Morgunblaðið - 13.10.1991, Qupperneq 27
A.
MORGUNBLAÐIÐ
ATVIISINA/RAÐ/SMÁ sunnudagúr 13. OKTÓBER 1991
27
AUGLYSINGAR
RALA
Fóðurfræðingar, búfræðikandidat-
ar, dýralæknar og líffræðingar,
takið eftir! >
Rannsóknastofnun landbúnaðarins auglýsir
eftir sérfæðingi á Tilraunástöðina á Möðru-
völlum í Hörgárdal. Aðalviðfangsefni verða
fóðurtilraunir með nautgripi. Æskilegt er að
viðkomandi hafi framhaldsmenritun í fóður-
fræði eða skyldum greinum. Skriflegar um-
sóknir skulu berast Rannsóknastofnun land-
búnaðarins, Keldnaholti, 112 Reykjavík eigi
síðar en 15. nóvember.
Nánari upplýsingar gefa Þóroddur Sveins-
son, tilraunastjóri, Tilraunastöðvarinnar á
Möðruvöllum í síma 96-24477 og Þorsteinn
Tómasson, forstjóri, í síma 91-812230.
Hótel ísland
veitingasalir
Óskum að ráða hresst og ábyggilegt starfs-
fólk í eftirtalin störf:
1. Framreiðslumenn og framreiðslunema.
2. Aðstoðarfólk í sal og á bari.
3. Starfskraft í uppvask.
4. Starfskraft í þvottahús.
5. Næturvörð.
Upplýsingar á staðnum í dag sunnudag frá
kl. 15-18.
Arnól hf.,
HOF
ijLl
Afgreiðslustörf
HAGKAUP óskar eftir að ráða starfsfólk í
eftirtalin störf í sérvöruverslun fyrirtækisins
í Kringlúnni:
Afgreiðsla á kassa. Heilsdagsstörf.
Afgreiðsla ídömudeild. Hlutastarf eftirhádegi.
Afgreiðsla í barnadeild. Hlutastarf eftir hádegi.
Afgreiðsla í skódeild. Hlutastarf eftir hádegi.
Nánari upplýsingar um störfin veitir verslun-
arstjóri á staðnum (ekki í síma).
HA6KAUP
KENNSLA
Hjónanámskeið í Skálholti
á vegum Fjölskylduþjónustu kirkjunnar
Fyrirhugað er að halda hjónanámskeið í Skál-
holti dagana 1.-3. nóvember nk.
Námskeiðið er einkum hugsað fyrir ung hjón
og er markmiðið að efla og styrkja samband
hjónanna með fræðslu, samtali og samveru
með öðrum hjónum. Aðeins 9 hjón komast
að. Aðalleiðbeinandi námskeiðsins verður
sr. Þorvaldur Karl Helgason, forstöðumaður
Fjölskylduþjónustu kirkjunnar.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
stofnunarinnar kl. 9.00-12.00.
Fjölskylduþjónusta kirkjunnar,
Laugavegi 13, 101 Reykjavík,
sími 623600.
FIS K VINNSLU SKOLINN
Saltfiskmatsnámskeið
Fiskvinnsluskólinn mun halda saltfiskmats-
námskeið dagana 18.-23. nóvember í húsa-
kynnum skólans á Hvaleyrarbraut 13, Hafn-
arfirði.
Þátttakendur skulu vera eldri en 22 ára og
hafa starfað við saltfiskvinnslu í a.m.k. 3 ár
á síðastliðnum 5 árum.
Fiskvinnsluvélanámskeið
Fiskvinnsluskólinn og Baaderþjónustan
gangast fyrir eftirfarandi námskeiðum:
Flökunarvélanámskeið: B-189, B-51, B-161
og B-424 (frystitogarar),
1. 4.-8. nóvember
2. 18.-22. nóvember
3. 25.-29. nóvember
Flökunarvélanámskeið: B-189, B-51 o.fl.
(frystihús)
1. 11.-15. nóvember
Flatningsvélanámskeið: B-440 o.fl. (saltfisk-
verkunarstöðvar)
1. 3.-5. desember
Námskeiðin verða haldin í húsakynnum Fisk-
vinnsluskólans á Hvaleyrarbraut 13, Hafnar-
firði.
Þátttakendur skulu hafa starfsreynslu við
Baadervélar.
Þátttaka tilkynnist í síma fyrir 1. nóvember nk.
Skólastjóri.
FUNDIR - MANNFA GNAÐUR
Aðalfundur
landsamtaka heimavinnandi fólks
verður haldin í Gerðubergi laugardaginn 26.
október nk. kl. 17. að lokinni ráðstefnu sam-
takanna.
Fundarefni:
venjuleg aðalfundarstörf,
önnur mál, ~~ Stjórnin
TILKYNNINGAR
Hafnarborg - vinnustofa
Vinnustofan í Hafnarborg, menningar- og
listastofnUN Hafnarfjarðar, er laus til afnota
fyrir listamenn frá 1. nóvember 1991 til loka
apríl 1992.
Umsóknir þurfa að berast á skrifstofu Hafn-
arborgar fyrir 20. október nk.
Stjórn Hafnarborgar.
Menntamálaráðuneytið
Styrkir til háskólanáms f
Noregi og Svíþjóð
1. Norsk stjórnvöld hafa tilkynnt að þau
bjóði fram í löndum, sem aðild eiga að
Evrópuráðinu fimm styrki til framhalds-
náms við háskóla í Noregi skólaárið
1992-93. Ekki er vitað fyrirfram, hvort
einhver þessara styrkja muni koma í hlut
íslendinga. Umsóknir skal senda til: Norg-
es allmennvitenskapelige forskningsrád,
Sandakerveien 99, N-0483 Oslo 4, fyrir
1. mars n.k., og lætur sú stofnun í té
umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar.
2. Sænsk stjórnvöld bjóða fram nokkra
styrki handa erlendum námsmönnum til
að stunda nám í Svíþjóð námsárið
1992-93. Styrkir þessir eru boðnir fram
í mörgum löndum og eru öðru fremur
ætlaðir til náms, sem eingöngu er unnt
að leggja stund á í Svíþjóð. Sérstök at-
hygli er vakin á því að umsækjendur þurfa
að hafa tryggt sér námsvist við sænska
stofnun áður en þeir senda inn umsókn.
Styrkfjárhæðin er 6.440 s.kr. á mánuði
námsárið, þ.e. í 9 mánuði. Til greina kem-
ur að styrkur verði veittur í allt að þrjú
ár. Umsóknir um styrkina skulu sendar
til Svenska Institutet, Enhetenför utbildn-
ings- och forskningsutbyte, box 7434,
S-10391 Stockholm, og lætur sú stofnun
í té tilskilin umsóknareyðublöð fram til
1. desember n.k.
Menntamálaráðuneytið,
11. október 1991.
Auglýsing
frá fjárlaganefnd Alþingis:
Viðtalstímar nefndarinnar
Fjárlaganefnd Alþingis veitir nú eins og undan-
farin ár viðtöku erindum frá stofnunum, félög-
um, samtökum og einstakiingum er varða fjár-
lög ársins 1991.
Fjárlaganefnd gefur þeim aðilum, sem vilja
fylgja erindum sínum eftir með viðræðum við
nefndina kost á að eiga fundi með nefndinni
á tímabilinu 6. til og með 21. nóvember nk.
Þeir sem óska eftir að ganga á fund nefndar-
innar skulu hafa samband í síma 91-624099
eigi síðar en föstudaginn 1. nóvember nk.
Því miður gefst ekki tími til þess að sinna
viðtalsbeiðnum, sem fram kunna að koma
síðar en að veita viðtöl utan þess tíma, sem
að framan greinir.
Menntamálaráðuneytið
Styrkir til háskólanáms í
Noregi og Þýskalandi
1. Norsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa
íslenskum stúdent eða kandídat til há-
skólanáms í Noregi námsárið 1992-93.
Styrktímabilið er níu mánuðir frá 1. sept-
ember 1992. Til greina kemur að skipta
styrknum ef henta þykir. Styrkurinn nem-
ur um 5.300 n.kr. á mánuði. Umsækjend-
ur skulu vera ungri en 35 ára og hafa
stundað háskólanám í a.m.k. 2 ár.
2. Þýska sendiráðið í Reykjavík hefur til-
kynnt íslenskum stjórnvöldum að boðnir
væru fram eftirtaldir styrkir handa íslend-
ingum til náms og rannsóknastarfa í
Þýskalandi á námsárinu 1992-93:
a) Fjórir styrkir til háskólanáms. Umsækj-
endur skulu hafa lokið a.m.k. tveggja
ára háskólanámi.
b) Nokkrir styrkir til að sækja þýskun-
ámskeið sumarið 1992. Umsækjendur
skulu vera komnir nokkuð áleiðis í
háskólanámi og leggja stund á nám í
öðrum greinum en þýsku. Einnig þurfa
þeir að hafa góða undirstöðukunnáttu
í þýskri tungu.
c) Nokkrir styrkir til vísindamanna til
námsdvalar og rannsóknastarfa um
allt að sex mánaða skeið.
Nánari upplýsingar um styrkina, svo og
umsóknareyðublöð, fást í menntamálaráðu-
neytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík.
Umsóknum skal skilað í ráðuneytið fyrir 15.
nóvember nk. um þýsku styrkina, en 1. des-
ember nk. um norska styrkinn.
Menntamálaráðuneytið,
11. október 1991.
r* -