13 22
Hásölulaun
Viljum ráða gott sölufólk til farandsölu á
bókum. Há sölulaun. Aldurslágmark 20 ár.
Upplýsingar gefur Kristján í síma 689938
milli kl. 10 og 12 virka daga.
Bókaforlagið Lífog saga.
Sölustarf
Óskum eftir sölu- og afgreiðslumanni á bif-
reiðavarahlutum. Við leitum að aðila með
góða framkomu og samstarfshæfni sem
getur unnið sjálfstætt og skipulega. Þekking
og reynsla á sviði bifreiða æskileg.
Frekari upplýsingar veita Ásgeir Þórðarson
eða Ásmundur Guðnason. Farið verður með
umsóknir sem trúnaðarmál.
Skriflegar umsóknir sem greina aldur mennt-
un og fyrri störf, sendist til B. Ormsson,
Lágmúla 9, pósthólf 8760, 128 Reykjavík
fyrir 18. október 1991.
BRÆÐURNIR
(©) OKMSSON HF
Lágmúla 8 — 9
LANDSPÍTALINN
Reyklaus vinnustaður
Aðstoðarlæknar á
Barnaspítala Hringsins
Tvær stöður aðstoðarJækna á barnadeild eru
lausar til umsóknar. Ráðningartímabil er frá
1.2. '92 til 31.7. '92.
Um er á ræða 100% starfshlutfall við almenn
störf aðstoðarlæknis, þátttöku í vöktum sam-
kvæmt fyrirfram gerðri áætlun og bundnar
vaktir.
Umsóknir skulu berast forstöðulækni á eyðu-
blöðum lækna ásamt Ijósriti af prófskírteini
og upplýsingum um starfsferil ásamt stað-
festingu yfirmanna.
Umsóknarfrestur er til 15. nóvember.
Upplýsingar veitir Víkingur H. Arnórsson í
síma 601050.
Sérhæfður aðstoðarmaður
Staða sérfræðings (barnalæknis) á Barna-
spítala Hringsins, LSP, er laus til umsóknar
frá og með 1. janúar 1992.
Æskilegt er að umsækjandi hafi sérhæft sig
á einhverju þrengra sviði innan barnalæknis-
fræðinnar (undirsérgrein).
í starfinu felst að auk lækninga leggi viðkom-
andi stund á rannsóknir og taki þátt í kennslu
(grunnnám lækna - framhaldsnám) eftir því
sem um er beðið af forstöðulækni/prófess-
or. Verður starfshæfni umsækjenda metin
m.a. með tilliti til þessa.
Gera skal sérstakan ráðningarsamning við
þann er stöðuna hýtur þar sem m.a. verði
tekið fram um daglega viðveru, vaktir og
yfirvinnu, leyfi til starfa utan spítalans og
annað sem aðilum þykir máli skipta (sbr.
ákvæði í kjarasamningum lækna).
Nákvæma greinargerð um nám og störf
(curriculum vitae) sendist á eyðublöðum
lækna ásamt tilheyrandi vottorðum, lista yfir
ritverk o.s.frv. til stjórnarnefndar Ríkisspítala,
Rauðarárstíg 31, 105 Reykjavík fyrir 10. nóv-
ember nk.
Nánari upplýsingar veitir Víkingur H. Arnórs-
son, prófessor í síma 601050.
Deildarmeinatæknir
Deildarmeinatæknir óskast í fullt starf á
kvennadeild Landspítalans frá 1. desember.
Um er að ræða dagvinnu á göngudeild en
starfsvettvangur er m.a. mæðraskoðun.
Upplýsingar veitir Guðrún Þór, deildarstjóri
á göngudeild, í síma 601100 eða 601102.
Umsóknarfrestur er til 15. nóvember.
Læknaritari
Læknaritari óskast til starfa á handlækn-
ingadeild í fullt starf (vinnutími frá kl. 8.00-
16.00). Fáist ekki læknaritari kemur til greina
að ráða manneskju sem hefur gott vald á
íslensku og góða reynslu í vélritun, bréfa-
skriftum á ensku og einu Norðurlandamáli.
Umsóknir sendist til skrifstofustjóra hand-
lækningadeildar sem veitir upplýsingar í síma
601332.
Umsóknarfrestur er til 28. október 1991.
Félagsráðgjafi
Staða félagsráðgjafa við barna- og unglinga-
geðdeild Landspítalans er laus til umsóknar
til eins árs. Áskilin er menntun félagsráð-
gjafa og starfsreynsla er æskileg.
Upplýsingar skal senda til Sigurrósar Sigurð-
ardóttur, yfirfélagsráðgjafa geðdeildar
Landspítalans.
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarfræðingur óskast á fastar nætur-
vaktir á lyflækningadeild 11-A. Um er að
ræða 16 rúma lyflækningadeild með aðal-
áherslu á hjúkrun sjúklinga með meltingar-
færa-, lungna-, innkirtla- og smitsjúkdóma.
Upplýsingar gefa Halldóra Kristjánsdóttir,
deildarstjóri, sími 601230 og, Hrund Sch.
Thorsteinsson, hjúkrunarframkvæmdastjóri,
sími 601290/6901300.
Hjúkrunarfræðingar -
krabbameinslækningadeild
Staða hjúkrunarfræðings er nú laus til um-
sóknar. Nú er því kjörið tækifæri fyrir áhuga-
saman hjúkrunarfræðing að koma og starfa
á lyf- og krabbameinslækningadeild 11-E.
Unnið er fjórðu hverja helgi. Ýmiss konar
vaktafyrirkomulag kemur til greina. Nám-
skeið um hjúkrun krabbameinssjúklinga
hefst í okt./nóv.
Nánari upplýsingar veita Þórunn Sævars-
dóttir, hjúkrunardeildarstjóri, sími 601225
og Elín J. Hafsteinsdóttir, hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri í símum 601290 og 601300.
Vanur sölumaður
Óskum að ráða sölumann til starfa hjá stóru
innflutningsfyrirtæki í Reykjavík.
Traust fyrirtæki.
Við leitum að manni með reynslu af sjálf-
stæðri sölumennsku. Einhver efnafræði-
þekking ásamt góðri ensku- og dönskukunn-
áttu nauðsynleg.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðublöð-
um sem liggja frammi á skrifstofu okkar merkt-
ar: „Sölumaður - 523“ fyrir 17. október nk.
Tölvudeild
Óskum að ráða deildarstjóra tölvudeiJdar -
hjá stóru, sérhæfðu þjónustufyrirtæki. Sjálf-
stætt starf.
Við leitum að manni til að annast krefjandi .
ábyrgðar- og stjórnunarstarf í faglegu um-
hverfi.
Nauðsynlegir kostir:
★ Reynsla í stjórnun starfsfólks og verk-
efna.
★ Reynsla í þarfagreiningu og kerfishönnun.
★ Kunnátta og reynsla í AS/400 umhverfi.
★ Kunnátta og reynsla í PC umhverfi.
★ Málakunnátta fyrir erlend samskipti.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Farið verður með allar fyrirspurnir og
umsóknir sem trúnaðarmál.
Vinsamlegas sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf., merkt-
ar: „Tölvudeild 384“, fyrir 16. október nk.
Hasva ngurhf
Grensásvegi 13 Reykjavík 1 Slmi 813666 CJm Ráðningarþjónusta J Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir j
Hagyangur hf
Grensásvegi 13
Reykjavík
Sími 813666
Ráðningarþjónusta
Rekstrarráðgjöf
Skoðanakannanir